Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Page 2
2
DV. FÖSTUDAGUR15. APRIL1983.
Fréttamaður
varaði við
varðskipinu
„Hann var á suðurleið á fullri
ferö þegar við komum aö honum.
Hann hafði fengið viðvörun frá
fréttamanni um að varðskip væri
á leiðinni,” sagði Þorvaldur
Axelsson, skipherra á Ægi.
,,Skipstjórinn lét orð falla þar
að lútandi að honum hefði verið
sagt frá varðskipinu af frétta-
manni,” sagöi skipherrann.
Sem kunnugt er varðar við lög
að segja frá ferðum varðskipa.
-KMU.
Þeir fóru frá varðskipinu um borð í Einar Benediktsson: Halldór Gunnlaugs-
son, sem tók við skipsstjórn, er í miðið en Gísli Þórðarson og Helgi Helgason
til hliðar. DV-mynd: KMU.
Þorvaldur Axelsson skipherra.
Níels Ársælsson skipstjóri.
VARÐSKIPSINS
Sjópróf að kröfu Siglingamála-
stofriunar í máli skipstjórans á
Einari Benediktssyni hefjast hjá
bæjarfógetanum í Hafnarfirði í dag.
Guðmundur L. Jóhannesson héraðs-
dómaristýrir réttarhaldinu.
Varöskipiö Ægir, undir stjórn Þor-
valds Axelssonar skipherra, kom á-
samt fiskiskipinu Einari Benedikts-
syni til Hafnarfjarðar í hádeginu í
gær. Þá voru liönar átján
klukkustundir frá því varöskipið
stöðvaði Einar Benediktsson 24 sjó-
mílur norðvestur af Kópanesi.
,dlann efaði í fyrstu að við hefðum
vald til að stöðva skip á siglingu á
þessu svæði. Eg fullvissaöi hann um
aðviðhefðumheimild tilþess arna,”
sagöi Þorvaldur Axelssonskipherra.
„Við vorum komnir í kjölfarið á
togaranum klukkan 17:32. Það tók
tímann hjá honum að stansa.
Klukkan 17:46 vorum við komnir
með menn um borð.
Hann var á suöurleið, hélt suð-
suðvestlægri stefnu á fullri ferð.
Hann sagðist vera að fara suður um,
að mér skildist til Hafnarfjarðar,”
sagði Þorvaldur.
„Við sendum menn yfir í Einar
Benediktsson. Skipstjórinn varsíðan
fluttur hingað yfir í varðskipið til
viöræðna. Eg ákvað síðan að leysa
hann frá skipsstjórn.
Eg bauð honum að vera um borð í
varðskipinu, eða óskaöi eftir því.
Hann bað um að fá að fara um borö í
Einar,” sagöiskipherrann.
Halldór Gunnlaugsson, stýri-
maður á Ægi, tók við stjórn Einars
Benediktssonar. Með honum frá
varðskipinu voru einnig um borð
Gísli Þóröarson bátsmaður og Helgi
Helgason háseti.
Einar Benediktsson er í farbanni
og er skipið vaktaö af lögreglu.
-KMU.
Skipstjórinn á Einari Benediktssyni í sjópróf í dag:
DRÓ í EFA VALD
Fjöldi fólks var á bryggjunni þegar
skipin lögðust að.
Stöndum
allir að baki
okkar
skipstjóra
— segja skipverjar
„Viö stöndum allir að baki
okkar skipstjóra í þessu máli,”
sagði Oskar Aðalsteinsson, 1.
vélstjóri á Einari Benediktssyni.
Þórarinn Guðmundsson háseti
tók undir þau orð.
„Hefndaraðgerðir. Þetta er
einmitt það sem er að gerast,”
sagði Oskar þegar hann las for-
síðufyrirsögn DV í gær.
„Þaö er ekki hægt að hugsa
sér meíri niðurlægingu fyrir
þessar stofnanir, Landhelgis-
gæsluna og Siglingamálastofnun,
en að dómstóll í Vestmannaeyj-
um skuli hafa dæmt vinnubrögð
þeirra röng. Þess vegna eru þeir
aðhefna,” sögöu skipverjarnir.
Oskari vélstjóra þótti verst að
geta ekki verið á miðunum. „Við
fiskum ekkert hér í Hafnar-
fjarðarhöfn,” sagði hann.
-KMU.
Fiskiskipið Einar Benediktsson kemur ínn í Hafnarf jarðarhöfn.
DV-myndir: S.