Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Side 40
NYJA AGFAFÍLMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM PIERPOnT Svissnesk quartz gæða^^. 8a6-ll AUGLÝSINGAR ÓDYRARI FILMASEM FÆST ALLS STAÐAR ÆM AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 Frjálst, óháð dagblaö ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982. Fimmtíu manna fundur urn hráefnis-og - framleiðslumál: „Okkar fiskur enn í sérflokki” Fimmtíu manna fundur allra aöila aö sjávarútvegi, fiskvinnslu og fisk- sölu veröur haldinn í dag að frumkvæöi sjávarútvegsráðherra. Þar veröa lögö fram mikil gögn og er reiknaö með ít- arlegum umræöum. • Steingrímur Hermannsson ráöherra kvaöst í morgun reikna meö aö standa aö reglugeröarbreytingum og laga- frumvörpum síðar í vetur. Þá væri á dagskrá umfangsmikil kynning í fjöl- miðlum., ,Þaö hef ur verið kvartaö und- an ónógum gæðum og viö megum ekki viö skakkaföllum á þessu sviði. Okkar fiskur er enn í sérflokki og því sæti veröum viö aö halda,” sagði ráöherr- ann. HERB Fundir með Geir og Kjartani Þriöja umferð í viðræöum ráðherra- nefndar viö formenn S jálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins verður í dag. Hef jast fundir klukkan 17. Að sögn þeirra ráöherra sem DV haföi tal af í morgun veröur formönn- unum tilkynnt aö afsögn ríkisstjórnar- innar komi ekki til greina. Þreifaö veröur frekar á málefnasamstöðu og kosningadegi. HERB Nýtt sölumet hjá Getraunum Sala getraunaseðla eykst jafnt og þétt hér á landi og var sett nýtt sölu- met síöastliðna viku er 502.922 .' raðir voru seldar. Ér söluverðmæti þessara raöa kr. 754.383, en til skipta kemur helmingur þessarar upphæöar kr. 377.191. Tvær raðir komu fram með 12 réttar lausnir og fá eigendur þessara raða hvor um sig 132.015 kr. en með 11 réttar lausnir voru 64 aðilar og fá þeir 1768krónur. Ej LOKI Næsta landssöfnun verð- ur fyrir Kröfluskuldum. Ólafsfjarðarmúlinn: „Þurfum göng og ekkert annað — segir Valdimar Stefánsson vegaeftiiiitsmaður I vetur er aö vænta niöurstaðna í rannsóknum sem staöiö hafa yfir í Olafsfjaröarmúla vegna væntan- legra jarögangna. 1 sumar voru boraðar þrjár tilraunaholur i Kúhagagil, nærri þeim stað þar sem dauðaslysið varð fyrir helgina. Virðast menn sammála um að op væntanlegra gangna Ólafsfjarðar- megín verði þar. Hvenær hægt verður aö hefjast handa um gerð þeirra er ekki hægt að segja á þessu stigi. Vegaáætlun verður tekin til endurskoöunar í vetur. Þegar ný áætlun litur dagsins ljós kemur fram hversu lengi Olafsfiröingar þurfa enn að búa við þann óveg sem Múlinn er. Þar i héraði er fólk orðið lang- þreytt á ástandinu. Múlinn hefur krafist stórra fóma og stöðugt er lifað í öryggisleysi og ótta um hvaö gerist næst. Fjórir menn hafa farist í Múlanum í tveim slysum. TJr þessum slysum sluppu jafn margir, lítiö eða ekkert meiddir. Mörgum sinnum hefur svo gerst að fólk hefur sloppið mjög naumlega áður en bilar þess hafa flogið fram af þverhnipinu. Sjálfur eftirlitsmaður vegarins, Valdimar Steingrimsson, hefur í tvígang fariö fram af í sínum bílum. 1 bæði skiptin slapp hann á óskiljanlegan hátt. Valdimar sagði i samtali viö DV i gær að alls hefðu 11 vélknúin ökutæki farið út af Múlavegi og nokkrum sinnum hefðu bílar oltið eftir veginum eða farið upp fyrir hann. „Það er afskaplega lítið hægt að gera til úrbóta á veginum,” sagöi Valdimar, „við þurfum göng og ekkert annað en göng.” -JBH. Flugleiðir — SAS: Samningur um aukna samvinnu Samningur um aukna samvinnu Flugleiða og SAS var undirritaður í morgun. Eftir því sem DV kemst næst felur þessi samningur í sér að ein ferð veröur farin í viku milli Kaupmanna- hafnar og Keflavíkur í nafni beggja félaganna og einnig verður farin ein ferð í viku milli Keflavíkur, Stokk- hólms og Oslóar í nafni beggja. Vélar Flugleiða annast flugið. SAS hafði til skamms tíma millilend- ingu í Keflavík á leiðinni til Grænlands en nú fljúga vélar félagsins þangað beint. Flugleiðir hafa nú sótt um leyfi til áætlunarflugs til Grænlands. Fyrmefndur samningur felur í sér að skrifstofa Flugleiða hefur aðgang að bókunarkerfi SAS og SAS hefur sams konar aðgang aö bókunartölvu Flugleiða. -PÁ. Ólympíuskákmótið: Jafntefli við Skota Islendingar og Skotar gerðu jafntefli í karlakeppninni á ólympíuskákmótinu í Sviss í gær. Hlaut hvor þjóð um sig tvovinninga. Guömundur Sigurjónsson tapaöi fyrir McNab, Jón L. Arnason vann Combie og Margeir Pétursson geröi jafntefli við Swanson. Ingi R. Jóhanns- son gerði sömuleiðis jafntefli viö Byron. Islenska karlasveitin er því meö 8 vinninga eftir 3 umferðir. Islenska kvennasveitin tefldi í gær við finnsku sveitina og sigruðu þær ís- lensku með tveimur vinningum gegn einum. Guðlaug og Aslaug sigruðu sina andstæðinga en Sigurlaug tapaði. Is- lensku stúlkumar eru með fimm vinn- inga eftir 3 umferðir. Júgóslavar eru nú efstir í karlaflokki með 10 vinninga en fast á hæla þeirra koma Sovétmenn og Vestur-Þjóðverj- armeð9,5vinning ogbiðskák. Kínverjar leiða í kvennaflokki með 7,5vinning ogbiðskák. ás. 'N\ ■ ' N V )SÍ ‘ * \ "« X ■ '■ •» > ■' * *■ :> - *■?* OjL ■ m Ó-vegurínn fyrír Ólafsfjarðarmúla. Hvað þurfa ÓlafsfíríUngar að blða lengi aftír úrbótum í samgöngumálum? GROF ARAS A UNGA KONU í BREIÐHOLTI Ung kona varð fýrir grófri árás unglingspilts í Breiöholti um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Talsvert sér á konunni eftir árásina. Hún er meðal annars stokkbólgin í andliti og auk þess losnuöu nokkrar tennur í henni. Konan var að versla í blómabúð- inni Breiðholtsblómum í Amarbakka 2. Hún var á bíl og hafði lagt honum fyrir utan verslunina. Þegar konan var búin að versla og kom út í bílinn stóðu þrír unglingspiltar fyrir aftan hann. Þeir hindruðu hana síðan í að aka í burtu. Konan fór út og bað pilt- ana um að hætta þessari iðju sinni. Einn piltanna tók orð konunnar óstinnt upp og réðst á hana. Sló hann hana nokkmm sinnum í and- litiö. Auk þess var ráðist á bíl hennar og sparkað í hann. Drengirnir hlupu síðan allir á brott og er þeirra nú leitað af lögreglunni. -JGH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.