Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 36
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER1983. Mayday! Mayday! Yfirgefum skipið!: SJÓMENNIRNIR LÉTUST AF KULDA OG VOSBÚÐ — sjö af þrettán manna áhöf n fórust en tekist hafði að bjarga ellefu lifandi úr sjónum Fyrstu fréttir af þýska flutninga- skipinu Kampen bárust Slysavarnafé- lagi Islands með nokkuð sérkennileg- um hætti. Þær bárust frá björgunar- 'miðstöö í Þýskalandi í gegnum Varnarliöiö á Keflavíkurflugvelli. Það var klukkan 18.30 í gærkvöidi, sem Vamarliðið hafði samband við Hannes Hafstein, framkvæmdastjóra SVFI, og baö hann að grennslast fyrir um hvort þýskt skipt ætti í erfiðleikum viölsland. Varnarliðiö hafði fengiö samskonar beiöni frá þýskri björgunarmiðstöö. Líklegt er að skipstjóri Kampen hafi haft samband við útgerðina í Þýska- landi og tilkynnt að eitthvaö amaöi að og björgunarmiðstöðin síðan frétt af því. Hannes Hafstein hafði þegar sam- band við Vestmannaeyjaradíó og bað það um að kalla upp skipið. Hannes hélt síðan í hús Slysavamafélagsiris viðGrandagarð. Þegar hann kom í Slysavarnafélags- húsiö um klukkan 18.50 hafði Vest- mannaeyjaradíó fengið þær upplýsing- ar frá skipstjóranum aö fimmtán gráða halli væri kominn á skipið. Sjór hefði komist í lúgu og niður í lestar þess. Skipstjórinn hafði tekið skýrt fram að engin hætta væri á ferðum. Taldi enga hættu á ferðum Skipstjórinn haföi einnig greint frá því að hann væri með koiafarm. Kola- salli hefði komist í dælur og hætta væri á að þær stífluðust. Þegar þama var komið hafði skip- stjórinn ekki sent út hjálparbeiðni. Hann ítrekaöi við Vestmannaeyja-' radíó að engin hætta væri á feröum. Sagðist hann ætla að sigia í var út af Víkinni, út af Vík í Mýrdal. Áætlaði skipstjórinn að vera út af Víkinni á miönætti og við Vestmannaeyjar klukkan tiu næsta morgun. Þrátt fyrir að skipstjóri Kampen segöi að allt væri í lagi gerði Slysa- vamafélagiö varúðarráðstafanir. Hannes Hafstein hafði samband við Kristin Sigurðsson, formann Björgunarfélags Vestmannaeyja og slökkviliðsstjóra, og spuröi hvort hann gæti haft dælur og skip til taks. Hannes hafði áöur komist að því að næsta varðskip var út af Reykjanesi og Lóðs- inn frá Vestmannaeyjum var á Horna- firöi. Þeim boðum var komiö til skipstjór- ans aö í Vestmannaeyjum væru dælur til taks en þriggja tíma sigling væri til hans. Neyðarkall Klukkan 19.30, fjörutíu mínútum eft- ir að skipstjórinn hafði tilkynnt að engin hætta væri á ferðum, heyrðist neyðarkall: „Mayday! mayday! mayday! Yfirgefumskipið!” Flutningaskipið var þá statt 22 mílur austsuðaustur af Dyrahólaey eða um 10 mílur suður af Alviðm. Tíu fiskibátar og tvö flutningaskip svömðu neyðarkallinu og héldu áleiðis að slysstað. Haft var samband við Vamarliðið sem sendi tvær þyrlur og eina Hercules-vél til aðstoðar. Varðskipinu við Reykjanes var stefnt á staðinn. Þýska skipiö sást á radar annarra skipa. Klukkan 20.20 tilkynnti Guðmundur RE, sem gerður er út frá Eyjum, að skipiö væri að hverfa af radarnum. Guðmundur RE var þá aðeins þrjár og hálfa mílu frá staðnum. Talið er að þýska skipið hafi sokkiö klukkan 20.21. Skömmu síðar fóru leitarbátar að verða varir við olíubrák og