Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983.
7
Neytendur IMeytendur Neytendur Neytendur
Sigurður Böðvarsson og Sandgerður
Marteinsdóttir: Við vorum rétt í
þessu aö koma inn. Okkur líst nokkuö
vel á þetta hér og það virðist vera
mikið úrval af vörum. En við eigum
eftir að skoöa það nánar.
Anna Kristjánsdóttir: Þaö viröist
sem margt sé ódýrara hér en annars
staðar af vörum sem maður notar
daglega. Eg verð að venjast staðnum
betur en hér virðist þó vera nokkuð
auðratað þegar ekki er hér allt fullt
af fólki.
Mikið að gera
í Miklagaröi
Það var mikið að gera í Miklagarði
er viö komum þangað. Ætla má að
fólk sé að svala forvitni sinni enn
sem komið er því það er ekki á
hverjum degi sem svona stórar
verslanir eru opnaðar hér í borg.
Við tókum nokkra tali og spurðum
þá hvernig þeim litist á þessa nýju
verslun og hvemig þeim fyndist
verðlagið vera. -APH,
Þórunn Birgisdóttir og Kolbrún
Engilbertsdóttir snyrtifræðingur:
Þetta hefur verið alveg rosalegt og
gengið mjög vel. Það hefur verið
stanslaus straumur fólks og mikil
sala. Nú er bara aö bíða og sjá hv«t
viö höldum þessum viðskiptavinum
áfram því það er aö sjálfsögöu mikil-
vægast.
Hlín Pálsdóttir: Mér finnst þetta
vera helst til stór verslun. Yfirleitt
leiðist mér að versla í stórmörk-
uðum. Ef það væri ekki svona dýrt
hjá kaupmanninum á horninu mundi
ég helst kjósa að versla þar. Ég
versla yfirleitt í Hagkaupi og held að
ég haldi því áfram. Hér er einn og
einn hlutur ódýrari en í Hagkaupi en
annars mjög svipað verðlag.
DV-myndir Bj.Bj.
Félag allra húseigenda
I Húseigendafélagi Reykjavíkur er
fjöldi félagsmanna nú um 2600. Á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn var 10.
nóvember sl., kom meðal annars fram
hjá fundarmönnum aö brýna nauðsyn
bæri til að fjölga félagsmönnum til
þess að félagiö verði þess megnugt að
gæta hagsmuna íbúöareigenda.
Var það samdóma álit fundarmanna
að félagið ætti í auknum mæli aö beita
sér í baráttu fyrir hagsmunum húseig-
enda sem núna standa halloka gagn-
vart ásælni ríksivalds og sveitarfé-
laga, húseigenda sem fá ekki lifsnauö-
synlega lánafyrirgreiðslu og eiga í
miklum vandræðum vegna viðgerða á
leka og alkalískemmdum. Aukrn hags-
munabarátta megi þó ekki koma niður
á bráðnauðsynlegri ráðgjafa- og upp-
lýsingastarfsemi félagsins. Tæplega
600 aðilar leituöu til lögfræðings félags-
ins á síöasta ári og er sú þjónusta
ókeypis fyrir félagsmenn.
Sá misskilningur viröist vera út-
breiddur að Húseigendafélag Reykja-
víkur sé eingöngu fyrir þá sem leigja
út húsnæði. Svo er ekki. Félagið gætir
hagsmuna allra íbúðareigenda, hvort
sem þeir eiga kjallaraíbúð í blokk eða
einbýlishús. Formaöur Húseigenda-
félags Reykjavíkur er dr. Pétur H.
Blöndal forstjóri. -ÞG
Eitt markmiða Húseigendaféiags Reykjavikur er að lánamálum hus-
eigenda og verðandi húseigenda verði komið á varanlegan grundvöll
þannig að húseigendur kikni ekki undir óeðlilegri greiðslubyrði iina hin
fyrstu ár og ungu fóiki verði gert kieift að eignast eigin ibúð.
