Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Side 7
ÍÞRÓTTAANNÁLL . FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983. • Kristján Hreinsson — sést hér stökkva metstökkið sitt í Alta — 2,11 m. Eirikur Jónsson tók myndina. • Einar Vilhjálmsson — niundi besti spjótkastari heims, sést hér horfa á eftir spjótinu. Ingi Björn fékk gullskóinn Ingi Björn Albertsson, markaskorar- inn mikli úr Val, varð markhæstur í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu — skoraði 14 mörk. Fyrir þetta afrek fékk hann gullskó ADIDAS afhentan í hófi í Naustinu 20. október. Ingi Björn er fyrsti Islendingurinn sem fær gullskó frá Adidas og á það vel við því að hann varð fyrstur til að skora 100 mörk í 1. deildarkeppninni — þau uröu síöan 111 þegar upp var staðið. Nóvember Ragnar með met í Randers Ragnar Guðmundsson setti nýtt Islandsmet í 1500 m skriðsundi á sund- móti í Randers í Danmörku. Hann synti 1500 m á 16:32,1 mín. 1. nóvem- ber. Fyrirliðinn setti met Tryggvi Helgason setti met í 200 m bringusundi — 2:26,0 mín. Þetta met setti hann þegar Héraðssamband Skarphéðins vann yfirburöasigur í bikarkeppninni í sundi, 20. nóvember, en Tryggvi var fyrirliði sundliösins. Bryndís með tvö met Bryndís Ölafsdóttir frá Þorlákshöfn setti met í 100 m skriðsundi þegar hún synti vegalengdina á 1:01,3 mín. í bikarkeppninni. Hún bætti síðan um betur 21. nóvember á innanfélagsmóti Ármanns. Þar synti hún 100 m skrið- sundál:01,lmín. Jón Páll annar sterkasti maður heims Jón Páll Sigmarsson tók þátt í mikilli kraftakeppni í Christehurch í N-Sjá- landi 27. nóvember. Þar var keppt um Desember 13 ára gamalt met Salóme féll Ragnheiður Runólfsdóttir frá Akra- nesi setti nýtt Islandsmet í 100 m bak- sundi í 50 m sundlaug í Uleborg í Finn- landi 4. desember. Ragnheiður synti 100 m á 1:13,6 mín. og sló þar með 13 ára gamalt met Salóme Þórisdóttir. Elsta kvennametið í sundi var þar meö fallið. ísland í sterkum riðli Það var dregið í undankeppni HM í knattspyrnu í Ziirich 7. desember. Islendingar lentu í sterkum riðli — leika með Spánverjum, Skotum og Walesbúum. Stuttgart á toppnum Ásgeir Sigurvinsson og félagar hans hjá Stuttgart unnu góðan sigur 2—0 yfir Hamburger SV í Hamborg 7. desember og er Stuttgart því í efsta sæti v-þýsku „Bundesligunnar” þegar keppnistímabilið í V-Þýskalandi er hálfnað. Eðvarð á verðlaunapalli Eðvarð Eðvarðsson komst tvívegis á verðlaunapall á unghngameistaramóti Norðurlanda í sundi 10. des. Hann var í öðru og þriðja sæti í 100 og 200 m bak- sundi — setti Islandsmet á bóðum vegalengdunum. Eðvald synti 200 m baksund á 2:13,49 mín. og varð þriðji og síöan varö hann annar í 100 m baksundi — 1:00,71 mín. • Ragnheiður Runólfsdóttir setti met í 200 m f jórsundi — 2:28,02 mín. Gleðilegt ár Iþróttasíða DV óskar íþróttamönn- um og íþróttaunnendum um allt land gleöilegs árs og þakkar samstarfið á liðnu ári. -hsím./-SOS. Helga með met Helga Halldórsdóttir úr KR setti nýtt Islandsmet í sjöþraut á Laugardals- vellinum 7. júní — fékk 5027 stig. Jón Páll með Evrópumet Jón Páll Sigmarsson setti nýtt Evrópumet í kraftlyftingum í Osló 12. júní og hann varö Norðurlandameist- ari í 125 kg flokki. Jón Páll setti Evrópumet í réttstöðulyftu — lyfti 365 kg. Jón Páll lyfti 950 kg í samanlögðu sem var Islandsmet. Ingi Björn fyrstur til að skora 100 mörk Ingi Björn Albertsson, knattspyrnu- maður