Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Síða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 Menning Menning Menning Menning Verkamaöur í gróandanum á seinni hluta 19. aldar Jakob Hálfdanarson: SJÁLFSÆVISAGA Bornskuár Kaupfólags Þingeyinga. ísafoldarprentsmiðja 1982. Þaö fer að sjálfsögöu vel á því á aldarafmæli Kaupfélags Þingey- inga, og þar meö samvinnuhreyfing- arinnar í landinu, aö gefiö sé út nokk- urt brot af þeim minningum, sem faöir kaupfélagsins, Jakob Hálfdan- arson, lét eftir sig og legið hafa aö mestu í handritum hans til þessa. Nú hafa afkomendur Jakobs beitt sér fyrir þessu og unniö aö því, en Isa- foldarprentsmiöja tekiö útgáfuna aö sér. Tveir menn hafa öðrum fremur búið efnið úr garöi, Pétur Sumarliða- son og Einar Laxness. Pétur lést í miöju því verki haustið 1981, en Einar hefur lokið því og ritar for- Bókmenntir Andrés Kristjánsson mála.l upphafi hans segir, aö Jakob hafi veriö „einn freinsti brautryöj- andi kaupfélagsskapar” sem hafinn var í Þingeyjarsýslu á síðustu ára- tugum 19. aldar. Eg held aö þetta sé óþörf hógværð fyrir Jakobs hönd og oröinu „einn” sé þar ofaukið. Eg veit ekki betur en allir þeir sem um þetta hafa ritað, bæði í ljósi eigin kynna og glöggra heimilda, hafi veriö á einu máli um aö telja hann fremsta braut- ryöjandann og fööur Kaupfélags Þingeyinga, eins og segir í oröum Jónasar Jónssonar, sem Einar vitn- artil. Formálinn gerir annars glögga grein í stuttu máli fyrir því efni, sem í bókinni er birt, og meðferð þess af hendi framreiöslumanna. Einar get- ur þess aö „ýmsir höfundar hafi á liðnum árum stuðst verulega við hinar óprentuðu frásagnar Jakobs Hálfdanarsonar, einkum ævisöguna og kaupfélagssöguna”, í umfjöllun um upphaf samvinnuhreyfingarinn- ar. Hann nefnir f jórar ritsmíðar eftir þá Jónas Jónsson, Jón Sigurðsson í Ystafelli, Þorstein Thorarensen og Gunnar Karlsson. Ritsmíö Þorsteins gefur hann einkunnina „fjörleg og skemmtileg”, og í ritverki Gunnars segir hann „fjallaö um efnið á fræöi- legan oglæsilegan hátt”. Ekkert skal dregið hér úr réttmæti þeirra eink- unna. En hvers eiga þeir Jónas frá Hriflu og Jón í Felli aö gjalda aö fá enga einkunn? Ég er illa læs ef þeir mega a.m.k. ekki teljast skemmti- legir og læsilegir líka. Annaö stingur þó enn meira í mín augu. I þessari upptalningu er ekki getið þess sem einna mest studdist viö minningar J akobs á þessum vett- • vangi, Jóns Gauta Péturssonar, í Sögu Kaupfélags Þingeyinga 1942. Skrítiö aö þaö skuli gleymast í þess- ari upptalningu. Meginefni bókarinnar er annars fjórir þættir. Hinn fyrsti er æviminn- ingar er Jakob reit á fyrsta áratug aldarinnar. I formálanum segir aö „stuöst sé viö frumrit Jakobs”. Sama orðalag er haft um annan efniskaflann, „Kaupfélag Þingey- inga frá 1881—1891”. Umfjöllun og neöanmálsskýringar viö kaflana sjálfa benda þó helst til þess aö veriö sé aö birta því sem næst orðréttan texta. Sé svo hæfir sterkara oröalag en „stuöst sé við”. Um þetta ættu les- endur helst ekki aö þurfa að vera í vafa. Tveir síöari efniskaflarnir eru „Eitt orö um viðskipti”,'grein um kaupfélags- og verslunarmál úr Ofeigi frá 1892, og ,,Fáir drættir úr djúpi”, grein sem birtist í Tímariti kaupfélaganna 1912. Sjálfsævisagan, lengsti hluti bókarinnar, er um margt hin merk- asta og sýnir Jakob á ööru og stærra lífssviði en vettvangi kaupfélagsins, fyrst í uppvextinum á heiöarbýli austan Báröardals og síöan viö bú- skap í Laxárdal og á Grímsstöðum við Mývatn. Frásögnin af félags- málaþætti hans í heimabyggðum bregður skýru Ijósi á þann jarðveg, sem menningarkvistir Þingeyinga á síðari helft 19. aldar spruttu úr. Kaflinn um bemskuár kaupfélags- Þessi mynd hefur óvíöa birst. Hún er tekln fyrir framan Jaðar ó Húsavik nær aldamótum 1900. Standandi í efstu tröppu: F.v. Jakob Hálfdanarson, Pétur Jónsson á Gautlöndum og Benedikt Jónsson á Auðnum. 