Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Rússar skutu þrisvar á júmbó- þotuna — Hljóðritamir af fjarskiptum sovésku orrustuflugmannanna gefa slíkt til kynna Chun Doon Hwan, forseti S-Koreu, sakaði í morgun Sovétríkin um „ólýsanlega villimennsku” með því að láta skjóta niður yfir Japanshafi s-kóreanska farþegaþotu með 269 manns innanborðs. 1 einni skýrslu Bandaríkjamanna, sem fylgdust með fjarskiptum sovésku orrustuþotunnar við stjórn- endur sína á jörðu niöri, er þvi haldiö fram aö sovéskur flugmaður hafi skotiö þrem eldflaugum aö júmbó- þotunni. Ríkisstjóm S-Kóreu kom saman tU fundar út af þessum atburði en síðan kom Chun forseti fram í útvarpi og sjónvarpi þar sem hann fordæmdi Sovétmenn fyrir það sem hann kaU- aði „óafsakanlega árás”. Krafðist hann afsökunarbeiðni Sovétstjómar- innar og lét í veöri vaka að S-Kórea mundi gera kröfur um bætur á hend- ur henni. Árásina kaUaði hann „synd gegn Guði og mönnum og ólýsanlega viUimennsku”. Japönsk fréttastofa vitnar í skýrsl- ur Bandaríkjahers sem rekur rat- sjárstöövar nyrst á Japanseyjum og hlýddi á fjarskipti Sovétmanna um það leyti sem s-kóreanska þotan hvarf út af ratsjám við Shakalin- eyju. Af hljóðritunum má heyra hvar stjómandi á jörðu niðri gefur orrustuflugmanninum fyrirmæli um að miða á þotuna. „Eg hef hana í miöi,” svarar flugmaðurinn. „Skjóttu,” er þá sagt. „Ég hef skot- ið,” staöfestir flugmaðurinn. — Þetta heyrist síðan endurtekiö þrí- vegis. Japanskur fiskibátur var á veiðum á svipuðum slóðum. Áhöfn hans ber þaö að hún hafi heyrt þrjár sprengingar úr þeirri átt sem vænta má að flugvélin hafi verið. Björt leiftri brá fyrir á himninum. Kremlstjómin hefur enn ekki svar- að ásökunum Bandaríkjamanna um að hún sé sek um „viðurstyggilega misgjörð” í þessu máli. Hún hefur viðurkennt að orrustuþotur hafi ver- ið sendar í veg fyrir óþekkta flugvél sem rofið hafði lofthelgi Sovétríkj- anna og hundsað viðvaranir. Hún hefur ekkert viljað segja um hvað orrustuþoturnar vora látnar gera. Bandaríkin: Slæmar upp- skeruhorfur Miklir þurrkar sem gengiö hafa yfir miðvesturríki Bandaríkjanna virðast munu valda miklum uppskerubresti í landinu. Verðlag á kornvöra fer hraðhækkandi, ekki síst vegna þess að erlendir aðilar hafa boðið hátt verð. Talið er að veðurfar hafi ekki verið óhagstæðara í Bandaríkjunum síðan árin 1936—37. Margir kaupsýslumenn á kornvöra- markaðnum í Chicago búast nú við því að uppskera á sojabaunum verði aðeins 1,5 milljaröar skeppa, en fyrir aðeins mánuði var því spáð að uppskeran yrði 1,84 milljarðar skeppa. Miðaö viö fyrri ár, bendir því allt til að uppskera á sojabaunum minnki um 19%. Þá er búist við að hveitiuppsker- an verði óvenjulítil aö þessu sinni. Við þessar fréttir hefur mikil spá- kaupmennska hafist á kornmörkuðum og nú kosta sojabaunir í Bandaríkjun- um 9,14 dollara skeppan, miðað við af- hendingu í nóvember, en sama magn kostaði 5,70 dollara fyrir tíu mánuðum. Sojabaunir era helsta útflutningsvara Bandaríkjamanna, fyrir utan hergögn. Útlönd Drógu upp Einingar- fánann á Mont Blanc Þrír Pólverjar, sem klifu Mont Blanc, hæsta fjall Evrópu, höföu með sér 15 fermetra fána Einingar, hinnar bönnuðu verkalýðshreyfing- ar Póllands, og drógu hann að húni uppi á tindinum í tilefni þriggja ára afmælis Einingar. Bannað að striplast Ungversk yfirvöld ætla nú að taka hart á fólki sem baðar sig nak- ið á almannafe;rí. Hér eftir liggja viö slíku um 500 króna sektir. Það þóttu meiri brögð að því í sumar í hitabylgjunni en áöur aö fólk kastaði klæðum og baðaði sig á evuklæðunum einum í Dóná og tjömum. Slík nekt er hins vegar leyfö í Austur-Þýskalandi og Júgóslavíu. Tékknesk yfirvöld hafa til athugun- ar aö sýna einnig slíkt frjálslyndi. Boeing 747 farþegaþota af sömu gerð og sú kóreanska, sem skotin var niður yflr Japanshafi á leiðinni frá New York til Seoul, með 269 manns innanborðs. Kortið sýnir flugleið s-kóreönsku júmbóþotunnar frá Anchorage í Alaska fyrir Kamchatka-skaga — eftir fullyrðingum Sovétmanna að dæma — og Shalakin- eyju. Sovétmenn hafa á þessum slóðum öflugar herstöðvar fyrir kafbáta og flugher. — S-Kóreumenn segja að flugvélin hafi verið mjög vel búin nýtísku siglingatækjum og trúa illa að vélin hafi villst inn í loftbelgi Rússa. Nota ekki þessa flugleið oftar Kóreanska flugfélagið (KAL) því yfir í morgun að þaö gæti ekki lengur notað sömu flugleiðina sem