Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 1
37.000EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
RITSTJÓRN SÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
,óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
251. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1983.
' • .
HRIKALEG
AÐKOMA
Sex bjargað en sjö fórust erþýskt flutningaskip sökk:
Þýsku skipbrotsmennimir sex sem björguðust heilir ð húfi af flutningaskip-
inu Ms. Kampen, sem fórst í gærkvöldi, komu til Vestmannaeyja í morgun
meö fimm bátum. Þeir voru furðuhressir eftir hrakningana en lögregla og
björgunarsveitir biðu þeirra á hafnarbakkanum og fluttu á sjúkrahús Vest-
mannaeyja, þar sem þeir fengu aðhlynningu. DV-myndir GVA
löðrandi svartolía og brak um allan sjó
Sex menn björguðust en sjö fórust er
þýska flutningaskipiö Kampen fórst 22
sjómQur austsuðaustur af Dyrhólaey í
gærkvöldi. Skipbrotsmönnunum sem
allir voru þýskir auk eins Ghanabúa,
var bjargað um borð í fimm fiskibáta
sem komu á slysstaðinn tæpri klukku-
stund eftir að skipið sökk. Náðust sex á
lífi en hinir voru látnir eða létust
skömmu eftir að þeir náðust um borð í
bátana. Komu bátamir með skipbrots-
mennina og hina látnu til Vestmanna-
eyja snemma í morgun.
Að sögn Guðjóns Einarssonar, skip-
stjóra á Skarfi GK, sem var einn af
fyrstu bátunum á slysstað, var
aðkoman hrikaleg. Brak var um allan
sjó og allt löðrandi í svartolíu. Tókst þó
fljótt að finna skipverjana, sem flestir
voru á sundi í sjónum eða að þeir héldu
sérvið brakáfloti.
Erfitt reyndist að ná skipverjunum
um borð í fiskibátana bæði vegna sjó-
gangs og vegna þess hve þeir voru
útataðir í olíu. Fyrsti skipverjinn
náðist um borð í Skarf um klukkan níu
en sá siðasti um borð í Kóp GK um
klukkan ellefu og var sá látinn.
Bátamir komu síðan einn af öðrum
til Vestmannaeyja upp úr klukkan
fimm í morgun og var farið með
skipverjana sex rakleiðis á sjúkra-
húsið þar sem þeir munu dveljast fyrst
um sinn. Þeir vom furðuhressir á að
s já miðað við að þeir höfðu velkst um í
köldum sjónum, flestir í meira en
klukkustund.
Ekki reyndist unnt að ná tali af
neinum þeirra en eftir því sem næst
verður komist mun Kampen hafa
hreppt aftakaveður á leið sinni frá
Amsterdam til Islands og búið að vera
með 15 gráðu slagsíðu á annan sólar-
hring þegar það sökk. Höfðu lestar-
lúgur brotnað og sjór komist í lest-
amar en farmur skipsins var kol. Af
einhverjum ástæöum taldi þó skip-
stjórinn ekki ástæðu til að leita hjálpar
þrátt fyrir slagsíðuna.
Að öllum likindum hefur skipið síðan
fengið á sig brotsjó og lestamar fyllst
af sjó. Sökk það á skammri stundu.
Kampen var á leið frá Amsterdam til
Grundartanga með kolafarm til
Sementsverksmiðju ríkisins. Skipið
var sjósett í janúar á þessu ári og var
burðargeta þess 6150 lestir. Skipið
haföi verið á leigu hjá Eimskipafélagi
Islands síðan í september.
-SþS/GB/KMU.
-sjábls. 36-37 ogbaksiðu
/