Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 20
20 DV. MIÐVÍKUD AGUR 2. NOVEMBER1983. íþróttir íþróttir__________________íþróttir_________________íþróttir í Á skotspónum InglBjörn. Ingl Björn Albertsson, hinn marksækni leikmaður Vals, mun skrifa undir samning við FH-inga nú naestu daga og mun hann þjálfa og ieika með Hafnarfjarðarliðinu í 2. deildar keppninni í knattspyrnu næsta kcppnistímabil. Ingi Björa er ekki ókunn- ugur í herbúðum FH — hann þjálfaði FH og lék með féiaginu i 1. defld 1981. Árni áfram með Tindastól Arni Stefánsson, fyrram landsliðsmark- vörður í knattspyrau, sem hefur þjálfað og leikið með Tindastóli tvö undanfarin ár, verður áfram þjálfari iauðárkróksliðsins. Árai Njáls ræðir VÍð ArnJN. Njarðvíkinga Njarövíkingar era nú að ieita sér að nýjum þjálfara þar sem Mfle, sem hefur þjálfað þá sl. tvö keppnistimabfl, hefur, ákveðið að taka sér hvild frá þjálfun. Njarðviklngar hafa átt viðræður við Arna Njálsson, fyrrum landsUðsmann úr Val, sem hefur þjálfað 4. deildarllð Þórs frá Þoriákshöfn tvö sl. keppnistimabil. Brynjar ekki til Svíþjóðar Brynjar Guðmundsson, markvörður Valsliðsins, fer að öilum likindum ekki til Sviþjóðar elns og hann hafði ráðgert. Brynjar mun því leika áfram með ValsUð- inu. Þorgnmur áfram íFrakklandi? Þorgrimur Þráinsson, bakvörður Vals- iiðsins, er nú staddur i Frakklandl og hefur hann æft með 2. deildar Uðinu Nice.; Það er óvist bvort Þorgrímur kemur tfl landsins næsta sumar og ieikur með Val. Hörður. Dýri. Dýri og Hörður hætta Dýri Guðmundsson, fyrrum landsUðs-, maður úr Val, hefur ákveðið að hætta að ieika með ValsUðinu og einnig eru miklar llkur á því að Hörður Hilmarsson hætti einnig i herbúðum Valsmanna. Þeir félagar hafa hug á að taka sér hvíld frá knattspyrau. „Það var sártað þurfa að tapa” — leiknum gegn FH á síðustu sekúndunni, sagði Björn Pétursson hjáKR — Það er sárt að þurfa að sætta sig vlð tap eftir að hafa náð að jafna 21—21 og vera siðan með knöttinn. — Það er hreint furðulegt að dæma á okkur töf þegar sjö sek. voru til leiksloka og við vorum að reyna að finna smugu á vöra FH, sem var komin framarlega á móti okkur, sagðl Björa Pétursson, hinn gamalkunni lelkmaður KR. Björn sagði að Jakob Jónsson heföi verið á fullri ferð að vöm FH og einn af vamarmönnum FH-liðsins — Þorgils Ottar, hefði ýtt við honum þegar tafim- ar voru dæmdar. — Eg tel að Oli Olsen dómari hafi gert þarna slæm mistök, sagði Bjöm. — Þegar þetta atriði er ekki tekið inn í dæmið þá er ég mjög ánægöur með leik KR-liðsins. — Við erum ekki með neina stjörnuleikmenn heldur nýtum við aö fullu liðsheildina. Vörnin var góð hjá okkur — við fengum ekki nema 22 mörk á okkur og aö öflu eðlilegu eigum viö aö vinna sigur í leikjum sem við fá- um svo fá mörk á okkur í, sagði Bjöm. Björa sagði að það heföi munað miklu að KR-ingar nýttu ekki fjögur vitaköst. — Þetta er aflt að koma hjá okkur og ég held að FH-ingar hafi ekki reiknað með eins mikifli mótspymu og þeir fengu frá okkur — við settum þá út af laginu. Gáfumst aldrei upp, sagði Björn. — Nú hrellduð þið vöra FH með lang- skotum. — Já, hinir hávöxnu leikmenn FH- liðsins áttu ekkert svar við „smugu- skotum” okkar. -sos STAÐAN Staðan i 1. deildarkeppninni í handknattleik er nú þessi. KR — FH 21—22 Vaiur—Þróttur 19—19 FH 4 4 0 0 115-74 8 Valur 5 3 1 1 108-97 7 Víklngur 3 2 0 1 69-67 4 KR 4121 Þróttur 4 112 Haukar 4 112 KA 3 0 12 Stjarnan 3 0 12 Markahæstu leikmenn. Kristjén Arason, FH Páll Ölafsson, Þrótti Steindór Gunnarsson, Val Eyjóifnr Bragason, Stjörnunni 43/22 26/4 21 19/10 -AA. -JSXSZL-Z -jrsmmz.. Guðmnndur Magnússon — sést hér skora sigurmark FH-inga, 22—21. Haukur Geirmundsson er fyrlr aftan nann—Kemu KR-ingar veittu FH harða keppni en máttu sætta sig við tap, 21-22 Guðmundur skoraði sigurmark FH-inga á elleftu stundu — eftirað dæmd hafi verið töf á KR-inga þegar sjö Guðmundur Magnússon var hetja FH-inga þegar þeir náðu að tryggja sér sigur, 22—21, yfir