Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Síða 9
DV. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983. 9 ERLEIMDUR ANNALL ERLENDUR ANNALL lok í Evrópu, e£ ekki næöist áður sam- komulag við Sovétríkin. Átti sú umræöa og andstaöa friöarhreyfingar- innar viö kjarnorkuvopn eftir aö setja mikinn svip á síðari helming ársins. Af stjórnmálavettvangnum í Finn- landi vék nú Ahti Karajalainen, fyrrum forsætisráöherra og utanríkis- ráöherra, sem sagöi sig úr miðflokkn- um þegar rak aö því aö hann viki úr seölabankastjórastarfinu vegna per- sónulegra vandamála. Júní Uppreisnarmenn innan PLO juku stöðugt fylgi sitt gegn Arafat, leiðtoga samtakanna, og sömuleiðis jók breski Ihaldsflokkurinn fylgi sitt í þing- kosningunum þar sem hann vann sinn stærsta kosningasigur síðan 1945, eöa 140 þingsæta meirihluta. — Tony Benn, leiðtogi róttækari aflanna innan Verkamannaflokksins, sem þykir hafa átt drjúgan þátt í klofningi flokksins, féll í sínu kjördæmi. Vegna kosninga- fyrirkomulagsins fékk bandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna (klofningsaðila úr Verkamannaflokkn- um), til muna færri þingmenn út á sín 25% en Verkamannaflokkurinn út á sín 29%. Michael Foot, formaöur Verka- mannaflokksins tilkynnti aö hann mundi ekki gefa kost á sér til endur- kjörs á flokksþinginu í október. Jóhannes Páll páfi heimsótti ættland sitt Pólland í sex daga og var Lech Walesa, leiötogi hinnar óháöu verka- lýöshreyfingar Einingar, haldið í stofufangelsi fyrstu daga heimsóknar- innar. Páfinn var ódeigur að krydda ræöur sínar meö nafni hinna bönnuðu verkalýðssamtaka og fékk því framkomið að Walesa næöi hans fundi fyrir brottförina. Eftir átta ára málaferli var Mogens Glistrup, stofnandi og formaöur Framfaraflokksins danska, dæmdur í hæstarétti í 3ja ára fangelsi og háar sektir fyrir skattsvik. Jlílí Danir stóöu fyrir deilum viö EBE um síldveiöi í Noröursjónum og lyktaði þeúnekkifyrr enundirárslok. Mikið fjaðrafok var í Bandaríkjun- um þegar upp komst aö aðstoöarmenn Reagans forseta úr kosningunum höfðu haft aðgang að minnisblöðum Carters úr undirbúningi fyrir sjónvarpseinvígi þeirra Reagans. Hvítasunnusafnaöarfólkiö, sem um 5 ára bil sat i sendiráði Bandarikjanna í Moskvu, fékk loks aö fara til Vestur- landa og haföi sumt barist fyrir slíku leyfií23ár. Það hýrnaöi yfir sumum Svíum þegar 400 kg af hassi fundust á reki í skerjagarðinum en því höföu smyglarar fleygt í sjóinn af hræðslu viö tollgæsluna. Dauðarefsinguna bar enn á góma í Bretlandi en náöi ekki meirihluta á þingi. Heimsþing geðlækna skoraöi á Sovétstjómina aö hætta misnotkun geölækninga til pólitískra ofsókna. Um svipaö leyti komst á kreik orörómur um aö eitthvað mundi bogiö viö heilsu- far Andropovs, f orseta Sovétríkjanna. Leifar fylgismanna Somoza, einræöisherra í Nicaragua, sem sandinistar höfðu steypt af stóli, réöust inn í landiö meö um 5000 manna skæruliðaher sem síðan hefur haldið uppi skæruhernaöi gegn vinstrisinna stjórn landsins. Leikarinn vinsæli, David Niven, andaöist í Sviss 73 ára aö aldri eftir langvarandi veikindi. Ágúst Svíar og Danir lentu upp á kant vegna undirbúnings Dana fyrir olíuboranir í Kattegat. Stóðu samningaviöræður lengi og lauk með sáttum, enda gátu Svíar lítið spomað