Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Qupperneq 8
DV'. FÖSTUDAGUR15. APRIL1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Kynþáttamis-
lyndiíChicago
Harold Washington, sem fyrstur
blökkumanna hefur veriö kosinn
borgarstjóri Chicago, hefur hvatt
borgarbúa til þess aö horfast í augu
við kynþáttamislyndið sem kom
upp á yfirborðið í kosningabaráttu
undanfarinna vikna.
1,3 milljónir kjósenda skiluðuat-
kvæði í borgarstjómarkosningun-
um á þriðjudag og sigraði Was-
hington repúblíkanann Epton
með 40 þúsund atkvæða mun.
Pillangeturvaldið
hjartaáföllum
Getnaðarvarnarpillur, sem inni-
halda mikið magn af progestin
hórmon og estrogen í minni
mæli, þykja auka hættuna á hjarta-
áföllum og slagi hjá konum á bam-
eignaraldri.
Kemur þetta fram í læknariti
Nýja Elnglands og er vísað þar
til athugana í tíu bandarískum
sjúkrahúsum á 1744 konum með
samanburði á sjö pillutegundum
sem hver innihélt mismunandi
mikið magn af þessum hormónum.
Rannsóknin benti til þess aö
mikilvægt væri að hlutfalliö milli
þessara hormóna væri sem jafnast.
NýttVW-rúg-
brauðekurá
vatnisemá vegi
Volkswagen, stærstu bílafram-
leiðendur V-Þýskalands, hafa sett
á markað nýtt rúgbrauð sem
aka má jafnt á láði og legi. Svoleið-
is farartæki hefði komið sér vel
fyrir marga í flóöunum síöustu
daga.
Þessum „minibus” má aka yfir
stöðuvötn og straumvötn jafnt sem
á vegi. VW kynnir bílinn á vörusýn-
ingunni í Hannover.
Ekkertmánú!
Einn af fyrri talsmönnum Ein-
ingar, hinnar óháðu verkalýðs-
hreyfingar Póllands, var í gær
sektaður fyrir að bera hnapp með
áletruninni „Solidarinosc”. Sektin
nam einum og hálfum mánaðar-
launum Janusz Onyszkiewicz sem
er stæröfræðilektor viö Varsjárhá-
skóla.
Hann var meðal þeirra sem sett-
ir voru í einangrun þegar herlögin
voru leidd í gikJi og slapp ekki úr
henni fyrr en ári síðar. Síðan hefur
hann borið þennan hnapp í barmin-
um.
Margir aðrir hafa verið sektaöir
fyrir að bera sams konar hnappa.
Galtierifyrirrétt
Leopoldo Galtieri, fyrrum
Argentínuforseti, verður dreginn
fyrir rétt vegna gagnrýnandi
ummæla um hershöföingja sína og
frammistöðu þeirra í Falklands-
eyjastríðinu við Breta.
Hann hefur verið úrskuröaöur í
allt að 60 daga varöhald en
rannsókn fer nú fram á því hvort
hann hafi brotið siðareglur foringja
hersins. Á hann yfir höfði sér allt
frá strangri áminningu upp í aö
verða vikið úr hernum eftirlauna-
laust.
Gertífylliríi
Maður einn á sjóöandi fyllirís-
túr myrti barþjón einn í New York,
nauðgaði einni konunni meöal bar-
gesta og neyddi aðra til þess að
afhöfða hinn myrta.
Morðinginn gekk síðan berserks-
gang um borgina og haföi með sér
höfuö hins myrta í hattöskju.
Hann fékk hugmyndina aö því að
afhöfða líkið þegar inn á barinn
ranglaöi stúlka sem viðurkenndi
fyrir honum að hún ynni viö líkhús
borgarinnar. Neyddi hann hana til
>ess að vinna fyrir sig verkið meö
veim eldhúshnífum. Hinum hélt
hann í skefjum með skammbyssu
sinni.
Einingarmenn í kröfugöngu, en hvatt er til endurtekningar 1. maí á mótmælaaðgerðunum í fyrra.
MaríaPeronfær
pólibskan rétt
Herforingjastjórnin í Argentínu
hefur aflétt stjómmálabanninu sem
hún setti fyrir sjö árum á Maríu Estela
de Peron, fyrrum forseta, ekkju Juan
Perons.
Var tilkynnt í gær að henni væru
veitt aftur fuil pólitisk réttindi og
sömuleiðis 18 verkalýðsforingjum og
embættismönnum stjórnar hennar. —
Herinn hrifsaði frá Maríu Peron völdin
ímarsl976.
Varaforseti flokks peronista sagði
að þessi ákvöröun stjórnvalda væri
réttlætisgerö. Sagði hann aö til greina
kæmi að Maria Estela mundi taka
virkan þátt í undirbúningi flokksins
fyrir kosningamar, sem herinn hefur
boöað tii í október í ár.
Hún býr í útlegð á Spáni og getur,
þrátt fyrir úrskurðinn í gær, ekki sest í
opinbert embætti í Argentínu, því að
eftir valdaránið var hún dæmd fyrir að
hafa dregið að sér opinbert fé.
EINING VIU. ALVÖm
KRÖFVGÖNGURL MAÍ
— og af neitar „skrúðsýningu” kommúnista
Neðanjarðarleiðtogar Einingar hafa
skorað á pólskan verkaiýð að efna til
eigin mótmælaaðgerða 1. maí og
sniðganga hátíðarhöld kommúnista.
Er þetta í fyrsta sinn sem þannig er
hvatt til opinberra mótmælaaögerða
síöanídesember.
