Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 9
DV.MIÐV1KUDAGUR2.NOVEMBERÍ983.'- ' 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Isinn hamlar vöruflutningum til Síheríu Fréttir frá austurhluta Síberíu þykja benda til þess að þar vofi yfir skortur á nauðsynjavörum vegna haf- íssins sem fyrir mánuði lokaði um 60 skip inni, þegar mest lét. Sovéskir fjölmiðlar hafa greint frá því að öllum skipunum hafi verið bjargað úr isnum en TASS-fréttastofan segir nú að fleiri skip hafi verið send á þessar slóðir, þrátt fyrir árstimann og íshættuna. TASS segir tilganginn vera að flytja nauösynjar til fólks sem býr í Austur-Síberíu. Kjamorkuísbrjóturinn Leonid Brezhnev, sem gekk ötullega fram í því að bjarga skipunum fyrir mánuði, og annar minni ísbrjótur kenndur við Makarov aðmírál eru að mynda sjó- FLICK-MUTUMALIÐ TIL SAKSÓKNARA Saksóknari ríkisins i V-Þýskalandi hefur nú fengið til athugunar skýrslu eftir opinbera rannsókn varðandi meintar mútur á stjómmálamönnum en viö málið hafa verið orðaðir menn úr öllum þrem stærstu flokkum lands- ins. Skýrslan byggir á 20 mánaða rann- sókn saksóknarans í Bonn varðandi Flick-málið svonefnda, en saksóknara ríkisins er að ákveða hvort það gefi til- efni til málshöfðunar. Otto Lambsdorff efnahagsmálaráö- herra og nokkrir fyrrverandi ráðherr- ar komust undir grun um að hafa þegið peningagreiöslur frá Flick-fyrirtækja- samsteypunni til þess að róa á með fyr- irtækinu um 450 milljón marka skattaívilanir handa því. — Þeir og háttsettir forráðamenn fyrirtækisins sem sætt hafa rannsókn vegna máisins hafa allir borið á móti því að um neinar mútugreiðslur hefði verið að ræða. Fram kom ávæningur um að eitt- hvað af greiðslum heföi runnið sem styrkir beint i sjóði flokkanna. Meöai • þeirra sem orðaðir voru við málið voru Manfred Lahnstein (sósíaldemókrati) og Hans Matthöfev (sósíaldemókrati) sem báðir hafa verið f jármálaráðherr- ar. Ennfremur Lambadorff (frjáls- lyndur demókrati) og forveri hans og flokksbróðir, Hans Friedrich. V-þýsk blöð halda þvi fram að ýmis- ir úr flokki kristilegra demókrata, sem stóð utan stjómar þegar málið kom upp, séu einnig flæktir í málið. MARGIR TIL AÐ HJÁLPA TYRKJUM Hjálpargögn erlendis frá eru byrjuö að streyma til Tyrklands til aðstoðar við f ólk á j arðsk jálftasvæðinu, þar sem 1230 fómst á sunnudaginn. Enn er mikiö starf eftir óunnið við að fjarlægja rotnandi hræ fénaðar og lik manna úr þorpunum sem haröast urðu úti í jarðskjálftanum. Flugleiöis bárust frá Bretlandi og Danmörku í gær þúsundir af tjöldum, ábreiðum, matvælum og öðrum hjálpargögnum til þeirra sem misstu heimili sín. Er talið að um 220 þúsund séu nú heimilislaus af völdum skjálft- Hafið við norðausturströnd Síberíu héfur lagt og tálmar það vöruflutninga þangað. færa lænu frá Vrangel-eyju til hafnar- bæjarins Pevek í norðausturhluta Síberíu. — Pevek var miðstöð björgun- araögeröanna á dögunum þegar eitt skip lagðist saman undan þrýstingi íss- ins og sökk á meðan áhöfninni var bjargað. Flugvélar em notaðar til þess að vísa ísbrjótunum á hvar ísinn er þynnstur til þess að ryöjast í gegn. Sums staðar nær hann þó niður á fimm metra dýpi. ans. Einnig hefur borist aðstoð frá nágrannalandinu Iran og fjöldi ríkja hefur heitið f járframlögum. Tyrklandsstjórn hefur þegar sent yfir 5000 tjöld, 20 þúsund ábreiður og margar smálestir af matvælum með bílum, járnbrautaríestum, flugvélum og þyrlum til neyðarástandssvæðisins í noröurhluta landsins. I stærstu borgum Tyrklands em bið- raðir fólks sem ýmist vill láta eitthvað af hendi rakna til fjársöfnunar handa bágstöddum eöa gefur blóð. - sólud snjódekk - Þessi snjódekk eru sóluð eftir ströngum bandarískum staðli. Þau hafa dúndurgóða spyrnu, endast von úr viti og eru öll með hvítumhring. Þú ættir að hafa samband við næsta útsölustaðog tryggja þér gang því verðið er ótrúlega lágt... Reykjavík: Hjólbarðahöllin, Hreyfilshúsinu, Fellsmúla 24, sími 81093 Nýbarði sf., Borgartúni 24, sími 16240 Mn<$ff»ll<%^veit* Holtadekk sf., Garðabaer* Barði sf., Mostellssveit. Bjarkarho,ti sími 66401 t.aroaoær. Lyngásj 8 símj 50606 Kónavomir* Hjólbarðaviðgerð Kópavogs rvupavogur. Skemmuvegi 6 sími 75135

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.