Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 13
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. 13 Kjallari á fimmtudegi Magnús Bjarnfreðsson fyrir þaö skotíð i lítillæti sínu að í það minnsta einn skyni gæddur maður, Homo sapiens, væri í þingliði maddömmunnar. Stjörnuhrap En skjótt skipast veður í lofti. Mikið stjörnuhrap hefur orðið. Það má öllum vera ljóst við lestur Þjóðviljans síðustu dagana aö menn þar á bæ hafa séö aö illilega hafa þeir verið blekktir. Bann- sett friðardúfan var eftir allt saman ránfugl sem hafði troðið sér í dúfuham. Þar með hefur á,it!.ð á mannvitinu farið sömu leið. Ljóst er að Guð- mundur er ekki að áliti Þjóövilja- manna lengur hinn skyni gæddi maður, tæplega að hann sé uppréttur, Homo erectus. Meðaldrægumeldflaug- um var skotíð af stað, þær langdrægu settar í skotstööu og kafbátasér- fræðingar flokksins þustu af stað símleiöis og bréfleiöis með djúp- sprengjur sínar. Ekkert var of slæmt til að eigna ránfuglinum dulbúna. Þar sem orðaforða ritstjóra málgagnsins þraut var gripið til sögusagnanna að venju og ótrúlegustu hlutír fundnir upp. Málefni og moldviðri Álmálið er margslungiö mál. Iönaöarráðherra telur sannaö aö al- þjóðlegi auöhringurinn Alusuisse hafi með reikningskúnstum haft stórfé af Islendingum. Fulltrúar auðhringsins hafa brugðist ókvæða við og krafist þess að ráðherra drægi allar ásakanir sínar til baka. Enginn dómur skal hér lagður á það mál, hvort ráðherra hafi haft rétt fyrir sér í einu og öllu. Hitt og sýndi stórar og beittar klær. Guð- mundur hefur setið í svokallaðri álvið- ræðunefnd sem komiö var á fót meö fulltrúum allra þingflokka og var eini þingmaöurinn sem sæti átti í nefnd- inni. Mun hann væntanlega hafa álitiö að nefndinni væri ætlaö eitthvert annaö hlutverk en hlusta á ráðherrann segja frá því aö viðræður væru árangurslausar. Þegar ráöherrann hafði rétt einn ganginn spilað gömlu plötuna sína, gerðist hann svo djarfur að flytja tillögu sem miðaði að því að koma málum úr sjálfheldunni. Það er ljóst aö aðrir nefndarmenn sættu sig nokkurn veginn viö tillögu Guðmund- ar, í það minnsta fulltrúar Alþýðu- bandalags og ráöherra í nefndinni, enda þótt þeir vildu koma raforku- verði upp í rúmlega 14 aura í stað 12, áður en viðræður hæfust, eins og gert var ráð fyrir í tillögu Guömundar. Með þessa lausn fóru fulltrúar ráðherra í simann og komu sneyptir til baka og slitu fundi í snarheitum áður en fékkst að bera tillöguna undir atkvæði. Það sem mesta athygli vekur við á- framhaldiö er þaö að ráðherra rang- túlkar tillöguna svo herfilega aö þar er engin heil brú í. Hann skýrir beinlínis rangt frá efni hennar í ríkisfjölmiðlum og lætur málgagn sitt tönnlast á ósannindunum. Þegar þannig er staöið að málum er ávallt óhreint mjöl i pokanum. Þetta hefur verkað þannig á mig að ég er orðinn sannfærður um að ráðherra vildi ekki semja. Ég trúði því aö einhver tilfinningaleg sjálfhelda kannski á báða bóga, kæmi í veg fyrir árangur í samningum en þegar svona er aö verki staðið þarf eitthvað mikiö aðfela. Um hvað var tillagan? I ofsa og hávaöa ráðherra og málgagns hans hefur verið reynt að fela um hvaö tillagan var. Hefur verið látiö í það skina aö hún hafi verið um 20% hækkun orkuverðs og síðan yrði gengið að kröfum auðhringsins. Er engin furða að þeir, sem aðeins hafa fengið þessa túlkun á málunum, trúi því að eitthvað sé brogað viö afstöðu Guðmundar G. Þórarinssonar. Nú er hins vegar ljóst að tillagan gerði ráð fyrir því að orkuverð hækkaöi fyrst um 20% áður en