Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Síða 44
44 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL RÍMUR-NÚTÍMANS Dægurlagatextar eru sennilega sú tegund kveöskapar sem nútima ís- iendingur hefur oftast fyrir eyrun- um. Þeir eru rímur nútímans. Fóik lærir lög og um leíð lærir það text- ann. Gripandi lag með góðum texta er fljótt að festast í fólkl og hver kannast ekki við þá tilfinningu að fá eittbvert ákveðið lag á heilann? Textar nútímadæguriaga eru sennilega að flestra mati ekki f jöl- breytilegir hvað snertir yrkisefni. Hið daglega lif er nærtækast, hvunn- dagsraunir jafnt í ástamálum sem öðru. Það er ort um ballferðir, ferða- lög af ýmsu tagi, hryggbrot og ástar- ævintýri. Hið siðastnefnda er vist örugglega algengast og er varla það svið tilhuga- eða samlifsins sem ekki hefur verið tekið fyrir hjá höfundum íslcnskra dægurlagatexta. En þetta eru ekki bara islensk yrkisefni. t öllum löndum þar sem popp- og rokkmúsik er iðkuð fjaUa textar um það sama og verða þeir ástríðufyUri eftir þvi sem sunnar dregur i álfunnl, eins og vera ber. Það er ekki ýkja oft sem persónur ís- ienskra texta umtumast af ást, biði þeir skipbrot, bera þeir harm sinn i bljóði. Þeir eru margir sem fussa og sveia yfir þeim textum sem tíðkast hafa undanfarin ár og finnst að það hafi nú verið eitthvað annað héma á fyrstu áratugum aldarinnar, þegar hvert góðskáldið af öðru brá fyrir sig söngtextagerð. Vist er um það, að bragreglur vora meira í heiðri hafð- ar og textamir drógu dám af IjóðUst þess tima. En síðan hefur mUdð vatn nrnnlð tíl sjávar. Atómöldin gekk í garð og það ekki hávaðalaust. Hugs- unarháttur er að mörgu leyti breytt- ur og þjóðfélagið hefur tekið feikUeg- um breytingum undanfama áratugi. Slikt hlýtur að endurspeglast í dægurlagatextum sem öðra. Menn yrkja um þann raunveruleika sem þcirbúa viö. Formælendur texta láta yfirleitt lítt á sig fá þó hamast sé i þeim, jafnt af fræðingum sem öðram. Það hefur verið bent á það réttUega að oft brjóti orðaröð i bága vlð islenskar setningafræðireglur. Hver kannast ekki við linur eins og: „farinn mér frá”, „keUu sinni hjá”, „veröldinni í”, „glugga þínum á” o.s.frv. Hér er oft um það að ræða að orðaröðinni er bagrætt tU að ná þvi sem flestir virð- ast sammála um að texti eigi að hafa: rími. Það hefur löngum verið íslendingum hugstætt að rima hugs- un sina og þannig er það enn þann dag í dag. Það er skoðun margra að ekki sé Ijóð nema rímað sé og þarf ekki að f jölyrða um það. En trúlega geta menn sæst á það að textahöf- undar hafa verið í mikUli framför síðustu ár og margt af þeím textum sem vinsældir hafa hlotið, er alveg prýðUega ort. Menn leita orðið víða fanga, gera sér far um að orða hlut- ina á sem skemmtUegastan hátt. Hér á opnunni er rætt við tvo kunna textahöfunda sem hafa átt heiðurinn af textum við mörg af vin- sælustu lögum síðari ára, þau Iðunni Steinsdóttur og Þorstein Eggertsson. Hjalti Jón Sveinsson, sem kunnur ei fyrir þætti sina í útvarpi, ræðir héi einnig um dægurlagatexta en hanr skrifaði prófritgerð um efnið fyrii sexáram. Iðunn Steinsdóttir: „Eigi texti að vera rimaður yfirleitt, þarf hann að vera rétt kveðinn. Svo þarf hann helst að hafa eitthvert innihaid lika.” f JEXTARNIR MILU ÞRJÁTÍU OG FJÖRU- TÍU Á PLÖTUM” segir löunn Steinsdóttir textahöf undur Það eru um fjórtán