Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Qupperneq 12
12
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982.
Tí *- * CW3BLAÐIÐ-VÍS1R
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjórj: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aöstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ristjórn: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI 84611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022.
Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022.
Sími ritstjómar: 86611.
Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA12. Prentun:
ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI19.
Áskriftarveröá mánuði 150kr. Verð ilausasölu 12 kr. Helgarblaö 15 kr.
Höggvið á hmítinn
Alþingi á nú margra kosta völ á nýrri kjördæmaskipan.
Stjórnarskrámefnd hefur lagt fram ýmsar hugmyndir og
aðrar hafa fæðst í viðræöum flokksformanna og þing-
flokksformanna. Spilin liggja á borðinu og bíða ákvörðun-
ar.
Fjölmargir kjósendur yrðu ákaflega vonsviknir, ef
þingflokkarnir næðu ekki að mynda meirihluta um ein-
hverja leið til að draga úr misvægi atkvæðisréttar. Slík
vonbrigði mundu stórefla óbeit kjósenda á stjómmála-
flokkunum.
Beztur er kostur, sem varð ofan á í viðræðum Kjartans
Jóhannssonar, Ölafs G. Einarssonar og Ölafs Ragnars
Grímssonar. Hann hefur verið kynntur rækilega hér í
blaðinu og fengið góðar undirtektir manna á meðal.
Þessi kostur gerir ráð fyrir þriggja þingmanna f jölgun,
sem er tiltölulega hóflegt í samanburði við flesta aðra
kosti. Af átta þingmanna f jölgun á suðvesturhominu yrðu
þá ekki nema fimm á kostnað fimm fámennustu kjör-
dæmanna.
I þessu felst eins konar tilraun til meðalvegs milli þeirr-
ar meirihlutaskoðunar þjóðarinnar, aö ekki skuli fjölga
þingmönnum, og þess álits margra þingmanna, að ekki
megi fækka þingmönnum dreifbýlisins.
Persónulegir hagsmunir eru í húfi. Sem dæmi má
nefna, að í síðustu kosningum hefði Karvel Pálmason
orðið að víkja fyrir tveimur flokksbræðrum sínum, Ölafi
Björnssyni og Finni Torfa Stefánssyni, ef þessi aðferð
hefði þá gilt.
Þetta veldur því, að ekki er eining í flokkunum þrem,
sem líklegastir voru til að styðja kostinn. Andófsmenn í
þingflokkunum hafa margvíslegt annað á hornum sér, en
raunveruleg orsök er nagandi ótti um atvinnumissi.
Slíkur vandi mun fylgja öllum hugmyndum, sem gera
ráð fyrir einhverri tilfræslu núverandi þingsæta til suð-
vesturhornsins, — sem gera ráð fyrir minni heildarfjölg-
un þingmanna en sem nemur f jölguninni í Reykjavík og á
Reykjanesi.
Stjórnarskrárnefnd hefur bent á ýmsa aðra kosti, sem
fela í sér um það bil þriggja þingmanna fjölgun, og eru
þannig svipuð málamiðlun og sá kostur, sem hér er mælt
með. Þeir munu sæta sams konar andófi þingmanna.
Til viðbótar hafa þeir þann galla, að samkvæmt þeim á
að fjölga uppbótarmönnum á kostnað kjördæmiskosinna
þingmanna. I einni útgáfunni er gert ráð fyrir 41 kjör-
dæmakosnum og 22 landskjörnum þingmönnum af sam-
tals 63.
Miklu hreinlegra er að hafa alla þingmenn kjördæma-
kosna, því að þá vita kjósendur, hverja þeir styðja til
þingsetu með atkvæði sínu. Á móti kemur svo ný reikn-
ingsaðferð, sem gætir hagsmuna þeirra flokka, er minna
mega sín.
Þingmenn Framsóknarflokksins eru flestir andvígir
minnkun á misvægi atkvæða, þótt þeir fari varlegar með
þá skoðun en í hin fyrri skipti, sem nýjar kosningareglur
hafa verið í undirbúningi. Og þeir hugsa vel sitt ráð.
Dæmigert er útspil Ólafs Jóhannessonar utanríkisráð-
herra, er segir fáránlegt, að Alþýðubandalagið sem sam-
stjórnarflokkur Framsóknar sé að krunka við stjórnar-
andstöðuflokkana sér á parti um kjördæmamálið.
Með ýmsum slíkum hætti verður reynt að bregða fæti
fyrir eina umtalsverða málið, sem gæti orðið þingmönn-
um þessa kjörtímabils til nokkurs álitsauka. Og senn eða
ekki verða breytingasinnar á þingi að höggva á kjör-
dæmahnútinn.
ARNSÚGUR
í FJÖÐRUM
FRIÐARDÚFU
Þótt þingmenn Alþýöubandalags og
Framsóknarflokks hafi í megindrátt-
um staöiö þétt saman aö baki núver-
andi ríkisstjómar, þá sjaldan hún
hefur náö samstööu um þýðingarmikil
mál, er þó langt í frá aö einhver
Fróöafriður hafi ríkt milli flokkanna.
Til þess eru ágreiningsmálin allt of
mörg í raun. Miklu fremur hefur um
veriö aö ræða vopnað jafnvægi á al-
þjóöavísu milli þessara fjandvina, þar
sem breitt hefur veriö yfir langdrægar
og þungvopnaðar eldflaugar og djúp-
sprengjum veriö komið í geymslu.
Hnútuköst milli þingmanna og mál-
gagna hafa verið daglegt brauö, á-
greiningur hefur komiö upp í minni
háttar málum og stöku sinnum hefur
verið minnt á aö stóm eldflaugarnar
séunútil.
Guðmundur í
miklum metum
Samhhöa hnútukastinu hafa svo ein-
stakir þingmenn fengiö gild siðferðis-
vottorö hjá fjandvinunum. Dæmi um
slíkt er Guðmundur G. Þórarinsson,
sem til skamms tíma hefur notiö tals-
verörar viröingar á síöum Þjóðviljans.
Ástæðan til þess er sú aö Guömundur
hefur lagt nafn sitt við svokallaða
friöarhreyfingu og látiö svo lítið aö
halda ræðu á Miklatúni um þau mál-
efni. Friöarhreyfing þessi er
kommúnistum ákaflega aö skapi, enda
berst hún fyrir takmörkun vígbúnaöar
þeim megin járntjalds, sem þeir telja
þýðingarmest aö úr honum sé dregiö.
Guðmundur hefur raunar fariö nokkuö
ótroðnar slóöir í málflutningi sínum og
lagt fram tillögur, sem margir telja at-
hyglisveröar, um takmörkun víg-
búnaöar í nágrenni okkar.
Þetta framtak Guömundar hefur
hlotiö hrós mikiö í Þjóðviljanum.
Hefur oft verið vitnaö í hann og manni
á stundum skilist aö gáfumannafélag
Alþýöubandalagsins teldi ekki loku
Géfumannafélag Alþýðubandalagsins sór ekki lengur einn skyni gæddan mann i þingiiði maddömunn
ar....
Jónas Kristjánsson