Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Page 45
DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. 45 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Ennþá alveg áfullu — spjallað við Þorstein Eggertsson Þorsteinn Eggertsson befur veriö að semja dægurlagatexta frá frum- bernsku íslenska poppsins. Hann segir aö það hafi verið meira og minna fyrir tilviljun að hann byrjaði á þessari iðju. Textarnir eru nú komnir upp á þriðja hundraðið. Sýnishom afnýlegum texta Við látum hér fylgja sýnishorn af íslenskum texta sem Þorsteinn Eggertsson samdi nýlega og út kom á plötunni Við djúkboxið. Þetta er hressilegur texti og er e.t.v. dálítið líkur textanum um Harðsnúnu Hönnu sem Þorsteinn samdi hér um árið. Rabbarbara-Rúna, rosapía er hún. Hún er spengileg og mögur, n/stíngsköld en fögur. Ég hafaldrei heyrt hún hafi reyntað koma strákunum tíl. Sjaldan sósthún masa, en með aðra höndi vasa sósthún uppá Hlemm'að óta rabbarbara upp við þii. Þarna er hún Rabbarbara-Rúna, Sjáðu — þam'erhún Rabbarbara-Rúna... Margir strákar reyna að komast yfir meyna, en hún virðist ekki kæra sig um daður eða kossaflens. Ekki skortír hana kraftínn og hún gefur þeim á kjaftínn sem of nærgöngulir gerast þvi hún gefur ekki neinum sóns. Sjáðu, þam 'er hún Rabbarbara-Rúna. Ekkert bam er hún Rabbarbara-Rúna... Ég skal gefa mór tíma. Mig skal óg leggja í lima tíl að bræða þennan is sem hún brynjar sig i sifellu með. Ekki fyrir mig óg set það og óg veit óg getþað, þvi að ástrfðumar brenna þó að henni sóþað þvert um geð. Ah, égskalnáþór, Rabbarbara-Rúna. Þorsteinn Eggertsson er vafalaust bæði afkastamesti og umdeildasti textahöfundur síöari ára. Varla kemur svo út plata hér á landi að Þorsteinn eigi ekki að minnsta kosti einhverja texta á henni. Margir texta hans hafa náö landsfrægð og dugir þar að nefna lög eins og Heim í Búðardal, Síöasta sjóferðin, Þrjú tonn af sandi, Sextán týrur og mörg fleiri. Flestir textanna Dægurlagatextar Pétur Ástvaldsson hafa trúlega verið sungnir við lög Hljóma, Lónlí blú bojs, Rúnars Júlíus- sonar og Gunnars Þóröarsonar. Þorsteinn var tekinn tali og spurður hvort hann væri ekkert að fara að hætta. „Nei, ég er enn alveg á fullu. Þetta kemur reyndar í skorpum og nú síöast samdi ég eina 10—12 texta á þrjár plötur, plötu Gunnars og Pálma, Olafs Þórðarsonar og Aðeins eitt líf með Þú ogég.” — Ertu lengi aö semja textana? „Það er mjög misjafnt eftir lögum hvað ég er lengi, en sum lög beinlinis bjóöa upp á hugmynd aðtexta.” — Hvenærbyrjaðirðuáþessu? „Það var árið 1965 og fyrsti texti minn var fyrir Savannatríóið. Upprunalega ætlaði ég aldrei að fara út í þetta en það var meira og minna fyrir tilviljun sem þetta hófst. ” — Hefur alltaf verið nóg að gera í þessu? „Nei, upp úr 1970 minnkaði texta- gerðin verulega því þá var í tísku að gera texta á ensku. Svo jókst þetta aftur. Eg hef svo sem gert nokkuð að því líka og þýtt texta. Eg hef gaman af tungumálum.” — Attu þér einhvern uppáhalds- texta? „Nei, það get ég varia sagt þó þeir séu orðnir tæplega þrjú hundruð. Mér finnst oft gaman að textum meöan þeir eru nýir en eftir nokkurn tíma verða þeir gjaman eins og baunir í sömu súpu.” — Finnst þér íslenskir textar hafa batnað í seinni tíð? „Já, þeir hafa batnaö að því leyti aö það er komin miklu meiri breidd í þá en áður var. Sumir textar sem maður heyrir núna eru þó verri en nokkurn tíma áður og hefði varla verið hleypt í gegn fyrir fimm til tíu árum. Svo eru aðrir sem eru betri en áður hefur tiðkast. Ymsir góðir textahöfundar hafa komið upp undanfarin ár, aðrir góðir hafa hætt í bili, eins og til dæmis Megas.” — Það hefur ekki hvarflað að þér að leggja þetta á hilluna? „Nei, ætli það. Það má náttúrlega segja sem svo að ég ætla mér aldrei að gera fleiri texta en ég klára í einu. Maður hefur ágæta vasapeninga upp úr þessu, þetta er aukavinna og ég legg engan sérstakan metnað í þetta.” — Þér hefur ekki dottið í hug að gefa út einhvem alvarlegri kveðskap? „Eg á að vísu til ljóðabækur í handritum en textar við dægurlög henta illa til upplestrar eða í kvæða- kver. Ef maður færi út í að gefa út ljóðabók, þyrfti það að vera eitthvað sérstakt, svo eftir því yrði tekið. Maður heldur sig við textana í bili,” sagði Þorsteinn Eggertsson, textahöf- undur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.