Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 20
20 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. hkiií er ekki sérrit heldur fjölbreytt og víðlesið heimilisblað býður ódýrasta auglýsingaverð allra íslenskra timarita. — Nú býður VIKAN nýja þjónustu fyrir auglýsendur: samn- inga um birtingu heil- eða hálfsíðu i lit eða svarthvítu, — í hverri VIKU eða annarri hverri VIKU. Hér eru rökin fyrir birtingu auglýsinga i VIKUNNI. nær til allra stétta og altra aldursstiga. Auglýsing i Vikunni nær því til fjöldans en ekki aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa. 13 HKtV hefur komið út í hverri viku í meira en 40 ár og jafnan tekið breytingum í takt við tímann, bæði hvað snertir efni og út/it. Þess vegna er VIKAN svona fjölbreytt og þess vegna er lesendahópurinn svona stór og fjölbreyttur. selst jafnt og þétt, bœði í þéttbýli og dreifbýli. Þess vegna geta auglýsendur treyst því, að auglýsing í VIKUNNI skilar sér. er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni óvið- komandi. Þess vegna er VIKAN svo vinsœl og víðlesin sem raun ber vitni. veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsamlegu verði og hver auglýsing nær til allra lesenda VIKUNNAR. i W hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar. Upplýsingar um auglýsingaverð VIKUNNAR eiga við hana eina og þær fást hjá A UGLÝSINGADEILD VIKUNNAR í síma 85320 (beinn sími) eða 27022 GULL- og S/LFUfí HÁLSFESTAfí OG AfíMBÖND Fíngerð — fínt verð Póstsendum MAGNÚS E. BALDVINSSON Laugavegi 8 — Sími 22804 Menning Menning Menning Hér er veghefill að hreinsa skriðu sem fallið hefur á þjóðveginn milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Einhvem tima mun Sigfús Kristinsson hafa ekið rútu sinniþessa leið. Þjóðlífsmyndir af Austurlandi Vilhjálmur Einarsson: Dömur, draugar og dándismenn Æviminningar Sigfúsar á Austfjarðarrútunni Bókaútgáfan örn og örlygur, 1982. Þaö eru margir skemmtilegir sprettir í endurminningum Sigfúsar Kristinssonar, bilstjóra á Aust- fjarðarútunni um áratugaskeið og stofnanda Austfjarðaleiða. I bókinni greinir hann frá hlaupi sínu í gegn- um tíöina og f jölbreytilegum kynnum af mönnum og málefnum hér og þar austanlands og norðan. Auk þess kryddar hann frásögnina með þjóösögum og sögnum af ýmsu tagi. Margar þeirra innihalda skemmtilegar mannlýsingar sem þarft var að bjarga frá gleymsku. Má til dæmis nefna lýsinguna á séra Sigurjóni Jónssyni, frjálslyndum hefðarklerki en gefnum fyrir sopann. Frásögnin af honum auökennist af mannlegri hlýju en um leið kímni. Hið sama má segja um lýsinguna á Þorsteini Jónssyni kaupfélagsstjóra. Þá er ekki minni matur í stórlygum og skemmtilegheitum Gunnars á Fossvöllum og öðrum gamanmálum af því taginu sem bókin fer ekki var- hiuta af. Gildi endurminningabóka sem þessarar er einkum fólgið í þjóðlífs- lýsingu þeirra. Ef vel tekst til bregða þær upp athyglisverðum myndum sem nútímamenn geta speglaö sig í og ef til vill lært af. Auk fróðleiksins um líf og kjör fyrri tiðar forða þær oft frá gleymsku ýmiskonar alþýðu- skáldskap sem varðveist hefur og mótast á vörum fólks. Að því leyti eru minningabækumar merkilegur vitnisburður sem ekki má vanmeta. Jafnvel að þær geti kennt okkur sitt- hvaö um munnlegar frásagnir fyrri tima. Æviminningar Sigfúsar bregðast ekki vonum hvað þetta snertir. Hér kynnumst við manni sem óx upp úr jarðvegi bændamenningar inn í ver- öld nútímans án þess þó, að leggja fyrir róða verðmæti hennar og lífs- gildi. Að vísu kynnumst við manninum Sigfúsi ósköp lítið —en Bókmenntir Matthías Viðar Sæmundsson sjálfskannanir eru nú ekki alltaf djúptækar í æviminningum — en þó virðist líf hans hafa stjómast af forn- um dyggðum eins og nægjusemi og æðmleysi, sjálfstæöi og