Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Page 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 22. JtJLl 1983.
VILTU FILMU
MEÐ í VERÐINU?
Mefl nýja framköllunartilboð-
inu okkar getur þú sparafl yfir
130 krónur á hverri framkall-
aflri litfilmu.
Þú velur:
Vandaða japanska filmu með í
verðinu — án nokkurs auka-
gjalds, eða Kodak filmu með
aðeins kr. 30 í aukagjald.
GLÖGG-
MYND
Hafnarstræti 17
Suðurlandsbraut 20.
.að það er líka opíð í hádeginu?
.að við eigum ekki bara mikið a<
og ódýra varahluti í LADA, GAZ ,
VOLGA, MOSKV.CH og UAZ?
.að viö eigum líka hluti, sem
henta í aðra bíla?
.að það borgar sig oftast að tala
við okkur fyrst?
.að við leitum ávallt eftir hagstæð-
ustu innkaupunum í hvert sinn?
.að við kaupum líka varahluti frá
Þýskalandi, Englandi, Svíþjóð,
Ítalíu o.fl. o.fl.?
Dæmi
Suðurlandsbraut 14
Varahlutir Skiftiboró
39230 38600
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Með rútum er hœgt að komast nær hvart á land sam ar, an hér s/tast nokkr ar upp vaginn i Mosfallssvolt.
DV-mynd S.
Hvað kostar að fara með rútu út á land?
Afsláttarmiðar í
mörgum tilvikum
bestu kaupin
Eflaust hugsa margir sér til hreyf-
ings nú tvær síðustu vikurnar í júlí.
Unglingar halda á útisamkomur,
starfsmenn í orlofshús og útlendingar
upp í óbyggðir. En þótt haldið sé á óh'k-
ar slóðir eiga flestir þaö sammerkt að
ferðast í bílum, annaðhvort einka- eða
áætlunarbílum.
Til að kynna okkur hvað kostaði að
fara meö áætlunarbíl á hina og þessa
staöi á landinu slógum við á þráöinn til
Bifreiðastöðvar Islands. Þar er hægt
aö kaupa miöa meö áætlunarbílum
sem gilda í eina til fjórar vikur og er
hægt að ferðast ótakmarkað með rút-
um innan þeirra tímamarka. Miði sem
gildir í viku kostar 2350 kr., tveggja
vikna miði 3100 kr., þriggja vikna miði
3800 kr. og miöi sem gildir í f jórar vik-
urerá 4300 kr.
Einnig er hægt að kaupa svokallaða
hringmiða sem gilda með rútum hring-
inn í kringum landið. Þeir kosta 2050
kr. og mega ferðalangamir stoppa eins
lengi og þeir vilja á hinum ýmsu stöð-
um landsins á leið sinni umhverfis það.
Svo vikið sé að einstökum leiðum, þá
má nefna að ferð með áætlunarbíl frá
Reykjavík upp í Húsafell í Borgarfirði
kostar 260 kr. Aöeins ódýrara er að
fara í Reykholt, það kostar 225 kr. Sé
síðan haldið út á Snæfellsnes, þá kostar
315 kr. frá Reykjavík í Stykkishólm en
320 kr. frá Reykjavík í Búðardal.
Dýrt er að fara á Isafjörð. Kostar
farmiðinn frá Reykjavík 800 kr., enda
leiöin löng, einir 12 tímar. Til saman-
burðar má nefna að til Akureyrar kost-
ar 630 kr. en sú ferð tekur níu klukku-
stundir. Ef hins vegar látið er nægja aö
koma á Blönduós, þá kostar ferðin
þangaðfrá Reykjavík425kr.
Ekki er að efa að marga fýsir að fara
austur á land í sólina, sem þar virðist
skína alla daga. Atlavík er vinsæll
staður en sá er hængur á að tvo daga
tekur að fara þangað með rútu frá
Reykjavík. Skiptir engu hvort farið er
um Suður- eða Norðurland. Sé Norður-
leiðin farin verður að skipta um rútu á
Akureyri og taka aðra þaðan til Egils-
staða. Aætlunarbíllinn frá Reykjavík
kemur til Akureyrar um kl. 17 en þá er
sá austur á Hérað lagður af stað. Dag-
inn eftir er hins vegar hægt að halda á
leiðarenda en fargjaldið frá Akureyri
til Egiisstaða er 460 kr.