úr Val, skoraði tvö mörk gegn KR í 1. deildarkeppninni þegar Vals- menn unnu 4—1 18. júní. Fyrra mark hans var sögulegt mark — það var hans 100. mark í 1. deildarkeppninni. Ingi Björn varð þar með fyrstur til að skora 100 mörk í 1. deild. „Einvaldurinn" sló í gegn Kjartan L. Pálsson, landsliösein- valdur í golfi, sló í gegn í París 25. júní, þar sem hann var fararstjóri íslenska landsliösins í golfi sem tók þátt í Evrópumeistarakeppninni. Kjartan fór holu í höggi í sjötta sinn á sínum keppnisferli — sló kúluna beint ofan í holu af 150 m færi. Júlí 18 ára met Jóns féll — „Ég átti ekki von á meti hér í Alta,” sagði Kristján Hrcinsson stór- efnilegur hástökkvari úr Eyjafirði sem varð sigurvegari í Kalott-keppninni í Noregi 10. júlí. Kristján sem er 18 ára bóndasonur og hefur æft við erfiðar aðstæður stökk 2,11 m. Þar með var 18 ára met Jóns Þ. Olafssonar falliö — þaövar2,10m. „Þetta kom mér á óvart" . . . sagði Bryndis Hólm sem setti Islandsmet í langstökki í Alta þar sem húnstökk6,llm. Guðrún Fema með met Guörún Fema Ágústsdóttir setti met í 100 m bringusundi á meistaramóti Is- lands í Laugardalshöllinni 10. júní. Hún synti á 1:03,27 mín. Heimsmet Hallgríms Hallgrímur Jónsson hinn gamal- kunni Islandsmethafi í kringlukasti frá Laxamýri í Suður-Þingeyjasýslu setti heimsmet í kúluvarpi á Húsavík 10. júlí í 56 ára aldursflokki. Hallgrímur kastaði kúlunni 13,12 m, en gamla metið átti V-Þjóðverjinn Kurt Werner -11,76 m. Vésteinn með met í kringlukasti — „Þaö var takmarkið hjá mér að setja met í sumar,” sagði Vésteinn Hafsteinsson eftir að hann haföi kastað kringlunni 65,60 m á Laugardalsvell- inum 17. júlí. Glæsilegur árangur hjá Einari Einar Vilhjálmsson varö sigur- vegari í spjótkasti, þegar hann keppti meö Norðurlandaúrvalinu gegn Bandaríkjunum í Stokkhólmi 26. júlí. — „Árangur Einars var hápunkturinn í keppninni,” sagöi Jan Bengtson, liðs- stjóri Norðurlandaúrvalsins. Einar kastaði spjótinu 90,66 m sem var nýtt glæsilegt Islandsmet og jafnframt níundi besti árangur heims í spjótkasti 1983. Einar vann sigur á heims- meistaranum Tom Petranoff sem kastaði 86,40 m. Kristján yf ir 5 metra Kristján Gissurarson varð annar Islendingurinn til að stökkva yfir 5 m í stangarstökki er hann stökk fimm metra slétta á innanfélagsmóti KR 27. júlí á Laugardalsvellinum. Tvö íslandsmet í Edinborg Islenskir frjálsíþróttamenn létu heldur betur að sér kveða í sex landa keppni í Edinborg 30. júlí þar sem tvö met voru sett. • Bryndís Hólm setti met í lang- stökki — stökk 6,17 m. • Helga Halldórsdóttir setti met í 100 m grindahlaupi —14,03 sek. Gylfi meistari Gylfi Kristinsson, GS, varð Islands- meistari karla í golfi 30. júlí og Ásgerður Sverrisdóttir, GR, varð meistari í kvennaflokki. Ágúst Tryggvi með met Tryggvi Helgason frá Selfossi setti nýtt Islandsmet í 100 m bringusundi á móti í Karlsruhe 7. ágúst — synti 100 m á 1:10,62 mín. Met í kóngsins Kaupmannahöfn Ragnheiður Úlafsdóttir setti met í 800 m hlaupi í Kaupmannahöfn 14. ágúst. Þessi fótfráa stúlka úr FH hljóp á2:04,90mín. Kom tómhentur til íslands Landsliðsþjálfarinn í handknattleik Bogdan Kowalczyk kom til Islands frá Póilandi 22. ágúst. Hann kom tómhent- ur því að hann tapaði ferðatösku sinni í Kaupmannahöfn. Eftir að DV var búið að segja frá óförum Bogdan kom í ljós að taska hans var á Akranesi — hafði verið tekin í