I fréttatilkynningu, sem vestur-
1". S W@m-.
Skæruliðar i E1 Salvador hafa fyllst hefndarhug eftir morðið á einum helsta
foringja þeirra.
landáfréttamenn fengu í hendur í
Varsjá í gær, er einnig staðfest að
þessir foringjar Einingar, sem allir
fara huidu höfði, hafi átt leynifund með
Lech Walesa um síöustu helgi og hafi
þar ráðfært sig við hann um
samræmda stefnu hinnar óháðu
verkalýðshreyfingar sem bönnuð
hefur verið í Póllandi.
Walesa undirritaði ekki þessa 1. maí-
áskorun en hann sagði við blaðamenn
á heimili sínu í gær að það þýddi ekki
að hann ætti engan hlut þar að. Hann
kvaðst þó ekki annaö geta en verið
hlutlaus... íorði.
Hann var fiuttur á lögreglustöðina til
fimm stunda yfirheyrslu í fyrradag um
leynifundinn en sagði eftir á að hann
hefði ekki svarað neinum spumingum.
Kona hans Danuta var tekin til yfir-
heyreluígær.
1. maí í fyrra fóru tugir þúsunda í
kröfugöngu um götur Varsjár og buðu
þar byrginn herlögunum til þess að
sýna stuðning sinn við Einingu. —
Einingarforingjar hafa sagt aö
„skrúðgöngur” kommúnista 1. maí
væru „skopmynd” af kröfugöngum
verkalýðsins og þar væri hæöst að rétti
hans til þess að ákveöa eigin örlög.
Skæruliðar vaða
uppi í El Salvador
Vinstrisinna skæruliöar ollu
rafmagnsleysi i öllum austurhluta E1
Salvador í gær og sprengdu í loft upp
sex áætlunarbíla til hefnda fyrir morö
á einum foringja þeirra.
Sprengdu þeir háspennumöstur svo
að rafmagnslaust varð í fjórum
fylkjum austurlands og er það í annað
sinn í þessum mánuði. Með samskonar
spellvirkjum gerðu þeir vesturúthverfi
San Salvador rafmagnslaus í "sex
klukkustundir í gær.
Skæruliðamir hafa gengiö berserks-
gang aö undanfömu til hefnda fyrir
Melidu Anaya Montes, næstæðsta yfir-
mann Farabundo-hreyfingarinnar, en
hún var myrt í útlegðarheimili sínu í
Managua í síöustu viku.
Þeir sprengdu upp sex langferðabíla
í Santa Ana (næststærstu borg
landsins) í gær og hafa þannig á
undanförnum dögum eyöilagt 22
bifreiðir.
Inni í höfuðborginni náðu skæruliðar
á sitt vald útvarpsstöð og sendu út í 30
mínútur ásakanir sínar um að
bandaríska leyniþjónustan hafi staöið
aö morðinu á Anaya Montes. Sluppu
þeir burtu áður en lögregluna bar að.
Leynileg réttarhöld
Ekkja eins af skæmliðaforingj-
um Guatemala hefur verið dæmd í
30 ára fangelsi en henni var gefiö
að sök að hafa átt þátt í mannráni.
Ruth Graviola Brocks er ekkja
Francisco Palma Lau sem drepinn
var í átökum við stjómarhermenn í
janúar í vetur. — Réttarhöldin yfir
henni voru leynileg og sami háttur
verður haföur við 70 aðra sem bíða
dóms.
15 manns hafa veriö teknir af lífi
í Guatemala síðan Montt hershöfð-
ingi kom til valda fyrir rúmu ári.
Reagan þrætir fyrir
Reagan Bandaríkjaforseti ber á
móti því að hafa reynt aö bylta
sandinistastjórninni í Nicaragua en
samtímis kallar hann hana „sovét-
studda marxístastjórn” sem leggi
vinstrisinna uppreisnarmönnum í E1
Salvadorlið.
Reagan lét sér þetta um munn fara
á blaðamannafundi í gær og er þetta í
fyreta sinn sem hann lýsir því gagn-
gert yfir að Bandaríkin eigi ekki hlut
að tilraunum til þess að velta
sandinistastjóminni.
Því hefur mjög verið haldið fram í
fjölmiðlum að Bandaríkjastjórn veiti
gagnbyltingarmönnum í Niearagua
hernaðaraðstoð með milligöngu
Hondúras. Edward Boland, öldunga-
deildarþingmaöur demókrata, fullyrti
í gær að sannarnir væru fyrir þessu. —
Boland var flutningsmaður fmmvarps
sem þingið samþykkti í fyrra, en í því
var leyniþjónustunni CIA bannað að
nota fjármuni sína til þess að bylta
sandinistastjórninnL
„Við höfum ekkert gert til þess að
reyna að bylta stjórn Nicaragua,”
sagði Reagan á blaðamannafundinum
ígær.
Hann sagöi litla skynsemi í því að
trúa að fáeinir gagnbyltingarmenn
gætu gert sér vonir um aö bylta stjóm
sem hefði stærsta og öflugasta her
Mið-Ameríku, vel búinn sovéskum
skriðdrekum, flugvélum og fleiri vopn-
um.
Reagan sagði að Bandaríkin vildu
fyrir sitt leyti stuðla að lýöræði og friði
í Mið-Ameríku. — Hins vegar kallaði hann
sandinistastjómina „byltingarstjórn sem
náð heföi völdum með ofbeldi og í skjóli
loforða um lýðræðislegar kosningar en
ekkert bólaði á efridum loforða.”