Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 40
40 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Tveggja manna spil — ný spilabók Bókaútgáfan örn og Örlygur hf. hefur sent frá sér bókina „TVEGGJA MANNA SPIL” eftir Svend Novrup en Trausti Björnsson skólastjóri hefur þýtt og staöfært bókina. Er bókin í bókaflokki er ber heitiö „Spilabækur Amar-og örlygs. Eins og nafn bókarinnar ber meö sér fjallar hún um tveggja manna spil. Eru í bókinni frásagnir af mörgum tveggja manna spilum og þau kennd — bæöi spilareglur og hvernig spila skal úr og eru skýringar bókarinnar þaö tæmandi og vel fram settar aö hver sem er á aö geta lært spilin eftir leiöbeiningum bókarinnar. Meöal spil- anna sem kennd eru í bókinni eru t.d. Kasína, Tablanett, Indíánavist, Japönsk vist, Tveggja manna bridge, Stríö, 29, Minnisgaman og svo spil sem ber þaö „virðulega” nafn Eitur og ólyfjan. Bókin heitir á frummálinu „Kortspil for to”. Hún er sett, filmuunnin og prentuö hjá Prentstofu G. Benedikts- sonar en bundin í Arnarfelh hf. Kápu- hönnun annaðistSigurþór Jakobsson. Heimar eftir Sigurð Á. Friðþjófsson Skuggsjá hefur sent á markaö bók eftir ungan Hafnfiröing, Sigurð Á. Friöþjófsson. Er þaö skáldsaga, sem höfundur hefur gefiö nafniö Heimar. Heimar er á engan hátt hefðbundin skáldsaga, til þess eru þræðir sögunn- ar of margir og of laustengdir, meö snertipunkta í raunveruleika, þjóö- sögu, draumi og ímyndun. Sérhver kafli sögunnar stendur sem sjálfstæö heild, er heimur út af fyrir sig, en þó í beinu samhengi viö aðra heima frá- sagnarinnar. Sagan segir frá Ágústi. Hann er af hemámsárakynslóöinni, fæddur áriö sem íslendingar undirrituöu hernáms- samninginn viö Bandarikjamenn. Ágúst er áttavilltur í tilverunnij hann trúöi því sem unglingur aö lífiö i heföi upp á allt aö bjóða, aðeins þyrfti aö beygja þaö undir sig og móta aö eigin geöþótta . I sögulok er hann hins- vegar reynslunni ríkari. Heimar eftir Sigurð Á. Friöþjófsson er sett hjá Acta hf, filmuunnin og prentuö í Prenttækni og bundin í Bók- felli hf. Káputeikning er eftir Lárus Blöndal, Heimar er 163 bls. Svipmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson Iðunn hefur gefiö út bókina Svip- myndir , safn ljósmynda eftir Sigur- geir Sigurjónsson. Formála aö bókinni skrifar Páll Steingrímsson. Þar rekur hann aö nokkru feril Sigurgeirs sem ljósmyndara og segir m.a.: „Þessi bók er afrakstur þjáifunar og sköpunar- gáfu semekkieröllumgefin.Sigurgeir Sigurjónsson nýtur í dag viðurkenn-1 ingar sem einn af bestu ljósmyndurum | landsins. — I bókinni er 41 svarthvít ljósmynd. Myndirnar eru teknar á ára- bilinu 1966 til 1981 og eru í bókinni, myndir af ýmsum þekktum mönnum, teknar bæöi hérlendis og erlendis, | ennfremur nokkrar módelmyndir. Svipmyndir koma út í aöeins 500 ein- tökum. Bókin fæst í verslun forlagsins og ennfremur í eftirtöldum verslunum í Reykjavík: Sigfús Eymundsson, Bókav. Snæbjarnar, Mál og menning, | Penninn, Hallarmúla, Bókabúö Suöur- vers. Utan Reykjavikur fæst hún í Bókabúð Keflavíkur, Bókabúðinni Hlööum, Egilsstööum og Bókabúöinni Heiöarvegi 9, Vestmannaeyjum. j SlCiUKGKIR SIGURIÓNSSON SVIP MYNDIR | íslenskir sjávarhættir II eftir Lúðvík Kristjánsson Bókaútgáfa Menningarsjóös hefur gefiö út annaö bindi hins mikla rit- verks Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska sjávarhætti, en fyrsta bindi þess kom út 1980 og hlaut mikla athygli og viöurkenningu. Meginkaflar þessa bindis, sem er 516 bls. (30x20sm), eru: Verstöðvatal, Islenski árabáturinn, ; Vertíðir, Verleiöir og verferðir, Ver- búðir og Mata og mötulag. Ennfremur l hefur bókin aö geyma