Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 20
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. 21 20 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Lugi í efsta sæti í Svíþjóð Stórleikurinn í sænska handknattleikn- um um helgina var viðureign toppliðanna Lugi og Kroppskultur í Lundi. Lugi sigraði 30—28 eftir 15—14 í hálfleik eftir-æsispenn- andi leik. Við sigurinn komst Lugi í efsta sætið. Staðan eftir helgarleikina: Lugi Drott Redbergslid Guif HPWarta Ystads IF Kroppskultur Karlskrona Frölunda VIFGute Heim H43 9 6 12 9 6 0 3 8 5 12 9 5 0 4 9 4 14 0 4 2 4 0 4 1 4 0 6 1 5 1 5 216—200 13 218-183 12 170-155 11 196-192 10 199—214 9 180-182 8 220—231 8 170— 183 8 186-180 7 191—211 6 181—188 5 171— 179 5 Valur lang- stigahæstur Valur Ingimundarson Njarðvíkingur er langstígahæstur í úrvalsdeildinni í körfu- knattieik. I þeim sjö leikjum sem Njarðvík hefur leikið hefur Valur skorað 198 stig eða 28,2 stig að meðaltali í leik. Næstu menn cru þessir: stig Kristján Agústsson, Val 156 Pálmar Sigurðsson, Haukum 150 Þorsteinn Bjarnason, ÍBK 134 Jón Kr. Gíslason, ÍBK 126 HreinnÞorkelsson, ÍR 113 Jón Sigurösson, KR 112 -SK. Staðan í úrvalsdeild Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik er nú þessi: Njarðvík 7 5 2 558-524 10 KR 7 5 2 521-489 10 Valur 7 4 3 608-557 8 Iiaukar 7 3 4 513-511 6 Keflavík 7 3 4 492-553 6 IR 7 1 6 502-542 2 Næstu leikir: Föstudagur 2. desember: Keflavík-Haukar i Kefla- vík kl. 20.00, laugardag 3. desember i Seljaskóla kl. 14.00: Valur-ÍR og sunnudagur 4. desember kl. 14.00 í Hagaskóla: KRogNjarðvík. Úrslitin í UEFA- keppninni • Nis: Radnicki Nis (Júgósiavia) — Hajduk Split (Júgóslavia) —0—2(0—1). 20.000 áhorfendur. Mörk Split skoruðu: Zlateo Vujovie (44. mín.) og Vulie (54. mín.). • t Graz: Sturm Graz (Austurríki) — Lokomotiv Leipzig (A-Þýskaland) — 2— 0(2—0). 16.000 áhorfendur. Mörk Strum Graz skoraði Gernot Jurtin (14. og 24. min.). • í Vín: Austría Vín (Austurríki — Inter Mílanó (Italíu) — 2—1(1-0). 20.000 áhorfcndur. Mörk Austria skoraði Ungverjinn Nyulasi á 76. og 81. mín. Muraro skoraði fyrir Inter á 53. mín. • í Rotterdam: Sparta Rotterdam (iioliand)— Spartak Moskva (Rússland) — 1—1(0—1). 14.500 áhorfendur. De Wolf skoraðí fyrir Sparta úr víta- spyrnu á 80. mín. Rodyokov skoraði mark Spartaká 34. mín. • i Lens: Lens (Frakkland) — Anderleeht (Belgía) —1-0(0—0). Erwin Van Der Berg skoraði mark Anderlecht á 85. mín., en mark Lens var sjálfsmark Kenneth Brylle á 89. mín. Motherwell réð st jóra Bob Watson, fyrrum leikmaður Glasgow Rangers og Motherweil, var í gær ráðinn framkvæmdastjórl Motherweil í stað Jock Wallaee sem farinn er til Rangers. Watson var í nokkur ár stjóri hjá Airdrie. ALLT OF LITILL SIGUR HJÁ BAYERN í MUNCHEN Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni DVíÞýskalandi. Leikmenn Bayern Munchen voru ó- heppnir að sigra Tottenham ekki nema 1—0 að viðstöddum 15 þúsund áhorf- endum á ólympíuleikvanginum í Miinehen í gærkvöldi í fyrri leik lið- anna í UEFA-keppninni. Þýska liðið hafði umtalsverða yfirburði í góðum leik og besta leik sem Bjaraliðiö hefur sýnt lengi. Danski landsliðsmaðurinn Sören Lerby var langbesti leikmaður- inn á