sjálfsbjarg- arviðleitni. Þrátt fyrir erfiöleika sína og fötlun hefur hann barist á- fram sáttur við guð sinn og örlög. I það minnsta snýr bókin þeirri mynd aö okkur. Klausan að neðan er til dæmis um þetta: 12 ára gamall sér Sigfús fram á að verða aldrei heill aftur: „Aldrei blandaði ég skapara minum í það uppgjör sem ég stóö frammi fyrir en vann úr þessu einsamall og á eigin spýtur. Eg gerði mér grein fyrir því að fyrir efnalitinn sveitapilt væri ekki nema um tvennt að ræöa, annaðhvort væri lífið búið eða þá að maöur biti á jaxlinn og bölvaði í hljóði. Eg valdi síðari kostinn og eftir á að hyggja held ég að þetta slys hafi að ýmsu leyti orðiö mér til góös. Eg hef tekið mér fýrir hendur ýmislegt það sem annars hefði farið forgörðum ef ég hefði gengiðheilltilskógar.” (36). Meira fær lesandinn því miður ekki að vita; tilfinningaheimur sögumanns er eftir sem áður lokuð bók þrátt fyrir bókina! (Mig minnir að eiginkona hans sé ekki einu sinni nefnd á nafn!) Þetta er leitt aö mínum dómi því nánari lýsing sögumanns hefði gefið þjóðlífsmynd bókarinnar aukið gildi. Þrátt fyrir þessa vankanta eru Dömur, draugar og dándismenn skemmtileg minningabók sem óhætt er að mæla með. Og fleiri en Aust- firöingar geta haft gaman af lestri hennar. Málfar verksins er gott og hefur skrásetjarinn, Vilhjálmur Einarsson, skilaö verkefni sínu með ágætum. -MVS. FEKK ÞAR TOBBI UPPREISN ÆRU Kór Kennaraháskóla íslands í Norræna húsinu 11.des. Stjórnandi: Herdís H. Oddsdóttir. Efnisskrá: Ýmis þjófllög norræn í útsetning- um: Hulkonens, Edlúnds, Englunds, Skauges, Gunnars R. Sveinssonar, Ríkharðar Arnar Páls- sonar og Hjálmars H. Sveinssonar; Sönglög •ftir: Kurt Lindgren, Vagn Holboe, Jón Ás- geirsson, Atla Heimi Sveinsson og Gunnar Reyni Sveinsson. Ánægjulegt er aö vita til þess að Kór Kennaraháskólans skuli aftur vera kominn á kreik en heldur hefur verið hljótt um starfsemi hans aö undan- förnu. Ekki varð eftirvæntingin lítil þegar söngskránni var flett því í ljós kom að drjúgur hluti hennar var vel- þekkt úrvals, en töluvert erfið kór- músik. Kór Kennaraháskólans komst prýðilega frá verkefni sínu. Röddum er að sönnu nokkuð misskipt. Kvennraddirnar eru þokkalega mannaðar en karlaraddirnar illa fámennar. Tæpast gefa hlutföllin í kómum rétta mynd af kynskiptingu nemendaliðsins þótt líkast til hafi kvenþjóðin meirihlutavöld á þeim vett- vangi. En þrátt fyrir fámenni stóðu piltamir sig merkilega vel. Stór hluti kórsins virðist nokkuð Tónlist Eyjólfur Melsted kórvant fólk. Kemur hér í ljós árangur af starfi dugmikilla kórstjóra við grunn og framhaldsskóla. Þaö starf skilar ekki aðeins nokkrum verðandi atvinnutóniistarmönnum, heldur einnig tón-gmnnmenntuðum almenn- ingi sem er jafnvel enn meira virði. Sönginn í erfiðum útsetningum réð kórinn dável við og norrænir textar vom ekki hlaönir framburðar- ambögum umfram meöaltal, nema stúfurinn úr Sjúrðarkveði. Þessi perla færeyskra danskvæöa var tekin sömu harkatökum og venja er til hjá íslenskum kóram. Hvers eiga Færey- ingar aö gjalda? Þótt útsetning Gunnars Reynis Sveinssonar væri ekki kórrétt í færeyskum danskvæðastíl var hún samt alltof gegnumfæreysk til að réttlætti illa meöferð orðsins. Kórinn fór yfirleitt vel með íslensku lögin í seinni hlutanum. Að vísu náði hann ekki því höfðinglega jafnvægi sem „barokkveðskapur” Odds Björns- sonar og Atla Heimis útheimtir og Maístjama Jóns Ásgeirssonar við ljóð Laxness líktist í sinni fallegu kórút- setningu „þorski með slaufu”. Betur dámar mér upprunalega gerðin, rauluð við dragspilsundirleik. Vísur Æra Tobba voru svo laglegur enda- hnútur á samsöngnum. Má víst segja með sann að Gunnar Reynir hafi séö til þess að Tobbi fengi uppreisn æru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.