1 annarri tröppu að ofan: F.v. Sigurður Jónsson á Ystafelli og Bjarni Bjamarson, sölustjóri. í þriðju tröppu: F.v. Ámi Jónsson frá Þverá og Sigurjón Friðjónsson, síðar á Litlu-Laugum. Neðst t.v. er Júlíus J. Ölafsson (Júllibúi). ins er ekki síður mikilvæg heimild og geymir margt til fróöleiks um upp- haf kaupfélagsins, en þess verður auðvitaö aö minnast að Jakob ritaöi þá grein í sínum bæjardyrum og hann gefur ekki fulla mynd nema viö hliðina og í samfléttun við þær minn- ingar sem aörir frumherjar kaupfé- lagsins rituðu. En hann er þó einhver mikilvægasti hornsteinn þeirrar sögu og þar er margt sem Jakob gat einn sagt frá svo að fullgilt væri. En öllum hlýtur aö vera ljóst, aö Jakob ritar þessa frásögn sína sem heimildargagn til manna sem vita fyrir mikið um bemsku félagsins og þarf því ekki aö segja allt. Fjar- stæöum lesendum öld síöar er þátt- urinn því líklega ekki ljós mynd án skýringa eöa fyllingar. Þaö dregur þó ekki úr réttmæti þess aö birta hann þarna eins og gert er. Svipað má segja um Ofeigsgrein- ina, Eitt orö um viðskipti. Húnér rit- uð sem hugleiöing eöa „orð í belg” margra Ofeigsgreina, sem áöur voru birtar, og oft svör viö þeim. Af þessu leiðir auövitaö aö hún skilst ekki til nægilegrar hlitar af öörum en þeim sem kunnugt er efni þeirra greina. Eigi aö síöur er hún mjög merkileg og skilgóð skýrsla um viöhorf og rök- semdir Jakobs og allgott vitni um hugmyndir hans um þennan félags- skap í öndveröu. Þessi grein er líka mikilvæg fýrir þaö, aö hún kallaöi fram andsvör og rökræður frá forvíg- ismönnum kaupfélagsins, einkum Benedikt á Auönum og Pétri á Gaut- löndum, og stuðlaöi þannig aö mikl- um umræðum þar sem samvinnu- sjónarmiöin voru ýtarlega skýrð og skilgreind fyrir dómi almennings í héraðinu. Fyrir bragðiö vitum við miklu meira um frumhugmyndir ís- lenskra samvinnumanna, og þaö er ekki litils virði. Gamlar ljósmyndir í bókinni eru hið ágætasta fylgifé, þar á meðal tvær teikningar eftir Amgrím mál- ara og ljósmyndir eftir Eirík Þor- bergsson. Einar lætur þess getið í formála, aö Jakob hafi aö sjálfsögöu hvorki veriö rithöfundur eöa skólamaður. Þaö er rétt, en rithöfundur er hik- laust sá maöur sem lætur eftir sig annað eins ævistarf á blöðum og hann hefur gert. Auðvitað er ritmál hans ekki í sama stakki og nú öld síð- ar — sem betur fer — og finna má þar ýmsa hnökra sem stinga í augu okkar. En frásögnin er oftast skýr og eðlileg, og þaö getur varla farið fram hjá aðgætnum lesanda, hve hug- kvæmur hann er stundum í orömynd- um og merkingarbeitingu. En hann er sjálfmenntaöur maður sem ritar tabnálsitt. Handrit Jakobs munu vera mörg og margvísleg og í þeim mikill fróöleikur um líf og starf fólksins hiö næsta honum í tíðinni. Fæst mun þó svo frágengið aö hægt sé aö setja þaö beint í prentsmiðju. Þaö dregur ekki úr gildi þessi, og þetta þyrfti að nýta og búa til ferðar. Mér koma til að mynda í hug þrír bálkar bréfa hans, sem ætti aö velja úr og birta. Fyrst má nefna bréfaskipti hans viö Brasiliufara, þar sem hvorir segja hinum fréttir, mikil fróöleiksnáma. Þá eru bréfaskipti Jakobs og Þóröar Guðjohnsens eftir aö sá siöamefndi fluttist til Danmerkur hinmarkverð- ustu og fróðleg um skipti þessara „fjandvina”, og perluvina aö síöustu. Loks er að nefna bréfaskipti Jakobs viö Kristján Jónasarson frá Narfastöðum, en þau bréf geyma miklar heimildir um upphaf og fyrstu tíö Kaupfélags Þingeyinga. Úr þessum bréfasöfnum þyrfti aö velja, fella þau saman og birta bréf beggjaísamstæðu. Jakob Hálfdanarson er meðal merkustu og mikilvægustu braut- ryöjenda Islendinga á gróskuvorinu mikla — síðari hluta 19. aldar. Þessi bók vekur réttmæta athygli á því og hlýtur aö vera kærkomin þeim, sem vilja láta hugann reika til þeirra vor- daga. Bókin er vandlega og vel að heimanbúin. Andrés Kristjánsson. