Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 34
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER1983. Ritstjóri Financial Times á Varðbergsf undi: INNRÁSIN í GRENADA KOM Á SLÆMUM TÍMA — telur KGB ekki að baki f riðarhreyf inganna „Innrás Bandaríkjanna i Grenada var illa tímasett,” sagöi Malcolm Rutherford, stjórnmálaritstjóri hins heimsfræga blaös Financial Times í London á Varöbergsfundi á laugar- dag. Miklu mikilvægara væri aö þeir sneru sér alfarið aö lausn mála i Líbanon. Falklandseyjastríðiö taldi ritstjórinn hörmulegt, breska utan- ríkisráöuneytiö hefði í reynd veriö búið að semja viö Argentínu um 90% af kröfum hennar, en þá heföi Argentína heimtaö allt og viö það hefðu þjóðemissinnarnir bresku oröiö ofan á. Mannslífum heföi verið fórnaö, gífurlegum tækjakosti og engin lausn fengist. Bretar sætu svo uppi með milljaröa skuld af öllu saman. Landa sína taldi Rutherford einkum fræga fyrir þrennt. Þeir væru ágætir leikarar, hlauparar i millivegalengdum og því miöur her- menn, — þeir ættu aö snúa sér að því fyrmefnda. Hann benti á aö í vamarsamstarfi væri mikilvægt að þjóöirnar heföu góö samskipti sín á milli. Innan Vest- urveldanna væru Bandaríkjamenn Tillaga Akumesinga um Alþýðusamband Vesturiands: Vildu leggja sam- bandið niður — Milliþinganefnd skipuð til að fjalla um málið A þingi Alþýðusambands Vestur- lands, sem haldiö var nú um síðustu helgi, kom fram tillaga frá sjö félagsmönnum á Akranesi um aö sambandiö skyldi lagt niöur. Niður- staöa málsins varð sú aö skipuð skyldi fimm manna milliþinganefnd sem fjalla skyldi um það fram til næsta þings. A þinginu urðu miklar umræður um kjaramál. I ályktun þar að lút- andi er m.a. krafist aö bráöabirgða- lög ríkisstjórnarinnar um afnám samningsréttarins verði þegar í stað felld úr gildi, til aö verkalýðshreyf- ingin geti hafið viðræður við ríkis- stjómina og atvinnurekendur til þess að ná fram nýjum samningum sem bæti upp þá kjaraskerðingu sem oröið hefur frá því bráöabirgðalögin tókugildi. I ályktuninni segir ennfremur að meö tilliti til gjörbreytts ástands í kjaramálum launafólks þurfi eftir- farandi atriöi að hafa forgang: aö lágmarkslaun fyrir dagvinnu verði ekki lægri en 15.000 krónur á mánuði, aö verðbætur þær sem reiknist á laun vísitölufjölskyldu greiðist í sömu krónutölu á öll laun, skapaö veröi raunverulegt launajafnrétti kvenna og karla. Einnig fjallaði þingiö um lánakjör og lengingu lána til handa húsbyggj- endum, vanda ellilífeyris- og örorku- þega og jafnrétti til félagslegra og kjaralegra réttinda. Stjórn Alþýöusambands Vestur- lands var sjálfkjörin en formaður hennar er Sigrún Elíasdóttir. I sam- bandinu eru nú 14 aöildarfélög meö um3.300 félagsmenn. -JSS. Malcolm Rutherford, stjómmHaritatfóri fínanclal Tlmea, / ræðustóll é Varðbergsfundinum. DV-mynd GTK. auðvitað öflugastir, en þeir mættu ekki vaða yfir heiminn eins og ein- hver einkalögregla veraldarinnar. „Við verðum líka að læra að búa með Sovétríkjunum,” sagði ritstjórinn, þetta hefðu auðvitað mörg NATO- ríki lært, m.a. íslendingar, sem versluðu t.d. mikið við Rússa. A hinn bóginn mættu riki Evrópu ekki heldur alltaf vera að skammast út i Bandarikjamenn, en tigna þá svo í reynd eins og einn kunningi hans sænskur, sem sendi alltaf börn sin i bandaríska háskóla. Rutherford sagöist ekki trúaöur á að KGB stjómaði öllum friðarhreyf- ingum Evrópu — fyrr mætti nú vera getan. Hann taldi að endumýjun vopnabirgöa færi fram á tuttugu ára fresti og nú væri komið að því í Evrópu. Þess vegna ætti að leggja áherslu á afvopnun nú til þess aö hefta vígbúnaöarkapphlaupið. Sumar friöarhreyf ingar væru þó eins og hægrisinnaðir Bretar, óraunsæjar og heföu rangt fýrir sér. Ritstjórinn baö fundarmenn að leiða hugann að því hvað gerðist ef allt í einu yröi stórkostlegur árangur af af- vopnunarviöræðunum. Valdajafn- vægið væri nefnilega eina raunverulega forsenda friðar og þess vegna þyrfti framkvæmd afvopn- unar umfram ailt að vera í öruggum höndum. 1 engu frekar kæmi skýrt fram að stjórnmál væru ekki siö- fræði heldur jafnvægislist vald- anna. .díkkert er fulikomið, við veröum einfaldlega að læra aö lifa við hið ófullkomna,” sagði rit- stjórinn að lokum og minnti á hin frægu orð Winston Churchilis að lýðræði væri hið alversta stjómar- form, — hinir kostimir væru bara verri. -G.T.K. Glaum- urog gleði -erlOáraafmælis íþróttafélagsins Leiknisvarminnst núum helgina Mikill glaumur og gleði var hjá félagsmönnum íþróttafélagsins Leiknis nú um heigina, en þá minnt- ust þeir tiu ára afmæiis félagsins. Vmislegt var til skemmtunar, svo sem vera ber á slíkum tímamótum. Afmælishátíöin var sett í Fellahellií og að setningu lokinni komu fram margir af kunnustu skemmtikröft- um landsins. Má þar nefna Tappa Tíkarrass, Jóhann Helgason, Jörund og Ladda, Svart og sykurlaust o.fl. Loks stóöu Leiknismenn fyrir kaffi- og kökusölu í Menningarmiöstöðinni viðGerðuberg. -JSS. Bryndls Schram var kynnir og stjórnandi afmælishátíðarinnar. Hérsést hún isamt nokkrum afmœlisgestum, sem viróast skemmta sór hió besta. DV-mynd BJ.BJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.