Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Page 18
18 DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 Bílar Bflar Bflar Ómar Ragnarsson reynsluekur Mitsubishi Pajero: Skemmtilegur jeppi af hentugri stærö HELSTU STÆRÐIR: Izuzu Lada Bronco Pajero Trooper Sport 1974 Vél: 4 cyl 2555 cc. 4—1950 4-1569 8-4918 Afl: 103 DINHÖ 88 78 130 Þyngd: 1365 kfló 1290 1150 1600 Hjólhaf: 2,35 2,65 2,20 2,33 Sporvídd: 1,40/1,38 1,34/1,30 1,43/1,40 1,40 Lengd: 3,92 4,38 3,72 3,85 Breidd: 1,68 1,65 1,68 1,83 Hæð: 1,88 1,80 1,64 1,83 Veghæð: Hraðivið 23,5 cm 22,5 22;0 20,0 1000 snún. íhæstagír: 1000 snún. í lægsta 27,3 km/klst 29,2 24,7 30 gír: 3,7 km/klst 3,8 4,3 4,5 Sæti: 5—7 5 4 5 Hámarkshraði 140km/klst. 132 132 ca 135 Eyðsla: (áætluð) ca 13-20 1 /100 km 12-18 12-16 16-25 þeir hafi neitað sér um að hafa gormafjöörun að aftan. Pajero hoppar nær ekkert til að aftan í þvottabrettum, og þegar hann skrikar til hliðar í kröppum beygjum er það mjög jafnt skrið að framan og aftan, og að mestu hættu- eða hrekk- laust. Þó endar skriðið í alltof krappri beygju með útskriði að aftan. Nikk- eða bátahreyfingar eru einnig furðulitlar, en þegar hryggir eða öldur í veginum komast yfir vissa stærð steypir hann þó stömp- um, enda annað óhugsandi þegar haft er í huga hve stuttur billinn er á milli f ram- og afturhjóla. Þeir hjá Heklu, sem hafa umboð fyrir bæði Pajero og Range Rover bíla, ættu ekki að afskrifa sölumögu- leika Range Rover, þótt þeir hafi nú Pajero á hendi h'ka, því að Range Rover trónar enn á toppnum í flokki lúxus-jeppa, þrátt fyrir harönandi samkeppni, til dæmis frá Benz. Bara það eitt að Range Rover hefur ein- staka þungadreifingu, 50% þungans á hvorum öxli, skipar honum í sér- flokk, auk þess sem hægt er að fá hann með fernum dyrum, en Pajero og Izuzu Trooper aöeins með tvenn- um. Ókostir erfiðra þyngdarhiut- falla í lágmarki Stærsta vandamál í hönnun jeppa í flokki Pajero er það að þegar bíllinn er óhlaðinn er hann allmiklu þyngri að framan en aftan, en dæmiö snýst við þegar bíllinn er fylltur af fólki og farangri. Þetta veldur ósamræmi í fjöðrun, sem skapar illleysanlegt dæmi. Gamli Broncoinn var gott dæmi um þetta. Mjúkur að framan og fremur stinnur að aftan, og þar af leiðandi með leiðinlegar nikk-hreyf- ingar og steypti jafnvel stömpum á öldóttum vegi og skaut út undan sér afturendanum í holum og þvotta- brettum. Pajero er af svipaðri stærð og gamli Broncoinn var og vandinn vegna þungadreifingar því hinn sami. Munurinn er bara sá að hönn- uðum og sérfræðingum Mitsubishi hefur tekist alveg lygilega vel að draga úr þessu misræmi, jafnvelþótt Ekkert lát er á japönsku innrásinni í bílaiönaðinn. Fyrir átján árum kom Toyota-jeppinn á markaö hér á landi, sterkur og einfaldur vinnu- hestur, sem veitti Land Rover og Willys samkeppni. Tólf árum seinna kom svo Subaru, brautryðjandi í alveg nýjum flokki fjórhjóladrifs- bíla. En þar á milli var lítiö um japanska samkeppni, og Wagoneer, Range Rover, Blazer, Bronco og Ramcharger hafa að miklu leyti fengið að vera óáreittir. Meira að segja Lada Sport hefur ekki fengið japanska keppinauta. En nú er friðurinn úti. Með skömmu millibili hafa nýir, japanskir fjórhjóladrifsbílar rutt sér til rúms í öllum flokkum fjórhjóladrifsbila, allt frá Suzúki, sem er einn út aif fyrir sig í flokki mini-jeppa, og Daihatsu, sem einnig heldur uppi merki frumhugmyndar Willys-jeppans, og upp í stærri gerðir Nissan Patrol og Toyota Landcruis- er. Tveir nýir, japanskir jeppar hafa nú þeyst fram í flokki þeirra jeppa, sem f ara milliveg og eru málamiðlun í fjórhjóladrifshugmyndinni. Þetta eru Mitsubishi