vellinum. Sýndi nú í fyrsta skipti hjá Bayern hvað í honum býr. Það var eftir sendingu frá honum sem Michael Rummenigge skoraöi eina mark leiks- ins fjórum mínútum fyrir leikslok. En til marks um yfirburði Bayern má geta þess að liðið fékk 15 hornspyrnur gegn tveimur h já Tottenham. Eftir heldur daufan fyrri hálfleik, þar sem aðeins var um eitt umtalsvert tækifæri að ræða, var leikurinn hreint frábær í þeim síðari. Michael Rummenigge fékk færi á35. mín. Lék á Clemence, markvörð Tottenham, en vamarmanni tókst á síðustu stundu aö bjarga í hom. Karl-Heinz Rummen- igge meiddist í fyrrir hálfleik og kom ekki inn á eftir leikhléið. Del Haye lék í hans stað. Hann fékk fyrsta tækifærið. Komst inn fyrir vörn Tottenham en Clemence hljóp gegn honum og braut á Haye utan vítateigs. Var bókaður. Þá varði Clemence mjög vel frá Pfliigler á 63. mín. og á 70. mín. komst Dremmler í dauöafæri. Spyrnti beint á Clem- ence. Markvörður Tottenham hafði nóg að gera og varði vel frá Dremmler á 80. mín. en hann réð ekki viö hinn unga Michael undir lokin. Danny Thomas, bakvörður Tottenham, var bókaður á 75. mín. fyrir aö slá Pfiigler og var heppinn aö fá ekki að sjá það rauða því þetta var þriðja ljóta brotið hjá honum í leiknum. Þá var hreint ó- skiljanlegt að ekki skyldi dæmt víti á Tottenham á 59. mín. þegar Michael Rummenigge var beinlínis troðinn niður inn á markteig. HO/hsím. Sigurmark KR úr vítakasti í lokin Ótímabært skot hjá Haukum þegar 17 sek. voru til leiksloka kostaði þá tap 18—19 fyrir KR-ingum í Laugardals- höllinni í gærkvöldi, þar sem þeir mættust í 1. deildarkeppninni í hand- knattleik. Gisli Felixson, sem iék vel í Man Utd. sigurvegari í kapphlaupinu um Olsen — danski landsliðsmaðurínn kemur þó ekki til Manchester fyrr en næsta sumar „Ég hef alltaf haft sterkar taugar til Man. Utd. Haldið með liðinu frá því ég var strákur og það gerði val mitt einfaldara að ég þekki nokkra af leik- mönnum félagsins, til dæmis Bryan Robson, fyrirliða enska landsliðsins,” sagði danski landsliðsmaðurinn Jesper Olsen í samtali við breska útvarpið í gær eftir að Man. Utd. hafði tilkynnt að það hefði náð samkomulagi við Olsen og hið hollenska félag hans, Ajax Amsterdam. Olsen gerist þó ekki Ieik- maður hjá Man. Utd. strax. Það verður ekki fyrr en næsta sumar. „Ég hlakka mjög til að leika með United,” sagði Olsen á heimili sinu í Amsterdam í gær. Hann talar mjög góða ensku. Eftir því sem næst verður komist mun Man. Utd. greiða Ajax 500 þúsund sterlingspund fyrir Olsen eða nákvæm- lega þá upphæö sem félagiö fær sem tryggingafé fyrir enska landsliðs- manninn Steve Coppell, sem orðið hefur að hætta keppni vegna meiðsla. Olsen mun taka stöðu Coppell í liði Man. Utd. sem hægri kantmaður. Samningur Jesper Olsen gildir til þriggja ára og fær Daninn 200 þúsund sterlingspund í hlut við undirskrift samningsins eða um 8,4 milljónir króna. Auk þess fær hann auövitaö mjög gott kaup hjá United. Hann verður þá einn tekjuhæsti leikmaður- inn í ensku knattspymunni. Man. Utd. varð sigurvegari í kapphlaupinu um Jesper Olsen. Tvö ensk lið höfðu áhuga á honum, Tottenham og Arsenal, en Arsenal datt fljótt út úr myndinni. Þá hafði ítalska meistaraliðið