Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Side 8
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 7. JUNI1982. VANTA£n FRAMRUÐU? L ^AthThvort við getum aðstoðað. ísetningar ú staðnum. bílrúðan PRJÓNAGARN Hannyrðavörur í úrvali. Smyrna, tilbúnir dúkar og löberar. Gjörið svo vel að líta inn. Sjón er sögu rikari. Sendum í póstkröfu daglega. Hof ^ Ingólfsstræti 1 (gegnt Gamla blói). Sími 16764. Læríð að fíjúga GOÐAR VELAR Skemmtilegt sport fyrir alla. Leitiö upplýsinga í síma 28970. Reykjavíkurflugvelli Skerjafjarflarmegin TILKYNNING FRÁ HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS Með skírskotun til 43. gr. laga nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun ríkisins er því hér með beint til sveitarstjórna sem hyggjast hefja byggingu verkamannabústaða á árinu 1983 að senda um það tilkynningar til Húsnæðis- stofnunar ríkisins fyrir Lágústnk. Að því er undirbúning að umræddum byggingarframkvæmdum varðar vísast til 39., 40., 41., 42., og 43. gr. laga nr. 51/1980 og 6., 7., og 8. gr. reglugerðar nr. 527/1980. ^□Húsnæðisstofnun rikisins Útlönd Útlönd Útlönd Lokaátakanna beðið á Falklandseyjum: Bretar undirbúa „djarfa áætlun" Bretar eru nú sagðir vinna að djarfri áætlun er ætluð sé til að binda enda á átökin á Falklandsey jum. Að sögn Michaels Nicholsons, fréttamanns ITN-fréttastofunnar á eyjunum, hafa hernaöarátök á eyjun- um verið meö minnsta móti að undan- fömu, ekki sízt vegna slæms veðurs. En hann bætti við: ,,Nú er unnið að hernaöaráætlun sem ég get aðeins lýst sem óvenju djarfri .. . sem mun næstum örugglega, ef hún heppnast, færa okkur nær endalokum þessarar styrjaldar.” Hann greindi ekki frekar frá áætluninni, sagöi aö þaö væri ekki unnt fyrr enhúnhefðiveriðframkvæmd. Mikill ósigur Helmut Schmidts Helmut Schmidt, kanslari Vestur- Þýzkalands, beið mikinn persónulegan ósigur í gær er flokkur hans, Jafnað- armannaflokkurinn, beið ósigur I kosningum í heimabæ hans.Hamborg. Kristilegir demókratar unnu mikinn sigur í kosningunum og eru nú í fyrsta sinn stærsti flokkurinn í Hamborg. Kristilegir hlutu 43,2 prósent atkvæða og 56 sæti í borgarstjóminni. Jafnaðar- menn, sem áður höfðu hreinan meiri- hluta, fengu nú 42,8 prósent atkvæða og 55 sæti. 50 þúsund drepnir af sandinistum — segir stjórnarand- staðan íNigaragúa Eden Pastora, einn af foringjum stjómarandstöðunnar í Nicaragua, sagði við fréttamann Reuters síðastlið- inn föstudag aö 50.000 manns heföu verið drepin af sandinista stjóminni síðan hún tók við völdum fyrir 2 áram. Pastora var aðstoðarvarnarmálaráð- herra sandinista þar til hann sagði af sér á síðasta ári. Pastora er betur þekktur undir nafninu „Zeró” frá því hann stjómaði töku þinghússins í Managua fyrir nokkram árum. Hann hefur nú verið valinn foringi stjórnar- andstööunnar. Hann segir aö ef stjóm- arandstaðan komist til valda þá muni hún kalla til kosninga innan 6 mánaða. Hann yrði bráðabirgðaforseti og yfir- maður hersins. Fréttin hefur verið túlkuð á þá leið að sérþjálfaöar úrvalshersveitir Breta séu þegar innan víglínu Argentínu- manna og undirbúi þar lokaorrastuna. Urvalssveitir