Alþýðublaðið - 13.06.1921, Qupperneq 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
Mi iagiaa og vegiu.
t\MSKlPA rJEn-
*^ÍSLANDS Q
E.s. Sterling
fer héðan á þriðjudeg 14. júní ki. io árdegis,
i austur og norður kringum land.
Bannlagabrot. Fyrir nokkru
urðu mecD ino á Kleppi varir við
ískyggilegan farangur, sem verið
var að bera neðan frá sjó upp í
bifreið sem beið á veginum; grun-
aði þá að hér væri ekki alt með
feldu og gerðu lögreglunni aðvart.
Náði hún f bílinn og rannsakaði
flutninginn, sem reyndist að vera
ýmsir hiutir, þar á meðal vía. Við
rannsókn kom það i Ijós, að Ja-
kob Havsteen heiidsali hér i bæ
átti flutnin^inn og var hann sekt-
aður um 200 kr.
Þá hafði áfengi verið tekið af
botnvörpungnum Ara, þegar hann
síðast kom frá Gngiandi, en um
sektir höfum vér ekki heyrt.
Skátafélag stofnaði hinn áhuga
sami og duglegi barnakennari Eyr-
bekkinga, Aðalsteinn Sigmunds-
son, á Eyrarbakka í haust. Kom
hann á laugardaginn að austan
ásamt 5 lærisveinum sínum og
ætlar að dvelja hér um tíma með-
an þeir !æra að synda. Þeir fé-
lagar komu á þremur hjólhestum,
gengu til skiftis, og ætla að halda
til í tjaldi inni hjá laugum, meðan
þeir standa hér við.
Fylkir, 6. hefti, er nýkomið
út. Er þar sitt af hverju og ekki
alt sem áreiðanlegast. Verður síð-
ar vikið nánar að ritinu.
Lðgrétta er nú flutt að fuilu
og öliu inn i Ísaíoldarprentsmiðj-
una og búin að fá á sig Morgun-
blaðsletur og einkenni. Þó er ekki
síðasta Lögréttublaðið nema að
hálfu leyti uppprentun úr Morgun-
blaðinu, —
Eggert Stefánsson söngyarl
hélt koncert í Nýja Bío í gærdag
kl. 4 e. h. Söngskráin var fjöl-
breytt mjög og mörg lögin prýð-
isfalleg. Áheyrendurnir virtust hin-
ir ánægðustu og klöppuðu söngv-
aranum óspart iof í iófa. Bezt
tókst honum við lögin eftir Sigfús
Einarsson, „Gígjan* og „Drauma-
iandiðv, svo og annað lagið á
söngskránni, „Serenata* eftirTosti.
Laglega meðfarin var „Nótt" eftir
Árna Thorsteinsson, þó verður
breyting sú er söngvarinn gerði í
enda þess lags, að teljast til
skemdar á því og hæpið að hún
sé leyfileg. Annars vantáði víða
þrótt í rödd hans, og kom
það einkum tilfinnanlega fram
í „Erlkönig* eftir Schubert. Eins
átti söngvarinn fremur erfitt með
háu tónana. Er líklega ekki jafn-
góður af kvefinu ennþá.
Skipstjórasklfti verða nokkur
á skipum landssjóðs Og skipum
Eimskipaíélagsins. Þórólfur Bech
tekur við Steriing, Júlíus Júliníus-
son tekur við Lagarfossi, Jón Ei-
ríksson, sem um tíma hefir verið
skipstj. á Lagarfossi tekur um
stund við Villemoes, en Einar
Stefánsson, áður á Steriing, tekur
hinn nýja Goðafoss.
Knattspyrnan í gær iór svo,
að Valur vann Víking með 3 : o.
Leikurinn var fjörugur og ýmsir
leikarar efnilegir í báðum flokkum.
Sjimannajéiagsjnnðnr
var í gær í Bárunni. Bættust 116
nýir féiagar í hópinn. Jón Bald-
vinsson aiþm. sagði helstu fréttir
af þinginu og að því loknu kom
fram eítirfarandi fundarályktun,
sem samþykt var í einu hljóði:
„Sjómannafélagið þakkar einum
rómi þingmanni Alþfl., hr. Jóni
Baldvinssyni, fyrir góða og ötula
framgöngu á alþingi og sérstak-
lega fyrir þann dugnað og lægni,
að bera fram til sigurs frv. til laga
um hvíldartima háseta á islenzkum
botnvörpuskipum. “
Ríkislánið.
Ræðismaður Dana hér.hefir sent
blaðinu eftirfarandi athugasemd í
tilefni af ummælum þess um rík-
islánið, og birtum vér hana hér,
enda þótt hún í sjálfu sér sé óþörf,
því blaðið hefir aldrei haidið því
fram að Danir vilji hindra oss í
því að taka iáa í t. d. Englandi
eða Areerfku; hitt dylst enguni,
að dönskum auðmönnum er hag-
ur að því, að halda í viðskiftin
við ísland í lengstu lög.
„í tileíni af greinum yðar í
„Alþýðublaðiau" 6. og 10. þ. m.
viðvíkjandi væntanlegu ríkisláni f
Danmörku vildi eg mega benda
á, að það er svo langt frá þvf,
að menn í Danmörku æski þess,
að binda meira fé hér á landi.
Sem sjá má af yfirlýsingu dönsku
stjórnarinnar, sem birt er í Al-
þýðublaðinu 30. apríl þ. á., þá er
það langt frá því, að Daair óski
að koma í veg íyrir að ísland fái
margra ára lán í Englandi eða
Bandaríkjunum, til þess að leysa
með því út hið d&nska auðmagn
sem er í íslandsbanka, eða tii
annara þarfa."
Hrirfilbylur
fór yfir suðurhluta Arkansas. f
Ameríku í apríímánuði, eyðilagði
fjölda húsa, skemdi akra og drap
50 manns.
Ritstjóri og ábyrgðaraiaðnr:
ólafur Friðriksson.
Frentimiðjan Gutenberg.