Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER1983. Spurningin Hefur þú trú á að hann fari að stytta upp? (spurt í Vestmannaeyjum) Öskar F. Brynjarsson rafvirki: Já, ég hef trú á því, líttu bara á skýin. Það verður sólskin á morgun. Eiisabet Amoddsdóttir hjúkrunar- kona: Ég er alltaf vongóð og held í von- ina endalaust. Sól inni, sól úti, sól í hjarta og sól í sinni. Atli Elíasson steypubilastjóri: Auðvitað, það er ekki hægt annað, það verður betra á morgun. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Enn um dagvistar- gjöld og meðlög —fæég fátæklingasúpu í ráðuneyt inu? spyreinstæð móðir H.S. 4034—9537, einstæð móðir með tvö böm, skrifar: Ég er hjartanlega sammála lesenda- bréfi frá Guðrúnu Rós í Hafnarfirði, sem birtist í DV 26. ágúst. Gjöld á dag- vistarstofnunum fyrir börn hækka hraöar og meira en meðlög, auk þess sem þau þurfa aðgreiöast fyrr. 1. Dagvistargjöld hækka um 10% þann 1. september (hliðstætt og póstur og sími, hitaveitan o.s.frv.) og verða þá kr. 1900 fyrir bamið. Meðlög eru nú kr. 1553 og hækka ekki fyrr en 1. októ- ber og þá væntanlega um 4%, eins og laun. Biliö milli dagvistargjalds og með- lags þarf móðirin að brúa. I september lítur dæmið þannig út: Móðir með eitt barn — kr. 347 Móöir með tvö böm — kr. 694 Móðir meö þrjú börn — kr. 1041 Þetta er sá mismunur milli dag- heimilisgjalds og meðlags sem hún þarf að bæta við. 2. Dagheimilin óska eftir aö gjöld fyrir börnin séu greidd í síðasta lagi þann 6. hvers mánaðar. Meðlög úr tryggingum eru hins vegar ekki greidd út fyrr en þann 10. Meðan Sumargjöf rak dagheimilin þurfti ekki að greiöa gjöldin fyrr en 12. hvers mánaðar, sumsé eftir að meölögin voru komin. Hvers vegna gat Sumargjöf fremur gefið greiðslufrest en Reykjavíkur- borg? Og þegar dagheimilin heimta sína peninga þann 6. getum við þá ekki heimtaðmeðlögin þann sama dag? 3. Nú kemur eitt sem mér er algjör- 'lega óskiljanlegt. Samkvæmt lögum mun barnsfaðir eiga að greiða helming af framfærslu bama á móti móður. Or tryggingunum fæ ég frá honum kr. 1553, minn eigin hlutur hlýtur að vera þaö sama, þannig að bamið fær alls kr. 3106 frá okkur báðum. Þar af renna 1900 kr. beint til dagheimilisins. Og nú vil ég spyrja. Hvernig getur dagheiliöið þurft kr. 1900 fyrir gæslu og fæði bams í 8 stundir 5 daga vikunnar, þegar ég á að láta mér nægja kr. 1206 fyrir gæslu og fæði fyrir þær 16 stundir, sem eftir eru og á þó eftir að kaupa allan fatnaö og annað sem bamið þarf. (Við skulum alveg sleppa þeirri ábyrgö, sem ég ber á andlegum þroska bamsins, enda verður slíkt aldrei met- iðtilfjár.) Ef þeir í hinu háa dómsmálaráðu- neyti eiga handa mér uppskrift að því hvemig ég á aö fara að þessu, þá em það víst fleiri en ég sem verða fegnir að fá hana. Varla er meiningin að ég komi upp í ráöuneyti til aö fá þar súpu, því matgjafir handa fátækl- ingum em liðnar undir lok, er það ekki? PS: Ég vil gjama láta þess getið að ég er mjög þakklát dagheimilunum fyrir góða þjónustu. Og mér finnst fjarska ósanngjarnt að fóstrur skuli ekki fá greidda neina eftirvinnu, þótt þær lendi í að bíða með börn fram yfir tilskilinn vinnutíma, þegar foreldrar tefjast, til dæmis vegna ófærðar. Það eruekkimargiraðrir starfshópar sem þannig vinna launalaust. Þegar dagheimilið hefur fengið sínar kr. 1900 fyrir baraið er harla lítið eftir, skrifar 4034—9537, og fögur orð um þá sem eiga aö erfa landið hrökkva skammt í matarpottinn. DV-mynd AldaLóa. Guðlaugur Stefánsson umboðssali: Jú, það hlýtur að fara að lagast, vegna þess að það getur ekki versnað. Lilja Hanna Baldursdóttir B.h.: Nei hef ekki trú á því, ég sé ekkert nema lægöir og svoleiðis á veðurkortum. Ég er orðin svo vön rigningunni. Kristín Pálsdóttir framreiðslustúlka: Ég hef ekki trú á því í bili. Ferlega er þetta asnaleg spuming. Eru brunavamir á Iðnsýningunni í lagi? — fullt samráð við eldvamai- eftirlit, segir stjórn sýningarinnar Ein eldhrædd hringdi: Ég fór með fjölskyldu mína á Iðnsýn- inguna á laugardaginn var. Mér fannst einkennilegt að sjá ekki neinn bruna- vörð á staðnum. Ég hélt þeir ættu allt- af aö vera á svona fjölmennum manna- mótum og hef ég séð þá á miklu fá- mennari sýningum í Laugardalshöll- inni með kalltæki og í viðbragðsstöðu. Það var mikill troðningur þegar far- ið var inn á tískusýninguna og ég gat ekki annaö en hugsað: Hvaö skyldi gerast ef nú kviknaði í? Að vísu var bannað að reykja, en Is- lendingar eru stundum kærulausir um boð og bönn. Ég sá talsvert af slökkvi- tækjum en kæmi eldur upp finnst mér að einhver þyfti að stjórna hvemig þau væru notuð. Þama er víða verið að sjóða mat og mikið af eldfimu efni í básunum þannig að ekki þyrfti mikið út af að bera. Bjarai Þór, framkvæmdastjóri Iðnsýn- ingar: Þótt brunaverðir séu ekki stöðugt á ferli á svæðinu þá höfum við reynt að gæta vel að þessu atriði. Tveir bruna- verðir frá eldvarnaeftirlitinu voru okkur til aöstoöar meðan sýningin var sett upp. Allt tau og annað efni, svo sem himnar yfir sýningarbásum, gólf- teppi og svo framvegis , er eldvarið og starfsfólki hefur verið leiðbeint um Slökkvfliðsmaður með slökkvitski. notkun slökkvitækja. Þegar eld- þrír af starfsmönnum okkar með gleypirinn sýnir atriði sitt eru jafnan slökkvitæki. Hvaða hjálparstofnun tekur við gleraugum? Hafdís Ásgeirsdóttir hringdi: inn veit hvaða hjálparstofnun þetta var. Ég hef einhvern tíma séð auglýs- Vona aö DV geti hjálpað mér að ingu um hjálparstofnun, sem tekur á upplýsa þetta mál, því ég er héma móti gleraugum. En nú hef ég talað með ein sjö gleraugu, sem ég vil við eina þrjá slíka aðila og allir helst ekki henda og vona að einhver muna eftir að hafa séð þetta en eng- geti haft gagn af þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.