Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Síða 17
DV. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983.
17
Bílar
Bílar
Bílar
Bflar
Bflar
UNO = BÍLL ÁRSU\S
Var
dómur
53
blaðamanna
í 16
löndum
Fiat Uno eöa „einn” eins og hann
myndi heita á íslensku ætlar aö bera
nafn meö rentu, aö minnsta kosti völdu
53 blaðamenn, sem skrifa um bíla í 16
löndum, hann sem bíl ársins.
Þessi knái Itali sigraöi með 346
stigum, rétt á undan Peugeot 205 sem
fékk 325 stig, næstur var VW Golf meö
156 stig, Mercedes Benz 190 116 stig og
Mazda 626 meö 99 stig.
FIAT UNO — 346 stig.
Bíllinn sem kemur frá Fiatverk-
smiðjunum í Torino á Italíu hefur verið
á markaöi frá því í janúar 1983. Búið er
aö framleiöa 325 þúsund bíla og hefur
honum veriö fimavel tekiö hvarvetna.
Odýrasta geröin er Uno 45. Er hann
meö 45 hestafla og 900 rúmsentímetra
vél og nær 140 km hraða. Lúxusbíllinn,
Uno 70, er meö 1300 rúmsm. vél og 70
hestöflin skila honum allt aö 160 km
hraða.
Sparneytnastur er UNO ES. Miöað
viö 90 km jafnan hraöa þá eyðir hann
aöeins 4,3 lítrum á hundraöiö og í
innanbæjarakstri fer hann ekki meö
meiraen6,41ítra.
I þýska blaöinu Welt am Sontag þar
sem greint var frá vali Uno sem bíls
ársins var sagt frá áhuga bílaframleið-
enda á því aö framleiðsla þeirra næöi
því aö hlotnast þessi eftirsótti titill. En
ekki fylgir frægö ávallt frami. Var
getið í blaöinu hvernig bílar meö
þennan eftirsótta titil heföu selst í ár-
anna rás í Þýskalandi.
1975: Citroen CX hlaut titilinn. Tæp-
lega 7400 bílar seldust í Þýskalandi þaö
ár.
1976 : 30.300Þjóðverjarkeyptusérbíl
ársinsSimca 1307/08.
1977: Aðeins 845 bílar af geröinni
Rover 3500 seldust í Þýskalandi þrátt
fyrir að hann heföi hlotiö titilinn bill
ársins.
1978: Þrátt fyir sínar sjö hundruö
þúsund krónur náöi Porsche 928 áhuga
1850kaupenda.
1979: Crysler Simca Horizon fékk
titilinn og seldist í 20 þúsund eintökum
í Þýskalandi.
1980: Lancia Delta varö bíll ársins en
aöeins 720 kaupendur.
1981: Ford Escort varð bíll ársins
hjá 99.194 kaupendum sem þar uröu
sammála vali blaðamannanna.
1982: Þá varö Renault 9 fynir valinu
sem bíll ársins og því vali urðu 28.209
Þjóöver jar sammála.
1983: Audi 100 — einnig hann náði
góöri hylli Þjóöverja því í lok október
höföu selst um 68.500 bílar af þeirri
gerð.
1984: Fiat UNO. Þaö sem af er árinu
1983 hafa selst í Þýskalandi um 23
þúsund bílar þannig að honum er spáö
góöu brautargengi.
Merkasti Fiat
í tólf ár
Svo sagði Omar Ragnarsson um Fiat
Uno í reynsluakstri hérlendis á liönu
sumri. Þá sagöi Omar:
,,Fyrir tólf árum kom Fiat 127 fram
á sjónarsviðið og var kjörinn bíU árs-
ins í Evrópu. Þetta var tímamótabíll,
bíU sem aörir bílar voru miöaðir viö.
En að því hlaut aö koma aö arftaki
tæki viö. Hann heitir Fiat Uno.
Metnaöarfullt nafnið vekur spum-
inguna hvort hinn nýi bUl eigi eftir aö
verða numero uno í E vrópu, númer eitt
eins og 127 varð á sinni tíö. Engu skal
um þaö spáð, en eftir reynsluakstur er
hægt aö slá því föstu að hinn nýi bíU er
sannarlega fööurbetrungur og vel það.
Fiat Uno er aö mínu viti merkasti
bíU sem Fiatverksmiðjumar hafa
kynnt síöastUðin tólf ár.”
I reynsluakstrinum voru plúsar Fiat
Uno góöir aksturseiginleikar, óvenju-
rúmgott farþegarými, þróuö hönnun,
hæfUega mjúk/stinn fjöðrun, gott út-
sýni, þægUeg útfærsla á farangurs-
rými, spameytni, hljóðlátur á góöum
vegi og gott verð. Mínusar voru taldir
lágur frá jöröu, stutt og flatt aftursæti,
aðeins einn miðstöðvarhraði, hávaði í
meira lagi á grófri möl og takmörkuö
f jöðran á mjög slæmum vegum.
Reynslan á eftir að leiöa í ljós hver
framgangur Fiat Uno á eftir að veröa
hér á landi, en ljóst er að hann er vel að
titUnum kominn sem bíU ársins en viö
ramman reip verður að draga þar sem
mæta honum margir keppinautar í
svipuðum stæröar- og verðflokki.
-JR