Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 9
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982.
9
Útlönd
Bróðir
Sadats
loks
fyrir rétt
Ismat Sadat, bróöir Anwars heitins
Sadats, f jögur börn hans og tvær eigin-
konur koma fyrir rétt á laugardaginn
til þess að svara til saka fyrir 24
ákæruatriði varðandi svindl og spill-
ingu.
Þau eru einnig ákærð fyrir aö hafa
grafið undan efnahagslífi landsins,
fyrir pólitíska spillingu og fyrir aö hafa
sölsað undirsig eignir ríkisins.
Ismat er sagður hafa misnotað sér
hið góða nafn bróður síns, fyrrum
Egyptalandsforseta, í kaupsýslunni.
Hann hafði stundað svartamarkaös-
brask og flutt inn skemmd matvæli,
sem prangað var inn á f ólk.
Allar eignir hans og fjölskyldunnar
hafa verið gerðar upptækar. Hefur
hann og þrír synir hans setiö í varð-
haldi á meöan rannsóknin hefur staðið
yfir.
Vinnuagi
slæmur
í Sovét
Samkvæmt upplýsingum í Prövdu
eru Kremlverjar nú mjög uggandi um
vaxandi hirðuleysi fólks í sámbandi
við vinnu sína og skróp þess frá vinnu-
stöðum sem kemur hart niöur á fram-
leiðslunni.
Segir í leiðara í Prövdu að verka-
menn standi sig illa í framleiðslunni og
eitt ráðiö til að sporna við þessari þró-
un sé harðari vinnuagi.
Pravda vitnar í flokksleiötogann
Yuri Andropov, sem hefur eftirfarandi
ummáliðaðsegja:
— Viö verðum að koma ákveönara
fram í baráttu okkar viö þá sem brjóta
niður aga flokksins, rikisins og vinnu-
markaðsins.
Segir jafnframt í leiðaranum að
skrópasýki fólks sé mjög til baga á
mörgum sviðum og því miður hafi
margir yfirmenn reynt að leyna þessu
ástandi.
Leggur blaðið til að fólk bendi sjálft
á þá sem skiliö eigi að missa vinnu sina
sakir drykkjuskapar og ómennsku og
ætti brottreksturinn að fara fram opin-
berlega. Þannig væri þeim óæskilegu
ljóst hvað starfsfélögunum fyndist um
háttalag þeirra.
Pravda segir að brotlegir geti ekki
lengur treyst því að fá vinnu annars
staðar en áður var auðvelt fyrir fólk í
Sovétríkjunum að fá vinnu aftur þrátt
fyrir brottrekstur og þótti engin tiltak-
anleg skömm aö slíku.
Hjartaþeg-
inn nú við
betri líðan
Læknar segja að nýjasti uppskurður-
inn sem gerður hefur verið á Bamey
Clark tannlækni hafi tekist vel. Líðan
hans er sögð betri en fyrir aðgerðina
og að hann sýni öll batamerki.
Clark fékk sett í sig gervihjarta 2.
desember með sjö og hálfrar stundar
langri aðgerð á sjúkrahúsi í Saltvatns-
borg í Utah. Er hann tengdur með
slöngum við loftpressu sem knýr hjart-
að og stjórnar því.
Skömmu eftir þá aðgerð fékk hann
lungnabólgu í vinstra lunga þegar einn
loki hjartans starfaði ekki rétt. Þurfti
að skipta um loka og síðan er Clark við
betri líðan.
VERÐ: °
20"
frá kr. 17.980,-
22"
frá kr. 21.060,-
27"
frá kr. 24.880,-
Gleðileg jól
Ætlar þú að fá þér:
Litasjónvarp og/eða
myndsegulbandstæki fyrir jól?
JÓLA
TILBOÐ
frá kr.
5.000 út.
Rest á
6 mán.
Myndsegulbönd
Verð frá kr. 26.980,-
JÓLATILB0Ð
Kr. 5.000
út.
Restá 6
mán.
Þá er valið auðvelt
Við bjóðum mesta úrval í bænum yfir 30
mismunandi tæki frá gæðafyrirtækjunum -—
NORDMENDE
Þú getur valið um 6 stærðir
14,16,18,20,22 og 27 tommur
Videotækin frá Nordmende hafa
sýnt að þau standa undir nafni.
Hjá okkur gera allir góð kaup.
Fáðu þér tæki fyrir jól.
Við höfum verslað með sjónvörp í 20 ár og gerum það enn.
Reynsla okkar er þinn hagur.
Bang&Olufsen