Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Blaðsíða 33
DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 33 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Aðstoð frá ráðherra Bjöm Einarsson heitir þróttmikill ungur maður og ættaöur Irá Mýnesi á Héraði. Björa hefur um tæplega eins árs skeið unnið að málefnum fanga á vegum félagasam- takauna Veradar í nánum tengslum við dámsmáiaráðu- neytið. í starfi sinu kemur Björa i öll fangelsi landsins jafnt sem í húsakynni dóm- stóla og löggæslumanna. Þá er hann og heimagangur í ráðuneytinu Og jafnan au- fúsugestur því ráðuneytis- menn kunna vel að meta störf Björas Einarssonar og sér- lega jákvætt viðhorf til manna og mannlíf sins. Kunningjar Björas hafa oft haft það i flimtingum að hann væri orðinn aðstoðarmaður ráðherra. í einni erindisferð tU Litla Hrauns spurði Jón Sigurðsson, aðstoðar yfir- fangavörður, Björa hvort þetta væri rétt mcð farið. Gerði Björa lítið úr þeim titli og brosti i kampinn á sinn sérstæða hátt en sagði svo stundarhátt: „Ekki er ég nú beinlínis aðstoðarmaður ráðherra en hann Friðjón Þórðarson er indælis maður og því er ekki að leyna að hann hefur náð að aðstoða mig í einstaka máli.” Átti völvan við bók Guðmundar? Á fundi með blaðamönnum, þar sem kynnt var bókin Ó, það er dýrlegt að drottna, dreifði höfundurinn, Guð- mundur Sæmundsson, úr- kUppu úr völvuspá Vikunnar fyrir árið 1982. Textinn sem Guðmundur kUppti út er svo- hljóðandi: „Og rúsínan í pylsuend- anum á innlendum vettvangi er án efa útkoma bókar, sem verður að telja bók ársins, ef ekki áratugarins. Mun hún verða í svoköUuðum rann- sóknarblaðamennskustil og sýna hveraig tefldar eru ref- skákir um völd og fjármuni.” Vill Guðmundur Sæmundsson meina að með útkomu bókar sinnar sé spá Vikunnar að rætast. Moggi velur stefnu sósíal- demókrata frek- ar en stefnu Reagans „Sænskir sósíaldemókratar undir forystu Olof Palme hafa ekki verið taidir sér- stakir óvinir skriffinnsku og opinberrar forsjár. Engu að siður þótti þeim sænska við- skiptaráðuneytinu ofaukið og hafa ákveðið að loka þvi á næsta ári,” segir í leiðara Morgunblaðsins 26. október si. Segir að utanrikisráðu- neytið muni taka yfir helming verkefna viðskiptaráðuneyt- isins. „Astæða er til að vekja athygli á þessari þróun, ekki sist með tillitl til þess að frá þvi Ólafur Jóhannesson fiutti skýrslu stoa hafa ný og óyggj- andi rök komið fram hér á landi sem mæla með þvi að utanríkisráðuneytið hafi alfarið forsjá utanrikisvið- skipta,” segir Mogginn. Ýmsum brá í brún er þeir sáu að Mogginn hafðí með þessum orðum stoum tekið undir stefnu sænsku sósíal- demókratanna. Reagan Bandaríkjaforseti hefur nefniiega aðra stefnu í þessum málum. Hann lét við- skiptaráðuneyti sitt taka yfir utanríkisviðskiptin. Þótti mönnum skrýtið aö Moggi skyldi taka stefnu sósial- demókrata fram yfir stefnu Reagans. Ekki alltaf vandir að virðingu sinni í hófi nýlega, þar sem Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra var meðal gesta, bar á góma bók Guðmundar Sæmundssonar um verka- iýðsieiðtoga. Voru menn að veita því fyrir sér hvers vegna bókaútgáfan Öra og örlygur treysti sér ekki til að gefa hana út og hvers vegna útgáfan væri svo vönd að virðtogu sinni. „Öra og Örlygur hafa nú ekki alltaf vcrið vaudir að virðtogu sinni,” muldraði þá forsætisráðherra. í fyrstu vissu menn ekki alveg hvað hann átti við cn svo rann upp fyrir mönnum að Öm og Öriygur höfðu gefið út bókina Valdatafl í Valhöil, sem dr. Gunnar er lítt hrifinn af. ------------------.Umsjón: ■ KristjánMár Unnarsson. Kvikmyndir Kvikmyndir íþróttir Kvikmyndir Þrátt fyrir slaka heildarmynd, bregður oft fyrir góðum leik í myndinni Lúðrarair þagna, skal þar sérstaklega nefndur þáttur Timothy Huttons sem sést i hlutverki stou fremst á myndinni hér að ofan. Nýja bíó— LÚÐRARNIR ÞAGNA: Átakanleg Nýja bíó: Lúöramir þagna (Taps) Stjórn: Harold Becker. Handrít: eftir skáidsögu Devery Freemon. Kvikmyndahandrit: Dorryl Ponicsan. Kvikmyndun: Owen Roizman. Aöaihlutverk: George S. Scott, Timothy Hutton, Ronny Cox, Soon Penn, Tom Cruise, Brondan Ward, Evan Hondler. Framleiöendur: Stanley R. Jaffe, Howard B. Jaffe. Hver er sæmdin sem því fylgir að sinna herstörfum? Það verður hver að svara þessari spurningu fyrir sig — og svariö verður sennilega jafn- marglitt og áUt manna er misjafnt á stríðsbrölti. En um þá sæmd að vera hermaður fjallar myndin Lúðrarnir þagna sem nú hefur verið tekin til sýninga í Nýja bíói. Myndin er misheppnuð að því leyti