Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Síða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983, ERLENDUR ANNALL ERLENDUR ANNALL Baráttufólk fyrir mannréttindum i Argentínu efndi til mikilla mótmœlaaðgerða i september. Fyrstu nýju bandarísku eld- flaugarnar komu til Bretlands og V- Þýskalands þrátt fyrir víötæk mótmæli og uröu til þess aö Rússar slitu í Genf viðræöunum um tak- markanir meöaldrægra kjamorku- flauga. Mesta rán í sögu Bretlands var framiö í þessum mánuði þegar stoliö var úr öryggisgeymslu á Heathrow- flugvelli gulli fyrir 25 milljónir sterlingspunda og virðist lögreglan ekki hafa minnsta spor til þess að rekja. Jóhannes Páll páfi var ódeigur að tala máli Einingar í heimsókn sinni til Póllands í júni. málaráöherra (úr flokki frjálslyndra) yröi látinn víkja vegna skattaívilnana, sem Flicksamsteypan haföi notið fyrir drjúg framlög í flokkssjóði. Tölvulipur ungmenni í Bandaríkjun- um þóttu seilast fulllangt í tölvufikti sínu þegar þau „brutust” inn í tölvu- banka og hræröu meðal annars í minni tölvu sem geymdi upplýsingar sjúkrahúss eins um sjúklinga þess. TJppreisnarskæruliðar PLO hófu lokasókn á hendur Arafat og leifum skæruliðahers hans sem hörfa varö inn í Trípólí þegar síöustu vigi Arafats féllu í hendur andstæöingum hans inn- an PLO, studdum af Sýrlendingum. ,,Kvefiö” sem opinberlega var sagt hrjá Andropov, forseta Sovétríkjanna, þótti orðið í alvarlegra lagi þegar hann gat ekki verið við hátíðarfund vegna byltingarafmælisins. Hinn tyrkneski hluti Kýpur lýsti yfir sjálfstæöi sínu, sem mæltist víöa illa fyrir, enda hafa ekki önnur ríki en Tyrkland viöurkennt hiö nýstofnaöa ríkiKýpur-Tyrkja. Skrílslæti breskra knattspyrnuunn- enda uröu tilefni sérstaks ráöherra- f undar aöildarrík ja E BE. Hollenska lögreglan fann Heineken- forstjórann og einkabíistjóra hans heila á húfi. Hafði hún í kyrrþey verið á slóö ræningjanna í tvær vikur og hafði hendur í hári þeirra um leiö og hún náöi aftur lausnargjaldinu. Danuta, eiginkona Lech Walesa, fór til Oslóar meö elsta son þeirra hjóna til aö taka viö friðarverölaunum Nóbels fyrir hönd bóndans. Lech Walesa hafði ekki lagt í þá áhættu aö pólsk yfirvöld mundu synja honum um aö snúa aftur heim til Póllands ef hann færi sjálfur úrlandi. Mikiö flugslys varö á flugvellinum í Madrid vegna ónógs öryggisbúnaðar. Fórust 92 en 42 komust þó af. Hin nýja lýðræöisstjóm Argentínu ákvaö aö fella úr gildi sakaruppgjafir sem herforingjastjórnin haföi veitt for- ingjum í hernum varðandi meint mannréttindabrot. Flestir hershöföingjar sem setið hafa í her- foringjastjórnunum veröa dregnir f jrir rétt. Tímaritið „Newsweek” telur sig hafa heimildir sovéskra lækna fyrir því aö Yuri Andropov, forseti Sovétríkjanna, eigi í mesta lagi tvö ár eftir ólifuö. Blaðiö sagöi hann nýma- veikan og stööugt undir meðferö í tengslum við nýrnavél, enda hefur Andropov ekki komið fram opinber- legaífjóramánuöi. Til þingkosninga kom í Japan þar sem stjórnarandstaðan neitaöi að sitja þingfundi á meðan Tanaka, fyrmm forsætisráðherra, dæmdur fyrir mútu- þægni og spillingu í starfi, sæti áfram á þingi. Flokkur Nakasones forsætisráð- herra beiö mikiö afhroö og glataði meirihluta sínum, en myndar aftur ríkisstjóm meö tilstilli átta utanflokks- þingmanna. 1 annaö skipti á sextán mánuðum varð Arafat að flýja Líbanon meö 4000 manna skæruliðaher sinn. Aö þessu sinni komst hann sjóleiöina frá Trípolí undir vernd franskra herskipa. Danuta Waiesa skoðar vegabréf sitt fyrir ferðina til Oslóar þar sem hún tók við friðarverðlaunum Nóbels fyrir hönd bónda sins. Um 100 þúsund manns tóku þátt í óvenjulegri kröfugöngu í Svíþjóð þar sem atvinnurekendur mótmæltu áætlun Palme-stjómarinnar um fjár- festingarsjóði og kaup verkalýösfélaga á hlutum í stærstu fyrirtækjum lands- ins. Breski Verkamannaflokkurinn hélt ársþing sitt aö venju í Brighton þar sem Neil Kinnock var kosinn nýr for- maöur flokksins. Nokkrum yfi -lýstum marxistum var vikiö úr flokkn.\m,felld var niöur úr stefnuskránni krafan um úrsögn Breta úrEBE. Á ársþingi Ihaldsflokksins nokkm síöar settu ástamál eins ráðherrans, Cecil Parkinson, mestan svip á þing- störfin en hann neyddist til aö segja af sér. Friöarverðlaun Nóbels féllu þetta áriö í skaut Lech Walesa. Bókmennta- verölaunin fékk breski rithöfundurinn William Golding, en sú úthlutun olli ágreiningi innan sænsku aka- demíunnar. Frá Iran bámst þær fréttir, aö klerkastjórnin sem stendur blóðug upp fyrir axlir viö aö fullnægja „réttlæti íslömsku byltingarinnar” — og hefur sent um 50 þúsund manns fyrir aftöku- sveitirnar, síöan hún kom til valda — láti taka dauöadæmdum föngum blóö, áöur en þeir eru leiddir til aftöku. Því veldur aukin þörf á blóögjöf á víg- völlunum í stríöinu gegn Irak. Eftir 6 ára málþóf var Kakuei Tanaka, fyrram forsætisráöherra Japans, dæmdur fyrir aö hafa þegið mútur hjá Lockheedflugvélaverk- smiðjunum, en hann neitaöi aö víkja af þingi. Mjög þótti draga úr sölu áfengis í áfengisverslun norska ríkisins á árinu enda komst upp um smyglhring sem á tveim árum haföi smyglað — aðallega meö flutningabílum — um 800 þúsund áfengisflöskum til Noregs. Uppreisn var gerö á Karíbahafseyj- unni Grenada og var Maurice Bishop forsætisráöherra drepinn af marxist- um sem þóttu ganga lengra í róttækni og Kúbu-þjónkun en hann. Leiddi þaö til innrásar Bandaríkjahers og nokk- urra Karíbahafsríkja á Grenada þar sem kúbanskir „verkamenn” — á Grenada til aöstoöar viö flugvallar- gerö — þóttu sýna hetjulega vöm. Innrásin var víöa hart fordæmd. Efnt var til forsetakosninga í Argen- tínu til undirbúnings lýðræðisstjómar í landinu og biöu perónistar ósigur. Névember Flick-mútumáliö komst á nýjan leik í hámæli í V-Þýskalandi og vaknaöi upp krafa um að Otto Lambsdorf efnahags- Desember Oktéber

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.