Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Qupperneq 28
28
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Hagkvæmast að fjárfesta í f rystum fiski á liðnu ári:
Hefði gefið aff sér
300 prósent arð
lágir af urðalána vextir og mikill gengishagnaður veldur niðurgreiðslu á
útflutningi aðalframleiðslugreinarinnar
Fjárfestingar í birgðum
algengar erlendis
Fjárfestingar í birgöum eru ekki óal-
gengar erlendis. Þekkjast þær til dæm-
si bæði í greinum eins og kakórækt og
sykurrækt. Viö Islendingar höfum
komist i kynni viö fyrirbæriö í sam-
bandi viö álið, þegar Svissneska álfé-
lagið, móðurfyrirtæki Isal hf. í
Straumsvík, hefur keypt álbirgðir þeg-
ar sala á alþjóðamörkuðum hefur
dregist saman. Það sem gerist er að
kaupandi birgðanna losar framleiö-
andann viö áhættu af birgðahaldinu.
Sá fyrmefndi á þá einnig von í hagnaði
vegna verðhaikana en einnig á hættu
að tapa vegna verðlækkana.
Besta f járfestingin sem vitað er um
hér á landi á liðnu ári var kaup á f ryst-
um fiski af framleiðendum og síðan
sala á honum aftur eftir nærri eins árs
geymslu.
Þessi fullyrðing þykir vafalaust und-
arleg i ljósi þess aö „á Islandi tapa all-
ir á fiskveiðum og fiskverkun”. Fyrir
henni era þó fullgild rök og f ullyrðingin
kom fram í ræðu Péturs Blöndal trygg-
ingafræðings og forstjóra Lífeyrissjóðs
verslunarmanna á fundi á Hótel Loft-
leiðum á dögunum. Var hann á vegum
Kaupþings hf. og fjallaði um fjárfest-
ingarmöguleika almennings.
Dæmið um f járfestingu í birgðum af
frystum fiski er svo hagstætt þar sem
vextir af afuröalánum voru á umrædd-
um tima aðeins 28% og auk þess hækk-
aði gengi dollarans gagnvart ísl. krónu
um u.þ.b. 100%. Afurða- og viðbótarlán
út á birgðir af frystum fiski eru u.þ.b.
75% af áætluðu söluverði.
Niðurstaöan er því sú að framleið-
endur eða þá þeir sem keypt hefðu af
þeim afurðirnar, frysta fiskinn, hefðu
aöeins þurft að leggja fram 25% af
verðmætinu úr eigin vasa. Hitt hefði
verið lánað með lágum vöxtum og
óverðtryggt.
Niðurstaðan er því sú að hagnaður-
inn af því aö kaupa frystan fisk á þessu
umgetna tímabili hefði verið rúmlega
300%. Það er eigið féð (25%) hefði bor-
ið meira en 300% ávöxt.
IMiðurgreiðsla á fiski
= „seðlaprentun"
Dæmið um fjárfestinguna frystum
fiski er kannski ekki raunhæft miðað
við aðstæður hér á landi. Dæmið er
hins vegar raunhæft og athyglisvert að
því leytinu að þaö sýnir ljóslega að
þama hefur verið stunduð einhvers
konar niðurgreiðsla á afurðum aðal-
atvinnugreinar okkar og
aöalútflutningsafuröum okkar. Að
sögn sérfræðinga verður slíkt aðeins
borið með beinum verðbólguaðgerðum
„seðlaprentun” eða því um liku.
Hársímakostnaður:"
Hagstæðara að
fljúga til New
Yorkogvera
þarífjóra daga
Símtöl til útlanda þykja dýr hér
á landi og fyrirtæki sem þurfa að
hafa mikil viðskipti við viðskipta-
vini sína erlendis kvarta sáran.
Er jafnvel svo að stórfyrirtæki
eitt hefur gripiö til þess ráðs aö
senda starfsmann sinn til Banda-
ríkjanna á miklum annatímum.
Odýrara er að kosta ferðir hans
til New York og uppihald í fjóra
daga og hringingar þaðan en láta
hann hringja frá Reykjavík.