Roma Kári Þorleifsson fer til Keflavíkur — tekur við stöðu Óla Þórs Magnússonar sem f er til Þórs Kári Þorleifsson — sóknarleik- maðurinn snjalli frá Vestmanna- eyjum, mun að öllum líkindum leika með Keflvíkingum næsta keppnistima- bil. DV frétti í gær að Kári væri búinn að ræða við Keflvíkinga og væri aðeins eftir að ganga frá formlegum félaga- skiptum. Kári er mjög marksækinn leikmaður — og skoraði hann t.d. mark í fyrstu fjórum leikjum Eyjamanna sl. keppnistímabU í 1. deildarkeppninni. Kári lenti síðan í útistöðum við Steve Fleet, þjálfara Eyjamanna og ákvað að taka sér hvíld frá knattspymu — hann lék ekki með Eyjamönnum í lok keppnistímabilsins og margir söknuðu hans í bikarúrslitaleik Eyjamanna- gegn Skagamönnum. Þaö þarf ekki að efa það aö Kári mun koma til meö að styrkja Kefla- víkurliðið mikið og tekur hann stöðu Óla Þórs Magnússonar sem hefur á- kveðið að gerast leikmaður með Þór á Akureyri. Eyjamenn hafa oröið fyrir mikilli blóötöku, þar sem Omar Jóhannsson, miðvallarspilarinn sterki, mun leika með Fram og Sigurjón Kristinsson hefur gengið tU liös viö KA. Þá er Hlynur Stefánsson einnig orðaður við KA-Uðið. -SOS. áhuga á Olsen og Fiorentina bauð mun hærri upphæð en ensku félögin en Olsen vUdi ekki fara tU ItaUu. Jesper Olsen er aðeins 22ja ára — fæddur 20. mars 1981. Hann var banka- starfsmaður áður en hann gerðist leikmaður hjá Ajaz 1981, byrjaði að leika með smáliðinu Faxe í Danmörku en fór þaöan til danska 1. deildarliðsins Næstved á Sjálandi. Hann er mjög smávaxinn og óttast margir aö hann veröi beinlínis troðinn niður í ensku knattspyrnunni, aðeins 1,67 sm á hæö og 60 kg. Hann hefur leikið 15 lands- leiki. Okvæntur. Forráðamenn Ajax uröu heldur hissa þegar þeir fréttu af þessari tilkynningu frá Man. Utd. Einn þeirra sagði við fréttamann Reuter að Olsen hefði fengið nýtt tilboð um 2—3 ára samning við Ajax. Heföi lofað aö ræða við félagið um þann samning í þessari viku. Hins vegar hefðu þeir ekkert frétt frá Olsen í málinu hvort hann yröi áfram í Amsterdam eða færi. En Jesper Olsen var ákveðinn í Amsterdam í gær. Hann sagði við fréttamann BBC. „Eg fer frá Ajax, þegar samningur minn rennur út í vor. Mjög ánægöur aö fá að leika með Man. Utd. og í ensku knattspymunni þó það hafi verið ákvörðun að yfirgefa Amsterdam.” hsím. Pílan truflaði markvörðinn - og Anderlecht-leikmaðurinn Brylle skoraði sjálfsmark Kastpila, sem einn áhorfandi á leik- velli Lens í Frakklandi henti í markvörð Anderlecht í UEFA-leiknum í gærkvöldi, varð þess valdandi, að franska liðið náði jafntefli, 1—1, gegn belgíska liðinu. Hæggengar sjónvarps- myndir eftir leikinn sýndu að pilan lenti í markverðinum Jacques Munaron og auk þess smásteinar þeg- ar hann ætlaði að hirða knöttinn eftir auðvclda baksendingu félaga síns hjá Anderlecht, Kenneth Brylle. Mark- vörðurinn fór úr jafnvægi, knötturinn fór í hægri fót hans og rúllaöi síðan hægt yfir marklinuna. Auk þess höfðu flugeldar sem skotið var upp truflandi áhrif á leikmenn. Atvikiö átti sér stað einni minútu fyrir leikslok. Leikmenn Anderlecht mótmæltu kröftuglega við dómarann en allt kom fyrir ekki. Hann dæmdi mark. Eftir leikinn sagði mark- vörðurinn að steinn hefði lent