Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Síða 1
jf % DAGBLAÐIÐ — VISIR 250. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982. SKULDIR KROFLU YFIR MILUARD —220milljóna afborganir og vextir á næsta ári I lok næsta mánaöar munu skuldir Kröfluvirkjunar verða komnar í nærri einn milljarö og áttatíu millj- ónir króna. Afborganir og vextir á ' næsta ári eru samkvæmt áætlun í frumvarpi að f járlögum ársins krón- ur219.382.000. I árslok 1981 námu skuldir virkjun- arinnar alls kr. 561.047.000. Fjár- lagaáætlun í ár gerði ráð fyrir tæp- lega 72 milljónum í afborganir og vexti og rúmlega 63 milljónum í f jár- festingu, alls kr. 134.712.000. Samtals eru þetta nærri 695.8 millj- ónir króna, sem síðan er eftir að reikna upp í samræmi við verðbólg- una og raungildi skuldanna, en til þess er notuð reiknitalan 1,55 eða 55%. Skuldir Kröfluvirkjunar verða umnæstuáramótkr. 1.078.426.000. Tek jur virkjunarinnar 1981 urðu 24 milljónir, sem nægðu rúmlega fyrir daglegum rekstri. Reiknað er með slíkri niðurstöðu í ár og næsta ár og að virkjunin skili engum tekjum upp í fjármagnskostnaö hvað þá skuldir. I frumvarpi að fjárlögum fyrir næsta ár vantar enn megnið af fram- lögum til virkjunarframkvæmda, þar á meðal til frekari framkvæmda við Kröflu. 220 milljónirnar fara all- ar í vexti og afborganir. Og að venju á aö taka það fé allt aö láni og bæta því við skuldahalann. HERB jeppanum - sjá bls. 18 og 19 i blind — sjá frétt á bls „Taktu fokkuna" — blásið i seglin íDægradvöl á bls. 36-37 Krakkar í slátur- Bullandi síldveiði — Markaður takmarkaöur Bullandi síldveiði hefur verið að undanfömu. En því miður viröist skipulag þessara veiða ekki vera nógu gott. Sjávarútvegsráðuneytið hefur heimilað veiðar á 50 þúsund lestum, 28—29 þúsund nægja til að uppfylla gerða samninga. Að vísu má bæta við þessa tölu 10 þúsund lestum sem eiga að fara til Sovétríkj- anna, til viöbótar því sem Sovét- menn voru áður búnir að semja um. Ekki hefur verið farið eftir tilmæl- um Sildarútvegsnefndar um aö síld sem berst að landi sé jöfnum hönd- um söltuð og fryst. Til þessa hefur svo til allur síldaraflinn farið til söltunar. Þetta gerðist þó markaður fyrir saltaða síld sé mjög takmark- aður. Hvergi í heiminum hefur verið hlutfallslega jafnmikið saltað af sild- araflanum og á Islandi. Saltsíldar- framleiðslan er hér líka meiri en annars staðar, að Sovétríkjunum einum undanskildum. -JBH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.