Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 21
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. 21 Menning Menning Menning Menning Bókmenntir Rannveig G. Ágústsdóttir Jón Óttar Ragnarsson: STRENGJABRÚÐUR Helgafell, Reykjavik, 1982.151 bls. Höfundur Strengjabrúöa er reiður og skrifar grein í blaðið okkar, DV, 6. des. 1982 undir heitinu ,,Afturhald allra alda sameinist.” Þar stendur þessi setning: ,JEn um leið og dofnar yfir listinni koma óvinir hennar fram úr fylgsnum sínum: stjórnmálamenn, gagnrýnendur, afturhaldsseggir og segja: hvað sögðum við, þetta er ekki . list.” Þó ég sé gagnrýnandi þá verð ég því miður að hætta á að verða talin í þessum hræðilega hópi og aö Jóni Ottarí hafi þama ratast rétt á munn — að ég muni segja um bókina hans: þetta er ekki list. En annað get ég líka sagt: Þetta er spennandi afþreyingar- saga, fyrsta skáldverk höfundar; en ekki gallalaus. Hjáfínufólki Aðalpersónur sögunnar eru nær heimsfræg söngkona, bandarísk, maður hennar — vísindamaður, líka nær heimsfrægur, vinafólkið sömu- leiðis. Hjónin heita Regina (ekki Regína) og Angus, vinirnir Stephan og Eve, Mike og Jane o.s.frv. og einn þráður tengist íslandi i stúlkunni Kötu sem er að læra myndlist í San Francisco. Reginu finnst hún svikin af eigin- manni sínum. Hún fellur fyrir Ric, þingmanni með meiru, sem vill svo ekki skilja við kellu sína til aö giftast henni. Regina leggur hart að sér til að sigra á sviði sönglistarinnar. Hún á „nokkra óvini meðal. gagnrýnenda”, en henni tekst að lokum að sigra þá og leggja aila að fótum sér. En vel að merkja, það er ekki fyrr en karlarnir í lífi hennar eru búnir að yfirgefa hana. Sorgin og mótlætið örvuðu hana til dáða og átaka við listina. Frásögnin er hröð. Engar lýsingar á aödraganda eöa umhverfi — allt skeður í gegnum samtöl persónanna eöa svo gott sem. Sagah er því í ætt við leikrit. Atburðarásin er þrungin spennu eins og vera ber í skemmtisögu en mætti vera fyllri svo að persónur lifnuðu betur við. Höfundur er nefni- lega kröfuharður við lesendur að þeir fylli upp í frásögnina með eigin ímyndunarafli. Þetta bragð er þó ekki af ásettu ráði heldur stafar það af handvömm, því stundum er beinlínis ómögulegt aö sjá af textanum, hvaö átt er við. Dæmi: , Jlenni leist vel á borgarstjórann. Þetta var þægileg kona. Fór strax að tala um óperur. Fræddi hana á því að bráöum ætti að sýna Hollendinginn fljúgandi í San Francisco. Hún hafði nokkrum sinnum verið beðin að syngja í Wagneróperum. Hún kunni ekki aö meta hann. Hann var of þungur. Vantaði léttleika ítölsku meistaranna.” (bls. 18). Já, hvor er hvor og hvur er hvur og hvers er hvaö? spyr lesandinn, ekki bara hér heldur miklu oftar Hugm yndafræðin Af skrifum höfundar í DV og vísinda- Astir í ameríku störfum hans almennt sem hvetja til heilsusamlegs lífernis hef ég þá óljósu hugmynd að hann vilji koma á fram- færi í verki sínu kenningum um áhrif umhverfis á manninn. Einnig bendir heiti sögunnar til að svo sé en það er tekið úr því sem málpípa höfundar segir, vísindamaðurinn Mike, við söng- konuna Reginu þar sem hann er að reyna að forfæra hana á baðströnd í Kaliforníu: „Einmitt. Vel sagt. Við erum leik- soppar. Strengjabrúður. Á milli okkar og umhverfisins eru milljón þræðir. Flesta höfum við aldrei hugmynd um. Samtstjórnaþeirlífiokkar.” (35). I samtali þeirra Reginu kemur Mike með tilgátu um hvers vegna Angus, maður Reginu, sem hefur verið nefndur til nóbelsverðlauna, er svo metnaðarfullur „Það er eitthvað í uppeldinu”.. .. ,Æg held ég skilji Angus vel. Fyrst gengur allt í haginn. Svo algjört hrun í kreppunni. Hann er sendur átta ára til ókunnrar konu í ókunnrí borg. Er það ekkinógskýring?” ,,Eg sé ekki samhengið”. „Niðurlægingin, Regina, hugsaðu þér