á knett- inum og breytt stefnu hans. Hann hafði hirt steina af vellinum og færði þá eftirlitsmanni UEFA. Pílan fannst hins vegar ekki. Mikil læti urðu fyrir aftan mark Belgíumanna í leikslok og fjölmennt lið lögreglumanna varð að skakka leikinn. -hsim. | marki KR, varði skotið og sendi knött- inn fram völlinn — til Jakobs Jónsson- ar. Um leið og Jakob fékk knöttinn stökk Þorlákur Kjartansson, mark- vöröur Hauka, á hann og var umsvifa- laust dæmt vítakast á Hauka. Jakob tók sjálfur vitakastið og skoraöi sigur- mark KR (19—18) þegar 10 sek. voru til leiksloka. KR-ingar höfðu alltaf yfirhöndina í leiknum — voru yfir 12—8 í leikhléi. Þegar 8 min. voru til leiksloka var staðan 18—16 fyrir KR. Þegar 5 mín. voru eftir var Guðmundi Albertssyni hjá KR vísað af leikvelli í þriðja sinn og því útilokaður frá leiknum. Haukar æstust allir upp og náðu aö jafna metin 18—18 meö marki Ingimars Haralds- sonar, þegar 2,32 mín. voru til leiks- loka. Mikill darraöardans var stiginn og Gunnar Einarsson varöi vítakast frá Jakobi Jónssyni þegar 1,53 mín. voru til leiksloka og svo átti Olafur Lárusson skot í stöngina á marki Hauka. Haukar voru með knöttinn undir lok- in en óagaður og fálmkenndur sóknar- leikur varð þeim aö falli. Otímabært skot að marki KR — og síðan sigur KR- ingaíhöfn. 78 áhorfendur sáu leikinn sem var slakur. Það var aðeins í lokin að nokk- ur spenna var. Það er aðeins hægt að hrósa einum leikmanni — Gísla Felix- syni, markverði KR-inga, sem var vel á verði á lokamínútunum og geta KR- ingar þakkað honum sigurinn. Mörkin í leiknum skoruöu þessir leikmenn: KR: Jakob 6/3, Guðmundur A. 3, Friðrik 3, Haukur G. 3, Jóhannes S. 2, Olafur Lár. 1 og Björn P. 1/1. Haukar: Jón Hauksson 6/4, Ingimar 5, Sigurjón 2, Hörður S. 2/1, Þórður G, 1. Helgi H. 1 og Snorri 1. _____________________ -SOS KR-ingar leika gegn Maccabi — FH mætir Tatabanya KR-ingar duttu heldur betur í lukkupottinn í gær þegar dregið var í Evrópukeppni bikarhafa i handknatt- leik. Þeir drógust gegn bikar- meisturum ísrael, Maccabi Rishon — kunnugt nafn, ekki satt? Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að KR- ingar ættu að vera öruggir í undanúr- slit Evrópukeppninnar ef leikmenn israelska liðsins eru í sama gæðaflokki og frændur þeirra hjá Maccabi Tel Aviv, sem léku hér tvo eftirminnilega leiki gegn FH í IHF-bikarkeppninni um sl. helgi. FH-ingar fá aftur á móti sterkari mótherja í 8-liða úrslitum IFH-bikar- keppninnar. Þeir leika gegn Tata- banya frá Ungverjalandi, sem sló Ystad frá Svíþjóð út í 16-liða úrslitum — vann 31—18 í Ungverjalandi en tapaöi 21—28 í Svíþjóð. Þess má geta að Víkingur sló Tatabanya út úr Evrópukeppninni fyrir tveimur árum. Uli Stielike meiddist illa V-þýski landsliðsmaðurinn UIi Stielike, einn besti knattspyrnumaður Spánar, meiddist illa á æfingu hjá Real Madrid í gær og verður hann frá æfingum og keppni fram yfir áramót. Þessi 29 ára leikmaður tognaði illa á vöðva á vinstra læri þegar hann var að leika innanhúsknattspyrnu. — Ég er hræddur um að ég leiki ekki með Real Madrid fyrr en á næsta ári, sagði Stielike í gær. — Knötturinn hoppaði illa þegar ég var að reyna aö stöðva hann — ég fann fyrir hræðilegum kipp, segir Stielike og hann bætti við: — Eg get ekki geng- ið þar sem ég hef mikinn verk. Þetta eru slæm meiðsli. 