Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1983, Qupperneq 36
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐ5LA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983. Fjölgað í starfsliði Sjónvarpsins — vegna útsendinga í júlí Sjónvarpiö hefur fengið leyfi ráön- ingamefndar ríkisins til aö róða í fjórar og hálfa stööu vegna aukinnar mannaflaþarfar í tengslum viö leng- ingu útsendingartíma Sjónvarpsins um einn mánuö. Sjónvarpið fór fram á 13 og hálfa stöðu. Ráöningarnefndin synjaöi sjónvarpinu um fimm og hálfa stööu, aö sögn Guöbjargar Jónsdóttur starfsmannastjóra. Þær stööur sem ráöiö verður í eru staöa íþróttafréttamanns, aðstoðar- dagskrórmanns, útsendingarstjóra meö meiru og loks veröur aöstoöarfull- trúi á skrifstofu framkvæmdastjóra í fullu starfi en var áöur í hálfu. Guöbjörg Jónsdóttir sagöi aö 10—15 manns yröu ráönir í afleysingastörf, m.a. 2 fréttamenn á innlendar fréttir og 1 á erlendarfréttir. Þegar hefur veriö gengiö frá ráöningu Sigrúnar Stefánsdóttur til afleysinga í sumar en ekki hefur enn verið ráöiö í hinar stöðurnar. -ás. Skoðanakönnun Helgarpóstsins: Fimm litlir og einn stór í skoöanakönnun Helgarpóstsins, sem framkvæmd var af SKÁÍS um síðustu helgi, varö niöurstaðan sú aö flokkakerfiö muni gjörbreytast í kosningunum á laugardag í næstu viku. Samkvæmt því fái Sjálfstæöis- flokkurinn 26 þingmenn og sérframboö á Vestfjörðum einn. Hin þingsætin 33 dreifistáfimmlitla flokka. Dreifing þingsæta á fimm litlu flokkana, samkvæmt niðurstöðunum í þessari könnun, yröi: Alþýöuflokkur 5 (tapaöi 5), Framsóknarflokkur 8 (tapaöi 9), Bandalag jafnaðarmanna 7, Alþýöubandalag 9 (tapaöi 2) og Samtök um kvennalista 4. Sjálfstæðis- flokkurinn myndi bæta viö sig 5 þing- mönnum og Sérframboö sjálfstæöra fá einn,einsogáðursegir. -HERB. GÓD AÐSÓKN AÐ HÚSINU Kvikmyndin Húsiö hefur nú veriö sýnd í rúman mánuö og hefur aösókn veriö mjög góö. Um 40 þúsund manns hafa séð myndina, þar af 30 þúsund í Reykjavík en 10 þúsund úti á landi. Til aö standa undir kostnaöi viö myndina þarf um 60 þúsund áhorf- endur. . -ÓEF.' LOKI Þar féll fyrsta kosninga- bomban. Gunnar Thoroddsená fundi meðsjálf- stæðismönnum: Gunnar Thoroddsen forsætisráö- herra sagði á fundi með sjálfstæðis- mönnum í Breiðholti í gær að hann sæi ekki ástæöu til aö gefa út yfirlýs- ingu um stuðning viö Sjálfstæöis- flokkinn. Gunnar sagöi aö hann heföi hvatt fólk um allt land aö styðja Sjálfstæöisflokkinn fyrir síöustu sveitarstjómarkosningar. „Eg veit Engin yfirlýsing um stuðning við flokkinn ekki sjálfur hvort þaö hefur haft áhrif en sumir telja að svo sé. Ég varö því ekki lítið undrandi þegar formaöur flokksins lýsti því yfir, þegar varla var búið að telja upp úr kjörkössunum, aö úrslitin væru dómur um ríkisstjóm Gunnars Thor- oddsen. Þetta hvetur nú ekki til aö vera. aö gefa yfirlýsingar í þessa átt,” sagöi forsætisráðherra. Hann vísaöi síöan til oröa sem höfö vom eftir Geir Hallgrímssyni í Morgunblaöinu í gær, um að sjálfstæðismenn stæöu nú frammi fyrir versta viðskilnaði ríkisstjórnar í sögu lýöveldisins, auk þess sem hættumerki sýndu aö lánstraust Islendinga erlendis væri aö veikjast. Gunnar Thoroddsen sagöi aö alvarlegt væri