Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1982, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR15. OKTOBER1982.
21
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina
Helgi Vilberg, hluti af listamönnunum sjö
man þá eru tvsr myndir ef tir Einar
DV-mynd: Bj.Bj.
igar sýna
ðum
niandi aöferöir og viöfangsefni, bæði
ilverk, vatnslitamyndir, teikningar, skúlp-
'a og þrívíð nýlistaverk.
.istamennirnir hafa aUir starfaö á Akur-
ri. Sumir eru innfæddir, aörir aðfluttir og
j þeir á misjöfnum aldri. Sá elsti fæddur
!2 og sá yngsti 1951. Það verður eflaust for-
nilegt fyrir Reykvíkinga aö sjá þessa sam-
lingu Norölendinga. -gb.
Nicholas Ray leikstjóri Hinna losta-
fuUu.
Hinir
losta-
fullu
íFjala-
kettinum
Um helgina verður í Fjala-
kettinum kvikmyndin Hinir losta-
fuUu (The Lusty Men) eftir Nicholas
Ray. Hún fjaUar um ródeókappa og
aUt þaö sem þessari hættulegu íþrótt
fylgir. Robert Mitchum leikur aöal-
hlutverkið.
Nicholas Ray lést ekki aUs fyrir
löngu og er þaö mörgum í fersku
minni vegna kvikmyndarinnar sem
Wim Wenders geröi um dauðastríð
hans, Nick’s Movie. Ray, sem fædd-
ist í W isconsin, var bæði þekktur sem
kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur.
Hann gerði meöal annars kvikmynd-
ina Rebel without a Cause með
James Dean í aöaUilutverki. -gb.
Bók vikunnar: — Lífið á jörðinni
Bók sem sameinar
fróðleik ogskemmtun
Fáir sjónvarpsþættir hafa vakið
jafnmikla athygli og þeir náttúru-
sögulegu þættir sem David Atten-
borough geröi og nefndust Lífiö á
jöröinni. Þar var leitað fanga í jarö-
lögum, gróðurfari og dýralífi um
gervalla jörö og óhemjumikUl fróö-
leikur settur fram meö skýrum og
skemmtilegum hætti svo unun var á
aðhorfa.
Nú hefur Mál og menning gefiö út
bók undir sama nafni og er þar um
aö ræða samantekt á efni því sem
sjónvarpið sýndi okkur. Hér kynn-
umst við sögu plánetunnar okkar í
3.500 milljón ár, meö hliösjón af þeim
dýrum og plöntum sem enn lifa. I
bókinni er mikill fróðleikur settur
fram á einfaldan hátt svo aö öllum
ætti að vera ljóst hvaö verið er aö
fjalla um.
Skemmtilegar sögur úr heimi
dýranna eru auövitað látnar fylgja
meö og skýr og f jörlegur stíll Atten-
boroughs fær aö njóta sín.
I bókinni eru yfir fimm hundruð lit-
myndir, sem eru mjög skemmtilegar
margar hverjar og margar þeirra
hreinustu listaverk.
Þetta er mjög vönduö bók og fyrir
alla unnendur þessara frábæru sjón-
varpsþátta er þama kærkomiö tæki-
færi til aö endumýja kynni sín af
skemmtilegum og fróölegum texta
David Attenboroughs, sem öllum er
auðskiljanlegur.
-HK.
David Attenborough.
Tónleikar i Borgarbfói
á Akureyri
Páll Jóhannesson tenórsöngvari heldur tón-
Tónleikar
Musica Antiqua
Fyrstu tónleikar Musiea Antiqua á þessu
starfsári verða haldnir á sal Menntaskólans í
Reykjavík laugardaginn 16. okt. nk. kl. 16.00.
Leikin verður 19. aldar tónlist fyrir þverflautu
og gítarverk eftir Fiirstenau, Sor, Giuliani,
Stamitz, Kimberger o.fl. Hljóðfœrin sem
leikið er á, eru traversflauta (tré-þverflauta)
og efhrlíking af gítar byggðum á 19. öld. Flytj-
endur eru kanadiskj flautuleikarinn, Alison
Melville, sem dvelst hér um þessar mundir til
að taka þátt í tónleikum Musica Antiqua og
Snorri Snorrason gítarleikari. Að tónleikum
loknum er hlustendum velkomið að rabba við
Qytjendur og skoöa hljóðfærin.
Rauða húsið Akureyri
Málverkasýning Þorláks Kristinssonar og
Guðmundar Oddssonar stendur yfir í Rauða
húsinu á Akureyri.
