Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 38
38 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. I gærkvöldi í gærkvöldi Bílasprautun Alsprautun, blettun, rétting. Lögum flesta liti standard. Greiðslukjör. Seljum | allt til sprautunar og til þrifa bílsins. i 'x/ Látið fagmenn vinna verkið, það 'borgar sig. Komið því með bilinn i meðferð hjá ÁFERÐ l BÍLAMÁLUN - FUNAHÖFÐA 8 - SÍMI85930 Ásmundarsalur — textílsýning Laugardaginn 18. desember opnar Heidi Kristiansen textílsýningu í Ásmundarsal viö Freyjugötu. Heidi hefur lengi fengist viö sauma og er ýmsum að góðu kunn eftir aö hafa selt barnaföt og ýmsa smámuni á úti- markaðinum á Lækjartorgi í sumar leið. Áður en Heidi fluttist til Islands var hún með í sameignarversluninni Tusind sind í Kaupmannahöfn og seldi þar aðallega barna- fatnað. Núna sýnir hún hins vegar bæði vegg- teppi, jólabrúður, töskur, bamafatnað og annað. Flestir verða munirnir til sölu. Þetta verður fyrsta einkasýning Heidiar en áður hefur hún tekið þátt í samsýningu í Þránd- heimi í Noregi, en þaöan er hún. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14 til kl. 22 fram á Þorláksmessu. Þess má að lokum geta að hljómsveitin Hrim mun leika nokkur lög við opnunina á laugardag. Páfagaukur tapaðist Ljósblár páfagaukur flaug út um gluggann á heimili sinu á Hverfisgötunni, ef einhverjir hafa orðið varir við hann eru þeir vinsam- legast beðnir að hringja í sima 27803. Frá Ferðafélagi íslands Dagsferðir sunnudaginn 19. des.: 1. kl. 10.30 — Esja-Kerhólakambur/sólstöðu- ferð. Brodda og ísaxir er nauðsynlegt að hafa með. Fararstjórar: Tómas Einarsson ogGuð- mundur Pétursson. Verð kr. 100,- 2. kl. 13.00 Kjalamestangar-Brautarholts- borg. Fararstjóri: BaldurSveinsson. Verð kr. 100,- Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar v/bíl. Ferðafélag Islands. Frá Kiwanisklúbbnum Heklu: Eftirtalin númer hlutu vinning í jóladagatals- happdrætti dagana 1,—18. des. 1. des. nr. 653 2. des. nr. 1284 3. des. nr. 2480 4. des. nr. 680 5. des. nr. 2008 6. des. nr. 817 7. des. nr. 1379 8. des. nr. 2665 9. des. nr. 438 10. des. nr. 2920 11. des. nr. 597 12. des. nr. 1946 13. des. nr.2754 14. des. nr. 2729 15. des. nr. 2889 16. des. nr. 1927 17. des. nr. 1269 18. des. nr. 1018 Frá skrifstofu forseta íslands Nýskipaður sendiherra Cabo Verde, hr. Bettencourt Santos og nýskipaöur sendiherra N-Kóreu, hr. Shin Sang Ku, afhentu í dag for- seta Islands trúnaðarbréf sín að viðstöddum Ólafi Jóhannessyni utanríkisráðherra. Síödegis þáðu sendiherramir boð forseta Islands að Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherra Cabo Verde hefur aösetur í Haag, en sendiherra N-Kóreu í Stokkhólmi. Reykjavík, 2. desember 1982. _ rF.Kfí KK. 41. harnablaði ð Tilkynningar Nýlega kom út tímaritið Nýja bamablaðið 4. tbl. I. árg. 1982. Meðal efnis í blaðinu eru: jólasögur, uppskriftir að piparkökum, þraut- ir, grin og glens, talnaþraut og margt fleira. Brauð eru myndræn Hún höföaði ekki mikiö til mín dag-' skrá sjónvarpsins í gærkvöldi né heldur útvarpsins. Samt veröur ekki undan því kvartaö aö hún hafi ekki verið fjölbreytt. Myndskáldiö Siguröur Guömunds- son er eitthvað fyrirbæri sem maöur nennir varla aö skenkja ööru auganu á, en samt sagöur einn þekktasti ís- lenski myndlistarmaöur í Evrópu. Svona er maöur þröngsýnn. Maöur geispar, og er jafnharðan búinn aö gleyma út á hvaö heila máliö gekk. Þó sá maður að brauö eru til margra hluta nytsamleg. Og þau eru mynd- ræn. En hvemig er það, skyldi sjónvarpið hafa keypt þennan þátt til sýningar ef hann hefði veriö fram- leiddurhérálandi? Svo er það blessaö Dallas-fólkiö sem allir tala illa um og mest þeir sem aldrei láta neinn þátt fram hjá sér fara. Vinsælastur er JR vegna þess að hann er verstur af öllum og fer ekki batnandi eftir því sem á líður. Hann þjónar svipuöu hlutverki og Júdas í píslarsögunni. Hann er skúrkurinn, en hann var ómissandi. Hann hóf atburðarrásina upp yfir hið hvunndagslega. Annars eru auglýsingarnar aö veröa fyrirferðamesti dagskrárliöur- inn í sjónvarpinu. Það er sagt hollt fyrir afnotagjöldin. En ég var svona aö velta fyrir mér hvaö auglýsinga- kostnaöur væri oröinn stór hluti af veröi bókar, keyptri út úr búö. Eg er nefnilega ekkert hrifinn af aö þurfa aö borga ef til vill hundrað krónur fyrir þaö eitt aö mér var bent hundrað sinnum á aö bók væri til. OEF Barátta gegn stríðsleikföngum Kvenfélagasamband Islands fagnar þeim áróðri, sem mörg ágæt félagasamtök hafa tekið upp gegn því, að bömum séu fengin í hendur leikföng, sem eru eftirmyndir dráps- tóla eða á annan hátt minna á styrjaldir og of- beldi. 