Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 Spurningin Spurt í frystihúsi Búlandstinds, Djúpa- vogi; Heldurðu að stjórnin falli á næstunni og að kosið verði innan skamms? Elvar Kristjánsson. „Nei ég hef enga trú á aö það verði kosningar á næst- unni. Eg held að stjórnin lafi eitthvaö áfram.” Haukur Elisson: „Nei, það held ég ekki. Eg held aö stjómin lafi fram á vor og þá verði kosið.” Karl Elísson: „Ég vona að hún hangi eitthvað áfram. Ég vona að það verði bara sem lengst, allavega eitthvað framá vor.” Gunnar Guðlaugsson: „Eg hugsa ekki, maður vonar að stjómin lafi áfram.” Erla Einarsdóttir: „Ja, bendir ekki allt til þess? Eg vona að það verði ekki fyrr en eftir áramót. Við megum ekkert vera að því fyrr.” Guðný Jónsdóttir: „Eg hef engin svör viö því. Eg veit ekkert um það.” Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lélega stillt hljóðfæri á sinfóníutónleikum: Bjami Pálmarsson saklaus — hef ur ekki stillt í Háskólabíói frá síðustu áramótum Bjarai Pálmarsson skrifar: Þriðjudaginn 26. þ.m. skrifar Eyjólf- ur Melsted gagnrýni um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Islands, er haldnir voru í Háskólabíói 21. október sl. I grein sinni segir Eyjólfur m.a.: „Nú fer látinn sómamaöur ekki leng- ur höndum um gripinn. Það er lífsins gangur, menn kveðja og aörir taka við. En heldur hafa kynslóöaskiptin komið harkalega við slaghörpuna. Stillingin er í grunni svo há að óbóin hanga fyrir neðan, meö voðalegum afleiðingum fyrir hljómsveit og einleikara. Auk þess gætir stillarinn nýi ekki nægjan- lega að mýkt hljómsins í sínu mála- miðlunarverki. Tvennt er til úrbóta hins fyrmefnda — annaðhvort að óbó- leikaramir sagi af hljóðfærum sínum eða aö stlllarinn færi tónhæð til sam- ræmis við nafla hljómsveitarinnar.” Viö feðgarnir, Pálmar heitinn Isólfs- son og ég, höfum í sameiningu og hvor i sínu lagi stillt hljóðfæri fyrir hina ýmsu hljómleika sem haldnir hafa verið um árabil. Vegna ofangreindra ummæia Eyjólfs vil ég því taka fram að ég átti engan þátt í stillingu fyrir umrædda tónleika. Ég kom ekki nálægt því verk- efni og hef ekki stillt i Háskólabíói frá síðustu áramótum. Tónlistargagnrýni Eyjólfs Melsted i DV 26. sl. fjallaði m.a. um lélega stillt hljóðfæri á tónleikum Sinfóniuhljómsveitar íslands í Há- skólabiói 21. október. Tónlist Tónlist Fri elnnl œfingu Sinfónluhljómsveltar Islands. Af nýjungum í stillingu og uppstillingu Tónlaikar Slntóniuhl^tnavaRar Islanda I Hát- akóiabiói 21. októbar. Sljórnandi: Jaan-Flarra JaquUaL Einialkarar: Eugana Ltat o Efnbakrá Johan Svandaan: Kamaval I Paris, Franz Liszt: Pianókonsart nr. 1 i Es-dúr, Dknhri Schostakowltsch: Konsart fyrir pianó, trompat og strangiasvah. Robart Schumann: Sinfónia nr. 4 I d-mofl op. 120. Þegar fylla þarf upp í efnisskrá er þess gjaman gætt aö byrja á ein- hverju upplífgandi stykki til upphit- unar, bæöi fyrir hljómsveit og áheyr- endur. Hvaö réöi vali verke&iavals- nefndar veit ég ekki, en Parísar- karnevaliö stóð þama eins og brenninetla í fjólubeði. Hafi samnor- ræn ræktarsemi ráöiö heföi veriö nær aö leika eitthvaö sem tæki fyrr af. Aö Svendsen afloknum tóku hljóm- sveit og einleikari til viö píanókon- sert Liszts. Umskiptin frá Norö- manninum Svendsen voru þvi líkust aö flogiö væri þvert á ótal timamörk og hljómsveitin því dægravillt. Hvort sundurieitni hljómsveitarinnar haföi áhrif á einleikarann skal ósagt látið, en karlinn List lék alla vega feil- nótumar líka með sama glæsibrag og hitt. — Þaö var hins vegar í þeim heillandi, undarlega samsetta kon- sert Schostakowitsch sem allt náði upp aö ganga. Um aldarfjóröungi eftir aö hann var fyrst frumfluttur hér á iandi kemur pianóleikarinn sem frumflutti konsertinn hingaö og leikur hann ásamt Lárusi Sveinssyni með einstökum