Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Síða 48
VELDU ÞAÐ1 RÉTTÁ — FÁÐUÞÉR CLOETTA [arlsbert -umboðiíV* Sími 20350. Sameiginlegt rmm ■■■ r profkjora Reykjanesi? Stjórn kjördæmisráös Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi var á fundi þess í gær falið að leita eftir því við aðra flokka aö láta fara fram sameiginlegt prófkjör allra flokka í kjördæminu. Aö sögn Gísla Olafssonar, for- manns kjördæmisráðsins, er megin- ástæðan fyrir þessari umleitun sú að koma í veg fyrir að kjósendur taki þátt í prófkjöri fleiri en eins flokks. Flokkunum verður kynnt þessi hug- mynd með bréfi í dag og þess fariö á leit aö þeir svari fyrir 29. desember. ÖEF Alþýðuflokkur, Suðurlandi: Magnús H. í fyrsta sæti Magnús H. Magnússon alþingis- maður varð sjálfkjörinn í fyrsta sæti framboöslista Alþýðuflokks í Suður- landskjördæmi. Framboð hans var það eina sem barst áður en frestur rannútígær. Þrjú framboð bárust í annaö sæti listans, þeirra Guðlaugs Tryggva Karlssonar hagfræðings, Hreins Eriendssonar, formanns Alþýðu- sambands Suðurlands, og Stein- gríms Ingvarssonar umdæmisverk- fræðings. Prófkjör milli þeirra fer fram 22. janúar næstkomandi. -KMU. Lögreglan náðií sjúklinginn — vildi ekki yfirgefa slysadeildina Ekið var á gangandi mann á gatnamótum Hverfisgötu og Snorra- brautar í gærdag. Maðurinn var að fara yfir Hverfisgötuna þegar hann varö fyrir bíl. Kastaöist hann í göt- una og hlaut smámeiðsli, meðal ann- ars skrámaðist hann í andliti. Maðurinn var fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar. Hann mun hafa veriö nokkuð við skál. En það óvenjulega gerðist að að- eins tveimur klukkustundum eftir að hann var fluttur á slysadeildina var hringt í lögregluna og hún beðin um að koma og ná í manninn. Fékkst hann ekki til að yfirgefa sjúkrahúsið eftir skoðun og bar á smáölvunarlát- um í honum. Lögreglan fór og náði í manninn. Að sögn lögreglunnar var hér um einn af „góökunningjum” hennar að ræða. -JGH ,,Nei, nei, ekki leggja hendur á mig, segir fanginn ogþráast við ad fara í skólann þegar fangavörðurinn, klœddur eins og þjónn, kemur til að vekja hann. Mgndin er af atriði úr ára- mótaskaupi sjónvarpsms þessa dagana. en upptökur á því standa gfir DV-mgnd GVA. HJALPAÐU OKKUR, HJÁLPAÐU OKKUR” — kölluðu tveir ungir drengir, eftir að eldri maður hafði reynt að lokka þá upp í bíl til sín Eldri maður á grænni Skodabifreið reyndi seinni partinn í gær að lokka upp í bílinn til sín tvo unga stráka, er voru á gangi í Hlíöunum. Strákamir neituðu og urðu hræddir. Maðurinn opnaði þá hurðina og ætlaði að elta þá, en hætti við þegar ljós kviknaði í bílnum þannig að drengirnir gátu greint andlit hans. Að sögn lögregl- unnar sýndist drengjunum maðurinn halda á hníf í annarri hendinni. Maðurinn ók síðan hægt í burtu. Drengirnir sem eru sex og átta ára voru á leið heim til sín úr skólanum um klukkan hálf sex, þegar þetta gerðist. Þeir sáu hvar Skodinn ók löturhægt um og kom að þeim. Eftir að maðurinn hafði reynt að lokka þá upp i bílinn til sin kom kona að drengjunum og í hræðslu sinni hróp- aði annar drengjanna að konunni: „Hjálpaðu okkur, hjálpaðu okkur. Maðurinn ætlaöi að taka okkur.” Konan hélt í fyrstu að drengimir hefðu verið að kasta snjóbolta í bíl- inn, en varð þó fljótlega vör við hvers kynsvar. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík hefur áður komiö fyrir að drengir verði fyrir áreitni manna í Hlíðun- um, sem aka um á bílum. Málið er nú í rannsókn. -JGH Úráramótaskaupi: • Fanginn þráast við aðfaraí skólann \ - LOKI Menn bíða nú í ofvæni eftir áramótaskaupum sjónvarpsins og ríkis- stjórnarinnar. Kalkúnasmyglið: Hver veitti leyfi fyrir gildrunni? „Eg var kallaður á lögreglustööina nokkm áöur en gildran var sett upp. Þar tóku íslenska lögreglan og Brown- ing, bandarískur rannsóknarlögreglu- maður, skýrslu af mér. Eg held að þessa skýrslu hafi átt að nota til aö ákveða hvort ástæöa væri til að leggja gildruna fyrir tvímenningana.” Þetta sagði Jóhannes Brynleifsson í samtali viö DV í gær. Blaöið skýrði nýlega frá því að í fyrra var hann fenginn til að leiöa félaga sína á Keflavíkurflugvelli í gildru til aö handtaka þá fyrir kalkúnasmygl. Ljóst er að nokkrum dögum síðar var leyfi fyrir gildrunni veitt og Jó- hannesi sagt frá því. Bandaríska lög- reglan hafði sagt við hann áöur aö eng- in gildra yrði nema til kæmi leyfi ís- lenskra yfirvalda. Ekki hefur fengist gefið upp hver gaf það endanlega. I samtölum við Jóhannes var talaö um „íslenskan dómara” en honum er ekki kunnúgt um hver það var. „Eg tel ekki rétt að ræða um einstök atriði málsins þegar ríkissaksóknari — varí yfirheyrslu hjá íslensku lögreglunni áður en gildran varlögð hefur fengið þaö til rannsóknar,” sagði Helgi Agústsson, formaður vamar- máladeildar utanríkisráðuneytisins, í morgun. Og Friöjón Þórðarson dóms- málaráðherra vildi ekki leggja mat á aðgerðir lögreglunnar, málið heyrði heldur ekki undir ráðuneyti hans, sagöihann. JBH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.