Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. Neytendur Neytendur Algjört bann við hráu kjöti: Vikulega brennt miklu af spægipylsu og svínak jöti —f ólk virðist ekki vita af auknu aðhaldi Rósa Þorsteinsdóttir frá ísafirði hringdi: Ég kom fyrir nokkru frá Dan- mörku. Á Kastrupflugvelli keypti ég mér spægipylsu. Þar var ekkert skilti lengur uppi um það að ekki mætti koma með slíka vöru til Is- lands. Þegar ég lenti í Keflavík var hins vegar pylsan tekin af mér. Og í rútunni á leiöinni í bæinn heyrði ég mann seg ja frá því að af honum hefði verið tekið létt soðið svínakjöt. Þetta kom okkur báðum jafnmikið á óvart. Hingað til hefur verið leyfi- legt, að ég taldi,að koma með svona mat inn í landiö. En mér var sagt í Keflavík að búið væri að setja ný lög sem bönnuðu slíkt. Ég hef hins vegar ekki heyrt neitt um siík lög. Mig langar líka til að vita hvaö gert er viö það sem tekið er af manni. Svar: Sveinbjörn Agnarsson í Landbún- aðarráöuneytinu sagði að ekki væri búið að setja nein ný lög. Árið 1928< hefði verið sett reglugerð sem bann- aði innflutning á ósoðnum mat (og spægipylsa og léttsoðið svínakjöt telst til þess flokks). I áranna rás hefði hins vegar verið farið að slakna á því að reglugerðinni væri nægilega framfylgt. Því hefði í sumar er gin- og klaufaveiki varð vart í Danmörku verið ákveðið að herða nú á því að reglunum væri fylgt. Um þetta hefði öllum tollstjórum verið sent bréf. Ég spurði Sveinbjöm hvort ástæða væri til að ætla að þessu ákvæði yrði eitthvað breytt í frjálsræðisátt. Hann sagði svo ekki vera. Menn vissu ekki nóg um það hvemig gin- og klaufa- veiki smitaöist að þeir þyröu að taka neina áhættu. Árið 1952 hefði til dæmis orðið geysilegt tjón í Kanada þegar þangað barst gin- og klaufa- veiki með pylsu frá Þýskalandi. Sveinbjöm var þá spurður að því hvort þetta hefði verið nægilega kynnt fyrir fólki. Taldi hann svo vera. Auglýst hefði verið í öllum blööum og til skamms tima aö minnsta kosti hefði hangið uppi spjald á Kastrup með þessum ákvæðum skráðum á. Kristján Pétursson deildarstjóri í Tollgæslunni á Keflavíkurvelli hafði aðra sögu að segja. Hann sagöi aö á hverjum einasta degi kæmi fólk með eitthvað af mat inn í landið sem taka yrði af því. Mest frá Kaupmanna- höfn. Fólk virtist ekki vita af þessum nýja strangleika og teldi að heimilt væri að koma með reyktan eða létt- soöinn mat. Þaö væri því að koma með slíkan vaming í mesta granda- leysi. Kristjáni þótti sorglegt að þurfa að brenna mat áhverjum degi en samkvæmt lögum mætti ekkert annað við hann gera. Björn Olafsson sem hefur yfirum- sjón með toliskoðun á Smyrli var spurður að því hvort sömu ströngu reglur væra þar í gildi. Hann sagði svo vera. Allur matur sem með Smyrli kæmi væri skoðaöur og hann brenndur ef hann væri ekki í samræmi við gildandi reglur. Lítið væri hins vegar um að þetta kæmi fýrir. Vandlega hefði verið auglýst á viðkomustöðum Smyrils að bannaö væri að koma með kjöt til Islands og vissu því allir farþegar af því. Nokk- uð hefði veriö um þaö í fyrrasumar aö leiðangrar heföu komiö með mikið af mat með sér. Vandlega hefði verið farið í gegnum hann og allt það eyði- lagt sem minnsta ástæða var til að ætlaaðgætiboriðsmit. -DS 7 Technics ™ Geröu drauminn aö veruleika Technics Z-25 Verð aðeins 19.890.- Stgr. KEFLAVÍK HAFNFIRÐÍNGA. G“?.,Í.nn®.?.°n ©JAPIS hf. STRANDGÖTU 28 ^^■— Technics Einar 3finnsL_ Bólungarvík Ný sending af frönskum jólaskóm Tískusýning laugardag kl. 11.30 Laugavegi87 Sími 10-5-10, ÞEGAfí ÞÚHELLIR UPPÁ GrandOS KAFFI, NOTARÞÚ MINNA, ENFÆRD SAMT HID SANNA KAFFIDRAGÐ. Grandos GÆÐ/ OFARÖLLU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.