5 leikmenn Real Madrid eru nú á sjúkralista, þar af Juan Lozano, sem Real Madrid keypti frá Anderlecht fýrir stuttu- hann meiddist illa á hné í leik á dögunum og verður frá keppni í tvo mánuöi. Þess má geta að meiösli hafa hrjáð Stielike að undanfömu og hefur hann ekki getað leikið nema fáa leiki með Real Madrid það sem af er keppnistímabilinu á Spáni. -SOS. Mlchael Rummenigge. Forest átti í vök að verjast — náði jafntefii 0-0 gegn Celtic í UEFA-keppninni í Nottingham í gærkvöldi Nottingham Forest átti mjög í vök að verjast i fyrri leiknum við Celtic í UEFA-keppninni í gærkvöld. Celtic miklu betra lið í erfiðri baráttu leik- manna á glerhálum, hvítum vellinum i frosti og snjó í Nottingham. Jafntefli varð án þess að mark værí skorað. Áhorfendur voru 32.017 eða besta aösókn hjá Forest frá því í bikarleik við Ipswich í mars 1981. Þar a^voru 12 þúsund frá Skotlandi. Snemma leiks varð spánski dómarinn Soriano Aladren að stöðva leikinn þegar f jöldi áhorfenda ruddist niður á völlinn til aö koma í veg fyrir að troðast undir þegar til óláta kom fyrir aftan annað markið. Tveir misstu þó meðvitund í troðning- um og voru fluttir á sjúkrahús eftir að „munnaðferðin” hafði verið fram- kvæmd á þeim á vellinum. Nokkrir aðrir voru bornir burtu á börum. Celtie hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik. Gerði raunverulega allt nema Watford f klemmu — tapaði á heimave Liðið hans Elton John, Watford, á enn í crfiðlcikum eftir fyrri leik sinn í UEFA-keppninni — nákvæmlega eins og í fyrri tveimur umferðunum. I gær tapaði Watford á heimavelli sinum fyrir tékkneska liðinu Sparta Prag 2— 3. Um tima leit þó mun verr út hjá Wat- ford. Tékkneska liðið náði tveggja marka forustu um miðjan fyrri hálfleikinn. Landsliðsmaöurinn Berger skoraði fyrra mark Sparta með þrumufleyg af 30 metra færi og síðan skoraöi Griga. A 66. mín. tókst Wilf Rostron að minnka muninn í 1—2. Skallaði knöttinn í liíUEFA-keppninni mark eftir hornspymu og á 85. mín. jafnaði Jim Gilligan, sem nokkru áður hafði komið inn sem varamaður. Hróp 16 þúsund áhorfenda mikil undir lokin, þegar leikmenn Watford reyndu allt sem þeir gátu til að knýja fram sigur. En það fór á aöra leið. Tékkneska liðið náði skyndiupphlaupi og Scasny skoraði sigurmark þess rétt fyrir leiks- lok. Það var erfiður biti að kyngja fyrir hina tryggu áhorfendurí Watford, sem höfðu orðið vitni að hetiulegri baráttu liðs síns við að vinna upp tveggja marka forskot Sparta. -hsím. skora. Yfirburðir liðsins minnkuöu hins vegar í s.h. þegar Tom McAdam varð að yfirgefa völlinn vegna I meiðsla. Forest-liðið slakt, án Todd og Thijssen, og allt annaö og lakara lið en hér á árum áður. Þó skánaöi leikur liðsins aðeins eftir að Ian Wallace kom inn sem varamaður fyrir Davenport um miðjan síöari hálfleikinn. Gary Birtles átti erfitt með að fóta sig. Skipti I loks um skó um miöjan s.h. hsím. Oxford lék — og mætir Man. Utd. á heimavelli ínæstu umferð mjólkurbikarsins Oxford vann auðveldan sigur á Leeds, 4—1, í mjólkurbikarnum í Headington í gærkvöld og í næstu umferð fær 3. dcildarliðið