gegn. Kínverskar konur eru um þetta leyti farnar að gerast sundurgeröarmeiri í klæöaburöi upp á vestræna vísu og klæðast jafnvel stuttbuxum. Berast fréttir af því aö brögð séu aö því aö kínverskar konur láti laga á sér augn- svipinn meö skurðaögeröum til þess að fá vestrænna yfirbragö. Þaö vakti almenna reiöi og hneykslun um heim allan þegar Rússar skutu niður s-kóreska júmbó- þotu meö 269 manns innanborðs. Var því jafnað til algerrar „vilhmennsku” aö herþotum skyldi sigaö á óvopnaða farþegaflugvél og orrustuflugmönnum gefin fyrirmæU um aö skjóta hana niður fyrir þaö eitt aö hún haföi villst inn yfú lofthelgi Sovétmanna í Asíu. — Nær 60 ríkisstjórnir fordæmdu árásina og nokkur ríki lögðu niöur flugferöir til Sovétríkjanna og bönnuöu Aeroflot lendingar í refsmgarskyni. I Líbanon höföu átök harnaö svo aö heita mátti að borgarastyrjöld ríkti í landinu. Frakkar og Bandaríkjamenn gripu til þess aö láta svara skothríð sem beint var aö friðargæslusveitum þeirra í Beirút. Sendu þeir herþotur til árása á drúsa og fleiri herskáa, en her- skip í Miðjarðarhafsflota USA létu fall- byssur sínar þruma yfir staöi þaöan sem haldið var uppi stórskota- og eld- flaugahríö á bandarísku friðardátana. Nokkrum sinnum var gert vopnahlé sem jafnharðan var rofiö aftur. Á annaö þúsund þorp á Indlandi fóru undú- vatn í miklum flóöum vegna monsúnrigninga. Var talið aö um 400 manns hefðu farist. Robert F. Kennedy, jr., elsti sonur Bobby Kennedy þingmanns, var lagöur inn á sérstaka stofnun til meöferöar vegna fíkniefnaneyslu. Fundist haföi heróúi í fórum hans. Baráttufólk fyrir mannréttindum í Argentmu fjöúnennti til mótmælaað- geröa vegna „horfinna manna”. Þaö er taliö aö um 30 þúsund manns hafi horfið þar í landi í aðgeröum hersins gegn vinstrisúina skæruliðum á síö- astaáratug. Leikkonan Liz Taylor trúlofast enn á ný og í þetta sinn mexíkönskum lög- manni, Gonzales Luna aö nafni. Mogens Glistrup byrjar aö afplána fangelsisdóm sinn, en klofningur kemur upp í Framfaraflokknum eftir fráhvarf hans. AIDS-ónæmissjúkdómurinn, sem mjög er útbreiddur á Haiti og meöal kynvilltra, hefur mikiö veriö til umfjöllunar á árinu og vakiö ugg vegna þess hve banvænn hann er. Kemur í ljós að hann hefur skotið rótumíSvíþjóð. Leiðtogi stjórnarandstööunnar á Filippseyjum, Benigno Aquino, var myrtur viö komu til Manila frá Bandaríkjunum, þrátt fyrú öfluga vernd stjórnarhermanna. Mikil mót- mæli fylgdu í kjölfariö vegna gruns um aö stjórn Marcosar forseta kunni að hafa staðið aö tilræömu. Tilburöú til rannsóknar málsins þykja ekki hlut- lausir og leiddi máliö til þess aö Reagan Bandarikjaforseti hætti við aö heimsækja Marcos síðar á árinu. Bandaríska friöargæsluliöiö í Líban- on dróst inn í átök við Beirút og átti bandaríski flotinn síðar eftir aö drag- ast inn í aðgeröarmeiri afskipti friðar- gæslunnar. Deilur spruttu upp út af staðarvali vegna áskorendaeinvigjanna í skák og horfði um hríö til þess aö hvorki yröi af því aö þeir tefldu, Kortsnoj og Kaspar- ov né Smyslov og Ribli. Í júní var Mogens Glistrup, formaður Framfaraflokksins svik. mzzjjfifpr danska.dæmdur i þriggja ára fangelsi fyrir skatt- Stúdentaóeirðir urðu í Frakklandi i maí. '■ " - ' September

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.