Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER1983.
9
Neytendur Neytendur
Farið varlega við hreingeminguna:
Betur vinnur
vit en strit
A síðustu áratugum hef ur orðið alger
bylting í tækni. Vélar og tæki eru farin
að gera hluti sem enginn vissi einu
sinni að til væru fyrir nokkrum árum.
Þetta hefur nýst fólki vel á vinnumark-
aönum.
En þegar inn á heimilin er komið
blasir við önnur mynd. Að sönnu eru
þar til ótal tól og tæki sem hjálpa til við
þau verk sem vinna þarf. En hversu
langt verður í það að vélmenni geti tek-
ið til á meðan við bregðum okkur í
vinnuna? Því miður nokkur ár að
minnsta kosti. Þangað til verðum við
að sætta okkur við að vinna húsverkin
sjálf. Eins leiðinleg og flestum finnst
þau.
Það er ekki nóg með að húsverkin
séu leiðinleg, þau eru erfið líka. Reikn-
að hefur verið út aö húsverk séu um
það bil helmingi auðveldari en hlaup.
Þaö þýöir að húsverk í klukkutíma eru
álíka erfið og hlaup í hálftíma. Samt
vinnur margt fólk húsverk en dettur
ekki í hug að reyna að hlaupa. Við hús-
verkin er nauðsynlegt að nota allan
líkamann. Vöðva og bein, hjarta og
lungu. I rauninni eru þau fínasta
líkamsrækt.
Þaö er hins vegar ekki sama hvernig
unnið er við hreingeminguna. Eins og
við alla aðra vinnu er hægt að valda
líkamanum tjóni við húsverkin. Ef
ekki eru notuð rétt verkfæri og unnið á
réttan hátt meö þau.
Mikilvægast er að vernda hrygginn
eftir mætti. Til þess er best að fylgja
eftirfarandi átta ráðum:
1. Reyniö að vinna eins mikið og unnt
er með hrygginn beinan.
2. Notið verkfæri með löngu skafti eða
framlengingarskafti.
3. Varist að snúa upp á og beygja
líkamann mikið við vinnuna.
4. Styðjið ykkur við með annarri hend-
inni við þvott á veggjum og borðum.
5. Lyftið ekki þungum hlutum nema
meö annarra hjálp. Þá skuluð þið
beygja ykkur í hnjánum og mjöðm-
unum, halda hryggnum beinum og
halda því sem lyfta á eins nálægt
líkamanum og unnt er.
6. Notið skemii eða tröppu til að vinna
við eitthvað sem er í brjósthæð eða
hærra.
7. Togiö fremur í hluti en að ýta þeim.
Notiö líkamsþungann og spymið í
með fótunum.
8. Hvíliö ykkur í stutta stund ööru
hverju og reynið þá að slappa alveg
af.
Gólfin erfiðust
Erfiöasta verkið viö aö gera heimilið
hreint er að þvo gólfin eða ryksjúga.
Þessi verk verða bæði mun auðveldari
ef skaftið á gólfskrúbbnum og barkinn
á ryksugunni eru nógu löng. Skaftið á
skrúbbnum á að vera jafnlangt þeim
sem notar það. Og á ryksugunni á að
vera harður barki sem nær þeim sem
við hana vinnur í öxl. Ef svo er ekki á
ryksugu heimilisins ættuð þið að at-
huga hvort umboðsaðili hennar selur
ekki viðbót.
Sogkraftur ryksugunnar verður
einnig aö vera nægilegur. Ekki á að
vera þörf á því aö þrýsta endanom á
ryksugubarkanum ofan í teppiö. Það á
aö vera nægilegt að strjúka honum
laust eftir gólfinu, fram og til baka.
Vinnið fram fyrir ykkur og haldið •
líkamanum beinum. Flytjið þungann
oft á milli fótanna. Þá eru það einkum
stóru vöðvarnir í fótum sem vinna
verkiö og hryggnum er hlíft.
Við ryksog úti í hornum er best að
beygja sig vel í öðru hnénu og styðja
jafnvel með annarri hendinni á hnéö.
Þegar ryk er sogið undir lágu borði eða
sófa muniö þá að beygja vel mjaðmir
oghné.
Aö taka saman lausa hluti sem liggja
um íbúðina og að þurrka ryk er léttasti
hluti húsverkanna. En þegar þurrkaö
er af lágum borðum eða hillum eða
strokið af veggjum er best að beygja
sig í hnjánum og mjöömunum og
styöja hendinni á borðið eöa hnéð.
Hryggurinn á að vera beinn. Ef þurrka
á af háum skáp eða hillu er best að
nota bursta með löngu sfcifti. Hægt er
að vefja klút utan um hausinn á burst-
anum ef vill.
Að búa um
rúmin
Flest rúm eru bæði lág og breið. Því
getur umbúnaöur þeirra verið erfiöur
ef ekki er farið rétt að. I stað þess að
standa með fætur beina og bogið bak er
betra aö beygja annað hnéð upp á rúm-
ið og strekkja lakið í gagnstæða átt.
Haldiö umfram allt bakinu beinu. Best
er ef rúmið stendur ekki upp við vegg
ef tveir hjálpast að, hvor sínum megin
við rúmið. Best er aö leyfa rúminu að
standa nokkra stund áður en búið er
um. Þá nær það að kólna og loft að
leika um sængurfötin og eigendur þess
náaöliðkasig ögn.
Mikilvægasta reglan viö hreingem-
ingu á heimilinu er samt sú síðasta. Að
hvíla sig vel ööru hverju. Stutt stund er
nægileg. Flestir þeir sem togna eöa
meiða sig við heimilisstörfin gera það
af þvi að þeir eru að flýta sér að klára
þau. Njótið þess að hvíla ykkur, þið
hafið þegar unnið mikiö. Hugsið um
það fremur en allt það sem eftir er.
DS/Þýtt
Neytendur
IMÝKOMNIR KULDASKÓR í ÚRVALI
FYRIR DÖMUR OG HERRA
Skóverslun Þórðar Péturssonar
Laugavegi 95, sími 13570.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIS HÚSINUI í Jl! HÚSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 í KVÖLD
OPIÐ ** P" i NÝJUNG
LAUGAR DAGA I mL; EURGCARD JL grillið Op'tð® ^ Grillréttir allan daginn vets'unaí ' Réttur dagsins
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
HÚSGA GNA ÚR VA L
Á TVE/MUR
HÆÐUM.
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
jib
Jón Loftsson hf.
/A A A A A A
. C3 i
: r.j 3 _j UuJij
. 3 rz ;.juuuaj.i|n
rjLiumjjj
ttiIT
III
znc
Hringbraut 121 Sími 10600
VOLVO 244 GL '82,
ekinn 22.000 km, beinsk. m/yfirgír.
Verð kr. 395.000.
VOLVO 244 GL '82
ekinn 5.000 km, sjálfsk. Verð kr.
430.000.
VOLVO 244 GL '81
ekinn 40.000 km, beinsk. m/yfirgír.
Verð kr. 360.000.
VOLVO 244 GL '80
ekinn 46.000 km, beinsk. Verð kr.
300.000.
VOLVO 244 DL '78
ekinn 60.000 km, beinsk. Verð kr.
205.000.
VOLVO 264 GLE '78
ekinn 103.000 km, sjálfsk. Verð kr.
285.000.
VOLVO 245 DL '76
ekinn 138.000 km, sjálfsk. Verð kr.
165.000.
VOLVO 144 DL '74
ekinn 130.000 km, beinsk. Verð kr.
100.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 10-16.
VOLVOSALJJRINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200