Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR15. APRIL1983.
9
Útlönd Útlönd Útlönd
DEILT UM APART-
Sir Richard Attenborough,
stjómandi kvikmyndarinnar Gandhi,
snerist til varnar þegar ákvörðun hans
um að vera viöstaddur frumsýningu
hennar í S-Afríku, þar sem hvítum
einum veröur leyfður aögangur, var
gagnrýnd. Hann sagðist hafa komist
að þeirri niðurstöðu að það væri betra
að sýna kvikmyndina fyrir
áhorfendum aðskildum eftir
kynþáttum en að sýna hana ekki. Hann
sagðist einnig sannfærður um að þetta
væri hin rétta ákvöröun. Hann lagði
einnig áherslu á að hann myndi verða
viðstaddur frumsýningu
kvikmyndarinnar í Soweto fyrir
svertingja.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, neitaði aðspurð
hvort hún hygðist hafa afskipti af þessu
máli.
I kvikmyndinni um Gandhi er m.a.
sagt fá upphafi réttindabaráttu hans
sem var einmitt i S-Afríku.
Sir Richard og Ben Kingsley við töku myndarinnar Gandhi.
HEID OG GANDHI
Forfaðir
hvalanna
lifðiá
þurru
Hópur franskra, bandarískra og
pakistanskra vísindamanna, sem
rannsakað hafa steingerðar leifar for-
sögulegra hvala, hafa tilkynnt að þeir
hafi fundið ný sönnunargögn fyrir því
aö hvalir voru landdýr í upphafi. Þessi
sönnunargögn fundust við rannsókn á
beinafundi frá 1978 í útjaðri Himalaya-
fjalla. Þetta er elsti hvalbeinafundur
sem þekkist.
Það var aðallega þrennt sem vísinda-
mennirnir byggðu niðurstöður sínar á.
I fyrsta lagi fundust beinin í jarölagi
sem við efhafræðilega rannsólm virtist
nær þurru umhverfi en sjávar. I öðru
lagi voru allar beinaleifar, sem
fundust með hvalbeinunum, af land-
dýrum, þar meö hófdýrum. En mest
um vert var það að við rannsókn á
hauskúpu hvals kom í ljós að hlustir
hans voru líkari hlustum landdýra en
sjávar.
Hvalir nútímans hafa varla
hljóöhimnu svo heitiö geti, heldur
hefur heym þeirra þróast þannig að
eymabein hægra og vinstra eyra em
aöskilin, svo þeir geta greint úr hvaða
átt hljóð koma. Hinn forsögulegi
hvalur sem vísindamennirnir kalla
Pakicetus hafði hins vegai
hljóðhimnur og gat þess vegna ekk
greint hvaðan hljóð konu
neðansjávar, né kafað mjög djúpt.
Eftirlit
á óeðlilega
erlenda
samkeppni
við íslenskan
iðnað.
Alþýðuílokkurinn
Marsblaö Æskunnar
er komið!
- Frískt og skemmtilegt efni.
M.a.:
* Viötöl við unga afreksmenn í
íþróttum.
★ Bókaklúbbur Æskunnar
kynntur.
* Dýraspítalinn í Víöidal.
★ Spurningar í 1. hluta áskrif-
endagetraunar. — Vinningar
eru 3 reiðhjól: Peugeot,
Kalkhoff og Winter.
★ Viötal viö Línu langsokk. —
Nóg af litmyndum.
* Fjölmargt annað forvitnilegt
og spennandi.
Allir eiga samleið
meö Æskunni
H Áskriftarsími 17336
HLJÓMSVEITIIM ÞEYR
Ámi
Sigfússon
Bessi
Jóhannsdóttir
Magnús Kjartansson
eru á meðal þeirra sem koma fram á skemmtun
ungra sjálfstæðismanna í húsi íslensku óperunnar
(Gamla bíói) laugardaginn 16. apríl kl. 13.45—
16.00.
JÚIÍU8 Vifill
Ingvarsson
Davið
Oddsson
OKEYPIS
AÐGANGUR
NY VIÐHORF
Geir H.
Haarde