Þeir félagar sýna þar 10 málverk. Þorlákur
tók þátt í samsýningu sjömenninganna í Nor-
ræna húsinu í sumar en Guðmundur Oddur
hefur tekið þátt í fjölda samsýninga norðan
heiða og sunnan. Báðir hafa þeir stundað nám
í nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands.
Tónlist
JASS
Stúdentakjallaranum
Sunnudagskvöldið 17. okt. kl. 21.00. Þeir sem
spila eru: Tómas Einarsson, bassi, Sigurður
Flosason, saxófónn, Friðrik Karlsson, gítar,
Gunnlaugur Briem, trommur.
Tónleikar í félagsmiðstöð-
inqi Árseli í Árbæ í kvöld
1 kvöld föstudag verða tónleikar í Árseli og
kemur þar fram E.K. Bjamason band. Það
skipa: Emil Karl Bjamason, bassi, Guð-
mundur Pálsson, gítar + söngur, Pétur Egg-
ertsson, gítar + söngur, Ingólfur Sigurðsson,
söngur, Erling Kristmundsson, trommur,
áður í Basil fursta og Nátthröfnum. Á tónleik-
unum koma einnig fram 04U.
leika laugard. 16. okt. kl. 17 í Borgarbíói á
Akureyri. Sunnudaginn 17. okt. kl. 17 heldur
hann tónleika í félagsheimilinu Miðgarði i
Varmahlíð. Undirleikari verður Jónas Ingi-
mundarson.
Kirkjustarf
Frá Neskirkju
Næstkomandi sex sunnudaga verður efnt til
fræðsluerinda og umræðna í safnaðarheimili
Neskirkju. Rætt verður um trúarleg og siðræn
efni út frá biblíulegum textum og leitast við
áð tengja þá umfjöllun við umræðu og áhuga-
efni samtímans. Þeir dr. Bjöm Björnsson
prófessor og dr. Einar Sigurbjömsson pró-
fessor munu verða í forsvari þessara stunda
til skiptis og Qytja stutt inngangserindi til
skýringar og til örvunar almennri umræðu.
Efnisskrá verður sem hér segir:
Sunnud. 17. okt: „Nema þér trúið standist þér
ekki” (Jes. 7:9). Dr. Einar Sigurbjömsson.
Sunnud. 24. okt:: Grundvöllur kristins sið-
gæðis (Mk. 12:30). Dr. Bjöm Björnsson.
Sunnud. 31.okt.: „Vér sáum dýrð hans” (Jóh.
1:15). Dr. Einar Sigurbjömsson. Sunnud. 7.
nóv.: Hann gjörir alla hluti i.ýja. (2 Kor.
5:17). Dr. Bjöm Bjömsson. Sunnud. 14. nóv.:
„Hjarta yðar skelfist ekki” (Jóh. 14:1). Dr.
Einar Sigurbjömsson. Sunnud. 21. nóv.: Er
kirkjan þjóðfélagslega ábyrg? (Mk. 12:31).
Dr. Bjöm Bjömsson.
Þessir samfundir, sem öllum era opnir,
hefjast eins og fyrr segir nk. sunnudag kl.
15.30 í safnaðarheimili Neskirkju.
Tilkynningar
Sólarkvöld af stað
Hin vinsælu sólarkvöld Samvmnuferða-Land-
sýnar hefjast að nýju í Súlnasalnum. Vegna
mikillar aðsóknar siðastliöinn vetur veröa nú
þrjú kvöld í röð, föstudags-, laugardags, og
sunnudagskvöld.
Að þessu sinni er Holland og þá sérstaklega
Amsterdam kynnt. Leitast verður við að
skapa hina réttu hollensku stemmningu, hoU-
enskur matur og drykkur á borðum og
hoUenskir listamenn skemmta. HoUendingar
eru frægir fyrir blómarækt og fá aUar konur
blóm sem Aad Groeneweg eigandi verslunar-
innar Breiðholtsblóm hefur útbúið af þessu
tílefni.
Á þessum sólarkvöldum verður að sjálf-
sögðu spUaö bingó, tískusýningar verða ÖU
kvöldin og hinn frábæri jafnvægissnUlingur
Walter WasU skemmtir. Hljómsveitin Gautar
frá Siglufirði leikur fyrir dansi ÖU kvöldin.
Næstu sólarkvöld verða síðan 19.—21. nóvem-
ber.
Fundir
Vetrarstarf
Kvenstúdenta-
félags íslands
hefst með hádegisverðarfundi um skólamál í
veitingahúsinu Arnarhóli laugardaginn 16.
október. Gestur fundarins verður Guðni
Guðmundsson, rektor Menntaskólans í
Reykjavík, og ætlar hann að fjalla um áhrif
breytinga á grunnskóla og framhaldsskóla.