viðræður hæfust og því aðeins yrði gengið til móts við nokkrar óskir Alusuisse um stækkun eða breytingar á samningum að viðunandi samningar næðust um frekari hækkun á orkuverði fyrir 1. apríl næstkomandi. Tillagan gerir þannig ekki ráð fyrir neinni tilslökun í samningum, aðeins að 20% hækkun komi strax og auðhringnum sé gert Ijóst að 1. apríl sé þolinmæði okkar þrotín. Ráðherra, sem ærist út af slíkri tillögu vill ekki semja, hvað sem hann sver. A „Gamli maðurinn” í Framsókn hefur að w því er virðist gengið fram á vígvöllinn, al- búinn þess að taka í hornin á öllum bolum....’ má öllum vera ljóst og má aldrei gleymast að alþjóðlegir auðhringir eru ekki góðgerðarfélög og nota hverja smugu sem finnst í samningum til þess að draga að sér fé. Með þeim þarf stöðugt að hafa öflugt eftirlit því full- trúar þeirra eru fljótir að finna hvar færi gefst til undanbragða. En hvort sem ráðherra hefur haft rétt fyrir sér eða ekki þá er ljóst að ráðherra hefur ekki haft enndi sem erfiði í krossferð sinni gegn auðhringn- um. Hvort um er að ræða skort á pott- þéttum sönnunargögnum eða skort á kunnáttu i mannlegum samskiptum skal ósagt látið, enda ekki höfuöat- riöi. Það sem máli skiptir er það aö málin hafa verið í algerðri sjálfheldu og ráðherra hefur hvaö eftir annaö lýst því yfir aö ekkert hafi þokaö í sam- komulagsátt í viðræðunum. Raunar virðist nú svo að ráðherrann hafi ekki skýrt þjóðinni alveg satt frá undir lokin en látum það kyrrt liggja, hann er þá ekki einn íslenskra stjórnmála- manna um þá synd. Það var við þessar kringumstæöur sem friðardúfan kastaði dulargervinu Það er lágmarkskrafa þjóðar til ráðherra að hann ræði á málefna- legum grundvelli um þau mál sem undir hann heyra. Sá ráðherra sem ekki er fær um það á að víkja. Við lifum í upplýstu þjóðfélagi en ekki í pólitísku hænsnabúi og skiptir þá ekki máli hvort menn vilja hafa þaö rúss- neskt eða búlgarskt. Líklega verða stóru eldflaugamar ekki notaöar í þessu stríði, það verður háð á afmörkuðu svæði. Væntanlega situr ráðherrann áfram, enda þótt hann sé ekki lengur trausts verður og mál þvælast áfram, öll í sjálfheldu, fram yfir áramót. Þó kann aö vera að skammt sé í að þeim stóru verði skotiö af staö. „Gamli maðurinn” í Framsókn hefur að því er virðist gengið fram á vígvöllinn, albúinn þess að taka í hornin á öllum bolum. Hann hefur lýst yfir að hann telji stjómarslit óhjákvæmileg vegná framferðis sam- starfsflokks í kjördæmamálinu. Kannski man enginnl eftir álmálinu lengur, þegar þessi grein kemst fyrir almenningssjónir. Magnús Bjarafreðsson. Togarasaga Guðmundar Halldórs Guðmundur Halldór Guðm. J. Guðmundsson Jónas Guömundsson Saga Guðmundar Halldórs togaramanns nær yfir langa ævi, allt frá að búa í steinbyrgjum og róa áraskipum fyrir aldamót, til hnoðaðra járnskipa. Jónas Guðmundsson nær ótrúlega góðu sambandi við þennan tröllvaxna karakter. Viðtal Jónasar við Guðmund J. Guðmundsson son hans, er hreint gull. Þar lýsir Guðmundur heimilis- föðurnum Guðmundi Halldóri, Verka- mannabústöðunum gömlu, kjörum alþýðumannsins og daglegu lífi hans. Bókaútgáfan Hildur Skemmuvegi 36 Kópavogi Símar: 76700 - 43880 er sannkölluð sjómannabók og brimsölt TOGAfiAMAOUHINN GUOMUNDUR HALLDÖfi OOOWU**1>UB H'aUPOH Oö SOHUK MAN5 OUOMU«OWR * ÍÉ6JA Í RA BYLGJUR: LW — MW — FM STEREO SNERTITAKKAR — 12 WATTA MAGNARI AMPS SJÁLFVIRKUR LAGALEITARI — 4 HÁTALARAR REYKJAVÍK SÍMI 85333 UÓNVARPSBODIN cc a Kr. 6.395,- (Stgr.) JÚMBÓ FRÁ SAMSUIMG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.