Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Qupperneq 7
DV. FÖSTUDAGUR15. APRlL 1983. 7 Neytendur Neytendur Bókaklúbburinn Veröld: Hægt að fá bækur, plötur, listaverk og utanlandsferðir — ávildarkjörum Jón Kar/sson, forstjórí Veraldar, með þrjár bækur sem hægt er að ve/ja sór fyrír 98 krónur samtals við inngöngu i Veröld. DV-mynd GVA. „Viö ætlum aö reyna aö bjóöa upp á það spennandi hluti aö fólk geti ekki hugsað sér annaö en að taka þá,” sagöi Jón Karlsson, forstjóri bókaklúbbsins Veraldar. Hann var stofnaöur núna í endaðan mars. Eigendur klúbbsins eru 5 bókaforlög, Fjölvi, Hlaöbúö, Iðunn, SetbergogVaka. Hann verður byggöur upp töluvert á annan hátt en þeir bókaklúbbar er nú eru viö lýöi. Boönar veröa bækur frá öllum forlögunum fimm auk þess sem bækur veröa gefnar út sérstaklega fyrir klúbbinn. Veröa þá rithöfundar fengnir til að starfa hér á landi auk þess sem erlendar bækur sem merkar þykja veröa þýddar. En menn geta fengið fleira en bækur. Boðið verður upp á hljómplötur á betri kjörum en almennt gerist, listaverk af ýmsu tagi sem búin verða til fyrir klúbbfélaga og meira að segja utanlandsferðir. Það, að hægt sé aö veita þetta á þeim vildar- kjörum sem klúbburinn hefur ætlað sér, byggist á því að félagar veröi margir. Félagasöfnun fereinmitt fram þessar vikurnar. Gefst nýjum félögum þá tækifæri til aö kaupa sér þrjár bækur fyrir 98 krónur. Er tæpast hægt að fá eina bók fyrir þaö í búð, sumar þeirra kosta jafnvel um 500 krónur hver. Félagar fá sent ókeypis fréttabréf mánaöarlega þar sem greint veröur frá því sem boðið er upp á hverju sinni. Þaö veröur ein nýútkomin bók, þrjár sem athygli hafa vakið, plötur og listaverk. I utanlandsferöir veröur fariö öðru hverju og greint frá slíku jafnóöum. Einnig veröa famar ferðir á merkar listsýningar og tónleika og annaö slíkt menningarlegt bæöi innan landsogutan. Það sem menn á stærstu stöðum landsins panta sér í gegnum klúbbinn er boriö heim til þeirra og afhent þeim sjálfum. Gjald er hið sama og lægsta póstburöargjald. Um hálfur mánuður líöur frá því aö pantað er og þar til pöntunin berst. Með henni fylgir gíró- seðill sem menn eru beðnir að greiða viö fyrstu hentugleika, þaö er innan 10 daga. Ef um stóra pöntun er að ræöa er unnt aö skipta greiðslunni. Bók mánaðarins verða menn aö afpanta skriflega, vilji þeir ekki eignast hana. Gleymi þeir því og fái hana senda geta þeir endursent hana án skuldbindinga og greiöa aðeins póstburðargjald. Veröld hefur keypt sér IBM tölvu til að s já um alla skráninguna. Menn geta því hringt inn pöntun sína eöa skrifað, eftir því hvort þeim finnst þægilegra. I tölvunni er síðan hægt aö fletta því upp hvað áður hefur verið keypt. Ekkert kostar aö vera í klúbbnum. -DS. Prentvillupúkinn sökudólgurinn — verðmunur á sömu vöru 111% „Oft verður maöur var við mikinn verðmun á sömu vörutegund í versl- unum en aldrei hefur mér blöskrað eins og nú,” sagöi Elísabet Jóns- dóttir sem kom hingað á ritstjóm með tvær dósir af Planters kartöflu- flögum. Dósirnar tvær voru keyptar hvor í sinni versluninni og í sömu vikunni. Miðvikudaginn 31. mars keypti Elísabet fyrri dósina í JL- húsinu á kr. 12.20. Seinni dósina á krónur 25,75 í SS-búðinni við Bræðra- borgarstíg, laugardaginn 2. apríl. Dósin var 111% dýrari í SS-búðinni en í JL-húsinu. Hér var greinilega einhver maök- ur í mysunni sem vert var að vita hvaðan væri kominn. Við höfðum samband við verslunarstjórann í SS-búðinni og þar var málið kannað. „Þetta eru mannleg mistök,” sagði Vigdís Sigurðardóttir verslunarstjóri, „við höfum farið yfir reikningana yfir þessa vörusendingu og í ljós hefur komið meinleg villa. Á reikningnum er prentvilla, þar er röng tala. I köss- unum f rá innflytjanda eru 48 dósir af kartöfluflögum en á reikningnum var skrifað að í hverjum kassa væru 24 dósir. Þegar ég reikna út verð á dósunum hef ég reikninginn með röngum magnupplýsingum í hönd- unum.” — Varla þarf að taka það fram aö búið er aö leiðrétta verðið á kartöflu- dósunum í versluninni. Maðkurinn var sem sagt runninn undan rifjum prentvillupúkans á skrifstofu innflytjandans, Agnars Ludvigssonar hf., sem flytur inn Planters kartöfluflögurnar. -ÞG. Það er von að neytandanum haíi blöskrað þessi mikli verðmunur á dósunum tveimur. DV-mynd GVA. FÖSTUDAGSKVÖLD I JliHUSINUl IJISHUSINU OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 í KVÖLD Glæsi/egt úrva/ húsgagna á 2. og 3. hæð. MATVÖRUR FATNAÐUR HÚSGÖGN RAFTÆKI RAFLJÓS REIÐHJÓL Munið okkar hagstæðu greiðslu- skilmála JIB Jón Loftsson hf. A A A A A *■ d q c cd m zimtfaíSí _ OD ÍZ E E3 lJ Ut jrjjjíi-i i i_ i— O 3 ■_jijurij:i „„Ll'IH.ÍHl Hringbraut 121 Sími 10600 0PIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 9-12 Dallas sófasettlð Hhúsgagna-i val SMIÐJUVEGI 30 SÍMI 72870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.