niöurlæginguna. Gjaldþrot. Lítil- lækkun. Þetta hefur brennt sig inn í vitund hans. Angus er bara að endur- reisa ættarmerkið.” (34—35). Ekki meira um fortíð Angusar til að styðja þessa kenningu en sagt frá því í nokkrum setningum af hverju Stephan sé sama marki brenndur vegna áhrifa úr æsku. En síðar er Regina látin hugsa til þessa samtals við Mike: „Hún fór allt í einu að hugsa um það sem gerðist á ströndinni forðum. Allt sem Mike hafði sagt. Hvemig umhverfið mótar manninn, nauöugan viljugan. Var hún kannske sjálf öðru vísi en hún gerði sér í hugarlund? Var kannske eitthvað sem hún þurfti að breyta? Var hún sjálf afsprengi af sínu eigin umhverfi? Loft fyrir ofan lyf jabúð. Sex systkini um eina móður. Faðir sem var stöðugt nærri. Of nærri. Faöir sem ekkert gaf nemametnaö, loftkastala.” (88). Ekki meira um fortíð Reginu. Það væri allt í lagi með það ef lesandi væri ekki leiddur í þeirri villu að veriö væri að lýsa strengjabrúðum eða streng- brúðum (fallegra orð), sem stjómast af umhverfinu og áhrifum úr uppvexti. Þetta verður ekki nógu sannfærandi af því að við fáum of lítinn skammt í þessum drögum, hugmyndin er ekki sýnd, ekki fléttuð inn í söguna heldur tyllt utan á hana. Að vinna eða ekki vinna Hver svo sem hugmyndafræðin á aö vera í sögunni er það staðreynd að ' verk hins metnaðarfulla menningar- vinar Jóns Ottars Ragnarssonar verður ekki boðberi nýrra tíma í skáld- skap á annan hátt en að færa af- þreyingarlitteratúmum íslenska nýjar týpur. — Þar sem hinn gamli þýddi vinnukonuróman fjallaði oftast um aöalsmenn á Englandi segir þessi saga okkur frá vísinda- og listafólld i velferðarríkinu JUESSEI. Sá enski fjallaði um samdrátt kynjanna og upphaf hjónabands, sá amerísk/íslenski um framhjáhald og lok hjónabands. Fólkið í ensku sögunum vann ekki neitt en fólkið í þessari sögu hefur hafist til auös og valda vegna vinnu sinnar og/eða afreka á sviði lista. Höfundi tekst þó meistaralega að komast hjá umfjöllun um störf þess, telur ja&ivel að ofurkapp þeirra í þessu leynda starfi leiði til ógæfu í einkalífi. Það er kannski best aö gera ekki neitt eða að minnsta kosti „leggja meiri rækt við litlu hlutina í lífinu” eins og Regina talar um á blaðsiðu 150. Slíkt geta þeir sagt sem þegar haf a allt. Er hér kannski komin staðfesting á kenningum bandarískra vísinda- manna að skeið framfara og metnaðar sé senn á enda runnið í hinum vestræna heimi, að „The Faustian Man” Oswalds Spenglers sé dauður og að „the will to power” sé ekki lengui ríkjandi þáttur í eðli bandarísku þjóöarinnar. Þróunin, sem m.a. lýsti sér í hippamenningu og hnignun lista o.fl„ sé vísbending um upphaf á enda- lokum vestrænnar menningar? Jón Óttar: Áhrif umhverfís é manninn? Bilavörubúðin FJÖÐRIN Skeifan 2 simi 82944 Gefið hagnýta Jó/agjöf Handhœgar gjafaumbúdir. ENNEITT 80KMENNTAAFREK MATTHÍASAR JOHANNESSEN I þessari bók, Félagi orð, eru greinar, samtöl og Ijóð frá jmsum tímum sein höfundur hefur nú safnað saman í eina bók. Sumt af þessu efni hefur áður birst á prenti, en annað ékki. í bókinni eru greinar um bókmenntir og stjórnmál, og m.a. áður óbirtar frásagnir af sovésku andófsmönnunum Hrodský, Búkovský og Hostropovits, sem allir hafa komið hingað til lands, en eru heimsþekktir hver á sínu sviði. Fjölmargir íslenskir og erlendir menningar- og stjórnmálamenn koma við sögu í bókinni. Kaflaheitin gefa nokkra hugmynd um verkið: Af mönnum og málefnum, l'ndir „smásjá hugans" (al Buckminster Fuller), Rispur, Bréf til Gils (Guðmundssonar fyrrun alþingismanns sem vöktu mikla athvgli á sínum tíma), Andóf og öryggi og Vetur á næstu grösum, en þar eru áður óbirt Ijóð Matthías- ar sem tengjast efni bókarinnar með sérstökum hætti. ÞJÓÐSAGA ÞINGHOLTSSTR4ETI 27 — SÍMI 13510

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.