Pajero og Izuzu Trooper. Uppbygging þeirra er mjög svipuö og stærsti munurinn fólginn í því að Pajeroinn er 30 sentimetrum styttri á milli hjóla. Báðir eru með sjálfstæða stangafjöðrun að framan og heilan driföxul með blaðfjöðrun að aftan. Bílarnir eru í sama þyngd- arflokki, og mismunur á verði þeirra ekki mikill, þannig að þegar menn hugsa um bíla á þessu reki kemur samanburður á þeim fljótt upp í hug- ann. Álitlegur, lipur jeppi Pajeroinn kom seinna til skjalanna og er alveg nýr bíll hér á landi. Tæki- færi gafst til að fara á honum í sæmi- lega fjölbreyttan reynsluakstur, og þaö er óhætt aö slá því strax föstu að hér er um álitlegan bíl að ræða. I Pajero-jeppanum hafa framleið- endumir reynt að þræða mjög vand- rataöan meðalveg í því að skapa fjórhjóladrifsbíl, sem héldi sem best kostum fólksbíls, án þess að það kæmi niöur á eiginleikum í torfærum — eða öfugt — að skapa jeppa, sem missti sem minnst af eiginleikum jeppans, þótt hann væri sveigöur í átt til þæginda fólksbílsins. Strax í upp- hafi fyrstu kynna af bilnum fær maður tilfinningu fyrir því að óvenjuvel hafi tekist að skapa þama f jölhæfan bíl. Pajeroinn hafði verið á landsreisu þegar ég tók fyrst í hann, og sumir sem höfðu tekið í hann á undan mér líktu honum við Range Rover. Það finnst mér nú of djúpt í árinni tekið, og raunar ósanngjarnt að ætlast til slíks, því að hér er um nokkru minni bíl að ræða og í allt öðmm verðflokki. Mælaborðið í Pajeró á kannski sinn þátt í því aö mönnum kemur Range Rover í hug, því aö það er ísmeygi- legeftirlíking. I miðjunni trónar skemmtilegur hallamælir, sem er þó í raun G-mælir og mælir þann kraft, sem togar í bílinn til hliöanna eða fram og aftur. Þessi mælir getur því sýnt 40 gráðu halla á sléttum vegi, ef hratt er ekið i beygju! En þegar engin flýtni er í láréttu plani á bíln- um sýnir mælirinn hallann í gráöum og er ágætis instmment til síns brúks. Range Rover-svipur á mæleborði og innráttíngu. Það er mikið færst í fang að ætla sér að skapa alhliða, þægilegan bil en hafa hann þó svo stuttan að hann sé dugmikill í grófum torfærum, lip- ur, og setjist ekki niður á kviðinn. I þessu efni hefur tekist glettilega vel til í gerð Pajero. Ágætis fararskjóti Við fyrstu kynni af Pajero grípur þaö mann strax hve skemmtilegur billinn er í akstri. Þaö er mest að þakka vélinni, hvaö hún er kraftmik- il og gefur góða seiglu eða tog. Stýrið leikur vel í hendi, billinn furöu rás- fastur, miðað við það að ekki er tann- stangarstýri. Þetta er vökvastýri, sem fyrir minn smekk mætti vera ögn fljótara, minna doblað. Svið gír- anna er vel valið, og manni finnst strax gaman að aka þessum bíl. Vegna þess hve setið er hátt og bíll- inn tiltölulega lítill um sig er útsýni Plús: Kraftmikil vél. Þægileg stæröarhlutföll. Skemmtilegir aksturseiginleikar. Heppileg fjöðrun, eínkum aö framan. Oflugt miðstöðvarkerf i. Góð setstaða og bilstjórasæti. Skynsamlega nýtt innanrými. Góðirhemlar. Mínus: I lægra lagi að framan. Ekki laus við nikk- og bátahreyflngar. Takmarkað fótarými fyrir stór- vaxna. Lágt aftursætisbak. Kveikja beint aftan við kæliviftu. Is AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! AUKABLAÐ UM Kemur út laugardaginn 13. nóvember nk. og fylgir Helgarblaði DV þann dag Þeir auglýsendur, sem áhuga hafa ó að auglýsa vöru sína eða þjónustu I þessu aukablaði vinsamiegast hafi samband við auglýsingadeild DV Siðumúla 33, Reykjavik, sími (91) 27022 fyrir kl. 17.30 fimmtudaginn 4. nóvember. ATHUGIÐ: Blöðunum verður dreift i stœrra upplagi en venjulega á AKUREYRI og nágrenni sdU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.