Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 13 VERÐBOTASKERÐINGU EÐA LENGINGU ORLOFS? Siðasta Alþýðusambandsþing gerði einróma ályktun um lengingu orlofs. Alþýðuflokkurinn hefur hvað eftir annaö krafist þess að villimannlegri lánapólitík yrði útrýmt. Alþýðu- flokkurinn hefur beitt sér fyrir úrbót- um með tillöguflutningi á Alþingi. tJr- bótum, sem boða lengri lánstíma og hærri lán, sem þýðir betri kjör lántak- enda, bjartari framtíð fyrir íbúða- kaupendur og húsbyggjendur. Margt mætti til tína um árásir þess- arar ríkisstjórnar á launafólk og dæmalaus svik við boðaöa stefnu. Til dæmis er nú verið að ganga af hús- næðislánakerfinu dauðu. Þar er allt smærra í sniðum en fyrirhugað var er alþýðuflokksmenn héldu um stjórnvöl- inn. Sjóðir eru svo til tómir. Húsbyggj- endur fá nú fyrirheit, en engar efndir. Fá lægri lán og erfiðari. Nú á veturnóttum engist ríkis- stjórnin sundur og saman. Þeir Eggert og Albert hafa yfirgefið skútuna. Alþýðubandalagið situr sem fastast. Þeir eru stórorðir, en óttinn við að tapa ráðherrastólunum kemur þó annaö slagið fram. Nú hafa þeir i hótunum við fólkið í landinu og við stjómarand- stööuna. Þeir hóta margfalt meiri óða- verðbólgu en þeim hefur þegar tekist aö koma á. Þeir hóta öllu illu fái þeir ekki að skeröa verðbætur láglauna- fólks um hehning nú fyrir jólin. I loforðalista þeim er fylgir bráða- birgðalögunum er lofað bót og betrun. En menn skyldu hafa í huga að bráða- birgðalögin og loforðalistinn er sitt- hvað og í ríkisstjórninni er engin sam- staða um hvað skuli efnt og hvað ekki. „Orlofslengingu strax" Nokkur undanfarin þing höfum við alþýðuflokksmenn boriö fram tillögu um að orlof verði lengt, laugardagar verði felldir út sem orlofsdagar. Þessu hafa ríkisstjórnarmenn verið andvígir. Þeir hafa notað aðstöðu sína til að svæfa málið. Þar hafa alþýðubanda- lagsmenn ásamt meðreiðarsveinum sínum í Framsóknarflokknum gegnt kalli Vinnuveitendasambandsins. Til- laga okkar hefur hins vegar vakið verðskuldaða athygli. Fjölmörg verka- lýðsfélög hafa ályktaö um máliö og krafist þess að tillaga okkar verði sam- þykkt. Síðasta þing Alþýöusambands Islands ályktaði einróma um máliö og krafðist þess að tillaga okkar alþýðu- flokksmanna yrði samþykkt. En í ríkisstjórninni hafa launþegar enga málsvara átt. I tillögu okkar, sem við enn höfum lagt fram, er gert ráð fyrir því að allir launþegar fái notið langs starfsaldurs hjá sama atvinnurekanda í auknu or- lofi og fái einnig þann rétt við ákveðin aldursmörk. I tillögunni er gert ráð fyrir að meö niðurfellingu laugardag- anna hækki orlof í 10,17% af kaupi. Eftir 10 ára starfsaldur eða við 40 ára lífaldur hækki orlof í 11,59%. Eftir 18 ára starfsaldur eða við 50 ára lífaldur hækki orlof í 13,40% af kaupi. Nú verður fróðlegt að sjá hvernig við verður brugðist. Þeir á Þjóðviljanum hafa nefnt það að fái þeir ekki vilja sínum framgengt um að skerða verðbæturnar fyrir jólin, verði orlofið ekki lengt. „Áfangasigur verkafólks" Við skulum vona að mennirnir sjái að sér. Stjórn efnahagsmála er að mati okkar alþýðuflokksmanna annað og meira en að krukka í kaupið. Viö krefj- umst þess aö verkafólk fái sömu rétt- indi og opinberir starfsmenn í orlofs- málum sem og öðrum málum. Lenging orlofs er sjálfstætt mál, samþykkt bráðabirgðalaga um nakta kaupskerð- inguerannað. Það verður nú fylgst með því hvort Vinnuveitendasambandið ræöur enn gerðum Alþýðubandalagsins og ann- arra stjómarliða Fáist fmmvarp okkar í orlofsmálum samþykkt er mik- ill sigur unninn hvað varðar hagsmuni verkafólks. Næsti áfangi er að koma þessari ríkisstjórn frá. Ríkisstjóm sem hefur komið efnahagsmálum í öngþveiti og hefur engin önnur ráð en að kmkka í kaupið. Það yrði mikill áfangasigur fyrir launafólk. Þá getur sókn til betri lífs- kjara og réttlátara þjóðfélags hafist að nýju. Karl Steinar Guðnason alþingismaður. Vopnin tryggja tor- tímingu - ekki fríð Ný von Friöarhreyfingarnar í Evrópu og Bandaríkjunum hafa gefið nýja von. Von um að hægt verði að snúa þessari brjálæðislegu þróun viö þar sem eitt slys eða villa í tölvubúnaði gæti þýtt endalok mannkynsins. Ein ástæðan fyrir auknum umsvifum hersins og Nató hér á landi má eflaust rekja til þeirrar andstöðu sem hann hefur oröiö fyrir á meginlandi Evrópu. Það hlýtur að vera skylda okkar Islendinga, alla vega þeirra sem vilja í alvöru vinna aö afvopnun aö koma í veg fyrir að ávinn- ingar friðarhreyfinganna erlendis verði að engu hafðar með því að her- foringjarnir flytji til kjarnorkuvopnin og komi þeim fyrir í kafbátum sem em staðsettir i hafinu í kringum Island. Eg álít að þær íslensku friðarhreyf- ingar sem vilja standa undir nafni og vinna sinn skerf í þágu friðar og af- vopnunar í heiminum verði að berjast fyrst og fremst gegn hemaðarbrölti á eigin landi og taka undir kröfur er- lendra friðarsinna um algjöra afvopn- un, kjamorkuvopnalaus svæði og síðast en ekki síst að krefjast þess að hafið í kringum íslandi verði lýst kjamorkuvopnalaust svæði. Gleymum því ekki að hergagna- framleiðslan nærist á stríðsóttanum og styrjöldum og. framleiðendumir og þjónar þeirra svífast einskis þegar þeir reka áróður fyrir vöm sinni. Margrét Einarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.