baráttuglöðum KR-ingum í 1. deildar keppnhmi í handknattleik í gærkvöldi. Guðmundur skoraði sigurmark FH-inga þegar aðeins ein sek. var til leiksloka eftir að hafa branað fram völlinn í hraðaupp- hlaupi og sent knöttin fram hjá Jens Einarssyni, landsllðsmarkverði KR- liðsins. FH-ingar fengu knöttinn eftir að Óli Olsen, annar dómari leiksins, hafðl dæmt töf á KR-inga þegar aðeins 7 sek. voru til leiksloka. Jakob Jónsson var þá að ógna með langskoti. Dómurinn var mjög umdeildur eins Sigurjon og HafþórtilKA Akureyrarliðið hefur fengið göðan liðsstyrk Akureyrarliðið KA í knattspyrau hefur fengið góðan liðsstyrk. Eins og við höfum sagt frá mun Gústaf Baldvinsson þjálfa og lelka með KA næsta keppnistímabil og Valsmaður- inn Njáll Eiðsson mun hafa ákveðið að leika með KA að nýju. I gær gengu tveir marksæknir leik- menn til liðs við Akureyrarliðið — Haf- þór Kolbeinsson, markakóngur Sigl- firðinga, og Sigurjón Kristinsson frá Vestmannaeyj um. Eins og fram hefur komið hefur KA misst fjóra leikmenn — Gunnar Gislason til V-Þýskalands og þá Jóhann Jakobsson, Harald Haraldsson og Asbjöm Björnsson til Reykjavíkur. Það er mikili hugur í KA-mönnum og hafa þeir ákveöið að leikmenn félags- ins æfi frá kl. 17—19 á daginn, þannig aö þeir eiga frí á kvöldin. -sos og eðlilegt er. — Eg gat ekki gert annað en að dæma töf. KR-ingar voru búnir að leika með knöttinn fyrir framan vörn FH-inga í meira en minútu án þess að ógna eða reyna markskot. Ofan á það bættist að leik- menn KR-liðsins hrópuðu hver til ann- arrs að halda knettinum út leiktímann. Það fór ekki á milli mála hvað þeir ætluðu sér, sagði Oli Olsen dómari eftir ieikinn. KR-ingar vinna upp forskot FH Það benti allt til að sigur FH væri í höfn þegar staðan var orðin 20—16 fyrir FH-liðið og átta mín. til leiksloka. KR-ingar voru ekki á þeim buxunum að gefast upp — þeir minnkuðu mun- inn jafnt og þétt og þegar 3.24 mín. voru til leiksloka skoraði Haukur Geirmundsson, 21—20, eftir hraðaupp- hlaup og síöan jafnaði Björn Pétursson, 21—21, með langskoti þegar 2.16 mín. voru til leiksloka. FH-ingar sóttu síöan að marki KR og þegar 1.24 min. vora til leiksloka braust Atli Hilmarsson í gegnum vöm KR-liðsins, en hann var óheppinn með skot — knötturinn hafnaði á stöng KR- liðsins og hoppaði síðan eftir línunni. KR-ingar snéru síöan vöm í sókn, en þegar sjö sek. voru til leiksloka var dæmd töf á þá. FH-ingar náðu knettjn- um og brunuðu upp i hraöaupphlaup sem Guðmundur Magnússon batt endahnútinn á ■ 22-21. - skoraði sigurmarkið, sek. voru til leiksloka Haraldur ver fjögur vítaköst KR-ingar veittu FH-ingum mikla keppni og var staðan 13—12 fyrir KR í leikhléi. Fyrstu 15 mín. seinni hálf- leiksins skiptu sköpum fyrir vestur- bæjarliðið — FH-ingar komust í 17—14 og geta þeir þar þakkað Haraldi Ragnarssyni markverði sem varði þrjú vítaköst á stuttum tíma, en hann hafði einnig variö vítakast á síðustu sek. fyrri háifieiksins. Eins og fyrr segir gáfust KR-ingar ekki upp og náðu jafnt og þétt að minnkamuninn. KR-liðiö var mjög jafnt en bestu menn liðsins voru þó Bjöm Pétursson sem sýndi marga gamla takta — skoraði t.d. fimm mörk með sínum lúmsku langskotum, Guðmundur Al- bertsson og Jóhannes Stefánsson. Jens Einarsson átti nokkuö góðan leik í markinu — varði tíu skot. Haraldur Ragnarsson var sá leikmaður FH-liðsins sem stóð sig hvað best — varði mjög vel í seinni hálfleik þegar FH-ingar náðu forskoti sínu. Annars voru leikmenn FH-liðsins í daufara lagi — skoruöu aðeins eitt mark með langskoti sem segir sína sögu og það mark skoraði Hans Guðmundsson. Mörkin i leiknum skoruðu þessir leikmenn: KR: Bjöm P. 7/2, Guðmundur A. 6, Jóhannes 3, Jakob 3 og Haukur G. 2. FH: Kristján 8/6, Hans 3, Þorgils Ottar 3, Pálmi 3, Atli 2, Guðmundur Magnússon 2 og Sveinn Bragason l.SOS íþfóttir___________ íþfóttir ________________________íþróttir _______________íþróttir íþr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.