Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Qupperneq 2
2
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982.
Helmingi minni
hangikjötssala
— um þessí jól en fyrir einu til tveimur árum,
segir verkstjóri kjötvinnslunnar Búrfells
„Þaö er mitt mat, eftir því sem viö
þekkjum til hérna í okkar sölumál-
um og eftir því sem viö heyrum frá
öörum, aö þaö megi áætla aö þaö sé
helmingi minni sala á hangikjöti nú
en fyrir einu til tveimur árum,”
sagöi Kristján Kristjánsson, verk-
stjóri hjá kjötvinnslunni Búrfelli, í
samtali viöDV.
„Þessi blaöaskrif um sykursýkis-
hættu hafa örugglega eitthvaö að
segja. Þetta hefur vissulega sín áhrif
og dregur úr hangikjötssölu. En svo
spila líka inn í þetta breyttar neyslu-
venjur. Fólk er farið aö kaupa
meira. Þaö er orðin meiri fjöl-
breytni á markaöinum. Þaö er boðið
upp á fleiri tegundir og þaö kemur
náttúrlega líka niöur á hangikjöti,”
sagöi Kristján.
„Léttreyking er aö taka mikinn
f jörkipp. Viö stefnum miklu meira aö
léttreykingu. Viö höfum aukiö fram-
leiðslu á léttreyktu kjöti og dregið úr
hangikjötsframleiöslu. Það sýnir sig
líka aö viö önnum vel eftirspurn
hangikjöts. Minni hangikjötssala er
greinileg um þessi jól,” sagöi
Kristján.
-KMU
Fyrstu meiri háttar
rannsóknir geröar
á veikun hangikjöts
„Viö erum að kanna hvemig þessi
efni kunna aö myndast í hangikjöt-
inu. Þaö eru þau efni sem taliö er aö
geti valdið þeim breytingum á
fmmum sem valdi því aö sykursýki
komi fram,” sagöi Guöjón Þorkels-
son, matvælafræðingur hjá Rann-
sóknarstofnun iandbúnaöarins.
Umfangsmiklar rannsóknir fara
nú fram á verkun og geymslu hangi-
kjöts á vegum stofnunarinnar.
Einnig er verið aö gera athuganir á
reykhúsum, ástandi þeirra og
ástandi kjötsins sem þau framleiða.
Rannsóknirnar eru geröar aö ósk
Framleiösluráös landbúnaöarins.
„Þetta er stærsta rannsókn sem
hefur verið gerö á hangikjöti. Áöur
hafa veriö geröar einhverjar litlar
athuganir. En þaö hefur aldrei veriö
gerö nein úttekt á vinnslunni,” sagöi
Guöjón.
Hann sagði aö Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins gæti ekki ein annast
þessar rannsóknir. Senda hefði þurft
sýni til Englands til mælinga þar.
Þeirra niöurstaöna væri aö vænta
umáramótin.
„Viö erum aö prófa mismunandi
söltunaraöferöir á hangikjöti, salt-
styrkleika. Einnig eram viö meö
geymsluþolsprófanir og bragö-
prófanir,” sagöihann.
Vinnslutilraunir hafa staöiö yfir
frá því í haust. Sagöi Guöjón aö þeim
þætti væri að ljúka. Geröi hann ráö
fyrir aö helstu niöurstööur rannsókn-
anna gætu legið fyrir í kringum ára-
mótin næstu. -KMU.
Veggmyndasamkeppni Æskulýðsráðs
I haust ákvaö Æskulýðsráö Reykja-
víkur aö efna til veggmyndasam-
keppni meöal unglinga í félagsmið-
stöövunum fimm sem ráöiö rekur í
Reykjavík. Var þátttakan mjög góö og
margar skemmtilegar tillögur sem
bárust. I síöustu viku voru úrslit kynnt
og afhent verölaun og viöurkenningar-
skjöl þátttakendum er unnu til 1. 2. og
3. verðlauna. I dómnefrd áttu sæti,
Bryndís Schram, Gísli Árni Eggerts-
son, Gunnar örn Jónsson og Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson. Fyrstu verölaun,
fimm þúsund krónur, hlaut tónlistar-
klúbbur Tónabæjar. Önnur verölaun,
þrjú þúsund krónur, fóru í Þróttheima
til Pælandi engla, en svo nefnist hópur
þar innan dyra. Þriöju verölaun,tvö
þúsund krónur til Dýrölinga í Bústöö-
um. Kolbeinn Pálsson, formaöur
Æskulýösráös Reykjavíkur, afhenti
dreift víða. Allar teikningamar sem 11 viö verðlaunaafhendinguna og verö-
bárust í samkeppni þessa.en þær voru ur sýningin síöar sett upp í öllum
alls 26, vom til sýnis aö Fríkirkjuvegi félagsmiðstöövunumí Reykjavík. -ÞG
v
■1 fcli m
MMI'
IWi v.-,,
hópunum verölaunin. Hann gat þess
viö athöfnina, sem fór fram í húsa-
kynnum Æskulýösráös aö Fríkirkju-
vegi 11, aö veggmynd sú sem hlaut
fyrstu verölaun yröi prentuö og henni
Tónlistarklúbburinn í Tónabc fékk fyrstu verðlaun fyrir veggmynd sem ungling-
arnir unnu. Á öllum teikningunum voru orðin — fræðsla — skemmtun — þjónusta
— yfirskrift sem gefur hugmynd um starfsemina í félagsmiðstöðvunum fimm í
Reykjavík. Verölaunamyndin, sem hér sést á bak við hópinn, verður siðar prent-
uð og dreift um borgina. DV-mynd E.O.