sem snýr að kvikmynda- handriti. Efnisþráðurinn er dreginn svo á langinn að úr verður átakanleg vella á bandaríska vísu. Mynd þessi er tekin í herskólanum við Valley Forge og unglingaskólan- um á sama stað. Vilja framleiðendur þessarar ræmu óska sérstaklega eft- ir að það komi fram, að afurð þeirra túlki alls ekki stefnu forsvarsmanna ofannefndra skóla! Þar hafa menn það. Bunker Hill-herskóUnn, sem er umgjörð myndarinnar, hefur starfaö í nærfellt eina og hálfa öld. Hann er í einkaeign og lífið innan skólans og nemendur eru eftir því. Skólastjór- inn um langt árabU hefur verið Harlan Bache (Scott) og hann leggur mikla áherslu á við nemendur sína að þeir eigi að erfa erfðavenjur skólans — sæmdina. En það er komið að tímamótum. Bache er ekki fyrr búinn að útnefna nýjan „kadett” skólans Brian Moreland (Hutton) að honum er til- kynnt að rífa eigi skólann og byggja á rústum hans f jölbýUshúsahverfi. Bache og nemendum hans feUur þetta mjög þungt, en hann er stað- ráðinn í að neyta allra bragöa til að skólahúsnæöiö verði ekki rifið og fær til þess stuðning nemenda sinna. En svo kemur fyrir atvik sem setur strik í reikninginn. Bache verð- ur ungum manni aö bana en fær síðan hjartaáfaU og er iagöur inn á sjúkrahús og deyr þar skömmu síöar. Brian Moreland yfirkadett tekur máUð í sínar hendur. Piltarnir vig- búast innan skólaveggjanna og setja fram kröfur um að skólanum verði ekki lokað, hvað þá að hann verði rif- inn. Harðnar deilan smám saman, uns fylkisstjórinn tekur af skarið og sendir þjóðvarðliðið á vettvang... Þaö verður að segja eins og er að mynd þessi er ágætlega leikin. Flest- ir leikenda hennar eru unglingar, sem mjög líklega hafa lítt lesiö sig í gegnum kvikmyndahandrit áður, en þeir skUa hlutverkum sínum mjög þokkalega. Timothy Hutton á eðU- lega stærstan þátt í þessum leik, en meðferð hans á hlutverki kadettsins í myndinni er oft glæsileg. Gerge S. Scott stendur og fyrir sinu í hlutverki Bache hershöfðingja. En það sem dregur þessa mynd níöur fyrir mörk meðahnennskunnar er sem fyrr segir handritið. Býsnin ÖU af langdregnum, jafnvel Ula unn- um atriöum, er að finna í þessum til- búningi. Flest þessara atriða eru þess eðlis að áhorfandanum er ætlað að kjökra í sæti sínu og sýna meö- aumkun. Islenskir kvikmyndahúsa- kappar eru þekktir fyrir margt ann- að en að láta glepjast af þeim leik kana. -Sigmundur Erair Rúnarsson, vella AUGLÝSING FRÁ TÖLVUNEFIMD Að gefnu tilefni vill tölvunefnd vekja athygli á ákvæöum 19. gr. laga nr. 63/1981 um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni en þar segir m.a. að öllum, sem annast tölvuþjónustu fyrir aöra, sé óheimilt aö varðveita eöa vinna úr upplýsingum um einkamálefni, sem falla undir sérákvæöi 4. gr. og 5. gr. laganna eða undanþáguákvæði 3. mgr. 6. gr. þeirra, nema með fengnu starfsleyfi tölvunefndar. Með tölvu- þjónustu er átt við sérhvern starfsþátt í sjálfvirkri gagna- vinnslu með tölvutækni. Reykjavík, október 1982. Sólheimar - Grímsnesi Starf forstööumanns heimilisins á Sólheimum Grímsnesi er laust til umsóknar. Upplýsingar um starfið gefur stjórn heimilisins, Valgeir Ástráðsson, s. 78811, Jón Sig. Karlsson, s. 41500 og Guðrún Þórarinsdóttir, s. 99—2120. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist formanni, Valgeiri Astráðssyni, Akraseli 28, fyrir 20. nóvember. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 15., 17. og 19. tölublaði Lögbirtingablaösins 1982 á eigntoni Borgartangi 2, Mosfellshrcppi, þingl. eign Kristbjöras Áraa- sonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs, Inga Ingimundarson- ar brl. og Áraa Guðjónssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 5. nóvember 1982 kl. 15.30. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Dvergholt 14, Mosfellshreppi, þingl. eign Ólafs Jóhannssonar, fer fram á eigntoni sjálfri föstudaginn 5. nóvem- ber 1982 kl. 16.30. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og siðasta á v.b. Þórunni RE-189, þingl. eign Ölafs Inga Hrólfs- sonar og Ölafs Jóns Gústafssonar, fer fram í eða við bátinn í Hafnar- f jarðarhöfn f östudaginn 5. nóvember 1982 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst varíl05„ 108 1981 og 2. töiublaði Lögbirttogablaðstos 1982 á eigninni Oldutún 12,1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Björgvins Hall- dórssonar fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudag- inn 5. nóvember 1982 kl. 14.00. Bæjarfógetton i Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.