Man. Utd. í heimsókn. Oxford lék frábærlega vel í fyrri hálfleik, skoraði þrívegis og mörkin hefðu eins getað orðið helmingi fleiri. Svo yfirspilað var Leeds-Iiðið. Kevin Brock skoraði fyrsta markið á 4. mín. Steve Biggins annað á 26. min. og Mick Vinter það þriðja á 29. mín. 13.389 áhorfendur voru heldur betur með á nótunum. I síðari hálfleiknum minnkaði Kenny Burns muninn í 3—1 á 65. mín. með skalla en George Lawrence skoraði fjórða mark Oxford. Meðal áhorfenda var Ron Atkinson, stjóri Man. Utd. -hsím. Valur-ÍR stórleikur 1. umferðar — Dregiö íb'karkeppni KKÍ í gærkvöldi I gærkvöldi fór fram fyrsti drátturinn í bikarkeppni KKl. Eini stórleikur 1. um- ferðar er leikur Vals og tR, tvö úrvals- dcildarfélög, sem eigast þar við og ekki auðvelt að spá um úrslit. Aðrir leikir eru þessir: Reynir S.-Keflavík KR-ÍS IA-UMFG UMFN-HK Valur-lR UMFS-KR b Fram-Snæfell Þór Ak.-Reynir/tBK UMFL-KR/IS Fyrstu tveir leikirnir hér að ofan fara fram fljótlega og sigurvegararnir úr þeim mæta síðan Þór frá Akureyri og Laugdæl- um. Stefnt cr að þvi að Ijúka þessum leikj- um fyrir 20. janúar. -SK. Bristol-liðin mætast Það verða Bristol City og Bristol Rovers sem mætast í 2. umfcrð ensku bikar- keppninnar 10. desember. Nokkrir leikir voru lciknir í gærkvöldi i fyrstu um- ferðinni og urðu úrslit þessl: BristolC.-Corinthian 4—0 Maidstone-Exeter 2—1 Hartlepool-Rotherham 0—1 Waterlooville-Northampton 1—1 > Utandeildarfélagið Maidstone leikur heima gegn ööru utandeildarfélagi Worchester í 2. umferð, þannig að ljóst er að það verður utandeildarlið í slagnum þegar 1. og 2. deildarliðin koma i pottinn þegar dregið verður í 3. umferðina. HM-leikurinn íTokyo Evrópumeistarar Hamburger SV mæta Gremio frá Brasilíu í úrslitaleik um hcims- meistaratitilinn í knattspyrnu i Tokyo sunnudaginn 11. desember. Þessi félög hafa ekki áður leikið um hcimsmeistara- titilinn. Keppt hefur verið um titiliun tuttugu og cinu sinni — Evrópullð hafa | hlotið hann átta sinnum og lið frá S- Ameriku þrettán sinnum. Dómari i Tokyo verður Frakkinn Michel Vautrot: -SOS Stórsigur hjá Fram Framstúlkurnar unnu yfirburðasigur 23—13 (12—5) yfir KR í 1. deild kvcnna í handknattleik í gærkvöldi. Guðríöur Guðjónsdóttir skoraði flest mörk Fram — 9/4. Oddný Sigsteinsdóttir og Sigrún Blomsterbcrg skoruðu sín fjögur mörkln hvor. Jóhanna Ásmundsdóttir og Hansina Melsted skoruðu þrjú mörk fyrir KR. -SOS Sældardagar prentvillupúkans — Hefurreist fjölbrautaskóla íÞorlákshöfn Prentvillupúkinn hefur átt sældardaga á íþróttasíðum DV að undanförnu. Dansað þar um feitur og pattaralegur. Hefur mcira að segja reist f jölbrautaskóla i Þor- lákshöfn. 1 viðtali við HrafnhQdi Guðmundsdóttur í gær stóð að sonur hennar stundaði nám í þeim skóla. I hand- riti stóð hins vegar að Magnús Már stundaði nám í f jölbrautaskólanum á Sel- fossi, yngri systkinin í grunnskóla Þor- lákshafnar. Þar féll niður lina og einnig þegar skýrt var frá úrslitum í bikarkeppni SSl. Reyndar sú þýðingarmesta, Stigatala þeirra liða, sem urðu i 1. og 2. sæti. Héraðs- sambandið Skarphéðinn sigraði. Hlaut 190 stig. Ægir i öðru sæti með 158. -Hsim. íþróttir íþróttir (þróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.