Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd r Egyptar og Ssra- elsmenn deilaenn um landsvæði á Sinaískaganum Egyptar hafa kvartaö formlega við ísraelsk yfirvöld vegna opnunar nýs lúxus-strandhótels Israelsmanna á Taba-ströndinni, sem er lítill hluti Sinaí-eyðimerkurinnar og liggur að Miöjarðarhafi. Egyptar gera einnig til- kall til þessa hluta Sinaí. Kairó-stjórnin segir aö opnun þessa hótels brjóti í bága við samkomulag um að þetta svæði skyldi skiliö eftir sem „einskismannsland” eftir að Isra- el skilaði Egyptum öðrum hlutum Sinaískagans í apríl í vor. — Þá hafði veriö látið bíða síöari tíma samninga, hver skyldi hafa undir höndum stjóm Taba. Mubarak Egyptalandsforseti sagði í gærkvöldi að Egyptar vildu leysa þetta ágreiningsatriði með samningum og friösömumhætti. Israelsstjórn hefur tekiö vel undir tilmæli Egypta um samningaviðræður varðandi Taba, svo fremi sem önnur atriöi verði tekin til viðræðna í leiðinni. Hefur enn ekki veriö ákveðið hvenær þærhefjast. Samningaviðræöur milli Egypta og Israela féllu niður eftir innrás Israels í Líbanon í júní í sumar og hefur sambúð ríkjanna stórlega versnað síöan. ANNAR STÓRBRUNI í DANMÖRKU Það hefur ekki verið langt á milli stórbrunanna í Danmörku en þar hafa tvær kertaverksmiðjur brunnið til grunna með skömmu millibili. Var sú fyrri Asp Holmblad kertaverksmiðjan í Helsingör en sú seinni Pia Lys á Österbro í Kaupmannahöfn. Seinni bruninn hefur þó valdið mun meiri usla því að f jar- lægja varð fleiri hundruð manns úr nærliggjandi húsum og munu um hundrað þeirra aldrei sjá heimili sín framar. Ekki er enn kunnugt um eldsupptök en lögreglan útiiokar ekki að hér hafi verið um íkveikju að ræða og hafi þeir sem að henni stóðu þá sótt hugmyndina í brunann á Asp Holmblad kertaverk- smiðjunni. Skáldið og nóbelshafinn Alexander Solzhenitsyn vlð ritstörf. Hann hefur notað útlegðarárin til að ganga frá átta nýjum bindum í ritsafn sitt Rauða hjólið, sem byrjaði með bókinni Ágúst 1914 og fjaUar um rússnesku byltinguna. —Kona hans segir að hann bregði fyrir sig þar nýjum frásagnarmáta sem koma muni á óvart. Solzhenitsyn bú- inn með átta ný bindi um rúss- nesku byltinguna Kemur fyrst út á rússnesku vorið 1983 en verkið síðan þýtt áönnurtungumál Alexander Solzhenitsyn hefur nú lok- ið gerð margra binda verks um rússn- esku byltinguna, eftir því sem hann segir. Hann hefur starfað að þessu all- an tímann sem hann hefur verið í út- legðinni, eða rúman áratug. Þetta er átta binda bálkur sem kallaður verður „Rauða hjólið”, eftir því sem kona hans, Natalía, sagði blaðamönnum á laugardag. Hún segir, að bækurnar séu skrifaðar á rússnesku og að eftir sé að þýöa þær. — Raunar er þetta níu binda verk, því að fyrsta bindið,Ágústl914, komút 1972. Natalía segir að bóndi hennar noti í síðustu fjórum bindunum nýjan frá- sagnarmáta, eða stíl, sem eigi eftir að komá mönnum á óvart. Bækumar verða fyrst prentaðar á rússnesku vorið 1983 og síðan þýddar á frönsku, ensku og þýsku. Það hefur ekki verið haft hátt um Solzhenitsyn-fjölskylduna síðan hún •var útlæg gerð úr Sovétríkjunum. Ásamt fjórum bömum sinum hafa hjónin búið í Cavendish í Vermont, eins konar herragarði umgirtum og vel vörðum. Konadraphlé- baröameð einuaxarhöggi Vaskleg húsmóðir af Buwenge-ætt- báiknum í Jinja í Uganda drap hlé- barða með exi og þurfti ekki annarra aðstoðar við. Sem var kannski betra, því áður haföi hlébarðinn stórslasað sex manns í heimaþorpi hennar. Hlébarðinn hafði ruðst inn í einn þorpskofann í leit að æti og var einni hænunni fómað í ginið á honum. Hann réðst samt á konuna og síðan mann hennar og fjóra þorpsbúa sem komu þeim til aðstoðar. Þetta gekk ekkí hljóðalaust fyrir sig, svo að nágrannakonan í næsta kofa hafði vopnast exi þegar hlébarð- inn sneri sér að hennar heimili næst. Með einu höggi sálgaði hún kattar- kvikindinu og þurfti ekki þar um að binda. Hagur PanAm að vænkast Pan American World Airways greina frá því að taprekstur þelrra á þriðja ársfjórðungi 1982 hafi numiö 28,9 milljónum dollara. Það er samt ólíkt skárra en á sama árstíma í' fyrra, þegar tapið nam tæpum 80 miiljónum dollara. Heildarútkoman eftir níu fyrstu mánuði ársins er 22,8 milljón doDara tap og mestan part vegna gengisfell- inga í Argentinu, Brazilíu og Mexfkó. Reagan vex í áliti Skoðanaicannanlr gefa til kynna að álit Reagans meðai kjósenda hafi heldur vaxið siðasta mánuðinn. 1.437 einstakliugar á kjörskrá voru spurö- ir, síðustu vikuna í október, hveraig þeim þætti Reagan standa sig í em- bættinu. 46% létu sér vel líka en 43% þótti miður. — í september hafði 43% lík- að embættlsfærsla Reagans vel en 44% miður. Þegar spurt var elnvörðungu um frammistöðu stjómar hans á sviði efnahagsmála töldu 43% hana viðun- andi en 49% voru óánægðir. t síðasta mánuði undu 37% vel við hana en 57% voru óánægðir. Hershöfóinginn slepptisverðinu oggreip pennann FTéttir greina frá því að væntanleg sé senn á markað bók eftir fyrrum forseta Argentínu, Leopoldo Galtieri hershöfðingja. I bók þessari segir hann að Kúba hafi boðið stjórninni í Buenos Aires 2.500 manna lið tii aðstoðar í Falklandseyjastríðinu vlð Breta. Því mun hafa verið hafnað. í bók sinni ber Galtieri hershöfð- ingi sig upp undan því að yfirmenn hersins hafi brugðist houum í stríðinu. Honum var þokað úr forsetaembætti fáum dögum eftir ósigur Argentínu í deilunni en innrásarliðið á Falklandseyjum gafst upp fyrir Bretum 14. júní. Starramir iOstende Starrar hafa iöngum þótt meiri- háttar plága í Ostende í Belgíu og bæj- arstarfsmenn veiddu þá áður í net í hópum til þess að draga eitthvað úr viðkomu þeirra. Bæði fylgdi hreiðr- um þeirra undir þakskeggjum óþrif og óværð (starra-fló) og eins finnst Ostende-búum lítiil fögnuður að hávaðanum í þeim. Að ekki sé minnst á að aðrir smáfuglar fælast starrann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.