þegar fyrrverandi forsætisráöherra héldi sliku fram og myndi hann óska eftir skýrslu frá Seðlabankanum um þessi ummæli. Gunnar sagöi að eftir kosningar þyrfti aö kanna möguleika á starfhæfum meirihluta á alþingi. En ef menn einblíndu hins vegar á nýjar kosningar og væm ekki reiðubúnir til aö taka á sig ábyrgðina þá væri meiri vandi á höndum. ÓEP Hækkunarbeiðni Hitaveitunnar: „EKKIAFGREIDD FYRIR KOSNINGAR” — segir Hjörleif ur Guttormsson „Eg geri ekki ráð fyrir aö hækkunarbeiðni borgarráös vegna Hitaveitu Reykjavíkur verði af- greidd fyrir kosningar,” sagöi Hjörleifur Guttormsson iðnaöar- ráöherra í samtali viö DV í gær. Hjörleifur sagöi aö hækkunar-' beiönin væri nokkuö hærri en hann heföi gert ráö fyrir. Hann sagöi aö fariö yrði yfir hana fordómalaust í iðnaðarráöuneytinu og hún síöan send gjaldskrárnefnd ríkisstjórn- arinnar. Viöskiptaráðherra væri húsbóndi þeirrar nefndar og hann myndi skila endanlegum tillögum til ríkisstjórnarinnar. „Hitaveitan fékk nokkra raunhækkun á gjaldskrá á síðasta ári. Gjaldskráin hækkaði um 90% á meðan verðlag hækkaði um á að giska 60%. Mér þykir ekki ólíklegt að viö munum líta hliöstætt á þetta mál, en hvemig niöurstaðan verður fer eftir efnislegum forsendum beiöninnar,” sagöi Hjörleifur Guttormsson. Kosið um „ríki” á Selfossi Bæjarstjórn Selfoss samþykkti á fundi í gærkvöldi að láta, samhliöa alþingiskosningunum 23. april næst- komandi, kjósa um hvort opna skuli áfengisútsölu í bænum. TiUaga um slíkt var samþykkt meö fimm at- kvæðum gegn þremur. Einn sathjá. Fram komá bæjarstjórnarfundinum tiUaga um aö fresta afgreiðslu málsins þar tU áUt áfengisvamarráðs lægi fyrir. Hún var felld meö fimm atkvæöum gegnum tveimur. -KMU/Kristján, Selfossi. Sprengja sprakk við bandaríska sendiráðið: Guð,ég hétt þetta yrði ekki svona mikið — heyrðist kvenmannsrödd segja eftir sprenginguna Sprengja sprakk við bandaríska sendiráöiö á Laufásvegi 12 um klukkan 2.40 í nótt. LítiUi sprengju var komiö fyrir í 60 cm djúpu inn- skoti viö aðaldyr sendiráðsins. Maður, sem var á ferU í húsi á móti sendiráöinu, sagöi að eftir aö sprengjan sprakk heföi heyrst kvenmannsrödd: „Guö, ég hélt þetta yröi ekki svona mikið!” Sprengjan olU nokkrum skemmdum, tvær stórar rúöur brotnuöu, ljósa- kúpa yfir anddyrinu brotnaöi og flís- aöist úr tréverki sem sprengjan var fest viö. Rúöur í nærUggjandi húsum hristust. Samkvæmt heimUdum DV telur lögreglan að hér hafi veriö um aö ræöa heimatUbúna sprengju, búna til úr púöri og höglum. Á staönum fundust rafmagnsvírar og patrónur en enginn kveikjubúnaður og ekki virðist dínamít hafa veriö notað. „Hún skapaöi ekki verulega hættu þar sem hún var og vinnubrögðin virka ekki „prófessjónal” en þaö er full ástæöa til aö taka þetta alvar- lega,” sagöi aöiii tengdur rannsókn málsins viöDV. Enginn hefur hringt og sagst bera „ábyrgö” á sprengingunni, eins og tíökast erlendis og haföi lögreglan í morgun ekki hugmynd um hver heföi veriöaöverki. -ÁS/KLP. Sprengjunni var komið fyrir í horninu neðst til hægri á myndinni. Þrjár rúður isendiráðinu brotnuðu, auk Ijósakúpilsins yfir hurðinni. Einnig flísaðist úr tréverkinu. DV-mynd S.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.