Kvikmyndir
Rauða torgið
í MÍR-salnum
„Rauða torgið” nefnist sovésk kvikmynd,
gerð 1970, sem sýnd verður i MIR-salnum,
Lindargötu 48, sunnudaginn 17. okt. kl. 16.
Leikstjóri er Vassilí Ordinskí.
Myndin er i tveimur hlutum og sækir sögu-
þráðinn í atburði borgarastríðsins eftir
byltinguna 1917. Hefst fyrri hlutinn á því að
ein herdeildin í gamla keisarahemum gengur
sem heild til liös við Rauða herinn eftir
orrustu við Þjóðverja og lýkur þann dag sem
hermennirnir sverja ráðstjórninni hollustu á
Rauða torginu í Moskvu. I kvikmyndinni er
brugöið upp svipmyndum af mönnum, sem
voru mjög ólíkir að eðlisfari en áttu það sam-
eiginlegt að vera þátttakendur í stofnun og
mótun hins nýja ríkis. 1 fyrri hlutanum segir
frá Amelín kommissar 1918 og í þeim siðari
frá Koltjakov deildarforingja 1919.
Enskir skýringartextar eru með myndinni.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Samtök áhugamanna um
kvikmyndagerð (S.Á.K.)
Fyrsta námskeiö vetrarins veröur frábrugöiö
fyrri námskeiðum sem S.Á.K. hefur staöiö aö.
Er hér um aö ræöa videonámskeiö sem verö-
ur laugardaginn 16. október og hefst í Álfta-
mýraskóla kl. 13.00 og veröur staldraö þar viö
um stund og farið í undirstööu myndbanda-
gerðar. Að því loknu veröur farið niöur á
Laugásveg 19 þar sem Ismynd er til húsa og
fylgst með vinnubrögðum atvinnumanna. 13.
nóvember veröur námskeiö í kvikmyndagerð.
Skemmtanir
BROADWAY: Á fóstudags- og láúgardags-
kvöld mun hljómsveitin Galdrakarlar leika
fyrir dansi. Á sunnudagskvöldið mun diskó-
tekið dynja.
KLÚBBURINN: Á föstudagskvöldið mun
hljómsveitin Atlantic leika ásamt tveim
diskótekum. Síðan á laugardagskvöldið mun
Mobydick leika fyrir dansi.
HOLLYWOOD: Þar verður diskótekið á fullu
alla helgina undir öruggri handleiðslu hinna
sívinsælu diskótekara.
GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður í diskó-
tekinu um helgina frá klukkan 10—03, það er
diskósalur ’74, tónlistin úr safni ferðadiskó-
teksins. Grétar býður alla velkomna og óskar
gestum góðrar skemmtunar. Hljómsveitin
Glæsir leikur fyrir dansi í öðrum sal hússins
öll kvöld helgarinnar.
ÞÓRSKAFFI: Þar mun dansinn duna um
helgina. Á neðri hæð er diskótek en á efri hæð-
inni skemmtir Dansbandið gestum staöarins.
Húsið opnað ki. 10.
SIGTÚN: Diskótek verður bæði föstudags- og
laugardagskvöld.
HÓTEL SAGA: Á föstudags- og laugardags-
kvöld mun Sumargleðin skemmta í Súlna-
salnum og mun dansinn duna frá ki. 22—03.
Auk þess er grillið opið alla daga.
ÓÐAL: Á föstudagskvöld verður Ásmundur í
diskótekinu, Fanney á laugardag og Dóri á
sunnudag og að venju allir í banastuði.
SNEKKJAN: Á föstudagskvöld verður Hall-
dór Arni i diskótekinu en á laugardagskvöld
mun hljómsveitin Metal skemmta gestum
staðarins.
VILLTI TRYLLTI VILLI: Á föstudags- og
laugardagskvöldið mun diskóið duna á fuiiu
undir öruggri handleiðslu Jóns Axels, Gunna
og Ivars og er allt liðið í bænum 16 ára og
eldra velkomið. Munið passann því að Finn-
bogi svarti verður í dyrunum. Stuðið stendur
yfir frá kl. 21—03. Svo á sunnudaginn dynur
fjölskyldudiskóið frá kl. 14—17 og fyrir 13 ára
og eldri frá 20—23.30.
HREYFILSHÚSIÐ: Opið laugardagskvöld,
gömlu dansarnir.
HÓTEL BORG: Diskótekið Disa sér um
diskósnúninga bæði föstudags- og laugardags-
kvöld. Sunnudagskvöld verður hljómsveit
Jóns Sigurðssonar með tónlist af vönduðu tagi
sem hæfir gömlu dönsunum.