Huguroghönd
Prjónauppskrift að þessum röndótta jakka er meðal efnis i nýútkomnu riti
Heimilisiðnaðarfólags íslands, Hugur og hönd.
Arsrit Heimilisiðnaðarfélags Is-
lands, Hugur og hönd, er nýkomið út.
Er rit þetta hið vandaðasta aö útliti og
efni.
Hugur og hönd kom fyrst út 1966 og
hefur ætíð verið vandað tímarit með
litmyndum að hluta. I ritinu eru grein-
ar um handverk og listiðnað, mynstur
og vinnuteikningar og það er sameigin-
legt rit fræðslustarfs og verslunar.
Heimilisiðnaðarfélag Islands var
stofnað 12. júlí 1913 og var félagið því
sjötugt sl.sumar.
„Forsaga stofnunar þess átti eflaust
rót sína að rekja um 50 ár aftur í
tímann eða til ársins 1862. Þá fékk Sig-
urður Guðmundsson málari þá hug-
mynd, að nauðsynlegt væri að koma
upp forngripasafni, til að safna þangað
og varðveita þar íslenska gripi og
menningarverðmæti frá 1000 ára til-
veru íslenskrar þjóðar í landinu.” Svo
segir í afmælisgrein í ritinu sem Stefán
Jónsson arkitekt, fyrrverandi for-
maöur félagsins, hefur skrifað. Þar
segir hann ennfremur: „Viö álítum, að
heimilisiðnaður eigi sér mikla framtíð,
nú meira sem ánægjuatriöi, þar sem
hannáður varmeirafnauðsyn.
Má þar nefna hinn mjög aukna frí-
tíma flestra, hvaö á að gera við hann?
Einnig alla þá, sem ekki eiga kost á
fastri launaðri vinnu, s.s. gamalt fólk,
fatlað fólk og þá, sem einhverrar hluta
vegna eiga ekki heimangengt, t.d.
margar húsmæður. Vel má einnig
hugsa sér að fólk með óskerta starfs-
orku og tíma gerði einhverja fram-
leiðslugrein heimilisiðnaðar að aöal-
starfi, og það er reyndar þegar svo
með nokkra framleiðendur okkar. Þaö
gæti oröið þáttur í því er kalla mætti
„Nýjar atvinnugreinar í strjálbýli”.”
Heimilisiönaðarfélagið rekur tvær
verslanir í Reykjavík. I annarri
þeirra, að Hafnarstræti 3, er ritið
Hugur og hönd selt og kostar það 240
krónur. -ÞG
wpniWwriDsill
AMSIERDAM
Hún er borq andstæðnanna - ævaforn nútímaborq,
risastór smábær
Og einmitt þessar undarlegu andstaeður gera hana svo spennandi, og
svo tilvalinn áfangastað stuttrar skemmtiferðar til útlanda.
Fortlðin blasir við í sölum hinna 40 safna ( borginni og í húsagerðarlist-
inni einstöku. En mannlífið á litríkum götunum, stemmningin á allra
þjóða veitingastöðunum, og fjörið á skemmtistöðunum óteljandi - það
tilheyrir 20. öldinni.
Amsterdam er milljónaborg með öllu því l(fi og krafti sem einkennir
stórborgir. En samt er miðbærinn svo lítill að á einum mildum vetrardegi
ferð þú auðveldlega um hann allan fótgangandi, og hefur samt nægan
tíma til að kfkja í verslanir og á markaðina fjölskrúðugu.
Þessveqna eru stuttar ferðir til Amsterdam svo upplaqðar
Helgar- og vikuferðir. Brottför þriðjudaga og föstudaga
VtRD TRÁ KU. 10.908 Barnaafsláttur kr. 4.800.
Innifalið: Flug og lúxusgisting með morgunverði.
Flugfólag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúb 7. tlmi84477
Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs
eða ferðaskrifstofanria