Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Qupperneq 26
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. 26 $ BERGIÐJAN KLEPPSSPITALA J $ * $ * * ♦ ¥ -¥■ ■¥■ + ¥ ¥ BERGIÐJAN KLEPPSSPITALA JÓLAMARKAÐUR Skreytingar, — útiljósaseríur — jólahús og aörar framleiösluvörur unnar af vistfólki. Opiö alla daga til jóla milli kl. 9 og 17. Sími 38160. ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ÚTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í tölvubúnað fyrir aðalskrifstofu í Reykjavík. Utboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 5, Reykjavík frá og með föstudeginum 17. desember 1982 gegn 1.000 kr. skilatryggingu. Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eöa breytingar skulu berast Aætlanadeild Vegagerðar ríkisins eigi síðar en 28. desember 1982. Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík fyrir kl. 13.45 fimmtudaginn 6. janúar 1983, og kl. 14.00 sama dag verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum, er þess óska. Reykjavík, idesember 1982. Vegamálastjóri. Þarítu • Ráðgjöí eða hönnun • Jarðvinnsluverktaka • Byggingarverktaka • Pípulagningarverktaka • Rafverktaka • Múraraverktaka • Málaraverktaka • innréttingaverktaka • Hurðarsmiðjur • Gluggasmiðjur • Dúklagningameistara • Stálsmiðjuverktaka • Hreingemingarverktaka • Flutningsverktaka • o.íl. o.íl. Þetta er fyrirtœki sem leitast við að veita góða þjónustu þar sem ábyrgð, ráðvendni og þekking em höfð í fyrirrúmi. Fyrirtœkið er eingöngu í samvinnu við fullgilda íagmenn. Allir samningar samkvœmt staðli. Tilboð—verksamningar—greiðsluskilmálar s Fyrirtœkið staríar almennt á sviði | framkvœmda og breytinga, jafnt í gömlu sem nýjum húsum. VERKTAKAIÐNADUR HF Skúlatún 4.105 Reykjavík. Símar: 29740 og 29788. H.s. 54731. Dulsálarfræöi og vísindi — breska sálarrannsóknafélagið 100 ára The Society for Psychical Re- search eins og það heitir á ensku var stofnaö 1882 af nokkrum kunnum brezkum visindamönnum og rithöf- undum. Fyrsti forseti þess var heim- spekingurinn Henry Sidgwick, en margir frægir menn störfuðu í félag-' inu frá upphafi, svo sem eðlisfræð- ingamir W.F. Barrett, Oliver Lodge og William Crookes, rithöfundurinn og skáldið F.W.H. Mayers o.fl. Félag þetta er frægt sem hið fyrsta vísinda- félag til rannsókna á dulsálarfræði eða parapsyehology eins og þessi fræöigrein er nú oftast kölluð. Svipuð eða sams konar sálarrann- sóknafélög voru síðan stofnuð víðar, hið ameríska 6 árum seinna, og vís- indalegar rannsóknir hafa fariö fram í ýmsum löndum, svo sem á Niðurlöndum, Frakklandi, Italiu, Rússlandi, Japan o.v., og Para- psychological Laboratory við Duke University í Durham í Bandaríkjun- um var allfrægt á árunum 1930—60. Hinar heföbundnu vísindasto&ianir og háskólar voru all-lengi treg til að viðurkenna þessa nýju vísindagrein, en nú er það breytt og kennarastólar í henni viö ýmsa háskóla. I tilefni af 100 ára afmælinu hefur brezka sálarrannsóknafélagið geng- ist fyrir útgáfu minningarrits er nefnist „Psychical Research, A Guide to its.History, Principles & Practices” (The Aquarian Press, Willingsborough, Northampton- shire). Útgáfustjóri er próf. Ivor Grattan-Guinness, en bókin er safn 34 ritgerða eftir kunna sérfræðinga í dulsálarfræði, ýmsa þeirra fræga menn. Bókin er nokkurs konar yfir- litsrit til kynningar fyrir nýliða og upprifjunar fyrir aðra, sem nokkuð eru kunnugir sálarrannsóknum sem fræðigrein, og um leið tilraun til að meta stöðuna eftir 100 ára rannsókn- arstarf. Ufeftir fíkamsdauðann Og hver er svo niðurstaöan á slíkri fræðimannaráðstefnu um það, sem fyrir marga er mergurinn málsins? Hvað er álit vísindamanna um það hvort meðvitund mannsins lifir eftir líkamsdauöann? Sennilega er óhætt að segja að vis- indin viöurkenni nú nokkrar helztu tegundir dularfullra fyrirbæra og jafnvel að mörg þeirra virðist styðja kenninguna um annað lif. Hinu er þó ekki að leyna, að ekki eru allir á einu máli. Meðal annars er Yngvi Jóhannesson. ekki fyllilega á hreinu hvaö kalla mætti sönnun. Aðstaða er hér önnur en í hinum hefðbundnu raunvísind- um, þar sem hugsanakerfi og lögmál eru dregin af efnislegri reynslu og skynjanaeðli mannsins og á tilraun- um sem hægt er að endurtaka og nota til að byggja upp skýringar, sem samrýmast nokkurn veginn hversdagslegri reynslu svo langt sem þær ná. Að vísu viðurkenna margir að á yztu þröm efnisvísind- anna sé komiö aö lítt skiljanlegum hlutum, þar sem túlkanir fjalla í rauninni