þokka. Harkaleg kynslóðaskipti Ég get ekki látið hjá líöa aö minn- ast á þá breytingu sem oröið hefur á slaghörpu okkar helsta tónleikahúss. Nú fer látinn sómamaöur ekki lengur höndum um gripinn. Þaö er lifsins gangur, menn kveöja og aörir taka viö. En heldur hafa kynslóöaskiptin komiö harkalega viö slaghörpuna. Stillingin er i grunni svo há aö óbóin hanga fyrir neðan, með voöalegum afleiöingum fyrir hljómsveit og ein- leikara. Auk þess gætir stillarinn nýi ekki nægjanlega aö mýkt hljómsins í síhu málamiölunarverki. Tvennt er til úrbóta hins fyrrnefnda — annað- \ hvort aö óbóleikaramir sagi af hljóö- færum sínum eöa aö stillarinn færi tónhæðtil samræmis við nafla hljóm- ^sveitarinnar. HiÖ síðamefnda er smekksatriöi og stillingin innbyröis eflaust fræöilega kórrétt, þótt hún f ari ekki beint þægilega í minar taug- Ókunnuglegt jaffnvœgi Schumannsinfónían var ágætlega flutt. Aö visu þurfti aö hlusta í gegn- um ókunnuglegt jafnvægi sem ný uppstilling málmblásaranna olli. Hafi tilraunin meö þessari nýju upp- stillingu átt aö sýna fram á aö strengimir væm of þunnskipaöir — þá tókst hún. Sjálfsagt er að reyna nýjar uppstillingar, og þær gætu hugsanlega oröið til bóta, en gæta veröur þess um leið aö ekki er þaö sjálfgefið aö það sem hljómar betur á hljómsveitarpallinum njóti sín bet- ur í fullum sal áheyrenda og aö þaö tekur hljómsveitina tima aö aölagast nýjungum. EM Vegna ummæla Haralds Kristjánssonar: VINDMYLLUR NUTIMANS OG ANNAR DON KÍKÓTI ,Æ. meðreiðarsveinamir bíða eftir umbun sinni Margrét R. Sigurðardóttir skrifar: I kjallaragrein í DV sl. miövikudag, þann 27. október, skrifar Haraldur Kristjánsson um málefni Iðnnema- sambands Islands á hinn skringileg- asta hátt og finn ég mig knúða til þess að leggja orð í belg. Haraldur Kristjánsson segir í grein sinni að 40. þing INSI hafi leyst upp í múgæsingu og lögleysu. Ekki rökstyð- ur Haraldur þessi orð, frekar en flest annaö í greininni. Ekki minnist Har- aldur Kristjánsson (hér eftir HK) einu orði á upphlaup á þessu sama þingi; er HK og félagar hans hlupu sneypulegir úr þingsal þegar kosið hafði veriö um hvort stjórnarkjör skyldi endurtekið. Niðurstöður kosninganna uröu þær aö 39 voru fylgjandi stjórnarkosningu en 4 á móti. Haraldur heldur kannski að með því að hlusta ekki á niðurstöðu- tölur þá séu þær ekki til! HK spyr í grein sinni hvort gamla stjórnin sé hrædd um aö nýja stjórnin standi sig betur en fyrri stjórnir. Sem meðlimur síöustu stjórnar INSI vil ég svara því, fyrir mína parta, að ég treysti HK til þess að starfa jafn „vel” sem formaður INSI og hann starfaði sem meðlimur stjórnar á síðasta starfsári. Þá var áhugi HK slíkur að hann mætti á 1 1/2 fund — og á engan fund annan hjá Iðnnemasamtökunum. HK segir í kjallaragrein sinni að best sé að ræða þessi mál án rislítillar persónuumræðu og leyfi ég mér í því sambandi að benda á niöurlag Don Kíkóti og meðreiðar- sveinn. kjallaragreinar hans. Svo notað sé tungutak HK, þá hittir hann þar sjálf- an „sig í hnakkann”, en einnig á fleiri stöðum. I upphafi greinarinnar skammar HK síðustu stjóm fyrir að hafa ekki komiö málum sínum í höfn á síðasta kjör- tímabili. En HK átti einmitt sjálfur sæti í þeirri sömu stjórn. Batnandi manni er best aö lifa, eins og sést á þeim „möguleikum” sem stjórn hans kynnir, varðandi eflingu starfsins. Ekki minnist HK einu orði á hug- myndir stjórnar sinnar um kjaramál iðnnema, heldur hefur hann á undan- förnum þingum komið meö þær tillög- ur að iðnnemar fari fram á það kaup sem greiðslugeta atvinnuveganna leyf- ir. Vindmyllur nútímans eru Haraldi Kristjánssyni ekki auðveldari en 17. aldar vindmyllumar voru Don Kikóta. Og meðreiðarsveinarnir bíða, nú jafnt og þá, eftir umbun sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.