Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 3
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. 3 Þeir vatnsfreku taka frá nágrikmmm — og því verða settir vatnshemlar á öll hús í Mosf ellssveitinni „Þaö er ekki þaö aö við fáum ekki nægilegt vatn frá Reykjavík. Vanda- málið er dreifikerfið. Þaö hefur veriö aö ergja okkur, en nú er veriö aö stilla það inn og þegar því verki er lokið á þetta vandamál að vera úr sögunni,” sagöi Páll Guöjónsson, sveitarstjóri í Mosfellssveit, í viötali við DV í gær. 1 nokkrum hverfum í Mosfells- sveitinni hefur mikiö veriö kvartað um skort á heitu vatni í vetur. Er þaö aðallega í Helgafeilshverfi, Mark- holti og Lágholti en kvartanir hafa þó komið víðar. Margir kenna því um að í Mosfells- sveitinni er tvöfalt hemlunarkerfi á heita vatninu. Er þaö fyrst stillingin frá Reykjavík en síöan er stillt inn í hvert hús, en kranavatnið rennur óhemlaö fram hjá þessu. Nú þegar mörg hús í Mosfellssveitinni eru komin meö upphitaö bílaplan og heitan pott ásamt ööru, þýöir þaö að vatnið er tekiö frá nágrannanum og því berast kvartanirnar. Hreppsnefndin samþykkti á fundi fyrr í þessum mánuöi aö hefja undir- búning þess aö rennslismælar veröi settir upp í öllum húsum í Mosfells- sveit. Er kostnaöur viö þetta á milli 5000 og 7000 krónur á hús. Þá mun hver borga fyrir það sem hann notar af heitu vatni, líkt og gert er í ná- grannabyggðarlögunum. Þar meö ætti þetta vandamál aö vera úr sög- unni og nágrannaer jum að fækka um leiö. -klp- 1. j:, ff i p i te i Wk Konurnar sem stóðu aö vinnuvökunni. DV-mynd Ægir Vinnuvaka á Fáskrúðsfirði: Rúm fjörutíu þúsund í íbúð- ir aldraðra Konur á Fáskrúösfiröi söfnuöu 42 þúsundum króna á vinnuvöku sem þær héldu um síðustu helgi. Hófst vinnu- vakan á föstudagskvöld og stóð fram á miðjan sunnudag. Sátu konumar viö sauma og prjóna, auk þess sem þær bökuöu laufabrauð og kökur. Afrakst- ur erfiðisins var síöan seldur aö lokinni vökunni. Ágóöinn fer allur í aö byggja íbúðir handa öldruðum á Fáskrúös- firði. Ef þeir halda áfram að safna svona rösklega þarna fyrir austan veröur ekki langt í fyrstu íbúöina. Ymis fyrirtæki veittu konunum liö viö söfnunina. Þannig gaf Pólarsíld þeim síld sem þær marineruöu og seldu. Kaupfélagiö gaf einnig allt efni í baksturinn og aörar verslanir gáfu einnig mikiö. Vilja konumar þakka öllum kærlega fyrir góöar gjafir. DS/Ægir Fáskrúösfiröi. Körfuboltar fró kr. 253. Fótbottar frá kr. 250. Blak- boltar frá kr. 440, Handboltar frá kr. 237. Æfingagallar. Grfurlogt úrval. AHar stærðir. Verð frá kr. 560. Þetta er bara sýnishorn af úrvalinu. Könnur 85 kr., fánar39,50, úlnliðsbönd kr. 47, trefi- arkr. 120. Vinsæiu Puma barnagallarnir komnir aftur í ölium stærðum oggerðum. Verðkr. 536. -ESSCiK ÞEGAR ÞÚ HELLIfí UPPÁ GrandOS KAFFI, NOTARÞÚ MINNA, ENFÆRD SAMT HID SANNA KAFFIBRAGD. Grandos GÆD! OFARÖLLU AUÐVITAÐ Æfingaskór. Mesta úrvalé einum stað. Verð frá kr. 250. P ■ íl(l \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.