myndaskrá, heimildaskrár, ítarlega atriöisoröa-. skrá, eftirmála og efnisútdrátt á; ensku, þýddan af Jóhanni S. Hannes- synikennara. Alls eru í bókinni 482 myndir, þar af milli 50 og 60 litmyndir, flestar af fomum verstöövum og verminjum víöa um land, teknar úr lofti af Omari Ragnarssyni. Einnig eru teikningar af 30 verbúðum í öllu landsfj óröungum. Bókarhöfundur, Lúövík Kristjáns- son rithöfundur, stundaði lengi kennslu og var ritstjóri ASgis frá ársbyrjun 19371 til ársloka 1954, en hefur síðan unniö aö| fræöimennsku og ritstörfum. Hann er í hópi kunnustu sagnfræðinga okkar núj á dögum og höfundur margra bóka. Meðal rita hans eru: Viö fjörö og vík og j Ur bæ í borg (endurminningar Knud; Zimsens),Vestlendingar I—III, Áj slóðum Jóns Sigurðssonar, Or heims- borg í Grjótaþorp I—II (ævisaga Þorláks 0 Johnsons), Islenskir sjávar- hættir I og Vestræna. — Lúövík hefur! veriö félagi í Vísindafélagi Islendingal síöan 1961. Hann hlaut verðlaun úr sjóöi Ásu Guðmundsdóttur Wright 1980 og var gerður heiöursdoktor viö heim- spekideild Háskóla Islands 1981. jCúbuilt Úriðtjáiiððon -M Af I vort og æra eftir Nordahl Grieg Út er komiö hjá Arnartaki leikritið Afl vort og æra eftir Nordahl Grieg. Jóhannes Helgi íslenskaði og ritaði for- mála. I f ormálanum segir hann m .a.: ,,Nordahl Grieg var víðförull maöur. Hann var mikill friöarsinni og vildi jafnan vera þar sem hann vissi mann- kynið í hættu statt. Hann var í Kina í byltingunni 1926 og á Spáni á árum borgarastyrjaldarinnar. Afl vort og æru samdi hann 1935, eftir aö hafa kynnt sér Mein Kampf Hitlers og sannfærst um aö ný heims- styrjöld væri á næsta leiti. Og er Afl vort og æra örvæntingarfull tilraun hans til aö opna augu manna fyrir viöurstyggð styrjalda. Hann geröi þaö með því að draga upp sem víti til vamaðar myndir af þátttöku norskra sjómanna í heimsstyrjöldinni fyrri.....Ekkert leikrit á Noröur- löndum á þessari öld hefur valdiö ööru eins fjaörafoki. Nordahl Grieg barðist meö Banda- mönnum í heimsstyrjöldinni síöari. Flugvél hans var skotin niöur á jóla- föstunni 1943 í loftárás á Berlín. Hann var 41 árs þegar hann féll. Grieg tók ungur ástfóstri við Island — og hér á landi voru síöustu ljóð hans frumútgefin í sama mánuöi og hann féll.” Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál er komin út. Bókin er eftir Mörö Áma- son, Svavar Sigmundsson og örnólf Thorsson sem allir hafa unnið við Orðabók Háskólans, auk þess sem Svavar hefur undanfarin ár unniö aö gerö samheitaoröabókar. Bókin er • skreytt fjölmörgum og líflegum teikn- ingum eftir Grétar Reynisson og Guð- mund Thoroddsen myndlistarmenn. Bók þessi er mikiö verk. Víöa er leitaö fanga og auk almenns slangurs hafa höfundar lagt áherslu á söfnun oröa úr sjómannamáli, máli tónlistar- manna, máli íþróttamanna, auk þess , sem leitast hefur veriö viö aö safna orðum úr litskrúöugum oröaforöa þeirra sem ástunda neyslu áfengis og fíkniefna. Bók sem þessi hlýtur að teljast ! merkur viöburöur og forvitnileg öllum sem áhuga hafa á máli og mannlegum samskiptum. Samsvarandi oröabækur hafa verið gefnar út í öllum helstu meningarlöndum heims. Utgefandi erSvart á hvítu. Kvistir í lífstrénu — 20 samtalsþættir eftir Árna Johnsen Bókaútgáfan öm og örlygur hefur gefið út bókina „Kvistir í lífstrénu” eftir Áma Johnsen blaöamann. Bókin hefur að geyma 20 viðtalsþætti viö fólk víðs vegar aö af landinu, en Ámi John- sen er löngu þekktur fyrir skemmtileg og hispurslaus viötöl sín sem birst hafa í Morgunblaðinu. Sum viðtalanna í , JCvistir í lífstrénu” hafa áöur birst í Morgunblaöinu en önnur eru alveg ný af nálinni og hafa hvergi