misgripum. Tryggvi með met í Róm Tryggvi Helgason tók þátt í Evrópu- meistaramótinu í sundi sem fór fram í Róm. Hann setti met í 100 m bringu- sundi 22. ágúst — synti á 1:09,81 min. Bikarinn upp á Akranes Skagamenn tryggðu sér sigur í bikarkeppninni í knattspyrnu á Laugardalsvellinum þar sem þeir lögðu Eyjamenn að velli í framiengd- um leik 2—1. Leikurinn var nokkuö sögulegur því aö Sigurður Lárusson fékk reisupassann — var rekinn af leikvelli. Aðeins 10 Skagamenn náðu að knýja fram sigur og skoraði Svein- björn Hákonarson sigurmarkið 2—1 á 118. mín. September Þorvaldur með met Þorvaldur Þórsson setti Islandsmet i 200 m grindahlaupi á Laugardalsveii- inum — hljóp á 23,8 sek. Þorvaldur var þar meö orðinn handhafi allra met- anna í grindahlaupum —110,200 og 400 m. Hann er annar tslendingurinn sem nær þeim árangri. Örn Clausen setti met í öllum þessum greinum 1950. Skagamenn íslandsmeistarar Skagamenn tryggðu sér Islands- meistaratitilinn í knattspyrnu 1983 þegar þeir gerðu jafntefli 1—1 gegn Vestmannaeyingum á Akranesi. 3. september. • Breiðabiik vann tvöfaldan sigur í kvennaknattspyrnu — bæði 1. deildar — og bikarkeppninni. Góður árangur í Evrópukeppninni Skagamenn máttu sætta sig við tap 1—2 fyrir Evrópubikarhöfum Aber- deen á Laugardaisvellinum 14. september. Sigurður Halldórsson skor- aði mark Skagamanna 1—0 en aöeins augnabliki síðar jöfnuðu leikmenn Aberdeen eftir slæm varnarmistök Skagamanna. Áður en Aberdeen skor- aði sigurmarkið misnotuðu Skaga- menn vítaspyrnu — Jim Leighton markvörður varði spyrnu Árna Sveins- sonar. • Víkingar stóðu sig vel í Ungverja- landi gegn Raba Györ í Evrópukeppni meistaraliða — töpuðu aðeins 1—2. Pétur með þrennu Pétur Pétursson var í sviðsijósinu í Ziirich þar sem hann skoraöi þrjú mörk fyrir Antwerpen í UEFA-bikar- keppninni. Þetta var í annað sinn sem Pétur skorar „hat-trick” í Evrópu- keppni. Eyjamenn með ólöglegan leikmann Vestmannaeyingar tefldu fram leik- manni — Þórði Hallgrímssyni sem var í leikbanni þegar þeir léku sinn síðasta leik í 1. deildarkeppninni. Þeir gerðu jafntefli 2—2. Leikurinn var síðan dæmdur þeim tapaöur og þeim vísað úr 1. deildarkeppninni. Bjarnifékk gull í Lundi Bjarni Ág. Friðriksson varð sigur- vegari í sænska opna meistaramótinu í júdó sem fór fram 25. september í Lundi í Svíþjóð. Skagamenn sýndu klærnar Islandsmeistarar Akraness náðu frábærum árangri í seinni leik sínum gegn Aberdeen í Evrópukeppni bikar- hafa sem fór fram í Aberdeen 28. september. Þar náðu þeir jafntefli 1—1 og skoraði Jón Áskelsson jöfnunar- markiö úr vítaspyrnu. Oktéber nafnbótina sterkasti maður heims. Jón Páll hafnaöi í ööru sæti. Eðvarð setti met Eðvarð Þ. Eðvarðsson setti Islands- met í 200 m baksundi á unglinga- meistaramótinu í sundi 27. nóvember. Hann synti á 2:13,88 mín. • Bryndís Úiafsdóttir setti met í 100 m skriðsundi —1:00,9 min. • Guðrún Fema Ágústsdóttir setti met í 50 m skriðsundi — 28,58 sek. Arnór skorinn upp Arnór Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu sem leikur meö Ander- lecht, var skorinn upp á sjúkrahúsi í Briissel vegna meiðsla þeirra sem hann hlaut í læri í landsleik íslands og Irlands 29. nóvember. Skurðaðgerðin stóð yfir í fimm tíma og heppnaðist mjög vel. Arnór verður aö taka sér frí frá knattspyrnu þar til í byrjun febrúar 1984. '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.