Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Page 5
5
DV. FÖSTUDAGUR15. APRlL 1983.
Stórmenni
við sýningu
Útlagans
Frá Sigriði M. Vigfúsdóttur, frétta-
ritara DV í París:
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands, var viöstödd sýningu
Utlagans í Olympic Balzac-Elysée
viö breiðgötuna Champs Elysée á
miðvikudagskvöld. Lögregluvörö-
ur var viö alla breiögötuna og haföi
nokkur hópur fólks safnast saman
fyrir utan bíóið. Er forsetinn steig
út úr bifreið sinni hyllti hópurinn og
nærstaddir vegfarendur Vigdísi
Finnbogadóttur meö lófataki og
hrópum.
Eigandi Olympic Balzac,
Frederic Mitterrand, er bróðurson-
ur forseta Frakkiands. Hann er
þekktur sjónvarpsmaöur og kvik-
myndagerðarmaður (t.d. fyrir
myndina Ástarbréf frá Sómalíu).
Fyrir sýninguna ávarpaðiFrederic
Mitterrand gesti og fór nokkrum
oröum um íslenska kvikmynda-
gerð.Endaði hann ávarp sitt á að
vitna í hin fleygu orð Guðrúnar
Osvífursdóttur „Þeim var ég verst
er ég unni mest.” Sagði hann aö þó
að Vigdís Finnbogadóttir hefði unn-
ið hug sinn og hjarta ætlaði hann
samt að vera svolítið vondur við
hana og kalla hana upp á svið!
Forseti Islands ávarpaöi síðan
troðfullan sal kvikmyndahússins
og lýsti meðal annars hversu stórt
hlutverk fomsögumar lékju í
íslenskri menningarhefð. Sagði
Vigdís Finnbogadóttir að Utlaginn
hefði veriö valinn til sýningar fyrst
og fremst af þessum ástæðum.
Auk leikstjórans, Ágústs
Guðmundssonar, íslenskra náms-
manna og fylgdarliðs forsetans var
fjöldi stórmenna viöstaddur
sýningu myndarinnar. DanieUe
Mitterrand forsetafrú var sessu-
nautur forseta Islands á meðan á
sýningu stóð. Jafnframt vom við-
stödd Claude Cheysson utanríkis-
ráðherra, Edith Cresson utanríkis-
viðskipta- og ferðamálaráðherra,
Yvette Roudy kvennamálaráð-
herra, AUce æskulýðsráöherra og
Lionel Jospin, aðalritari Sósíalista-
flokksins.
Á kvikmyndasýningunni og í
samkvæmi á eftir mættu nokkrar
frægustu leikkonur Frakka, svo
sem Nathalie Baye, Juliette Berto,
Jeanne Moreau og Delphine
Seyrig._____________ás
Vigdís
meðal
„íslend-
inga”
„Það var skemmtilegt að hitta
Mitterrand Frakklandsforseta,”
sagði Vigdís Finnbogadóttir for-
seti Islands á blaðamannafundi i
París í gær. Vigdís sagði á fundin-
um aðhúnhefðiþekktParísíþrjá-
tíu ár og á þeim tíma heföi borgin
tekið mUdurn breytingum.
I dag fer Vigdís Finnbogadóttir
tU Paimpolá Bretagne, en þar voru
fiskimenn áður kallaðir Islending-
ar meðal Frakka. Þeir stunduðu
sem kunnugt er fiskveiðar á skút-
um sinum hér við land.
-GTK-París.
Offiáal Video Products
of LÆ7984 O/ympics
Q&Jp
Opinbera heimsóknin fer ekki framhjá neinum
Frá viðræðum Vigdisar Finnbogadóttur og Mitterrands Frakklandsforseta.
DV-mynd GTK.
VIGDIS KOLLUD VIKKÍ
Frá Sigríði M. Vigfúsdóttur,
fréttaritara D V í París:
Það er óhætt að segja að opinber
heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta Islands, vekur óvenju mikla
athygli hér í París. Opinbera heim-
sóknin fer vart fram hjá neinum og
ekki annað að sjá en almenningur sé
stórum fróðari um íslensk málefni en
áður.
Franskir fjölmiðlar gera heimsókn
forsetans og þjóð hennar góö skU í
miðvikudags- og fimmtudagsútgáf-
um sínum. Sjónvarpsstöövamar TV
1 og Antenne 2 fjölluðu báðar um
heimsóknina í kvöldfréttum á mið-
vikudagskvöld. 1 TV 1 voru sýndar
myndir af hádegisveröarboði Mitter-
rand til heiðurs Vigdísi oggreint frá
heimsókn hennar. Er sjónvarpsþul-
irnir höfðu bægslast viö að bera fram
nafn hennar tvisvar eða þrisvar
gáfust þeir upp og kváöust taka sér
það bessaleyfi að kalla hana
„Vikkí”! Á sama tíma sýndiAntenne
2 þátt sem fréttamenn hennar gerðu
á Islandi fyrir skömmu. Sjónvarps-
mál Islendinga fengu sinn skammt,
f jaUaö var um videoæöiö og sérstaka
athygli þeirra vakti júlUokunin
sáluga og fimmtudagslokunin.
Vegfarendur í Austurstræti voru
spurðir álits á þessum málum og
sýndist sitt hverjum. Klykktu
frönsku fréttamennimir út með því
að þeir á Antenne 2 hefðu ekkert á
móti því að loka á fimmtudögum!
Le Parisien sagði í fyrirsögn
„VUúngur í Frakklandi! ” Og í grein í
blaðinu var fjaUað m.a. um afmæli
forsetans, sem er í dag, og forsetan-
um óskað til hamingju á íslensku!
Blaðið hefur eftir Vigdísi, aðspurðri
um stjómmálaskoðanir hennar, „ef
maður er ekki ansi frjálslyndur í
æsku þá hefur maður ekkert hjarta.
Og ef maður veröur ekki afturhalds-
samur með aldrinum þá er maður
ekki mjög gáfaður!” Vitnar forset-
inn með þessum oröum í franskt góð-
skáld.
ás.
Toyota Corolla érg. '78.
Ekinn 67.000, gulur. VarO 85.000.
Toyota Crown de lux disil érg. '82,
ekinn 24.000, Ijósblér. Verð
375.000.
Toyota Cressida hard-top érg. '78,
ekinn 64.000, fölgulur. Verð
120.000.
Toyota Carina XE 1800 cc érg. '82,
ekinn 12.000, Ijósgrænn. Verð
250.000.
Toyota HI-ACE bensin érg. '80
m/gluggum, ekinn 47.000, gulur.
Verð 180.000.
Toyota Corolla Liftback SE érg.
'82, ekinn 5.000, rauður. Verð
240.000.
Toyota Carina GL sjálfsk. érg. '80,
ekinn 54.000, blár. Verð 160.000.
Toyota Cressida árg. '81 DL
beinskiptur, ekinn 38.000, rauður.
Verð 235.000.
Toyota Land Cruiser árg. 76, Ijós-
blár (nýtt lakk), ekinn 60.000 km,
mjög vel með farinn bill. Verð
230.000. Skipti möguleg á ódýrari
bil.
Opiðá
laugardögum
frá kl. 1-5.
Ath.
Okkur bráðvantar
allar gerðir Toyota bif-
reiða á söluskrá.
0 TOYOTA SALURINN IMýbýlavegi 8 Sími: 44144.
Efþú átt 6000 krónur
í útborgun — eigum við
myndsegulband fyrír þig.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðuriandsbraut 16 Sími 91 35200