Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 12
12 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. Tí *- * CW3BLAÐIÐ-VÍS1R Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjórj: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ristjórn: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI 84611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI19. Áskriftarveröá mánuði 150kr. Verð ilausasölu 12 kr. Helgarblaö 15 kr. Höggvið á hmítinn Alþingi á nú margra kosta völ á nýrri kjördæmaskipan. Stjórnarskrámefnd hefur lagt fram ýmsar hugmyndir og aðrar hafa fæðst í viðræöum flokksformanna og þing- flokksformanna. Spilin liggja á borðinu og bíða ákvörðun- ar. Fjölmargir kjósendur yrðu ákaflega vonsviknir, ef þingflokkarnir næðu ekki að mynda meirihluta um ein- hverja leið til að draga úr misvægi atkvæðisréttar. Slík vonbrigði mundu stórefla óbeit kjósenda á stjómmála- flokkunum. Beztur er kostur, sem varð ofan á í viðræðum Kjartans Jóhannssonar, Ölafs G. Einarssonar og Ölafs Ragnars Grímssonar. Hann hefur verið kynntur rækilega hér í blaðinu og fengið góðar undirtektir manna á meðal. Þessi kostur gerir ráð fyrir þriggja þingmanna f jölgun, sem er tiltölulega hóflegt í samanburði við flesta aðra kosti. Af átta þingmanna f jölgun á suðvesturhominu yrðu þá ekki nema fimm á kostnað fimm fámennustu kjör- dæmanna. I þessu felst eins konar tilraun til meðalvegs milli þeirr- ar meirihlutaskoðunar þjóðarinnar, aö ekki skuli fjölga þingmönnum, og þess álits margra þingmanna, að ekki megi fækka þingmönnum dreifbýlisins. Persónulegir hagsmunir eru í húfi. Sem dæmi má nefna, að í síðustu kosningum hefði Karvel Pálmason orðið að víkja fyrir tveimur flokksbræðrum sínum, Ölafi Björnssyni og Finni Torfa Stefánssyni, ef þessi aðferð hefði þá gilt. Þetta veldur því, að ekki er eining í flokkunum þrem, sem líklegastir voru til að styðja kostinn. Andófsmenn í þingflokkunum hafa margvíslegt annað á hornum sér, en raunveruleg orsök er nagandi ótti um atvinnumissi. Slíkur vandi mun fylgja öllum hugmyndum, sem gera ráð fyrir einhverri tilfræslu núverandi þingsæta til suð- vesturhornsins, — sem gera ráð fyrir minni heildarfjölg- un þingmanna en sem nemur f jölguninni í Reykjavík og á Reykjanesi. Stjórnarskrárnefnd hefur bent á ýmsa aðra kosti, sem fela í sér um það bil þriggja þingmanna fjölgun, og eru þannig svipuð málamiðlun og sá kostur, sem hér er mælt með. Þeir munu sæta sams konar andófi þingmanna. Til viðbótar hafa þeir þann galla, að samkvæmt þeim á að fjölga uppbótarmönnum á kostnað kjördæmiskosinna þingmanna. I einni útgáfunni er gert ráð fyrir 41 kjör- dæmakosnum og 22 landskjörnum þingmönnum af sam- tals 63. Miklu hreinlegra er að hafa alla þingmenn kjördæma- kosna, því að þá vita kjósendur, hverja þeir styðja til þingsetu með atkvæði sínu. Á móti kemur svo ný reikn- ingsaðferð, sem gætir hagsmuna þeirra flokka, er minna mega sín. Þingmenn Framsóknarflokksins eru flestir andvígir minnkun á misvægi atkvæða, þótt þeir fari varlegar með þá skoðun en í hin fyrri skipti, sem nýjar kosningareglur hafa verið í undirbúningi. Og þeir hugsa vel sitt ráð. Dæmigert er útspil Ólafs Jóhannessonar utanríkisráð- herra, er segir fáránlegt, að Alþýðubandalagið sem sam- stjórnarflokkur Framsóknar sé að krunka við stjórnar- andstöðuflokkana sér á parti um kjördæmamálið. Með ýmsum slíkum hætti verður reynt að bregða fæti fyrir eina umtalsverða málið, sem gæti orðið þingmönn- um þessa kjörtímabils til nokkurs álitsauka. Og senn eða ekki verða breytingasinnar á þingi að höggva á kjör- dæmahnútinn. ARNSÚGUR í FJÖÐRUM FRIÐARDÚFU Þótt þingmenn Alþýöubandalags og Framsóknarflokks hafi í megindrátt- um staöiö þétt saman aö baki núver- andi ríkisstjómar, þá sjaldan hún hefur náö samstööu um þýðingarmikil mál, er þó langt í frá aö einhver Fróöafriður hafi ríkt milli flokkanna. Til þess eru ágreiningsmálin allt of mörg í raun. Miklu fremur hefur um veriö aö ræða vopnað jafnvægi á al- þjóöavísu milli þessara fjandvina, þar sem breitt hefur veriö yfir langdrægar og þungvopnaðar eldflaugar og djúp- sprengjum veriö komið í geymslu. Hnútuköst milli þingmanna og mál- gagna hafa verið daglegt brauö, á- greiningur hefur komiö upp í minni háttar málum og stöku sinnum hefur verið minnt á aö stóm eldflaugarnar séunútil. Guðmundur í miklum metum Samhhöa hnútukastinu hafa svo ein- stakir þingmenn fengiö gild siðferðis- vottorö hjá fjandvinunum. Dæmi um slíkt er Guðmundur G. Þórarinsson, sem til skamms tíma hefur notiö tals- verörar viröingar á síöum Þjóðviljans. Ástæðan til þess er sú aö Guömundur hefur lagt nafn sitt við svokallaða friöarhreyfingu og látiö svo lítið aö halda ræðu á Miklatúni um þau mál- efni. Friöarhreyfing þessi er kommúnistum ákaflega aö skapi, enda berst hún fyrir takmörkun vígbúnaöar þeim megin járntjalds, sem þeir telja þýðingarmest aö úr honum sé dregiö. Guðmundur hefur raunar fariö nokkuö ótroðnar slóöir í málflutningi sínum og lagt fram tillögur, sem margir telja at- hyglisveröar, um takmörkun víg- búnaöar í nágrenni okkar. Þetta framtak Guömundar hefur hlotiö hrós mikiö í Þjóðviljanum. Hefur oft verið vitnaö í hann og manni á stundum skilist aö gáfumannafélag Alþýöubandalagsins teldi ekki loku Géfumannafélag Alþýðubandalagsins sór ekki lengur einn skyni gæddan mann i þingiiði maddömunn ar.... Jónas Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.