ýmislegt lauslegt á reki. Klukkan 20.56 var báturinn Skarfur GK á siglingu innan um brak. Skipverjar komu auga á mann svamlandi í sjónum og björguðu honumumborð. Ellefu lifandi úr sjónum Klukkan 21.00 tilkynnti Hercules- flugvélin um gúmbát. Skarfur GK sigldi að gúmbátnum, sem var gerður fyrir tuttugu menn, en engan var þar að finna. / húsi Slysavarnafólags íslands 6 Grandagarði höfðu þeir Hannes Hafstein og Eysteinn Guðlaugsson i nógu að snúast i gœrkvöldi, þegar þessi mynd var tekin. Vinnudagur Hannesar var orðinn langur. Hann mætti tii vinnu klukkan sex í gær- morgun vegna leitar á Breiðafirði. Hann komst ekki i háttinn fyrr en klukkan að ganga þrjú i nótt. DV-mynd: S. Fleiri bátar komu á slysstað. Hercules-vélin sveimaði yfir og kast- aði stöðugt út sterkum blysum, sem lýstu vel upp leitarsvæðið. Svo mikið var ljósahafið að fólk á mörgum bæjum í Vestur-Skaftafells- sýslu sá ástæöu til að hringja í opin- bera aðila til að kanna hvað þama væri á seyði. Skipbrotsmenn fundust hver af öðrum. Allir voru þeir í sjónum, ýmist með dauðahald í eitthvert brak eða í björgunarhring. Þeir voru þrettán talsins. Þann síðasta fann Kópur GK klukkan 23.07. Maðurinn var þá látinn. Skipshöfnin var tekin um borð í fimm báta. Skarfur GK fann þrjá menn, Hópsnes GK fann sex menn, Skúmur GK fann einn mann, Kópur GK fann tvo menn og Dala Rafn VE fann einn mann, sem þá var látinn. Ellefu af þrettán mönnum var b jarg- að lifandi úr sjónum. Fimm af þessum ellefu áttu eftir að látast af kulda og vosbúö. Tveir þeirra létust skömmu eftir að þeim var bjargaö um borð. Þrír til viðbótar vom látnir innan tveggja klukkustunda. Til að reyna að hlúa að skipbrots- mönnum vora tveir læknar látnir síga niður úr Vamarliðsþyriu í Hópsnes GK, sem hafði sex menn um borð. Þegar bátarnir komu til Vestmanna- eyja um fjögurleytið í nótt voru sex skipbrotsmenn á lifi, fjórir um borð í Hópsnesi og tveir um borð í Skarfi. Sjö af skipverjum þýska flutningaskipsins höfðu látið lifiö. Veður á slysstað var slæmt. Sjö vind- stig voru af vestri og þungur sjór. Lofthiti var um ein gráða. -KMU. Þýska flutningaskipið sem fórst hét Ms. Kampen og var í leiguverkefnum fyrirEimskipafélaglslands.Skipiðvarinnanviðársgamalt. SKIPIÐ EKKIARSGAMALT — Eimskip hafði það á leigu f rá þýsku fyrirtæki Flutningaskipiö Kampen var aðeins tíu mánaö gamalt þegar það sökk í gærkvöldi út af Mýrdalssandi. Þaðvarsjósettí janúaráþessu ári. Skipið var á leið frá Rotterdam í Hollandi til Grundartanga með 5.300 tonn af kolum fyrir Sements- verksmiðju rikisins á Akranesi. Eimskip hefur haft skipið á leigu frá 12. september siöastliönum til sérstakra stórflutninga, svo sem flutninga á vikri, brotajárni og kol- um. Fyrirhugaö var að skila skipinu úr leigu 11. nóvember næstkomandi. M/S Kampen er í eigu þýska út- gerðarfyrirtækisins Schulz og Klemmensen í Hamborg. Það var smíðaö í Shanghai í Kína eftir þýsk- um teikningum. Allur tækjabúnaður þess er þýskur. Burðargeta skipsins var 6.150 tonn. Þaö var sérstaklega búið til stór- flutninga. Þaö hafði einnig búnaö til gámaflutninga. Lestar skipsins voru boxlaga og með stórum síðutönkum. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.