Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 6
TÁLKNAFJÖRÐUR Á þessum fallega stað, þar sem næg er at- vinna, eru til sölu: 4 íbúðir, 2 tveggja herbergja, 1 þriggja og 1 fjögurra herbergja. Verða tilbúnar undir tréverk um næstu áramót. Hringið i síma 94-2528 og 91-44094 kl. 12 — 1 og eftir kl. 7 á kvöldin. (Geymið auglýsinguna og hugsið málið.) TUboð óskast í eftirtaldar bifreiðir í tjónsástandi: Toyota Corolla, árg. 1982. Lancer GSR, árg. 1982. Mazda 323 station, árg. 1978. Renault TL4, árg. 1980. Volvo 144, árg. 1974. Range Rover árg. 1979. Lada 1200 station, árg. 1979. Lada 1600, árg. 1978. Bifreiðirnar verða til sýnis aö Melabraut 26, Hafnarfirði, laugardaginn 16. apríl frá kl. 1—5. Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103, fyrir kl. 5 mánudaginn 18. apríl. BRUN ABÓT AFÉLAG ÍSLANDS. Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir tilboðum í eftirtalinn töivubúnað, allan eða hluta: DEC PDP—11/34 tölva (cpu) 256 Kb. minui sem samanstendur af: 128 Kb., eittstk. 32 Kb., fjögur stk. Tengibúnaður fyrir f jórar línur: DLUW, þrjú stk. DLUC, eitt stk. RK05 2,5 Mb. diskakerfi með tengibúnaði. H960 skápur, framangreindur búnaður er í honum. LA180 prentari með tengibúnaði (paralell). RK71128 Mb. diskakerf i með tengibúnaði. RK07 28 Mb. viðbótardiskadrif. 2 stk. VT100 tölvuskjár. RSX—11M V3,2 stýrikerfi. FORTRAN—IV V2,2—5 þýðari. Upplýsingar veitir Pétur Blöndal í síma 84033. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Raufarseli 9, þingl. eign Árna Jóbannessonar o.fl., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik, Veðdeildar Lands- bankans, Ara ísberg hdl. og Hafsteins Sigurðssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudag 18. apríl 1983 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Krummahólum 2, þingl. eign Jóns Birgis Péturssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudag 18. apríl 1983 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Keilufeli 13, þingl. eign Hilmars Friðsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Landsbanka íslands, Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Sigríðar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri mánudag 18. apríl 1983 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á bluta í Stífluseli 3, tal. eign Bergþórs Olafssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik og Gisla Baldurs Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 18. apríl 1983 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Neytendur Neytendur Neytendur DV. FÖSTUDAGUR15. APRlL 1983. Frá aðalfundi Osta- og smjörsölunnar. Óskar H. Gunnarsson framkvæmdastjóri iræðustóli. Ársneysla: 250 LÍTRAR AF FUÓTANDI MJÓLKURVÖRUM A MANN Á síðastliðnu ári nam heildarsala af mjólk, imdanrennu, jógúrt, léttmjólk og súrmjólk 50,8 milljón lítrum. Ef tekin er með mjólk sem notuð er heima til neyslu hjá bændum þá svarar heildameyslan til þess að hvert mannsbam á Islandi hafi neytt að meðaltali 249,7 lítra af þessum fljótandi m jólkurvörum. A 24. aðalfundi Osta- og smjörsöl- unnar, sem haldinn var 8. apríl síðast- liðinn, komu þessar upplýsingar fram í máli Oskars H. Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Einnig kom fram í máli framkvæmdastjórans aö innvegin mjólk hjá mjólkursamlög- unum reyndist vera tæplega 104,6 milljónir lítra á árinu 1982. Það var 1,6% meiri mjólk en árið áður. Meðalneysla á rjóma reyndist vera 7,0 lítrar og á skyri 7,5 kg. Aukning var í sölu á smjöri og smjörva um 22,8% miðað viðáriðáður. Smjörbirgðir voru meö allra minnsta móti. Meðalneysla á hvem íbúa reyndist vera 6,2 kg af smjöri og smjörva á síðastliðnu ári. Um 70 tonn af smjöri voru til I landinu um síðustu mánaðamót, minna má það ekki vera. Heildarsala á ostum var 1917 tonn, það er 10,8% aukning frá fyrra ári. Hjá Osta- og smjörsölunni varö söluaukn- ingináostuml3,6%. Meöalneysla á mann á ári er nú komin í 8,3 kíló en var aðeins rúmlega 3,0 kg fyrir um 25 árum þegar Osta- og smjörsalan tók til starfa. Á aðalfundinum í byrjun mánaðar- ins var einmitt minnst 25 ára afmælis fyrirtækisins. I tilefni afmælisins kom út vandað rit um starfsemi Osta- og smjörsölunnar. Gylfi Gröndal tók saman efni í afmælisritið og ritaði sögu fyrirtækisins. -ÞG. Fasteignaskoðun: íbúðakaupin gerð öruggari „Það sem við viljum fyrst og fremst gera er að gera kaup fólks á húsnæði öruggari. Við viljum gera bæði kaupanda og seljanda ljóst hvaða kostir og hvaða gallar eru á eigninni. Svona svipað því og fólk lætur skoða bíl á verkstæði áður en það kaupir hann,” sagði Gunnar Indriðason. Hann hefur ásamt Indriða bróður sínum stofnaö fyrirtækið Fasteigna- skoöun. Þeir bræöur eru báðir menntaöir trésmiðir og tæknifræð- ingar. Þessa menntun sína ætla þeir að nota sér í starfi nýja fyrirtækis- ins. Kaupendur eöa seljendur fasteigna geta fengið starfsmenn Fasteignaskoðunar til þess að koma og skoöa fasteignina áður en hún er seld. Þá er gerð skrifleg greinargerð um ástand íbúðarinnar sem hinn nýi eigandi fær síðan í hendumar. Ef í ljós koma gallar síðar er hægt að slá því upp í greinargerðinni hvort þeirra er getið. „Við tökum ábyrgð á gerðum okkar eins og öll önnur hlutafélög. Við ábyrgj umst að finna þá galla sem fyrir hendi eru þegar íbúðin er skoðuö,” sagði Gunnar. Hann minnti á að þegar menn kaupa sér íbúð leggja þeir oftast aleigu sína að veði. Mikilsvert er því að vel sé athugað áður svo að aleig- unni sé ekki eytt í vitleysu. „Okkur finnst það líka furðulegt að verð íbúða er nær alltaf það sama á sömu stærð. Þó að gæðin séu mjög mis- jöfn,”sagöihann. Ef kaupandi eöa seljandi hyggst fá Fasteignaskoðun til aö líta á íbúð þarf að panta með svona 2 daga fyrirvara. Er þetta miðað við fólk á Stór-Reykjavíkursvæðinu því að Gunnar Indriðason, annar eigandi Fasteignaskoðunar. DV-myndBj. Bj. ekkert hefur enn verið farið út fyrir það. Skoðun úti á landi verður þó gerð ef um það er beðið en þá þarf sá. er fær skoðunarmann að greiöa fyrir hann fargjald og uppihald. Þegar að húsinu er komið eru ýmsir umhverfisþættir athugaöir. Um- ferðin með tilliti til hávaða, gang- brauta, aðkomu og fleira þess háttar. Húsið sjálft er síðan skoöað að utan. Þak, svalir, veggir og gluggar. Þegar inn er komið eru lagnir athugaðar eftir því sem unnt er, ofnar og fleira. Aðstaða fyrir börn er sérstaklega athuguð bæði innanhúss og utan. Komiö er í húsinu með sérstök eyðublöð. Spurt er markvissra spurninga og fyllt út á blöðin jafnóðum. Stundum kemur það fyrir að starfsmenn Fasteigna- skoðunar telja ráölegt að athuga húsin frekar en hægt er að gera í einni slíkri skoðun. Benda þeir þá þeim sem biður um skoðunina á það og ræður hann þá hvort hann vill láta fara út í frekari athugun. Verðið fyrir venjulega skoðun er 2 þúsund krónur en það fer upp í 5 þúsund ef skoða þarf oft. Sá er biður um skoð- unina borgar gjaldið. Auk þessarar þjónustu við þá sem eru að kaupa sér er boöið upp á ráðgjöf viö þá sem þurfa að láta vinna ýmsar viðgerðir á fjölbýlis- húsum. Þá er skoðað hvað þarf til og fylgst með því að verkið sé unnið á réttan hátt. „Menn sem eru að selja fasteignir ættu að vera fúsir til þess að leyfa framkvæmd skoðunar ef kaupandi ferframáhana. Leiðindadeilumálun vegna íbúöakaupa ætti þá jafnframt að fækka,” sagði Gunnar Indriðason. -DS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.