Sé ekið austur Suðurland til Atlavík-
ur verður að skipta um rútu á Höfn í
Hornafirði. Farið þangað kostar 690
kr. og frá Höfn til Egilsstaða kostar 420
kr. Litlu munar því í verði hvor leiðin
sem valin er.
Þjórsárdalur er einnig vinsæll tjald-
staður en að fara þangað með rútu er
ekki dýrt, kostar 180 kr. Loks má nefna
að fargjald frá Reykjavik til Víkur í
Mýrdaler280 kr.
Af ofanrituöu má sjá að heldur ódýr-
ara er aö kaupa sér hringmiða á 2050
kr. en að greiða fargjald til hinnr. ýmsu
staða á landinu. Ef við miðum t.d. við
að ferðalangur nokkur kaupi sér fyrst
miöa til Akureyrar, haldi þaðan til Eg-
ilsstaða, svo á Höfn og loks aftur til
baka til Reykjavikur þá kostar ferðin
hann 2200 kr. Og þá verður að hafa í
huga að viðkomandi hefur strangt til-
tekið ekki farið hringinn, bæði sleppt
Vestfjarðakjálkanum, Snæfellsnesinu
og norðausturhorni landsins.
Að sögn starfsmanna BSI virðist
sem fólk ferðist meira með áætlunar-
bílum í ár en fyrri sumur. Á það jafnt
við um Islendinga sem útlendinga.
Virðist svo sem almenningur sé ekki
alveg fús til að skera niður ferðir sínar
út á land en reyni hins vegar að komast
þangað á ódýrasta mögulegan hátt,
jafnvel þótt það kosti langar og leiðin-
legar f erðir í rútum á holóttum vegum.
-sa.
nYRARA FN biFm.
LEGRA AÐ FUÚGA
Það er hægt að feröast á annan
hátt um landið en í bílum. Flugvélar
eru einnig vinsæll ferðamáti og þeir
eru margir sem miklu fremur kjósa
að fara sinna ferða í lofti en á láði.
Flugferðir eru lika þægilegar og
fljótlegar, en aö sama skapi dýrari
en rútuferðir.
Flugleiðir halda uppi áætlunar-
flugi á fjölmarga staði á landinu, en
Reykjavík er miðpunktur þess flugs.
Sem dæmi um verð má nefna að flug
frá Reykjavík til Isafjarðar kostar
1215 kr., en 1177 kr. til Patreks-
fjarðar. Þá kostar 1163 kr. að fljúga
frá Reykjavík til Þingeyrar.
Til Sauðárkróks er hægt að fljúga
fyrir 1170 kr. flug frá Reykjavík til
Akureyrar kostar 1302 en heldur dýr-
ara er til Húsavíkur, þangað kostar
1417 kr. aðfljúga.
Ef leiðin liggur austur á land má
nefna að flug til Egilsstaða kostar
1739 kr. og 1794 kr. kostar að fljúga
frá Reykjavík til Norðfjarðar.
Loks má nefna að flugfar til Hafn-
ar í Homafirði kostar 1532 kr. og til
Vestmannaeyja kostar 846 kr.
Fargjöld þessi eru aðeins aðra
leið og ofan á þau leggst flugvallar-
skattur, sem í dag er 16 kr.
Athygli ervakináþviaö Flugleiðir
bjóða sérstakan fjölskylduafslátt.
Greiðir þá annað foreldrið fullt verð
fyrir flugmiöa sinn, en hitt foreldrið
aðeins helming. Þá þurfa böm að-
eins að greiða einn fjórðung far-
gjaldsins og böm undir tveggja ára
aldri einungis einn tíunda.
-sa.