allpista
MAGASLEDINN
Gamli góði magasleðinn aftur fáan-
legur og nú úr plasti. Geymsluhólf
undir sæti. Fáanlegur með stýringu.
Útsölustaðir um allt land.
l/erslunin
/VMRKIÐ
Suðurlandsbraut 30 - Sími 35320
lólagetraun DV—lokið
Hafandi slegið máli á allan þennan fjölda landsfeðra
og landsmæðra ofhitnaði jólasveinninn þegar hann
var að fara yfir bókhaldið sitt. Hann er nú ekki sérlega
mikill stærðfræðingur og óreiðan í bókhaldinu var slík
að hann gafst upp að lokum og hljóp niður að vatni til
að kæla sig. Þegar hann beygði sig yfir vatnsborðið sá
hann spegilmynd sína og sá þá á augabragði hver er
bestur.
Nú skuluð þið, sem hafið tekið þátt í getrauninni,
fylla út eyðublaðið hér að neðan og senda það ásamt
lausnunum til:
RITSTJÓRN DV - JÖLAGETRAUN
SÍÐUMÚLA12-14, REYKJAVÍK
105
Nafn:............................................
Heimilisfang:....................................
Sími:............................................
Skiiafrestur er til fimmtudags, 23. des ., en dregið
verður úr réttum lausnum þriðjudaginn 28. des.
í fyrstu verðlaun er Samsung ferðakassettutæki,
frá Sjónvarpsbúðinni, Lágmúla 7.
önnur og þriðju verðlaun eru Binatone-sjónvarps-
spil frá Radíóbæ, Ármúla 38.
Fjórðu til fimmtándu verðlaun eru hijómplata að
eigin vali að verðmæti kr. 299,- frá hljómplötu-
versluninni Skífunni, Laugavegi 33.
Jámblendið:
Viðræður við Elkem
Fyrirtækið Elkem A/S í Osló,
meðeigandi íslenska ríkisins aö
Islenska jámblendifélaginu hf„ hefur
óskaö eftir því viö iönaðarráöuneytið
aö viöræöur veröi teknar upp milli
aöila um leiöir til aö treysta markaðs-
og fjárhagsstöðu Islenska járnblendi-
félagsins.
Fulltrúar iönaðarráöuneytisins
munu eiga viðræöur við fulltrúa Elkem
um þessi mál tvo næstu daga.
Viöræöurnar munu snúast meöal
annars um möguleika á því aö þriðji
aðili gerist eignaraðili aö Islenska
jámblendifélaginu, enda fylgi því
aukinn aðgangur þess aö mörkuðum
fyrir kísiljárn. Skilyrði er að íslenska
ríkiö eigi áfram meirihluta í félaginu.
Jafnframt er gert ráö fyrir því að
þessar viöræður leiöi til endur-
skoöunar á samningum milli aöila, þar
á meðal um markaösmál, raforku-
samning og tækniþjónustu.
-ás.
Álviðræðunefnd lögð niður
„Þar eö fulltrúi Framsóknarflokks-
ins, Guömundur G. Þórarinsson, hefur
sagt sig úr álviðræðunefiid og annar
maður ekki verið tilnefndur í hans stað
telur ráöuneytið augljóst að nefndin
geti ekki lengur þjónað því hlutverki
sem henni var ætlað. Hefur því verið
ákveðið aö leggja nefndina niöur,”
segir í fréttatilkynningu frá iönaðar-
ráöuneytinu.
I bréfi sem iðnaðarráðuneytiö hefur
sent meðlimum í álviðræðunefnd segir
m.a. : „Ljóst er aö meö ofangreindri
úrsögn Guðmundar úr nefndinni og
afstöðu Framsóknarflokksins hefur
þessi samstarfsvettvangur veriö eyöi-
lagöur. Því hefur ráðuneytiö ákveöið
að leggja nefndina niöur.... Ráðu-
neytiö harmar aö þessi mikilvægi
samráösvettvangur hefur verið rofinn
meö ofangreindum hætti. Viö frekari
málsmeðferö á vegum ráöuneytisins
verður tíaft faglegt og pólitískt samráö
eftir því sem aöstæður bjóða og
vænlegt getur talist til árangurs.”
-ás.