ár síðan ég byrjaði aö semja texta,” segir Iöunn Steinsdóttir sem gert hefur fjölda texta á íslenskumhljómplötum. „Þetta byrjaði þannig að Tóna- kvartettinn á Húsavík vantaði söng- texta. Eg var þá búsett þar og það varð úr að ég samdi dálítið fyrir þá. Eftir það leitaði Svavar Gests til mín og síöan hefur þetta haidið áf ram. Eg býst við að textamir séu orðnir milli þrjátíu og fjörutíu á plötum. Ég hef líka fengist við að gera texta fyrir kóra og hina og þessa.” — Ertu fljót að semja? „Það fer eiginlega eftir lögum, hversu fljótt textinn verður til. Ef lagið er skemmtilegt, kemur hann fljótt, sé það hins vegar leiðinlegt er textinn oft lengur á leiðinni. Annars fer þetta nú eftir því hvemig maður er upplagður.” — Hvemig finnst þér að góður dæguriagatexti eigi að vera? „Ef menn ætla að hafa texta rím- aðan þá er mikilvægt að hann sé rétt kveðinn. Mér finnst reyndar allt í lagi með órímaða texta. Svo er nú ósköp ánægjulegt ef þeir hafa eitthvert inni- hald.” — Hvaö finnst þér um texta almennt? „Nú í seinni tíð finnst mér margir góðir dægurlagatextar hafa komiö fram og ég er ekki frá því að þeim góðu hafi fjölgað,” sagði Iðunn Steinsdóttir, barnakennari og textahöfundur. Efni textanna einkum ástin ogaðrar vangaveltur — segir Hjalti Jón Sveinsson Hjalti Jón Sveinsson, útvarpsmáð- ur og ritstjóri tímaritsins Eiðfaxa, er trúlega eini maðurinn sem gert hefur tilraun til að fjalla um fyrirbærið dægurlagatexta. Hjalti skrifaði ritgerð til B.A.- prófs í íslensku um íslenska dægur- lagatexta árið 1976. Að vísu þurfti hann að takmarka sig við eitt ár, árið 1976, til að halda ritgerðinni innan ákveðinna marka. Hjalti sagði að þetta hefði verið talsverð vinna á sínum tíma, einkum að sanka þessu að sér. „Þetta var líka erfitt að því leyti að svona könnun hafði aldrei verið gerð áður og varð ég því aðeins að þreifa mig áfram með þetta,” sagði Hjalti. Síðan tók ég textana fyrir, bæði málfarslega og hugmyndalega. Helsta niðurstaöa mín var sú að megnið af þessu væri heldur klént og þama logaöi allt í hugsanavillum og málvillum.” „Efni textanna var einkum ástin og aðrar vangaveltur, enda heita tveir kaflar í ritgerðinni Ástartextar og Heimspeki fyrir byrjendur.” „Þessir textar voru nú ekki ailir jafnlélegir því sumar hljómsveitir eins og Spilverkið, Stuðmenn og Þokkabót voru meö mun betri texta og höfðu eitthvað aö segja.” — Telurðu dægurlagatexta hafa batnaðsiöan? „Nei, það tel ég ekki. Þetta er enn mjög svipað, finnst mér. Þó eru náttúrlega komnir menn eins og Bubbi Morthens og þó hann sé ekkert stórskáld, hefur hann þó eitthvað að segja, einhvern boðskap.” Hjalti sagði ennfremur: „Sennilega hefur maður verið fulldómharður þegar ritgerðin var skrifuð, maður er umburðarlyndari svona frá degi til dag. Þó þykir mér verst hvað poppskríb- entar fjaiia lítið um texta í skrifum sinum. I plötudómum þeirra er allt of mikið um órökstuddar fullyrðingar, það er kannski i mesta lagi sagt aö textar séu lélegir. Þeir sæta því aldrei neinni verulegri gagnrýni. ” Þess skal getið að titill ritgerðar Hjalta var tekinn úr texta viö lag Engilberts Jensen, og hljóöaði hann: „Sem rós í blómabeöi, einn í kórégsyng(!).” Hjalti Jón Sveins- son: „Helsta niðurstaöa mín var sú að megnið af textunum væri heldur klént.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.