Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Síða 15
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. 15 umfram allt til annarra bóka og rit- höfunda til viðmiöunar um erindi og merkingu þeirra. Og saga Antons Helga var sí og æ aö minna mig á kvæöi eftirSteinunni Siguröardóttur, úr bók hennar, Verksummerkjum, sem er aö vísu alveg prýöilegt kvæði. Fyrir þína hönd nefnist þaö, ort fyrir munn stúlku sem nánar er Iýst í textanum: ung og ófríð, illa gefin, engu lík. Eg er svo vitlaus að ég get ekki einu sinni ort þetta sjálf, segir þar. „Þaö gerir kona úti í bæ. En hvaö veit hún? ” Og kannski þaö sé sú spurning sem mestu skiptir í kvæö- inu. Sögu Magga í Vini vors og blóma er á sinn hátt dálítið svipaö háttaö. Hún gæti sjálfsagt eftir efnisatriðum sínum verið sönn saga, líkast til eru sögur eins og þessi sí og æ að gerast í raun og sannleika. Og hún er líka dálítið eins og lífiö sjálft að því leyti til að ekki er auðvelt aö endursegja hana alla í fáum oröum. En Maggi er úr sveit, alinn upp hjá afa sínum, ef ég greip þaö rétt, fólkið hans komið á tvist og bast, móðir hans í Ameríku, en hann á móöurbróöur, Magnús eldra sem er bissnesmaöur. Maggi hefur verið til sjós, en er kominn í SigríðurK. Stefánsdóttir barnanna og ræða við þau um frið og sáttfýsi, líkt hænufetinu sem sólin fer þegar hún er aö hækka á lofti og breytir smátt og smátt skammdegi í nóttlausa voraldar veröld? Verum fyrirmynd sem hefur áhrif á framtíöina. Sigríöur K. Stefánsdóttir, kennari við Fósturskóla íslands. Þaö vefst fyrir mér aö finna búgrein til að benda þér á. Hvemig væri aö rækta silung? Mýrdælingar setja skít utan með tjömum sínum til aö hressa upp á lífríkiö. Búa þannig í haginn fyrir silunginn. Olíkt er þetta betri viðleitni en skítkastið í blööunum. Mér datt þetta í hug af því að ég sé sjaldan silung á borðum fólks og mér finnst það göfugt að framleiða fyrir landann. Þó að lítið fáist í aðra hönd, er samt hægt að lifa glaður. Það hefur margur gert. Það er bara kjánaskapur aö bruöla verð- mætum eins og margur gerir — allra helst ef þau em fengin eins og ölmusa frá öðrum þjóöum. Svei!! Og ef búskapurinn gengur vel, svo að eitthvað fæst meira en með þarf til innanlandsneyslu, finnst mér hægt að selja ódýrt eða gefa hungruðum. Bæjarbúum væri ekki vorkunn að taka þátt í því eða hvar er annars íslenska höfðingslundin? Hefur hún ef til vill koðnað niður í lífsþæginda- kapphlaupinu? Að síðustu, landar góðir. Höggvið ekki á líflínur þjóðarinnar, sjávarút- veg og landbúnað. Spyrjið ykkur sjálf hvað lengi þið getið lifað á út- lendum lánum og ölmusu, ef þið for- smáið gæði lands og sjávar. Munum að við erum rík. Við höfum tæki, þekkingu, gott land og duglegt fólk. Við kunnum h'klega ekki að skipuleggja en hljótum við ekki að læraþað? 19.11. Katrín Árnadóttir, Hlíð, Guúpverjahreppi. land, verkstjóri á eyrinni, býr með Katrínu, sem á ófeðraöa dóttur, Tótu, vinnur með Villa bróður henn- ar sem tekur þátt í einhverri bolsa- hreyfingu. Það gengur svona og svona sambúöin hjá Kötu og Magga, samlyndiö hjá þeim Villa. En þau systkin virðast þó hafa það f ram y fir Magga aö vita frekar en hann hvaö þau vilja með lífi sínu, til hvers sé vinnandi með því. Maggi er ansi gjarn að láta reka á reiðanum, arka að auðnu. Hann er að vísu farinn ögn að eldast, vill innst inni setjast um kyrrt með Kötu, eignast með henni barn eins og Tótu. Samt stenst hann ekki félagsskap Magnúsar frænda síns, hrossasnattið með honum, og hann stenst ekki konuna hans, Maríu, þegar hún vill fá hann til við sig. Flosnar þess vegna upp úr sam- búðinni viö Katrínu. Nú vill svo sorglega til að Villi ferst í vinnuslysi við höfnina, sem kannski var Magga að einhverju leyti að kenna. Svo mikið er víst að hann tekur slysið nærri