júmbóflugvélin fylgdi þegar hún var skotin niður af Sovétmönnum í gær. „Við getum ekki oftar notaö leiö nr. 20, sem var ein af fimm aðal- flugleiðunum yfir suöurhvelið. Hún liggur of nærri sovésku yfirráða- svæöi og forðast ber svipuö atvik í framtíðinni,” sagöi talsmaður KAL. Hann sagði að leiðin lægi um 80 mílur sunnan við lofthelgi Sovét- manna við Sakhalin-eyju. Kvað hann erfitt að trúa fullyrðingum Sovétmanna um að vélin hefði brot- ið lofthelgi Sovétmanna. Hún hefði verið útbúin með nýjustu tæki og tölvur til loftsiglinga. KAL beinir nú sjónum sínum aö öðrum flugleiðum í stað nr. 20. KAL er næststærsta flugfélag Asíu með um 42 vélar en japanska félagið JAL er það stærsta. farþegaþot- unnar Tryggingakröfur vegna kóre- önsku farþegaþotunnar og þeirra 269 manna sem fórust með henni þegar sovéskar orrustuþotur skutu hana niður við Shakalineyju gætu fariö upp fyrir 435 mUljónir dollara. Kóreanska flugfélagið KAL lýsti hafði tryggt Boeing 747-véUna fyrir 35 milljónir doUara hjá Oriental Fiere and Martoe-tryggingarfélag- inu og farþega og farm fyrir aUt að 400 miUjónir dollara. Ættingjar áhafnarinnar (sem í voru 29 menn) gætu einnig fengið aUt að 40 þúsund doUára fýrir hvem áhafnarmeðlim. „HRYLLILEGT OFBELDI” — segir Reagan Bandaríkjaforseti Ronald Reagan BandarUcjaforseti hefur lýst yfir hneykslan sinni og gremju vegna þess sem hann kaUar „viUimennsku” Sovétstjórnarinnar með því aö láta skjóta s-kóreanska far- þegaþotu með 269 manns innanborðs. Hefur hann vísað á bug skýringum Moskvu á atburðinum sem algjörlega ófuUnægjandi. Bandaríkjastjóm hefur krafist und- andráttarlausrar skýringar af hálfu Moskvustjómarinnar og mun ásamt S- Kóreustjóm óska sérstaks fundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til þess að fjalla um máUð. „Okkur brestur orð tU þess að lýsa viðurstyggð okkar á þessu hrylUlega ofbeldi eða þeim viðbjóö sem aUur heimurinn hefur á þessari skefjalausu viUimennsku,” segir í yfirlýsingu sem lesin var upp frá Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í gærkvöldi. Einu svör Sovétstjórnarinnar hafa birst í tUkynningu hinnar opinbera fréttastofu, TASS, þar sem segir aö óþekkt flugvel hafi fariö inn í lofthelgi Sovétríkjanna viö Kamchatka-skaga og Shakalineyju. Segir í henni aö flug- vélin hafi hundsaö allar viðvaranir orrustuflugvéla. En ósagt er látið hvernig brugðist hafi verið við. Viðbrögö um aUan heim hafa verið í svipuðum streng og hjá Bandaríkja- stjórn og stjóm S-Kóreu þar sem þjóðarleiötogar hafa lýst yfir óþokka sínumáatburðinum. Innan Bandaríkjanna hafa vaknað raddir sem krefjast þess að gripið verði tU viðskiptabanns og annarra refsiaðgerða gegn Sovétríkjunum vegna þessa atburðar. — Meðal farþega í kóreönsku flug- vélinni, sem var á leiðinni frá New York til Seoul í S-Kóreu, var Larry McDonald fulltrúadeildarþingmaður demókrata, en hann var einnig for- maður John Birch-samtakanna sem þykja mjög íhaldssöm. McDonald var einn harðasti gagnrýnandi Sovét- stjórnarinnar meöal þingmanna í Bandaríkjunum. Um leið hefur komið upp gagnrýni meöal stöku manna í Bandaríkjunum fyrir það að Bandaríkjaher hafi ljóstrað of miklu upp um njósnagetu sína með nákvæmum lýsingum á sam- tölum sovésku orrustuflugmannanna við stjómendur sína því aö þau samtöl vora hljóðrituð. Segja fulltrúar bandaríska utan- ríkisráöuneytisins engan vafaleika á því hvað skeð hafi. Hljóöritanimar þykja sýna um leið að árásin á far- þegaþotuna hafi haft það langan aðdraganda og flugmennimir lýst í tal- stöðvum sinum rækilega athöfnum öllum að ekki sé um að ræða fljótfæmi eða óöagot. Fyrir nákvæmlega 29 árum kvart- aöi Bandaríkjastjórn við öryggisráð Sameinuöu þjóðanna undan því að Sovétmenn hefðu ráðist og skotið á bandaríska flotaflugvél sem skotin var niður um 100 mílur austur af Vladivostock yfir alþjóðlegum siglingaleiðum. Það var 4. september 1954. Sovétmenn báru því við að vélin hefði rofið lofthelgi og ekki hlýönast orrustuflugvélum sem vildu bægjai henni út fyrir aftur. 20. apríl 1978 réðst sovésk orrustuþota á farþegaþotu frá S-Kóreu og neyddi hana til þess að nauölenda í grennd við Murmansk. 110 manns voru um borð í vélinni og létu tveir lífið. Sú vél var á leið yfir Norðurpólinn frá París til Seoul og hafði haft viökomu I Anchorage í Alaska eins og júmbó- þotan gerði í þessari ferð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.