Ferðakostnaöur til New York
mun vera um þaö bil 16.000 krón-
ur ásamt uppihaldi í tvo til fjóra
daga. Samsvarar þaö átta
klukkustunda notkun símans hér
við erlend samtöl, miðaö við
kostnaö við umframskref.
Verslunarráð
kynnt viðskipta-
fræðinemum
.........
Nemendur á f jórða ári í viðskipta-
deild Háskóla íslands heimsóttu
Verslunarráð íslands hinn 19. nóvem-
ber sl. Þar voru þeim kynnt störf og
stefna ráðsins og auk þess svöruðu for-
ráðamenn Verslunarráðs fyrirspurn-
um. Stefna í efnahags- og atvinnumál-
um, vaxtamál, verðlagsmál og rekstr-
argrundvöliur fyrirtækja var meðal
þess sem rætt var.
LAUN HAFA HÆKKAÐ
UM 423% ÁRK) 1982
Laun hafa hækkað um 42,8% á ár-
inu sem er að líöa. Hækkanirnar hafa
komið í eftirfarandi áföngum:
Hinn fyrsta mars nam hækkunin
7,51%, 1. júní 10,30, hinn 1. júlí 4%
samkvæmt grunnkaupshækkunum í
samningum Alþýðusambands og
vinnuveitenda, þá var hækkun 1.
september, sem nam 7,50% og nú síð-
astl.des. 7,72.
Síðasttalda hækkunin var eins og
hinar hækkanirnar, að einni undan-
skilinni, vegna hækkunar fram-
færsluvísitölu. Sú vísitala hækkaöi
þó um 17,51% en launin aðeins um
7,72%.
Mismunur þarna á milli stafar af
eftirfarandi atriðum: Búvörufrá-
dráttur (launaliður bænda) 0,99%,
hækkun tóbaks og áfengis, sem tekin
er út úr vísitölu 0,61%, áhrif versn-
andi viðskiptakjara við útlönd 0,48%
og síðan eru verðbætur skertar um
50% samkvæmt ákvæðum í bráða-
birgðalögum ríkisstjómarinnar
síðan í ágúst. Eftir standa þá 7,72%,
það hlutfall sem laun hækkuðu al-
mennt um hinn 1. desember sl.
✓
Viðskipti
ÓlafurGeirsson
öm Vigfússon
sölust jóri OLÍS
örn Vigfússon tók á miðju
þessu ári við starfi sölustjóra
efnavara hjá Olíuverslun Is-
lands hf. — OLIS. Um siðustu
mánaðamót bættist umsjón
með bensínafgreiðslum fýrir-
tækisins einnig við starfssvið
hans. örn er mjólkurfræðingur
aö mennt og lauk námi í Dan-
mörku árið 1962. Þá hóf hann
störf hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna á Selfossi. Þar gegndi
hann störfum verkstjóra og
síðar framleiðslustjóra. örn
Vigf ússon er 41 árs að aldri.
Sveinlaugur
Kristjánsson
fjármálastjóri
Broadway
Sveinlaugur Kristjánsson tók
við starfi skrifstofu- og fjár-
málastjóra hjá Veitingahúsinu
Broadway um síðustu mánaða-
mót. Hann er þrítugur að aldri,
lauk prófi frá Verslunarskóla
Islands árið 1971. Síöan starfaði
Sveinlaugur fimm ár á endur-
skoðunarskrifstofu en hóf störf
hjá Hagvangi — Hagtölu 1977,
þar sem hann var til 1979, er
hann réðst til Reykjaprents hf.
(Vísir), sem gjaldkeri. Þar var
Sveinlaugur og síðar á DV, eftir
sameiningu Visis ogDB.þartil
hann tók við hinu nýja starfi.
Þór Þorfojömsson
framkvæmdastjóri
Aseta verslunarinnarl
Þór Þorbjömsson tók við
framkvæmdastjórastarfi hjá
Aseta versluninni, sem er í eigu
sömu aðila og Armannsfell hf.,
um mánaðamótin september,
október sl. Áður hafði Þór, sem
er 38 ára aö aldri, starfaö um
tíu ára skeið hjá Radíóbúöinni
hf. Hann er húsasmiður að
mennt, lauk námi í þeirri grein
árið 1967 og starfaði við hana
framtilársinsl972.