sér: Kannski það gæti vakið hann til vitundar um hver hann eiginlega sé og hvar staddur sjálfur. Hann vill skilja að skiptum við Magnús og Maríu, taka aftur saman við Kötu. En hún er ekkert upp á það komin, hefur síðan þau Maggi skildu verið hjá foreldrum sínum austur á landi, en ætlar i haust að fara aö búa með vinkonu sinni, aqnarri einstæðri móður. Magga verður ekkert ágengt með hana. Og stendur í sögulokin aleinn uppi og alls vant. Bókmenntir Ólafur Jónsson Það er í þessum svifum sem peir Toni sögumaður kynnast á dekkja- verkstæðinu þar sem Maggi vinnur eftir slysið. Segir Tona sögu sína yfir glasi einhvem tíma. Og nú er hún komin út í bók að þremur árum liðn- um. En hváð veit strákur úti í bæ, eins og Toni, eiginlega um mann eins og Magga, um lífið sjálft? Af kviðmágum Eitthvað gengur Tona til, að leggja niður atómbull en skrifa í staðinn þessa bók um Magga. Fyrir þremur árum hafði hann nýskeð hrökklast burt úr menntaskóla, búinn að gefa út bókina sína, vann í svip á verk- stæöinu með Magga. Hvað eiga þeir saman? Skrýtiö að engu er líkara en bæði Maggi sjálfur, og líka Magnús eldri, frændi hans, Mangi sveitti sem svo var eitt sinn kallaöur, hafi í æsk- unni gengið með einhvers konar listamannsgrillu. Eins og Toni. Þar fyrir utan gefur sagan til kynna að það sé Toni sem á Tótu með Katrínu, án þess að Maggi viti neitt um það. Og má vera að Maggi eigi barnið sem María ber kannski undir belti í sögulokin. Af einhverri ástæðu gat Maggi látið sig uppi við Maríu þótt hann væri eins og lokuð bók við Kötu. Kannski það sé um síðir kvenfólkið sem mestu skiptir í sögunni og í líf- inu. En þeir Toni og Maggi eiga þá kynnin við Katrínu saman: „Það er ekki eðlilegt hvað maður lendir á miklum aumingjum alltaf,” segir hún sjálf um þetta efni. Og gæti stað- iðíkvennabók. Væri ekki annað líf að loknu þessu, labbaði ég í sjóinn strax í dag, sagði stúlkan í kvæðinu góöa eftir Stein- unni Sigurðardóttur. Vill henni til að til er annað h'f — það er allt annað líf, segir þar. SaganskilstviöMaggavin vom einan og yfirgefinn í eitthvað svipuðum sporum viö búðarglugg- ann í Álfheimum þar sem flíkaö er heimsins gæðum, bæði nýju Lunatic sjónvarpstækjunum og hinum heimsfrægu Breakable postuhns- styttum. Maggi brýtur að vísu ekki upp búðargluggann þótt hann nappi sér kannski jólasveini úr búöinni að sögulokum. Og hleypst að svo búnu burt frá henni óútkljáðri. I því held ég raunar að liggi gildi þessarar sögu, skemmtun sem af henni stafar: af tilfæringunum, leik sögunnar með efni sitt, af því að sagan lætur það um síðir standa opið og óútkljáð. Tona sögumanni óar eitt og annað í fari Magga kunningja síns, tannleysið og táfýlan og sá siður að bora í nef sér. Finnst hann sjálfsagt ekki haga lífi sínu skyn- samlega. Samt sem áður lætur hann um síðir hjá líöa að hafa vit fyrir Magga. Hvað sem þeireiga sameig- inlegt1 Toni og Maggi, hvað sem það er sem Toni vill Magga, er Tona kannski orðið um síðir ljóst að Maggi eigi sér annað líf en þaö sem verði lesið og læst í til dæmis formúlur skáldsögu. Allt annað líf. MYNDABÓK PAULS GAIMARDS Myndir úr Islandsferðum franska vís- indamannsins Pauls Gaimards 1835 og 1836. Heillandi og fróðlégar teikningar sem gefa glögga mynd af lífsháttum ís- lendinga á^þessum tímum, klæðnaði þeirra híbýlum og bæjarbrag á ís- lenskum heimilum. Dr. Haraldur Sigurðsson ritar fróð- legan inngang. Pessi fagra bók er kjörgripur og heim- ilisprýði — og auk þess tilvalin gjöf handa hollvinum erlendis. Við eigum fleiri góða gripi í bókum og viljum benda mönnum á að enn er til nokkuð af KORTASÖGU ÍSLANDS I—II eftir dr. Harald Sigurðsson. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS SKÁLHOLTSSTÍG 7 Sími 13652

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.