1 þessu sambandi leyfir K.I. sér að minna á, að Húsmæðrasamband Norðurlanda efndi til samkeppni í tilefni hins alþjóðlega bamaárs 1980, um gerð góðra leikfagna til mótvægis við hið mikla framboð leikfanga, sem beina huga bama að ofbeldi í einhverri mynd. Þátt- taka var mikil í þessari samkeppni, alls bárust 49 tillögur. Dómnefnd, skipuð einum fulltrúa frá hverju aðildarlandi, fjaUaði um tillögurnar, en ekki þóttu þær það frumlegar, að verðar væru fyrstu verðlauna, en veitt voru tvenn önnur verðlaun, tvenn þriöju verð- laun og þrjár tillögur hlutu meðmæli sam- bandsins. Norræni menningarsjóöurinn veitti styrk til þessarar samkeppni. Mikið hugmyndaflug þarf til að gera góð leikföng og því má ætla, að því oftar sem viðlíka hvatning er veitt, sem þessi sam- keppni var, því meiri líkur séu til að fram komi hugmyndir, sem leikfangaframleiöend- ur fengjust til aö sinna. 011 aöildarfélög Húsmæörasambands Norðurlanda hafa eftir megni haldiö uppi áróðri gegn stríðsleikföngum og styður Kvenfélagasamband Islands hverja þá við- leitni, er stefnir að viðnámi gegn þeim. Kvenfélagasamband Islands Fréttatilkynning Á bókakynningu í Nýja kökuhúsinu við AusturvöU í kvöld verða nýútkomnar þýddar bækur kynntar. Jórunn Sigurðardóttir leikkona les úr þýö- ingu sinni á bókinni Mómó eftir þýska rithöf- undinn Michael Ende. Bókin hefur hlotið fjölda bókmenntaverðlauna þ.á.m. þýsku bamabókaverðlaunin (Deutscher Jugend- buchpreis). Mómó er ævintýraskáldsaga eða skrítin saga um tímaþjófa og bamið sem frelsaöi tímann úr klóm þeirra og færði hann mannfólkinu á ný. Aðaisteinn Bergdal leikari Ies úr þýðingu Sverris Páls Erlendssonar á bókinni Kæri herra Guð, þetta er hún Anna eftir enska höfundinn Fynn. I bókinni segir frá merkUeg- um kynnum 19 ára pUts og lítillar telpu, önnu. Sagt er frá óvenjulegum stundum í lifi þeirra meðan beggja nýtur við. Bækurnar Mómó og Kæri herra Guð, þetta er hún Anna hafa verið þýddar á fjölmargar tungur og hvarvetna verið í röðum metsölu- bóka. Það er Bókaforlag Isafoldar sem gefur bækumar út. Bókaútgáfan Já kynnir bókina Innra lands- lag eftir argentínska hugsuðinn SUo. 1 bókinni leggur hann fram helstu kenningar sínar og tekst á við tilgang lífsins á beinan og djúpstæðan hátt. Þau Ingibjörg Guðmunds- dóttir, Júlíus K. Valdemarsson og Metúsalem Þórisson lesa úr bók SUos. Upplesturinn hefst kl. 8.30, gengið er inn í Nýja kökuhúsiö frá Austurvelli en einnig er Bókaverslun Isafoldar opin við Austurstræti. Við teljum þetta ástand algerlega óviðun- andi og álítum að nú sé framtíð skólans stefnt ívoða. Fundurinn skorar á menntamálaráöherra, fjármálaráðherra og aðra alþingismenn að taka, við endanlega afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1983, fuUt tillit til fjárbeiðna Háskóla Is- lands. Almennur félagsfundur Samfélagsins, félag' þjóðfélagsfræðinema við Háskóla tslands, haldinn 13. des. 1982, lýsir óánægju sinni yfir þeim aðstæðum sem Lánasjóöur íslenskra námsmanna býr nú við af hendi fjarveitinga- valdsins. Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlut- verki varðandi jöfnun aðstöðu tU náms. Margir námsmenn gætu ekki stundað nám án þess að eiga kost á námslánum. Vegna slæmrar fjarhagsstöðu sjóðsins nú í haust hafa greiðslur til námsmanna dregist og greiðslur til þeirra sem eru að hefja láns- hæft nám hafa verið skertar. Miðað við framlögð fjárlög fyrir árið 1983, og áætluð útgjöld sjóðsins það ár, vantar 140 mUljónir króna til aö sjóðurinn fái staðið við skuldbindingar sínar skv. úthlutunarreglum. Fundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til menntamálaráðherra og fjármálaráö- herra að þeir beiti sér fyrir að við endanlega afgreiðslu fjárlaga verði sjóðnum tryggt það f jármagn sem hann þarf. Þá er fundurinn þeirrar skoðunar að fram- lög tU Lánasjóösins eigi að vera í formi fjár- veitinga en ekki lána. Frá skrifstofu Kvennaathvarfsins Gnoðarvogi 44—46, sími 31575. Opið er alla virka daga frá kl. 17—19. Nýlega béldu þessar stúlkur hlutaveltu til styrktar Breiðholtsklrkju. Alls söfnuðu þær 1020,70 kr. Þær heita Helga Guðiinnsdóttir, Ingunn Björg Vilhjálmsdóttir, Inga Hrönn Grétars- dóttir og iris Björk Eysteinsdóttir. Alemennur félagsfundur Samfélagsins, félags þjóðfélagsfræðinema við Háskóla ís- lands, haldinn 13. des. 1982, vUl benda á eftir- farandi: Undanfarin ár hafa fjárveitingar til Háskóla Islands verið langt frá því að vera nægar og niðurskurður hefur átt sér stað bæði utan skólans og innan. Nú er svo komið að skólanum er vart lengur fært að halda uppi hefðbundinni starfsemi sinni og þaöan af síður að auka hana og bæta. Á sama tima fjölgar stúdentum við skólann gífurlega ár frá ári eða um 1000 á síðustu fjórum árum. Því hljóta að vakna spurningar um stefnu yfir- valda í málefnum skólans. Á að gera honum kleift að standa undir nafni sem vísindaleg fræðslu- og rannsóknarstofnun? Aðventutonleikar í Akraneskirkju Á morgun, föstudaginn 17. des. kl. 20,30, halda þau Einar öm Einarsson tenor, Jóhanna G. Möller sópran, Hrönn Geirlaugsdóttir fiðlu- leikari og Guðni Þ. Guðmundsson organleik- ari tónleikaí Akraneskirkju. A efnisskrá er kirkjuleg tónlist, m.a. tengd jólum. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, en ellilífeyrisþegum er sérstaklega boðið á tónleikana í tilefni af ári aldraðra. Andlát Tilkynningar Árni Sigurðsson útvarpsvirkjameist- ari lést 11. desember. Hann fæddist 1. nóvember 1917. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Ámason og Ágústa Hildibrandsdóttir. Fyrri kona Árna var Margrét Þorsteinsdóttir og eignuð- ust þau fjórar dætur. Árni og Margrét slitu samvistum. Seinni kona Árna var Sigríöur Svava Guðmundsdóttir. Utför Áma verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Hólmfríður Jónsdóttir, fyrrverandi kennari, Meðalholti 17, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 13. des- ember sl. Elínborg Jónsdóttir, Búrfelli Miðfirði, lést 8. des. Utför hennar fer fram frá Melstaðarkirkju laugardaginn 18. desember og hefst athöfnin kl. 14. Jens Jón Jóhannesson frá Ytri-Húsum, Dýrafirði, andaðist að heimili sínu, Grenilundi 8,15. desember. Karl Hinriksson frá Eskifirði, Borgar- hlíð 4a, Akureyri, lést 11. desember. Jarðarförin fer fram laugardagmn 18. desember kl. 13.30 frá Akureyrar- kirkju. Laufey Gisladóttir, Heiðargeröi 25,- sem lést 9. desember, verður jarðsung- in í Dómkirkjunni föstudaginn 17. des. kl. 13.30. Guðlaug Katrín Kristjánsdóttir, Reynihvammi 13 Kópavogi, verður jarösungin frá Kópavogskirkju föstu- daginn 17. des. kl. 15. Magnús Bjömsson skipstjóri, Sólvalla- götu 6, verður jarðsunginn frá Frí- kirkjunni í Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 15. Jóhann Kr. Bjömsson, Sléttahrauni 29 Hafnarfirði (áöur Linnetstíg 9a), sem lést 8. desember, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstu- daginn 17. desemberkl. 10.30 árdegis. Hulda Sigrún Pétursdóttir, Hringbraut 5 Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 17. desemberkl. 14. Þóra Nikulásdóttir, Þórsmörk 3 Hveragerði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. desem- berkl. 15. Kirkjustarf Hallgrímskirkja: Opiö hús fyrir aldraöa veröur á morgun, fimmtudag, kl. 15. Aöventudagskrá og kaffi- veitingar. Skemmtanir Jólaskemmtun Geðhjálp heldur sina árlegu jólaskemmtun fimmtudaginn 16. desember, kl. 20—23.30 í samkomusal Kleppsspítala. Dagskrá: Hugvekja: Séra Gunnar Björnsson. Einsöngur: Kjuregej Alexandra. Kaffi og kökur. Lúdó og Stefán spila og syngja. Fjölmennið. Ferðalög Happdrætti Sýningar Tapað -fundið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.