meira um líkindi en vissu, og kann þá að styttast bilið yfir til hinna dularfullu fyrirbæra. Það er öllu meira talað um líkindi en sannanir í lúnni nýju og vanda- sömu fræðigrein dulsálarfræðinnar. Hér kemur það líka til að margir eru kröfuharðari um sannanir í þessu efni en nokkru öðru og láta sér ekki nægja líkur sem þeir mundu um- svifalaust taka gildar um margt ann- að. Ef til vill er þetta að sumu leyti réttlætanlegt viðhorf, því alkunnugt er að óskhyggja veldur stundum blekkingum og mörg dæmi til þar sem er beitt brögðum vísvitandi. En hvað um það,'sterk líkindi geta verið mikils virði og nálgast smám saman fullar sannanir. Eða færi menn nær sannfæringu, sem í raun- inni skiptir kannski meira máli en „sönnun”. Enda mun sjálfsreynd dularfullra fyrirbæra oft verða drýgst á metunum. Varnarfína Maður verður þess stundum var, að fólk sem hefur misst ættingja eða nána vini furðar sig mjög á því að verða aldrei fyrir neinum boðum frá hinum framliðnu, hversu mikiö sem þeir þrá þaö. En á þessu kann að finnast eðlileg skýring, eins og franski heimspekingurinn Henri Bergson benti á 1914. Þó að vera kunni hlið á milli heimanna, er fyrir því þung hurð sem ekki bifast nema sérstaklega standi á. Það er af þvi aö í manninum býr líffræðileg nauðsyn á því að hann gefi sig afdráttarlaust að þessu lífi meðan varir ævi hans hér, en opinn eða auðveldur aðgang- ur að annarri tilveru mundi e.t.v. trufla eða rugla hlutverk þessa lífs. Varnarlína þarna á milli getur því verið nauðsynleg, og telja sumir að rannsóknir bendi til þess að hún fel- ist m.a. í verkaskiptinu milli heila- helminga, þannig að vinstra heila- hvel hafi fyrstu landamæravörzluna á hendi, en samskiptin, þegar þau gerast, stjórnist af hægri heilahelm- ingi. En líffræðileg£U- sannanir eru taldar vera fyrir verkaskiptingu milli heilahelminga, þótt margt sé þarennáhuldu. Islenzka sálarrannsóknafélagið var stofnað 1920 og stóðu að því ýmsir gáfaöir menn, svo sem Haraldur Níelsson, Þórður Sveins- son og Einar Kvaran. Það gefur út tímaritið „Morgun” sem er vandaö og vinsælt rit. Fjöldamargar bækur hafa komið út á islenzku um dulræn efni. Af nýlegum bókum er kannski ástæða til að geta sérstaklega um eina í flokki vísindarita, en það er „Þessa heims og annars” eftir dr. Erlend Haraldsson, mjög athyglis- verð bók. Yngvi Jóhannesson Menning Menning Menning Misráðnir tónleikar Tónleikar Anne-Lise Gunnorsjaa og Jónínu Gísladóttur í Norrœna húsínu 12. desember. Efnisskrá: Edvard Grieg: Ved Rondano, Den sœrde, Langs ein á, Jeg elsker dig; Jean Sibelius: Flickan kom ffrðn sin alsknings möte, Drömmen, Var det en dröm?, Svarta Rosor; Björn Fongard: Þrír söngvar úr Orðskviðum Salómons; Johan Kvandal: Norske Stevtoner, op. 40. Norska sópransöngkonan Anne-Lise Gunnersjaa söng í Norræna húsinu á sunnudag við undirleik Jónínu Gísla- dóttur. Ekki verður sagt að söngskrá- in, að minnsta kosti ekki fyrri hlutinn, hafi komiö flatt upp á mann. Var þar á ferðinni kópía af kynningareintaki skandinavískra söngvara. Þeirri út- gáfunni sem er haldið að hinum barbarisku þjóðum, utanSkandinavíu. Er því líkast að söngvarar úr löndum þessum telji sig knúna til að burðast meö eitthvert skylduprógramm, sem eitt sýni hið rétta andlit skandi- navísks ljóðasöngs út á viö. En segja veröur að þar gæti lítillar hugmynda- auðgií vali. Tónlist Sem gull af eiri Anne-Lise Gunnersjaa er gagn- menntuð og vel þjálfuð söngkona og skilaöi verkefnum sínum með ágætum til áheyrenda, við staöfastan, en held- ur hlutlausan meðleik Jónínu Gísla- dóttur. Á seinni hluta efnisskrárinnar valdi söngkonan sér verk landa sinna tveggja, sem ekki eru eigendur fastra liða í skandinavískri söngskrá og verða likast til ekki. Björn Fongard er kjarkmaður að ráðast í að tónsetja Orðskviði Salómons. Þaö sýndi sig að Orðskviðimir þola nánast hvaða með- ferð sem er og báru af músíkinni, sem gull af eiri. Atthagaást og væntum- þykja skein úr flutningi Anne-Lise á heldur langdregnum stefjabálki Jo- hans Kvandal. Kvandal gerir lítið annað en að skreyta einfaldar alþýðu- vísumar með misvel viðeigandi píanó- leik. Með tímasetningu tónleikanna held ég að framið hafi verið stórt glappaskot — eöa hvernig á að reikna með aðsókn á tónleika norskrar söng- konu með norska söngskrá á sama tíma og allir sannir Islandsnorömenn hópast á annan stað til að fagna ljósa- dýrðinni á Oslóartrénu? EM Eyjólfur Melsted

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.