birst áður. I bókinni eru viötöl viö eftirtalin: Síra Valgeir Helgason. Gísla á Upp- sölum, Jón í Syðri-Neslöndum, Aðal- stein Guöjónsson (Alla kött), Sigurð Davíösson á Hvammstanga, Guðfinnu Breiðfjörð (Minnu), Björn á Löngu- mýri, Einar Gíslason í Fíladelfíu, Odd- geir Karlsson, Sigurö í Kiljuholti, Jón Níelsson, Hannibal Valdimarsson, Helga S. Eyjólfsson, Ásgeir M. Ásgeirsson (Geira ISjóbúöinni), Lárus í Grímstungu, Ágúst Gíslason (Gústa Guðsmann), Jóhann Níelsson, Snorra Halldórsson í Húsasmiöjunni, Jón í Sjólist og Jens í Munaöarnesi. Bókin, JCvistir í lífstrénu” er í stóm broti og mikið myndskreytt. Gefa myndimar bókinni verulega aukiö gildi. Bókin er sett, umbrotin, filmu- unnin og prentuð í Prentstofu G. Bene- diktssonar en bundin hjá Amarfelli hf. Bókarhönnun annaöist Steinar J. Lúö- víksson en um kápuhönnun sá Ámi Jörgensen. Úlla horfir á heiminn eftir Kára Tryggvason Ut er komin hjá Iðunni barnasagan Úlla horfir á heiminn eftir. Kára J Tryggvason. Saga þessi kom fyrst út ; 1973 og hlaut áriö eftir barnabókaverð- laun fræösluráðs Reykjavíkurborgar. Hefur hún veriö ófáanleg um langt skeiö. Um efni sögunnar segir svo á kápubaki: ,Jlér segir af lítilli stúlku sem „horfir á heiminn” stómm spyrjandi barnsaugum. Um margt þarfaöfræöastogmargsaöspyrja. Þá kemur sér vel aö geta leitað til afa sem leysir úr spurningunum, segir skemmtilegar sögur og tekur þátt í lífi hinnar ungu söguhetju.” — Sigrid Valtingojer teiknaöi myndir og kápu. Bókin er 48 blaðsíður. Prisma prentaöi. Albert Gunnar Gunnarsson skrásetti Setberg hefur gefið út bókina „Albert”. Hér segir Albert Guömunds- son frá uppvaxtarárum sínum og ævin- týralegum ferli, en Gunnar Gunnars- son skrásetti. Hvert er leyndarmálið á bak viö vel- gengni Alberts Guömundssonar og hina miklu lýöhylli? Albert Guömunds- son, sem bjó í þakherbergi viö Smiðju- stíg ásamt ömmu sinni, sendill í Reykjavík og sælgætissali á Melavell- inum. Hann, sem sparkaöi boltanum timunum saman á degi hverjum, er nú formaöur bankaráös Utvegsbankans, í stjórn Tollvörugeymslunnar, Verslun- arráösins og Hafskips, forseti borgar- stjórnar og fyrsti þingmaöur Reykvík- inga. Albert Guömundsson, knatt- spyrnusnillingurinn, sem sigraöi heim- inn og sneri síöan heim til Islands og gerist umsvifamikill athafnamaöur og síöan stjórnmálamaöur með meira persónufylgi en flestir aörir. „Albert” er 216 blaðsíöur og auk þess eru í bókinni yfir 70 myndir. UIX.VTM ALDIBMR írá gswtwÖÍ f{& sffil. Eyjar gegnum aldirnar eftir Guðlaug Gíslason „Eyjar gegnum aldirnar — Frásagnir af atburöum og mannlífi í Vestmannaeyjum frá gamalli tíö og nýrri,” nefnist nýútkomin bók frá Erni og Örlygi hf. eftir Guölaug Gíslason alþingismann. Hefur bókin aö geyma frásagnir af sögulegum viöburöum í Vestmannaeyjum frá fyrstu tíö í máli og myndum. SegirGuðlaugur Gíslason í formála bókarinnar aö margir atburöir hafi gerst í Vestmannaeyj- um sem frásagnaveröir þóttu og voru taldir fréttaefni. Með bókinni sé reynt að safna þessum frásögnum saman á einn stað til fróðleiks fyrir þá sem áhuga kynnu aö hafa á málefnum Vestmannaeyinga og þeim atburðum sem þar hafa gerst. Bókin er mikið myndskreytt. Eru myndimar nær hálft þriðja hundraö talsins og margar þeirra gamlar og fá- gætar. Einnig eru fjölmargar myndir úr bátamyndasafni Jóns Björnsson- ar. „Eyjar gegnum aldirnar” er sett, umbrotin, filmuunnin, prentuð og bundin í Prentsmiöjunni Hólum hf. Bókarhönnun annaöist Steinar J. Lúövíksson en kápuhönnun Sigurþór Jakobsson. Á kápu er gömul mynd frá Vestmannaeyjum eftir C.W. Ludvig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.