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Fjórði hver skreiðarfiskur í vexti Einstakir ráöherrar í ríkisstjóm- inni hafa lýst yfir furðu sinni vegna vaxtahækkunar þeirrar, sem Seðla- bankinn ákvað fyrir helgina. Virðist því líta út fyrir að ekki fari saman ákvörðunarvald banka og stjómar, sem er kannski skiljanlegt, því sam- kvæmt lögum á Seðlabankinn að geta ákvarðað vexti hverju sinni. Aftur á móti hefur enn ekki verið tek- in ákvörðun um vexti vegna útflutn- ingslána, en þar virðist vera um stjórnarákvörðun að ræða, eigi hækkun að verða á vöxtum af þeim lánum. Þannig era mál þessi næsta flókin og erfið, og Ijóst að hreyfing er á efnahagsmálum, sem ráðherrar ráða ekki við, og geta raunar lítið gert annað en lýsa yfir undrun sinni. Frumskógur efnahagslifsins þarf ef- laust sitt dýralíf eins og aðrir skógar. Spuraingin er því hvaða valdaper- sóna það er, sem nu leikur Tarsan í trjánum. Ráðherrarair sverja hlut- verkið af sér, og hafa þeir þó verið arkitektar frumskógarins aö stærst- umhluta. Þeir sem bíða nú með fullar skemmur af skreið eftir því að hægt verði að selja hana, eða mælda stafla af saltfiski, sem ekki selst, hafa auðvitað mest af vöxtum að segja. Einnig það unga fólk, sem berst nú í að byggja yfir sig, og þarf að lifa á skammtima lánum, vegna þess að húsnæðismálalán eru takmörkuð. Vaxtabyrði þessara aðiia er slik, að enginn skilur í raun og veru hveraig þetta blessast hjá þeim. Og auðvitað blessast það ekki. Fjórði hver fiskur af skreið fer nú til að greiða vexti, og fleiri fiskar geta farið í þá hit ef lengi dregst að koma skreiðinni í verð. Fiskverkendur eru því hægt og síg- andi að fara á hausinn með fullar skemriur af fiskbirgðum, sem hér standa engum til gagns nema þeim sem telja efnahagslifinu best borgið meö tvöfalt hærri vöxtum en þeir tóku hér á áranum, sem kenndir voru við okur og sáu fyrir að milljón- in yrði litils virði. Fjórði hver fiskur i vexti er sérkennilegur fjármagnskostnaður, þegar haft er í huga að helstu sam- keppnisþjóðir okkar á fiskmörkuð- um, eins og Kanada og Noregur annað tveggja taka enga vextl af lánum út á óseldar fiskbirgðir eða hreinlega niðurgreiða fiskfram- leiðsluna til að halda atvinnu og afla- tækjum gangandi. Á sama tíma og við erum að reyna að flytja út verö- bólguna okkar og fá útlendinga til að éta hana i mynd freðfisks, saltfisks og skreiðar, eru Norðmenn og Kan- adabúar að selja fisk á sömu mörkuðum, sem verðleggst ekki samkvæmt tUkostnaði og heldur ekki samkvæmt vaxtakostnaöi. Þetta eru nú þær glimrandi aðstæður, sem is- lensk fiskverkun býr við. Ekki virð- ast gerðar neinar ítarlegar ráðstafanir tU að jafna samkeppnis- aðstöðuna, en á haustdögum, þegar aUar geymslur eru fuUar af óseldum fiski, er hins vegar brugðið á það ráð aðhækka vextina. Seðlabankinn fer að lögiim i sinni ákvörðun og gerir örvæntingarfuUa tilraun tU að hægja á útstreymi f jár, sem enn fæst lánað 10—20% undir verðbólgu. En slíkar ráðstafanir innanlands auka bara erfiðleikana i undirstööuatvinnuvegi þjóðarinnar. Kunnugir menn staðhæfa, að fyrir utan að missa einn fisk af hverjum fjórum í vexti, sé borin von að við getum reynst samkeppnisfærir á er- lendum mörkuðum vegna rangs gengis. Þeir raunar staðhæfa að gengisskráningin hér hafi verlð vit- laus lengi og muni nú aUt að 30% á réttu gengi og því sem það er skráð. Engar ráðstafanir geta tU lengdar komið í staðinn fyrir rétta skráningu á gengi. Það hefur verið reynt áður að möndla með gengið og tókst hörmulega. Sú reynsla er svo ný, að menn ættu að geta tekið mið af henni enn þá. En því er ekki áð heUsa. Og tU viðbótar þessu öUu gæti aUt eins farið svo að lítUl fiskur fengist úr sjónum næstu árin. Þá vœri kannski ráð að selja útlendingum vextina. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.