SAS hafa á öllum stigum Falklandseyjastyrjaldarinnar sagðir hafá komið mjög við sögu og Bardagar í Afganistan eru nú sagðir meiri en nokkra sinni áður í þeirri styrjöld sem geisaö hefur í landinu síðastliöna þrjátíu mánuði. Pakistanir búast enda við auknum flóttamanna- straumi frá Afganistan á næstunni að því er heimildir innan pakistanska hersins skýrðu frá um helgina. Utvarpið í Kabúl greindi frá því á undirbúið aliar stærri árásir brezku hersveitanna. Brezka stjórnin staðfesti i gær fréttir þess efnis að þrjú þúsund manna herlið er komið heföi meö Queen Elisabeth annarri hefði nú bætzt í hóp þeirra fimm þúsund brezku her- manna semfyrir væra á eyjunum. laugardagskvöld að 176 uppreisnar- menn heföu verið felldir í bardögum er átt hefðu sér stað í Herat-héraði. Ott- azt er að sex útlendingar, læknar og blaðamenn er ferðazt hafa með skæru- liöum að undanfömu kunni að hafa látið lífið. Bardagarnir era sagðir hafa færzt mjög í aukana síöastliönar þrjár vikur. Argentinsku hers veitirnar í Port Stanley bíða nú lokaárásar Bretanna. Talið er að úrvalssveitir brezka herslns, SAS, séu þegar bman víglínu Argentínumanna og undirbúí lokaárásina. Auknir bardag- ar iAfganistan ■— búizt við miklum f lóttamannastraumi þaðan á næstunni Sovétríkin: Sjálfstæð friðar- hreyfing stofnuð Hópur Rússa kallaði vestræna blaðamenn á sinn fund síðastliðinn föstudag til að tilkynna stofnun fyrstu sjálfstæðu friöarhreyfingar þar í landi. 11-menningamir kváðust ekki vera andófsmenn og sögöust trúa á friðarvilja sovézkra stjóm- valda. Þeir sögöu að sú friðar- hreyfing, sem til staðar væri í Sovét- ríkjunum væri handbendi kommúnistaflokksins. Tími væri kominn til að hinir almennu borgar- ar létu til sín heyra um þessi mál. Hópurinn er aöallega skipaður menntamönnum, raunvísindamönn- um, svo og listamönnum. Þeir kveðast hafa sent Brésnef forseta bréf og látið í ljós óskir um að fá aö hleypa af stokkunum undirskrifta- söfnun með áskoran til stjórnvalda og almennings í Sovétríkjunum og Bandaríkjunum. Þeir létu í ljós vonir um að ná sambandi við sjálfstæðar friðarhreyfingar í Ungverjalandi og A-Þýzkalandi. Og ekki síður mikil- vægt töldu þeir að hefja samstarf viö samsvarandi hreyfingar í Banda- ríkjunum. Hópurinn hefur hannað merki fyrir sig sem er blanda af merki vestrænna friðarsinna. Bannið sprengjuna, og tákni sovézkrar friðarhreyfingar sem er hvítdúfa. Fazle Haq, liðsstjóri í her Pakistans á landamærunum við Afganistan, sagðist reikna með að 800 þúsund flóttamenn myndu koma til Pakistan á næstu mánuöum. Fyrir í landinu eru þegar 2,7 milljónir flóttamanna frá Af- ganistan. Bandaríkin: Mesta atvinnu- leysi í 41 ár Fjöldi atvinnuleysingja í Bandaríkj- unum í maímánuði var 9,5% af vinnu- færa fólki eða tíu og hálf milljón. Það þarf að fara aftur til ársins 1941 til aö finna hærri tölu, en þá voru 9,9% vinnufærra manna atvinnulaus. Tals- menn atvinnumálaráðuneytisins í Washington sögðu þó að útlitið væri bjartara. Bjuggust þeir við því að ástandið myndi skána í kjölfar skatta- lækkana sem koma til framkvæmda í júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.